Morgunblaðið - 13.06.1978, Síða 37

Morgunblaðið - 13.06.1978, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1978 37 reynast réttar eður ei er hættan fólgin í þeirri staðreynd að haukarnir innan Sovétríkjanna sem stöðugt hafa á heilanum hernaðarlegt öryggi og hug- myndafræðilegan rétttrúnað, gætu gripið þetta tækifæri sem skapast af hinum nýju grun- semdum og binda enda á fram- vindu slökunarinnar. Þó að slíkt hefði ekki svipuð viðbrögð í för með sér hjá okkur nema að takmörkuðu leyti er ekki erfitt að ímynda sér harkalegt afturhvarf til spennu- tímabils sjötta áratugsins. Á heimskortinu eru fjölmargir punktar sem tákna staðbundna ófriðarhættu. Hvor aðili um sig væri ekki í minnstu vandræðum með að gera lífið óbærilegt fyrir hinn. Hin siðferðilega hlið slökun- arstefnunnar er augsýnilega viðkvæmt mál. Við getum engan veginn annað en látið í ljós samstöðu með þeirri djarflegu afstöðu sem rússneskir andófs- menn hafa tekið með því að fara Leonid Brésnev þess á leit að ákvæði stjórnar- skrár Sovétríkjanna, Helsinki- sáttmálinn og Mannréttindayf- irlýsing SÞ verði í raun virt innan sovéska ríkisins. En við skulum ávallt hafa það hugfast að frá ómunatíð hefur leitin að frelsi eins og við skiljum það hugtak, aldrei komist af draumastiginu. Enginn skynsamur athugandi getur þó verið í vafa um það í augnablikinu að hvorutveggja kommúnisminn í austri og hið vestræna lýðræði munu stand- ast um ókomna framtíð. Hvor- ugur aðilinn mun af fúsum og frjálsum vilja brjóta niður þjóðfélagskerfi sitt, né verða þvingaður til þess af hinum aðilanum. Það sem er því um að ræða er, að draga baráttuna milli þeirra út úr skugga eyði- leggingarinnar, fram í ljós uppbyggjandi friðsamlegrar sambúðar. Einasti möguleikinn Sá háttur sem hin nýju stjórnvöld hafa á við að fást við málin virðist hvorki vera skýr né vænlegur til árangurs: Sú tilhneiging sem ráðandi er í augnablikinu og leggur áhersl- una á mannréttindi á sér talsmenn eins og Zbigniew Bretzienski ráðgjafa forsetans í öryggismálum. Cyrus Vance utanríkisráðherra virðist hafa verið í klípu þegar hann sagði nýlega. „Um leið og við höldum fast við stefnu okkar í mann- réttindamálum verðúm við ávallt að hafa í huga þau takmörk sem valdi okkar og visku eru sett“. Carter forseti hefur sjálfur játað hreinskiln- ingslega eins og hans er vandi, að hann hafi furðað sig á viðbrögðum Rússa við afstöðu hans og „að þau hafi skapað meiri hindranir á leiðinni að sameiginlegum markmiðum — til dæmis SALT viðræðunum, en þau viðbrögð sem hann hafði búist við“. Verðum við því að láta meira af hendi í samningaviðræðunum um hin raunverulegu vandamál sem að steðja, vegna þess að það andrúmsloft gagnkvæms trausts sem undanfarandi ríkis- stjórnir hafa skapað hefur verið eitrað af þeirri gremju sem skapast hefur vegna þess stíls sem þær fara nú fram í. Að tengja saman þíðu í alþjóðlegum samskiptum og opnun hins sovéska kerfis, og gera það opinberlega og harka- lega, er ekki aðeins að sprengja undirstöður slökunarstefnunnar í loft upp, heldur er það einnig án efa að hindra það að sjálf mannréttindin í Sovétríkjunum sjái dagsins ljós. Eina vonin til þess að stjórn- arfarið þar verði frjálsara er fólgin í því að átak verði gert í þá átt að fá þau öfl innan kerfisins sem minnst eru flækt í net fræðikenninga til viðræðu um uppbyggjandi samvinnu, byggða á samskiptum á sviði viðskipta, vísinda og tækni. Þessi hernaðaraðferð sem bygg- ir á því hve miklu framar við stöndum hvað efnahagslegar framfarir varðar og þeirri full- vissu að frelsi einstaklingsins fylgi í kjölfarið er í fyllsta samræmi við hugsjónir Banda- ríkjamanna. Eg er sammála þeirri skýr- ingu Andrei Sakharovs að lækn- ing hinna stöðugu meina er hrjá sovéskan landbúnað og iðnað sé fyrst og fremst komin undir lýðræðislegum umbótum og að- lögun hins sovéska efnahags- kerfis smátt og smátt að mark- aðskerfi heimsins. Ef Sovét- menn ætla sér ekki að verða annars flokks stórveldi, verða þeir að leggja nýjan skilning í hugtökin framleiðsla, dreifing og stjórnun. Slík tilraun verður óhjá- kvæmilega óaðskiljanleg frá tjáningarfrelsi og frelsi til samskipta. Ef Amalrik getur ekki skrif- að, Rostropovitch ekki leikið, Panov ekki dansað og Levich ekki kennt, getur tæknifræðing- urinn ekki heldur gert neinar raunverulegar uppgötvanir, verkfræðingurinn ekki framleitt og framkvæmdastjórinn ekki stjórnað. Á tímum hinna öru tæknilegu framfara getur ekki orðið um trausta efnahagslega framþróun að ræða nema and- legt frelsi sé fyrir hendi. Þennan lærdóm má draga af reynslu þjóðar okkar sjálfrar og nánar tiltekið er þetta lögmál boðskap- ur okkar til alheimsins. Þetta ætti að vera hreinskilnislega og yfirvegað þungamiðja stefnu okkar gagnvart Austantjalds- löndunum. undirtektir. T.d. var samþykkt ályktun á fundi að Hótel Esju að skorað væri á alla stjórnmála- flokka að taka persónubundnar kosningar upp á stefnuskrá. Fram- kvæmdanefnd Valfrelsis álítur að nú sé tækifæri okkar hinna almennu kjósenda að fylgja þessum málum eftir og sjá svo um að þessar breytingar á stjórnskip- an landsins dragist ekki á langinn. Fyrr en hinir almennu kjósendur taka þátt í afgreiðslu mála er lýðræðið ekki fullkomið. F.h. Valfrelsis. Sverrir Runólfsson, ábyrgðarmaður. Verkfalli hótel- fólks er lokið í Barcelona Barcolona. 10. júní. Reutor. VERKFALLI starfsfólks veitinga- og gistihúsa í Barcelona lauk á laugardagsmorgun eftir að sam- komulag hafði tekizt við vinnu- veitendur. Verkfallið hófst á miðvikudag og olli hinum mestu vandræðum á fjölmörgum hótel- um þar sem þjónusta við ferða- menn varð þar af leiðandi í lágmarki. KL barnaöryggiutólar hata hlotið sérataka viöurkenningu HÖGGDEYFAÚRVAL FJAÐRIR KÚPLINGSDISKAR KÚPLINGSPRESSUR SPINDILKÚLUR STÝRISENDAR VIFTUREIMAR KVEIKJUHLUTIR FLEST í RAFKERFIÐ HELLA aðalluktir, lukta- gler, luktaspeglar og margs konar raf- magnsv. BOSCH luktir o.fl. S.E.V. MARCHALL lukt. CIBIE luktir. LJÓSASAMLOKUR BÍLAPERUR allar geröir RAFMAGNSVÍR FLAUTUR 6—24 volt ÞURRKUMOTOR 6—24v ÞURRKUBLÖÐ ANCO ÞURRKUARMAR BREMSUBORÐAR BREMSUKLOSSAR ÚTVARPSSTENGUR HÁTALARAR SPEGLAR í úrvali MOTTUR HJÓLKOPPAR FELGUHRINGIR AURHLÍFAR MÆLAR alls konar ÞÉTTIGÚMMÍ OG LÍM HOSUR + KLEMMUR RUÐUSPRAUTUR FELGULYKLAR LOFTPUMPUR STÝRISHLÍFAR KRÓMLISTAR BENSÍNLOK TJAKKAR IV2—100T VERKSTÆÐISTJAKKAR HNAKKAPÚÐAR ÖSKUBAKKAR FARANGURSGRINDUR BÖGGLABÖND SMURSPRAUTUR PÚSTRÖRAKLEMMUR RAFKERTI LOFTFLAUTUR BENZÍNSÍUR EIRRÖR+FITTINGS BRETTAKRÓM VERKFÆRI SLÍPIPAPPÍR VATNSDÆLUR ÞVOTTAKÚSTAR SMURKOPPAR SÆTAÁKLÆÐI MIÐSTÖÐVAR DRÁTT ARKÚLUR VAGNTENGI, KRÓKAR HLJÓÐKÚTAR — THRUSH SMURSPRAUTUR VERKFÆRI úrval MÆLITÆKI f. rafgeyma NOACK sænskir úrvals rafgeymar ISOPON OG P-38 beztu viögerða- og fyllíefnin PLASTI-KOTE sprey- lökkin til blettunar o.fl. Athugið allt úrvalið OPIÐ til kl. 7 föstudaga, lokaö laugardaga •jnaus tkt SlÐUMÚLA 7—9 - SlMI 82722 REYKJAVlK Steypumót Seljum flekamót, kranamót, lofta undirslátt, stoðir, verkpalla og aðrar vörur til byggingaframkvæmda. Veröiö er mjög hagstætt. Tæknisalan Sími 36103 og 42789. KMSTINN GIIÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI 86633 öö og regli á öllum skjölum Art Metal skjalaskápar 2ja, 3ja og 4ra skúffu skápar ásamt pokasettum og möppum fyrirliggjandi. ^Egill Guttormsson hf. UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN Suðurlandsbraut 4. Reykjavík. Sími 82788. RHUUIIT12 ódýr spamey tinn lúxusbíll Stöðugt hækkandi bensínverð er áhyggjuefni flestra bifreiðaeigenda. Af þeim sökum hefur athygli manna beinst að spameytnum bifreiðum. RENAULT 12 er frekar stór, rúmgóður en umfram allt, eyðir mjög litlu bensíni. RENAULT 12 er með framhjóladrif sem eykur ökuhæfni við allar aðstæður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.