Morgunblaðið - 13.06.1978, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1978
Erlendar fréttir í stuttu máli
Evrópubikarkeppnin
í frjálsum íþrúttum
DREGIÐ heíur verið í riðla í
karlaflokki fyrir Ebikarinn í
frjálsum íþróttum 1979 og mun
ísland keppa með Danmörku,
írlandi. Luxemhurg og Portúgal.
Keppnin fcr fram í Luxemburg
16. og 17. júní. Fyrstu 3 þjóðirnar
komast áfram í milliriðla sem
verða 30. júní og 1. júlí. Úrslita-
keppnin fer svo fram 4.-5. ágúst
í Torino á ítah'u.
Undankeppnin í kvennaflokki
fer aðeins fram í milliriðlum, þar
Sex ára gamalt
heimsmet slegið
PÓLSKA stúlkan Grazyna
Rabstyn setti um helgina nýtt
heimsmet í 100 metra grinda-
hlaupi, hljóp vegalengdina á
12,48 sek. Gamla metið 12,59 sek
hafði staðið í sex ár. Var það sett
á Olympfulcikunum í Miinchen
1972. Rabstyn setti metið á miklu
frjálsíþróttamó-ti í Fuerth í
V-Þýskalandi.
sem aðeins 24 þjóðir taka þátt í
henni. ísland er i riðli með
Austurríki, Danmörku, Frakk-
landi, V-Þýskalandi, Bretlandi,
Ungverjalandi og Júgóslavíu.
Keppnin fer fram í CWMBRAN
(nálægt Cardiff) í Englandi 30.
júní og 1. júlí. Úrslitin fara svo
fram í Torino á Ítalíu 4.-5. ágúst.
Evrópubikarkeppni í þrautum
1979
Með íslandi í riðli eru: írland,
Frakkland, Þýskaland, Bretland,
Ítalía, Sviss og Júgóslavía. Keppn-
in fer fram 14.—15. júlí en ekki er
búið að ákveða hvar hún verður, en
hún fer fram í einhverju af þeim
löndum sem eru í þessum riðli.
Úrslitin fara svo fram í Dresden
1. og 2. september.
10. Evrópumeistaramótið innan-
húss fer fram í Vín 24. og 25.
febrúar.
Eyrarsunds-leikarnir fara fram í
Helsingborg 8.-9. júlí 1978. Þetta
er keppni fyrir börn og unglinga
fædd 1958 og síðar.
Állar upplýsingar um leikana eru
veittar á skrifstofu FRÍ.
J
• Henry Rono frá Kenya hefur nú á skömmum tíma sett þrjú
stórglæsileg heimsmet. Hér sést Rono sýna glæsilcgan stíl þar sem hann
stekkur yfir vatnsgryfjuna í 3000 m hindrunarhlaupi.
Stórkostlegt heimsmet
STÓRIILAUPARINN Henry Rono frá Kenya setti nýtt heimsmct í 10
km hlaupi í Vínarhorg á sunnudag. Rono hljóp á 27.22.47 mín og bætti
gamla metið um heilar átta sekúndur. Mjög hagstæð skilyrði voru er
hlaupið fór fram. Fyrstu 1000 mctrana hljóp Rono á 2.47.5. Millitími
hans á 5 km var 13.49.0 som er fullboðlegur tími í 5 km á hvaða stórmóti
sem er. Síðustu 400 metrana hljóp Rono eins og spretthlaupari síðasta
hringinn á 57.0 sek. Tími hans í hlaupinu er í einu orði sagt frábær.
Rono á einnig heimsmetin í 5 km hlaupi og 3000 metra
hindrunarhlaupi.
Y >
• Nýbakaður heimsmeistari í hnefaleikum. Larry Holmes.
Stutt gaman
hjá Ken Norton
ÞAÐ VAR stutt gaman fyrir Ken
Norton, nýlega skipaðan heims-
meistara af öðru af tveimur
hnefaleikasamböndum í heimin-
um. Hann lék sinn fyrsta leik sem
heimsmeistari gegn Larry
Holmes, sem gerði sér lítið fyrir
og sigraði Norton á stigum.
Leikurinn var afar jafn, en með
góðum spretti í síðustu lotunni,
tókst Holmes að tryggja sér sigur
en þá var hann nærri því að leggja
Norton með syrpu af hægri handar
höggum. Sigurinn var naumur,
tveir af þremur dómurum dæmdu
Holmes sigurinn og hlutlausir
meðal áhorfenda voru ekki á eitt
sáttir með dóminn. Þrátt fyrir
sigurinn fær Holmes aðeins
500.000 dali fyrir þátttöku sína á
móti 2,5 millj. dala sem Norton
fær. En Holmes hlýtur titilinn og
Fréttamenn
velja HM-úrval
ERLENDIR fréttamenn, sem
fylgjast með HM í Argentínu, hafa
valið eftirfarandi úrvalslið eftir
fyrstu umferð keppninnar.
Liðið skipa þeir Ronnie
Hallström (Svíþjóð) í marki,
varnarmenn eru þeir Claudio
Gentile (Ítalíu), Ruud Krol (Hol-
landi), Hector Chumpitas (Perú)
og Maxime Bossis (Frakklandi).
Tengiliðir eru Osvaldo Ardiles
(Argentínu), Romeo Benetti
(Italíu) og Herbert Prohaska
(Austurríki) og framlínuna skipa
Juan Munante (Perú), Hans
Krankl (Austurríki) og Didier Six
(Frakklandi).
Þrír danskir
handknattleiks-
menn valdir
í heimslið
í SUMAR verður sovéska hand-
knattleikssambandið 50 ára og i
tilefni þess mun heimslið leika
gegn sovéska olympiuliðinu, scm
einnig varð í öðru sæti á HM í
Danmörku sællar minningar.
Lcikið verður í Kænugarði 13.
júlí. Hvorki fleiri né færri en þrír
leikmenn úr danska liðinu sem
kom svo mjög á óvart í HM hafa
verið valdir í heimsliðið og eru
Danir eins og vænta má í
skýjunum yfir tiðindunum. Það
voru þcir Michel Berg, Anders
Dahl Nielsen og markvörðurinn
frábæri. Mogens Jcppesen, sem
hlotnaðist fyrrnefndur hciður.
Þeir félagarnir eru að sögn allir
tilbúnir í slaginn.
möguleika á að græða fleiri
milljónir í ljóma hans. Þetta var
28. leikur Holmes sem atvinnu-
maður í hnefaleikum og enn hefur
hann ekki tapað leik.
• Tennisstjarnan Björn Borg
var ekki í vandræðum með að
sigra í opna franska meistara-
mótinu í tennis með miklum
yfirburðum.
„Björn Borg
er klettuf
ÍTALSKI tennisleikarinn Carrado
Barazutti lét orðin hér að ofan
falla um Björn Borg, er sá
síðarnefndi hafði burstað þann
fyrrnefnda 6:0, 6:1 og 6:0 í
undanúrslitum Opna franska
tennismótsins. Barazutti sagði
einnig: „Hann er langbestur, það á
enginn möguleika gegn honum."
Björn Borg vann sér leið í
úrslitaleikinn gegn Argentínu-
manninum Guilermo Vilas án þess
að tapa hrinu og hann vann Vilas
örugglega 6:1, 6:1 og 6:3. Vilas þótti
þó leika svo vel, að dugað hefði
gegn hverjum sem var, nema Birni
Borg. Með sigrinum bætti Borg
48000 döium í buddu sína og var
þó varla í hana bætandi.
Veömangarar veðja
á Argentínumenn
VEÐMANGARAR í Lundúnum
veðja nú ílestir á gestgjafana,
Argentínumenn, scm væntanlega
heimsmeistara. í öðru sæti koma
ítalir og Brasiliumenn, sem f
byrjun keppninnar voru álitnir
sigurstranglegastir, eru í þriðja
sæti ásamt Vestur-Þjóðverjum.
Næst á eftir þeim koma Pcrú-
menn sem í byrjun var ekki einu
sinni reiknað með, að kæmust í
átta liða keppnina.
irleikslok
ÍBÍ og KR léku á ísafirði á
laugardag í 2. deild íslandsmóts-
ins í knattspyrnu. Lauk leiknum
með jafntefli lil, og skoruðu
ísfirðingar jöfnunarmark sitt 10
sek. fyrir leikslok. Þetta er eina
markið sem KR hefur fengið á sig
til þessa.
Leikið var við mjög góðar
aðstæður á Isafirði, veður var gott
og malarvöllur ísfirðinga eins og
best verður á kosið.
I fyrri hálfleik var svo til alger
einstefna að marki ÍBÍ en þrátt
fyrir það gekk KR-ingum illa að
skora. Var það ekki fyrr en á 28.
mínútu að Stefán Örn Sigurðsson
einlék frá miðju vallarins fram hjá
hverjum varnarmanninum á fætur
öðrum og er hann kom inn á
markteig og átti aðeins markvörð-
inn eftir lét hann gott skot ríða af
og skoraði örugglega. Var þetta
glæsilega gert hjá Stefáni. I síðari
hálfleik léku Isfirðingar mun
betur en í fyrri hálfleik og tókst
að skapa sér nokkur marktækifæri
þó ekki tækist þeim að skora. Um
of reyndu ísfirðingar þó að senda
langspyrnur fram á Jón Oddsson,
sem átti að reyna að vinna úr
þeim, en tókst það ekki sem skyldi.
Er um það bil 10 mínútur voru til
leiksloka var dæmd vítaspyrna á
ísfirðinga. Björn Pétursson sem
var alveg nýkominn inn á var
látinn taka spyrnuna en ekki tókst
Birni betur til en svo með þessa
fyrstu spyrnu sína í leiknum að
hann skaut framhjá. Á lokamín-
útu leiksins fengu ísfirðingar
innkast við endamörk, og kastaði
Jón Oddsson langt inn í vítateig
KR-inga, þar náði einn ísfirðing-
urinn að skalla knöttinn inn í
markteig. Magnús Guðmundsson
markvörður náði til knattarins en
hélt honum ekki og náði Haraldur
Leifsson að skora af stuttu færi
við gífurleg fagnaðarlæti heima-
manna.
Ekki voru eftir af leiknum nema
10 sek. er markið var skorað. Lið
KR átti frekar slakan dag, þar var
meðalmennskan allsráðandi. í liði
ÍBV var Jón Oddsson bestur. Mega
Isfirðingar vel við una að ná öðru
stiginu út úr leiknum, ekki síst
vegna þess að í lið þeirra vantaði
fimm fasta leikmenn sem ekki
gátu tekið þátt í leiknum vegna
anna.
OG/ÞR
• Stefán örn Sigurðsson skoraði
mark KR eftir að hafa lcikið á
hvern ísfirðinginn eftir annan.