Morgunblaðið - 13.06.1978, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.06.1978, Blaðsíða 11
Tónhvísl eftir GUÐMUND EMILSSON við því búist að hluti laganna verði fluttur á sérstökum tón- leikum í sal Menntaskólans við Hamrahlið er kórarnir snúa aftur til Reykjavíkur. Egill sagði að Kór Öldutúnsskólans í Hafnarfirði hefði fengið rúmar þrjár milljónir króna í styrk frá Norræna Menningarmálasjóðn- um til að standa straum af Skálholtsmótinu. Eiinig naut kórinn fyrirgreiðslu Mennta- málaráðuneytisins í þessu sam- bandi. Um Skálholtsmótið sagði Egill ennfremur, að það hafi aðallega verið þrennt sem vakað hafi fyrir sér með hugmyndinni um það: I fyrsta lagi, að gefa ungu söngfólki tækifæri til að vinna saman að uppbyggilegum verkefnum í fögru umhverfi, í öðru lagi, að styrkja norræn vinabönd og loks að gefa íslenskum kórstjórum og áhuga- mönnum um kórsöng tækifæri til að fylgjast með kórstjórum, sem hingað koma, við störf. Taldi Egill þetta ekki síður einstakt tækifæri en keppnina sjálfa. í sambandi við Skálholts- mótið mun Kennaraháskóli Is- lands halda sérstakt námskeið fyrir tónmenntakennara sem lýkur með því að Skálholt verður heimsótt og kórarnir og starfsemi þeirra kynnt þátttak- endum. Full ástæða er til að hvetja tónmenntakennara til að sýna þessu áhuga. Um tónleika kóranna í Reykjavík sagði Egill, að hann byggist fastlega við að aðsókn yrði mikil. Hann minnti á, að í fyrra hefðu aðgöngumiðar að Landsmóti Barnakóra í Háskólabíói selst upp á auga- bragði. Einnig að Hafnar- fjarðarkirkja hafi verið þéttset- in fyrir nokkrum dögum er kór Öldutúnsskólans kom fram og kynnti sum þeirra verkefna er hann hyggst flytja á keppnis- tónleikunum. Egill sagðist vilja nota þetta tækifæri til að koma á framfæri persónulegum athugasemdum um kórstarfsemi á íslandi og hvernig staðið er að henni í skólakerfinu. Hann sagði að í lögum um grunnskóla væri ekki kveðið á um starfrækslu kóra í skólum landsins. Það væri al- gjörlega undir viðkomandi tón- menntakennara og skólastjóra komið hvort kór væri starfrækt- ur. Egill sagði jafnframt að þeir sem hefðu kóra á sínum snærum ynnu starf sitt oft utan venju- legs skólatima og það kauplaust á stundum. Hann sagði að þetta mál hefði verið eitt af höfuð- verkefnum Félags tónmennta- kennara, en því miður ekki náð fram að ganga til þessa. Mikið hefur víst verið rexað í ráða- mönnum til að styrkja stöðu kórsöngs í skólakerfinu en með litlum árangri. Egill vonaði að kóramót þetta gæti orðið til þess að ýta við mönnum. Hann sagði það ósk sína, að kórarnir yrðu viðurkenndir sem sjálfsagður og æskilegur þáttur í skólastarfinu og að vinna við kóra~ yrði viðurkennd sem hluti af kennsluskyldu kennara. stigi, þar sem ættarhöfðinginn ræður öllu og síðara dæmið er ekki til.“ I 2. dálki (rétt neðan við miðju) á að standa: „Á Skólavörðustígn- um var raunar búinn til matseðill þjóðarinnar á grundvelli smekks og þarfa þeirra fáu, sem matseðilinn bjuggu til.“ AU(;I,VSINGASIMINN ER: 22480 JWarotmhlfltiib MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1978 11 Bj ör gunar sveitin Tryggvi á Selfossi fær gúmbát að gjöf Bjiirgunarsveitin Tryggvi tekur við gjöfinni frá Kiwanisklúhhnum Búrfelli á Selfossi. KIWANISKLÚBBURINN Búr fell á Selfossi hefur gefið hjörg- unarsveitinni Tryggva á Selfossi gúmhát af Zodiae gerð. Það var Andrés Sigmundsson hakarameistari sem fyrir hönd Kiwanismanna afhenti bátinn föstudaginn 19. maí s.l. Viðstadd- ir voru stjórnarmenn slysavarna- deildarinnar Tryggva Gunnars- sonar og björgunarsveitar deild- arinnar. sem veittu bátnum við- tiiku. Báturinn er hinn besti gripur og mjög nauðsynlegur að mati björg- unarsveitarmanna, en þeir eru kallaðir til hinna ólíkustu björg- unarstarfa víðsvegar um sýsluna. Auk þess er báturinn talinn henta mjög vel til aðstoðar og björgunar- starfa á Ölfusá, sem rennur í gegnum Selfosskaupstað. Við athöfnina kom fram að slíkur bátur hefur verið á óskalis'ta sem björgunartæki fyrir björgun- arsveitina og cr hann því hin rausnarlegasta gjöf, sem er með þökkum þegin. Björgunarsveitar- menn ætla nú að einbeita sér að því að eignast vél í bátinn og hyggjast þeir efna til happdrættis í fjáröflunarskyni bæði vegna vélarkaupanna og til styrktar annarri starfsemi. Samkvæmt upplýsingum Ólafs íshólms Jónssonar, formanns björgunarsveitarinnar, hefur sveitin starfað í 11 ár og hefur á því tímabili verið leitað til hennar um aðstoð og leitir í 90 skipti. Kiwanisklúbburinn Búrfell hef- ur á starfstíma sínum aflað fjár til margvíslegra mannúöar og líknar- mála. — Tómas Borvél og fleygur, sérlega hentug fyrir rafvirkja, pípulagningamenn og byggingameistara. Tekur bora upp í 32 mm og hulsubora upp í 50 mm. Slær 2400 högg/mín. og snýst 250 sn/mín. Mótor 680 wött. Fullkomin iðnaðarborvél með tveimur föstum hraðastillingum, stiglausum hraðabreyti (rofa, og afturábak og áfram stillingu. Patróna: 13 mm. Hraöastillingar: 0-750 og 0-1500 sn/mín. Mótor: 420 wött FÁLKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 Eigum einnig fyrirliggjandi margar fleiri gerðir og stærðir af Skil rafmagns- handverkfærum, en hér eru sýndar, ásamt miklu úrvali hagnýttra fylgihluta. Komið og skoðið, hringið eða skrifiö eftir nánari upplýsingum. Þetta er hin heimsfræga Skil-sög, hjólsög sem viðbrugðið hefur verið fyrir gæði, um allan heim í áratugi. Þvermál sagarblaðs: 7%". Skurðardýpt: beint 59 mm, við 45° 48 mm. Hraði: 4,400 sn/mín. Mótor: 1.380 wött. Létt og lipur stingsög með stiglausri hraöabreytingu í rofa. Hraði: 0-3500 sn/mín. Mótnr: 350 wött. Mjög kraftmikill og nákvæmurfræsari. Hraði: 23000 sn/mín. öflug beltaslípivél með 4” beltisbreidd. Hraði: 410 sn/mín. Mótor: 940 wött. Mótor: 750 wött. Óviðjafnanlegur hefill með nákvæmri dýptarstillingu. Breidd tannar:3”. Dýptarstilling: 0-3.1 mm. Hraði: 13.500 sn/min. Mótor: 940 wött. ÞEIR, SEM VILJA VÖNDUÐ VERKFÆRI, VELJA SKIL Einkaumboð á íslandi fyrir Skii rafmagnshandverkfæri. Stórviöarsögin með bensínmótor. Blaðlengd 410 mm og sjálfvirk keðju- smurning. Vinkilslípivél til iðnaðarnota. Þvermál skífu 7”. Hraði: 8000 sn/mín. Mótor: 2000 wött. Jafnan fyrirliggjandi í miklu úrvali RAFMAGNSm HANDVERKFÆRI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.