Morgunblaðið - 13.06.1978, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1978
Spánverjar
lögðu Svía
SPÁNVERJAR unnu sóðan sigur gegn Svíum, en þcgar upp var
staðið skipti sigurinn engu máli, því að á sama tíma vann Brasilía
lið Austurríkis og tryggði sig í átta liða úrslitin. Sigur Spánverja
var naumur, 1—0, en eftir atvikum sanngjarn.
Það voru lengst af Spánverjar
sem gáfu tóninn og var sókn
þeirra til muna þyngri, en bæði
liðin fengu þó sín tækifæri.
Ronnie Hellström varði snilld-
arlega frá Gomez af stuttu færi
og einnig frá Juanito, sem
komst einn inn fyrir vörn Svía
eftir laglega sendingu frá
Cardenosa. Juanito skaut einnig
yfir markið úr góðu færi og
Alonso skallaði í þverslána. Síar
léku mjög upp á það að senda
háar sendingar á kollinn á Ralf
Edström, en hann er ekki samur
leikmaður og fyrr. Hann átti þó
eitt dauðafæri í síðari hálfleik,
en þá bjargaði Isidoro á mark-
línu. Skömmu síðar var Ed-
ström kippt út af og Benny
Wendt settur inn á. Fáeinum
mínútum síðar var Wendt kom-
inn í gegn en Miguel Angel í
markinu varði mjög vel. Hann
varði einnig glæsilega þrívegis,
fyrst frá Nordin, síðan frá
Lennart Larson eftir horn-
ÆBT- *'•
"• ,-»v-
spyrnu og að lokum þrumuskot
frá Bo Larson.
Sigurmarkið kom ekki fyrr en
aðeins 15 mínútur voru til
leiksloka, en þá áttu Spánverjar
fallega sóknarlotu sem lauk með
því að Asensi skoraði með góðu
vinstri fótar skoti. Svíum tókst
ekki að jafna metin og nokkuð
sanngjarn sigur Spánverja var í
höfn en sem síðar kom í ljós
skipti hann engu máli.
LIÐ SPÁNARi Angel, Marcelino, Riosca,
Olmo (Pirri), San Jose, Uria, Asensi,
Leal, Cardenosa Juanito, Santillana.
LIÐ SVÍAi Hellström, Borg, Anderson,
Nordquist, Erlandson, Larson, Larson,
Sjöberg, Kanders (Linderoth), Nilson,
Nordin, Edström (Wendt).
DÓMARI. Biwersi frá V-Þýzkalandi.
— 13 mörk 1958
Eusabio — 9 mörk 1966
Gerd Miiller — 10 mörk 1970
MarkakóngurHM frá ifiphafi
IIIVERT skipti sem ÍIM kcppnin er yfirstaðin. lætur herramaður
á miðjum aldri fara vcl um sig í húsbóndastólnum heima hjá sér
og teygir sig eftir martini glasinu sínu, fær sér örlítinn sopa og
brosir út í annað munnvikið. Metið mitt stendur ennþá hugsar
hann með sér. Svona hcíur þetta verið fyrir Frakkann Just
Fontaine síðan heitan sumardag í Svíþjóð fyrir tuttugu árum. Þá
gerði Fontaine sér lítið fyrir og sendi knöttinn 13 sinnum í net
andstæðinganna og stendur það met enn í dag.
Næst honum hefur komist
fallbyssan frá V-Þýskalandi
Gerd Múller, sem náði að skora
10 mörk í Mexico. Kannski tekst
einhverjum að hnekkja metinu í
Argentínu, enn margir hallast
að því að markmet Frakkans
standi lengi enn. Lítum á
hverjir hafa verið markhæstir í
HM á undanförnum árum.
England 1966:
Eusabio (Portugal) 9
Haller (Vestur Þýskaland) 5
Beckenbauer (Vestur Þýs.) 4
Bene (Ungverjaland) 4
Porkujan (Sovét) 4
Hurst (Englandi) 4
Mexíkó 1970:
Gerd Múller (Vestur Þýs.) 10
Jairzhino (Brasilía) 7
Cubillias (Perú) 5
Pele (Brasilíu) 4
Vestur Þýskaland 1974:
Lato (Póilandi) 7
Edström (Svíþjóð) 5
Szarmach (Póllandi) 5
Rep (Hollandi) 4
Neeskens (Hollandi) 4
Gerd Múller (V-Þýskal.) 4
Arqentina78
Skotar báru höfuðið hátt
er þeir gengu af velli
— VIÐ vorum farnir að halda að okkur tækist að komast í átta
liða úrslitin þegar staðan var 3—1, sagði fyrirliði Skofa eftir leik
Hollands og Skotlands. Við heyrðum áköf hróp landa okkar á
áhorfendapöllunum og þau hjálpuðu okkur mikið. En draumurinn
• Miðherji skoska liðsins Joe Jordan er þarna
í kröppum dansi við varnarmenn írans í leik
Skota og íran sem endaði með jafntefli 1«1.
stóð ekki lengi, Rep skoraði
möguleikar okkar voru úti.
Stolt skosku knattspyrnunnar
fékk uppreisn er Skotum tókst
að sigra Hollendinga í síðasta
leik sínum í riðlakeppninni 3—2.
Léku Skotar mjög góða knatt-
spyrnu og voru nánast óþekkj-
anlegir frá fyrri leikjum sínum
í keppninni. Nú áttu 11 menn
góðan leik og börðust vel, en í
hinum fyrri voru einn eða tveir
sem léku af einhverri getu en
hinir sáust varla. Skotar hófu
annað mark Hollendinga og
leikinn af miklum krafti og
strax á 5. mínútu átti Joe
Jordan góðan skalla að marki en
rétt yfir þverslána. Á 10. mínútu
varð Neeskens að yfirgefa völl-
inn vegna meiðsla og kom það
nokkuð niður á leik hollenska
liðsins.
Það var stjarnan Robby
Rensenbrink sem náði foryst-
unni fyrir Holland með því að
skora úr vítaspyrnu á 34.
Rensenbrink
skoraöi 10OO
markiðí HM
ÞAÐ ERU 48 ár síðan fyrsta Heimsmeistarakeppnin í
knattspyrnu fór fram, í Uruguay. Fyrsta mark keppninnar
skoraði Bandarikjamaðurinn Mc Ghee, var það í leik
Bandaríkjanna við Belgiu.
Síðan þetta fyrsta mark var skorað hafa margar frægar
stjörnur sont knöttlnn \ n?tl() í kcinisincistsrHkoppRlríiRÍ í
knattspyrnu sem nú orðið er sjónvarpað um allan heim og dregur
að sér slíkan fjölda sjónvarpsáhorfenda að það er með ólíkindum.
í ieik Skota og Hollendinga skoraði vítaskyttukóngurinn Rob
Rensenbrink 1000. mark keppninnar frá upphafi úr vítaspyrnu.
Þar með skráði hann nafn sitt gylltum stöfum í sögu keppninnar.
Cubillias skoraði aðeins tveimur mínútum síðar úr vítaspyrnu í
leik Perú og íran 1001 markið. Hinn mikli knattspyrnusnillingur
Péle skoraði 1000. mark á ferli sfnum úr vítaspyrnu, er Iið hans
Santos lék á móti Vasco Da Gama í Brasilíu 1972. Rensenbrink
mun fá ýmis konar verðlaun frá ýmsum fyrirtækjum í Argentínu
fyrir að skora þetta sögulega mark. Sjaldan hafa 100 mörk verið
skoruð á IIM en þó hillir undir það í keppninni í Argentínu. Þegar
hún hófst voru mörkin í heild orðin 948.
Sá sem hefur skorað flest mörk í einni keppni er Frakkinn Just
Fontanie. alls 13 í Svíþjóð 1958. Það dugði samt ekki Frökkum
til að vinna bikarinn. Brasiliumenn með Péle, Vava, Didi, og
Garrincha í broddi fylkingar urðu heimsmeistarar.
mínútu. Var þetta sögulegt
mark þar sem þetta var 1000.
mark HM keppninnar frá upp-
hafi. Skotar létu þetta ekki á sig
fá og léku stórvel og sóttu ákaft.
' Rétt fyrir lok hálfleiksins sendi
Asa Hartford góðan bolta á Joe
Jordan sem skallaði áfram á
Kenny Dalglish sem sýndi
snilldartakta er hann sendi
knöttinn með miklum snúningi
í netið.
Síðari hálfleikur byrjaði með
stórsókn af hálfu Skota, og áður
en tvær mínútur voru liðnar
tókst Graeme Souness að brjót-
ast í gegn en brotið var gróflega
á honum og samstundis dæmd
vítaspyrna. Gemmill tók víta-
spyrnuna af mikilli yfirvegun og
stillingu og skoraði með glæsi-
brag. Var nú komin mikil
spenna í leikinn ekki síst vegna
þess að Skotar yfirspiluðu Hol-
lendinga á köflum og sóttu
ákaft.
Þegar 22 mínútur voru eftir af
leiktímanum bættu Skotar
þriðja marki sínu við. Gemmill
einlék í gegn um vörn Hollend-
inga, lék á í það minnsta þrjá
varnarmenn áður en hann
sveiflaði vinstra fætinum og
skaut þrumufleyg framhjá Jon
Jongblood, markverði Hollands.
Þetta er álitið fallegasta mark
keppninnar til þessa. Jafnframt
þótti einleikur Gemmills vera
hreint frábær. Allt ætlaði vit-
laust að verða hjá áhangendum
Skota sem horfðu á leikinn er
markið var skorað. En dýrðin
stóð ekki lengi. Spennan hélst
aðeins í þrjár mínútur. Fyrirliði
Hollands Rudi Krol sendi góðan
stungubolta inn á Rep sem var
ekki að tvínóna við hlutina,
brunaði upp völlinn og skaut af
löngu færi og skoraði.
Liö HoDandst Jan Jongbloed, Jan
Poortvliet, Rudi Krol, Wim Janssen,
Wim Suurbier. Wim Rijsbergen, (Peter
Wiidschut), Wiliy Van Ðer Kerkhof,
Johnny Rep.
Lið Skotlandst Aian Roueh, Willie
Donachie, Martin Buchan, Stuart
Kennedy, Tom Forsyth, Bruce Rioch, Asa
Hartford, Archie Gemmiil, Graeme
Souness, Kenny Dalglish, Joe Jordan.
Dómari Erich Linemayr frá Austur-
ríki.