Morgunblaðið - 13.06.1978, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1978
21
Pétur
vann
glímuna
BIKARGLÍMA íslands fór fram
aö Laugum í Suður-Þingeyjasýslu
á lauRardaginn. Keppendur voru
sjö og þar af aðeins einn úr
Reykjavík, Halldór Konráðsson,
Víkverjum.
Sem og oft áður reyndust þeir
bræður Pétur og Ingi Yngvasynir
HSÞ öðrum sterkari og að þessu
sinni var það sem sigraði og hlaut
hann 5 vinninga, en Ingi var á
hælum hans með 4,5 vinninga. í
þriðja sæti var einn bróðirinn enn,
Kristján Yngvason, og hlaut hann
4 vinninga. E.vþór Pétursson var í
fjórða sæti með 3,5 vinninga.
Aðrir keppendur voru Halldór
Konráðsson, Hjörleifur Sigurðs-
son og Björn Yngvason.
JilÚ FÆR HBMURINN AÐ SJÁ
GLÆSILEGA KNATTSPYRNLT
— NÚ FYRST fær heimurinn að sjá glæsilega knattspyrnu, sagði
Þjálfari Brasilíumanna á blaöamannafundi eftir að riðlakeppninni var
lokið. — Geysimikil pressa og taugaspenna hefur hvílt á liðunum og
hefur paö bitnað á leik peirra, bætti Coutinho við.
Nú þegar HM-keppnin er hálfn-
uð liggur Ijóst fyrir hverjir þurfa að
pakka saman og bíta í það súra
epli aö halda heim á leiö. Þaö kom
í hlut Skotlands, Frakklands,
Svíþjóðar, Ungverjalands, Túnis,
Mexico, Spánar og fran. Átta
þjóöir eru eftir í hinni hörðu
I IDróttlr I
Leik frestað „vegna veðurs"
EKKERT varð af leik KA og Víkings í 1. deild á laugardaginn, en hann átti
að fara fram á Akureyri. Var ástæðan sögð sú, að Vængir heföu ekki treyst
sér til að fljúga með leikmenn Víkings til Akureyrar vegna veðurs.
Eflaust hafa Vængjamenn eitthvað til síns máls en samt kemur þessi skýring
undarlega fyrir sjónir þegar vitaö er að Flugfélag íslands flaug allan daginn
til Akureyrar, þar af þrjár ferðir fyrir leikinn. Vængjavél fór frá Akureyritil
Reykjavíkur klukkan 9 á laugardagsmorguninn og Omar Ragnarsson flaug
norður á eins hreyfils vél þennan sama morgun. Var ekki að sjá að veður
hamlaöi flugi í þessum tilfellum.
Óvíst er hvenær leikur KA og Víkings getur farið fram. Og kom það reyndar
ýmsum á óvart aö hann skyldi ekki leikinnn á sunnudag.
barattu um eftirsðttustu viður-
kenningu knattspyrnunnar, heims-
meistaratitilinn. Lokakeppnin
verður uppgjör, sem allur heimur-
inn bíður eftir.
í A-riðli eru Evrópuþjóðirnar
ítalía, V-Þýskaland, Austurríki og
Holland. Suður-Ameríkuþjóðirnar
Argentína, Perú og Brasilía eru í
B-riðli ásamt Pólverjum. Lengi
hefur verið deilt um hvort Evrópu-
þjóðir eða Suður-Ameríkuríkin
leiki betri knattspyrnu, nú fæst
góöur samanburður. Sigurvegar-
inn í hvorum riðli fyrir sig kemst í
úrslitaleikinn sem fram fer á Mar
Del Plata leikvanginum 25. júní.
Liðin í öðru sæti leika um 3.—4.
sætið 24. júní, einnig á Mar Del
Plata í Buenos Aires. Nú gildir að
ná sér í stig og liðin munu leggja
allt í sölurnar í riölakeppninni.
Strax á miövikudag verða stórleik-
ir, í A-riðli leika saman V-Þýska-
land og Ítalía og í B-riðli Argentína
og Pólland. Þá má búast við
spennandi viöureign í leikjum Perú
og Brasilíú og Hollands og Austur-
ríkis. Næstu tvær vikur munu augu
milljóna manna um allan heim
verða límd við sjónvarpsskerminn
er þeir fylgjast meö lokabarátt-
unni. Bein útsending er til allra
landa (nema íslands) t lit gegnum
gervihnött. Þar hefur mikil breyting
orðið á síðan fyrsta keppnin fór
fram í Uruquay fyrir 48 árum.
Erfitt er að spá um úrslit en ítalir
hafa leikið vel og eru sigurstrang-
legir. V-Þjóðvzrjar, núverandi
heimsmeistarar, eru heldur ekki
langt undan. Þrátt fyrir að þeir hafi
ekki sýnt neina snilli nema á móti
Mexico, þá skulum viö ekki gleyma
því að þjálfari þeirra, Helmut
Schön, spilar líka á ýmislegt utan
vallar. Því hefur t.d. verið haldið
fram aö hann hafi fyrirskipaö
sínum mönnum að ná aðeins
jafntefli við Túnis. Sigur kostaði
breytingar á umhverfi, flutning á
annan staö og aö leikið yröi á
öðrum stað. Þetta vildi Schön
forðast, það mátti engin röskun
verða hjá liðsmönnum. Gleymum
því ekki að 1974 í HM, þá töpuðu
V-Þjóðverjar fyrir A-Þjóðverjum
1—0. Helmut brosti aðeins, þrátt
fyrir skammir þýskra blaðamanna,
og sagöi: — Við erum að forðast
áð lenda á móti Hollendingum fyrr
en í úrslitaleiknum. Síðar kom á
daginn að hann hafði rétt fyrir sér.
Enginn skyldi heldur afskrifa
Hollendinga og Pólverja. Bæði
þessi lið hafa mjög leikreyndum
leikmönnum á að skipa sem þola
vel þá miklu pressu sem ávallt
fylgir svona stórkeppni. Með
hverjum leik eykst spennan. Hverj-
ir taka við gullbikarnum 25. júní?
Þar mun tíminn skera úr.
• Hinn glæsilegi heimsbikar
allur úr skíragulli. Eftirsótt-
ustu verðlaun í knattspyrnu-
heiminum.
IMánar er fjallað um HM á bls. 26,27 og 28
Sögulegt mark
• Sögulegt mark. 1000. mark í sögu heims-
meistarakeppninnar í knattspyrnu skorað úr
vítaspyrnu af Hollendingnum Rensenbrink á
móti Skotum. Alan Rough gerir heiðarlega
tilraun til að verja en tekst ekki. Aðeins tveim
mínútum síðar skoraði Cubillias frá Perú 1001
mark HM.
Úvæntur sigur Hannesar
í Dunlop golfkeppninni
HANNES Eyvindsson
GR sigraði örugglega í
Dunlop keppninni í
golfi sem fram fór um
helgina á vegum Golf-
klúbbs Suðurnesja.
Sigur Hannesar var verð-
skuldaður og var hann sex höggum
á undan næsta manni. Hannes er
nú að skipa sér í röð okkar fremstu
kylfinga og verður fróðlegt að
fylgjast með árangri hans í næstu
mótum. Þátttaka í Dunlopmótinu
Góðir
ffmar
hjá
Ágústi
ÁGÚST Ásgeirsson ÍR keppti í
síðustu viku á þremur frjálsíþrótta-
mótum í Tékkóslóyakíu.
Hann keppti tvisvar í 1500 metra
hlaupi og einu sinni í 800 metra
hlaupi og fékk bezt tímana 3,49,8
mínútur í 1500 metrunum og 1,52,2
mínútur í 800 metrunum. Þetta eru
beztu tímar íslendings á þessum
vegalengdum í ár.
Ágúst er nú staddur í Austur-Ber-
lín, þar sem hann.keppir í vikunni.
var mjög góð og allir okkar
sterkustu golfleikarar tóku þátt í
mótinu. Alls voru leiknar 36 holur
í keppninni og urðu úrslit þessi án
forgjafar:
Hannes Eyvindsson GR
77 _ 74 - 151
Eiríkur Þ. Jónsson GR
77 - 80 - 157
Ragnar Ólafsson GR
.81 -- 78 - 159
Gylfi Kristinsson GS
84 - 75 - 159
Með forgjöf sigraði Hannes
Eyvindsson einnig, lék á 141 höggi
sem er þrem höggum undir pari
vallarins. Tíu fyrstu menn í
keppninni hlutu stig til landsliðs.
- þr.
• Eiríkur .lónsson t.v. óskar Ilannesi Eyvindssyni til hamingju með
sigurinn í keppninni. Eiríkur varð í öðru sæti.
Ljósmynd Óskar Sæm.