Morgunblaðið - 13.06.1978, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 13.06.1978, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1978 Hörð keppni um Norð- urlandameistaratitilinn Norðurlandamótið í bridge er nú hálfnað. I opna flokknum eru Svíar í efsta sæti með 69 stig. en Norðmenn ok Danir fylsja fast á eítir með 67 og 64 stig. Þessar þrjár sveitir cru í sérflokki af fimm sveitum sem taka þátt í þessum flokki. íslendinKar eru í fjórða sæti með 28 stig en hafa ekki enn unnið leik. Finnar eru í neðsta sætinu með 24 stij?. en þeir unnu íslendinga í fyrstu um- ferðinni. í kvennaflokki eru sænsku konurnar nokkuð í sér flokki. hafa unnið alla sína leiki. Hafa þær fengið 46 stig en dönsku konurnar eru í öðru sæti með 32 sti>í. í þriðja sæti eru finnsku konurnar með 24 stig og íslenzku konurnar reka lestina með 18 stig. Úrslitaleik- urinn í kvennaflokki verður líkleKa spilaður í kvöld en þá spila saman Svíþjóð og Dan- mörk ok verða þær síðarnefndu að vinna leikinn til að eiga möguleika á sigri í mótinu. í unKÍingaflokki eru spilaðar þrjár umferðir oj? í fyrstu umferð unnu Norðmenn báða sína ieiki. en í annarri umferð töpuðu þeir óvænt fyrir íslend- injjum 3—17 stig ok jafnaði það keppnina til muna. Norð- menn eru með 51 stig, Svíar með 48 stig og íslenzku pilt- arnir með 29 stig. I. umferð: Opinn fiokkur: Annar leikurinn var millí Finna og íslendinga. Var' fyrri hálfleikur mjög vel spilaður af báðum sveitum og hafði islenzka sveitin aðeins hlotið 9 punkta á móti 19 stigum Finna þegar hálfleiknum lauk. Segir það nokkuð til um gang hálfleiksins. í síðari hálfleik fór að verða meiri handagangur í öskjunni en sveiflurnar urðu þó meira Finnum í hag. Lokatölur urðu þær að Finnar unnu leikinn nokkuð örugglega og fengu 17 stig gegn 3. Ekki var vitað mikið um finnsku sveitina fyrir keppnina, en lokatölur sýndu að þeir höfðu áður tekið í spil. Leikurinn, sem sýndur var á sýningartöflu, var milli Dana og Norðmanna. Danir voru álitnir mjög sigurstranglegir fyrir leik- inn. Hafa þeir spilað mikið að úndanförnu og verið mjög sigur- sælir. Það kom því nokkuð á óvart að Norðmenn tóku fljót- lega forystu í leiknum og Danir höfðu aðeins fengið 9 punkta eins og Islendingar þegar fyrri hálfleik lauk en Norðmenn höfðu fengið 40 punkta. Seinni hálfleikur var svo í jafnvægi og endaði leikurinn með sigri Norðmanna 17—3. Kvennaflokkur: Annar leikurinn var milli íslands og Finnlands og í hálfleik höfðu íslenzku konurn- ar örlitla forystu, en urðu að láta í minni pokann í síðari hálfleik og töpuðu leiknum 6-14. Hinn leikurinn var milli dönsku og sænsku kvennanna. Sænsku konurnar unnu báða hálfleikina og þar með leikinn. Úrslit urðu Svíþjóð 18 — Dan- mörk 2. Unglingaflokkur: Aðeins einn leikur er spilaður í hverri umferð í unglingaflokki og var fyrsti leikurinn milli íslands og Noregs. Fyrri hálf- leikurinn var einstefna Norð- manna og var staðan í hálfleik Frá Norðurlandamótinu í bridge í gær. Guðmundur Pétur^son og Karl Sigurhjartarson spila hér gegn Per Breck og Reidar Lien írá Noregi. Norðmenn unnu leikinn 17i3. en þeir eru í öðru sæti í opna flokknum. 69—7 fyrir þá. I síðari hálfleik gekk öllu betur en erfitt var að vinna upp þennan mikla mis- mun sem orðinn var og enda þótt íslenzku strákarnir ynnu síðari hálfleikinn þá tapaðist leikurinn 20—0. I opna salnum spiluðu Skúli Einarsson og Sigurður Sverrisson seinni hálf- leikinn og voru þeir mjög farsælir gegn Stabell og Stabell sem spiluðu síðari hálfleik nánast eins illa og þeir höfðu spiiað fyrri hálfleikinn vel. Brldge Umsjón ARNÓR RAGNARSSON 2. umferð: Opinn flokkuri A sýningartöflunni var sýnd- ur leikur Islendinga og Svía. Islendingar tóku strax forystu í leiknum og héldu henni þar til í 10. spili að Hallén og Stenberg sögðu og unnu alslemmu á mjög punktalitlar hendur á meðan landinn lét sér nægja 6 hjörtu. En Adam var ekki lengi í Paradís. Eftir mikla sagnhörku kvittuðu Guðmundur og Karl fyrir þetta spil strax í 13. spili. Komust þeir í 6 hjörtu enda þótt, eins og í fyrra spilinu, ekki væri mikið um punkta. Svíar „dobluðu“ en Guðmundur Pét- uráson fylgdi sannfæringu sinni vel eftir og „redoblaði". Hann vann síðan sitt spil með yfirslag. Leikurinn hélzt jafn nema hvað landinn hafði ætíð forystu, en svo fór að leikurinn endaði 10-10. Hinn leikurinn í opna flokkn- um var milli Finna og Dana. Danir höfðu tapað fyrir Norð- mönnum í fyrsta leiknum og Finnar unnið Islendinga. Mátti búast við skemmtilegri viður- eign. Danir höfðu þó ætíð frumkvæðið í fyrri hálfleik og var staðan 54—19 fyrir þá í hálfleik. Seinni hálfleikurinn endaði svo með jafntefli, þannig að Danir unnu með 17—3. Kvennaflokkur: Frí Unglingaflokkuri I þessum flokki mættust Svíar og Norðmenn. Það virðist sem norsku strákarnir séu yfir- burðamenn í þessum flokki. í hálfleik höfðu þeir 62 stig gegn 24, og minnti það óneitanleg á stöðuna í leiknum við Island. Það fór líka svo að Norðmenirn- ir töpuðu seinni hálfleiknum, en það gerðist einnig í leiknum við Islendinga. Lokatölur urðu þær að Noregur vann leikinn 16—4. Opinn flokkur Annar leikurinn var milli Dana og Svía. Fyrri hálfleikur var mjög vel spilaður af báðum aðilum og var staðan í hálfleik 23—25 fyrir Svía. Seinni hálf- leikur var einnig i jafnvægi en Danir skoruðu þó öllu meira. Endaði leikurinn 12—8 fyrir Dani. Hinn leikurinn var milli Norðmanna og Finna. I hálfleik höfðu Norðmenn fengið 54 punkta á móti 10. Seinni hálf- leikurinn var algjör einstefna hjá Norðmönnum og skoruðu þeir 71 punkt á móti 3 og Finnar urðu að þola mínus 5 stiga tap. Fyrstu mínusstigin í mótinu. Kvennaflokkur Leikur dönsku kvennanna og þeirra íslenzku var sýndur á sýningartöflu. íslenzku konurn- ar spiluðu vel í fyrri hálfleikn- um og_í 15. spili varð mesta sveiflan í fyrri hálfleiknum. Þá spiluðu dönsku konurnar 3 grönd og urðu 5 niður á hættu á meðan íslenzka parið spilaði 5 lauf sem var mjög viðkvæmt í vörn fyrir dönsku konurnar, enda fór svo að þær gáfu spilið í vörn. I hálfleik var staðan 19—49 fyrir ísland. Seinni hálfleikur var nánast martröð fyrir íslenzku konurn- ar. Halla og Kristjana áttu slæman dag á meðan andstæð- BRÍDGÉ Umsjón: PáH Bergsson Ungu mennirnir íslenzku eru fremur óheppnir, að tvær Norðurlandaþjóðanna skulu ekki senda lið til þátttöku í flokki þeirra á norræna bridge- mótinu. Vegna mikils ferða- kostnaðar senda hvorki Danir né Finnar landslið sín í yngri flokki og keppa því íslenzku sveinarnir við tvö af sterkustu unglingaliðum Evrópu. Enda töpuðu þeir fyrstu tveim leikjum sínum með miklum mun. Keppnisreynsla Svianna og Norðmannanna er mun meiri. Þó eru íslendingarnir alls engir skussar og unnu þriðja leikinn. Eftir annan tapleikinn sagði einn þeirra, Skúli Einarsson, að lærdómsríkt væri að taka þátt í svona móti og þó slæmu spilin væru mörg væru líka til góð. Spilið hér að neðan sýnir vel heppnaða baráttu um töluna þó uppskeran væri ekki mikil. Það var spilað í leik við Svía. Norður gaf allir á hættu. Norður S. G10865 H. 762 T. 8 L. Á764 Vestur Austur S. KD32 S. Á4 H. 95 H. DG108 T. KDG954 T. 10763 L. D L. 1082 Suður S. 97 H. ÁK43 T. Á2 L. KG953 íslendingarnir náðu lokasögn- inni í báðum herbergjum. I öðru tilfellinu sátu Sigurður Sverris- son og Skúli í norður-suður og sagnirnar gengu þannig: Noróur Austur Suóur Vestur pass pass 2 L 2 T 2 S 3 T 3 II pass I L aJlir pass. Vestur spilaði út tígulkóng, sem suður tók og spilaði spaða. Vestur lét lágt og þar með var vinningur tryggður. Austur skipti í hjarta en allt kom fyrir ekki. Sagnhafi gat- alltaf trompað fjórða hjartað í borði. 130 til íslands. Á hinu borðinu sátu Þorlákur Jónsson og Haukur Ingason í austur-vestur. Nordur pas« 3 L pass Austur Surtur Vcstur pass 2 L 2 T 3 T 3 II 3 S3 I T allir pass Fremur hart sótt en þeir sluppu við doblið og Þorlákur fékk sína níu slagi. 100 í tap en í allt 30 græddir eða 1 impi. ingar þeirra spiluðu mjög vel. Þegar upp var staðið höfðu dönsku konurnar 20 punkta forskot eftir að hafa haft 30 punkta undir í hálfleik. Dönsku konurnar unnu því leikinn 14-6. Hinn kvennaleikurinn var milli Svía og Finna. í hálfleik var staðan 23—24 en í seinni hálfleiknum spiluðu sænsku konurnar öllu betur og lauk leiknum með sigri þeirra 14—6. Unglingaflokkur Islenzku piltarnir spiluðu gegn Svíum og í hálfleik var leikurinn í jafnvægi 22—23 fyrir Svía. Seinni hálfleikurinn var nokkuð á sömu lund og hjá konunum. Islenzku strákarnir fengu 6 punkta á móti 63 punktum Svía. Má þar nefna að íslenzku strákarnir misstu af tveimur slemmum og tveimur úttektarsögnum. Það varð því ekki við neitt ráðið og tapaðist leikurinn 20—0. 4. umferð Opinn flokkur Annar leikurinn var milli Svía og Norðmanna. Svíar höfðu ekki unnið leik en Norðmenn báða sína leiki örugglega. I hálfleik höfðu Svíar skorað 40 punkta á móti 29 Nórðmanna og allt gat gerzt. Spilin í síðari hálfleik gáfu ekki tilefni til mikilla sveiflna en samt fór svo að hálfleikurinn var nánast einstefna fyrir Svíana sem fengu 44 punkta á móti 10 punktum Norðmanna og unnu Svíar leikinn með 19—1. Leikur Islendinganna á móti Dönum var sýndur á sýningar- töflu. Eftir 13 spil var leikurinn í jafnvægi en þá hrundi leikur- inn hjá Islendingunum og höfðu Danir 38 punkta forystu í hálfleik. Svo mikinn mun er erfitt að vinna upp á móti svo sterkum spilurum sem Danir eru. Spil 26 var mjög örlagaríkt fyrir Islendingana. Jón Ás- björnsson spilaði 3 grönd sem var á flestum borðum lokasamn- ingurinn. Spilið var viðkvæmt í úrspili og Jón tapaði því og kom það á óvart því Jón er orðlagður fyrir nákvæmni í spilum sem þessum. Þá tapaði Kristín Þórð- ardóttir þvi einnig í kvenna- flokknum en á flestum öðrum borðum vannst spilið. Lok leiksins urðu þau að íslendingar fengu ekkert stig á móti 20 stigum Dana. Kvennaflokkur Danmörk spilaði á móti Finn- landi. Dönsku konurnar spiluðu fyrri hálfleikinn mjög vel og höfðu 32 punkta forskot í hálfleik sem þær héldu til loka leiksins og unnu þær leikinn 16—4. Islenzku konurnar spiluðu gegn þeim sænsku og í h^lfleik var staðan 31—20 fyrir Svi{)jóð. Seinni hálfleikur var nánast endurtekning á þeim fyrri. Islenzku konurnar fengu 22 punkta á móti 30 punktum sænsku kvennanna og fengu íslenzku konurnar 6 stig á móti 14. Var þetta í þriðja sinn sem þær fá 6 stig í leikjum sínum og vantar ætíð herzlumuninn til að leikir þeirra vinnist. Unglingaflokkur íslendingarnir spiluðu gegn Norðmönnum sem voru lang- efstir í þessum flokki. Það kom Framhald á bls. 32

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.