Morgunblaðið - 13.06.1978, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1978
47
Upptök mesta hótel-
bruna í Svíþjóð ókunn
Utan seilingar. Carter Bandaríkjaforseti gerir árangurs-
lausar tilraunir til að handsama flugdisk sem starfsmenn
Hvíta hússins hentu til hans, er allt starfsliðið snæddi
máltíð í garði Hvita hússins einn sólríkan júnídag.
Pravda átelur
Carter forseta
Moskva, 12. júní, Ruter — AP.
MÁLGAGN sovézka kommúnista-
flokksins Pravda gagnrýni Cart-
er Bandaríkjaforseta í dag harð-
lega fyrir stefnu hans í mannrétt-
indamálum og sagði hana
„hræsnisfulla baráttu, sem til
þess eins væri gerð að íela þau
vandamál. sem að kapítölsku
rikjunum steðjuðu“.
Þá sagði Pravda að gagnrýni
Carters á mannréttindamál í
Sovétríkjunum væri samkvæmt
Helsinki-sáttmálanum afskipti af
Móðgaðir
sovét-
fulltrúar
ganga úr
veizlum
í Peking
Peking, 12. júní, AP.
FULLTRÚAR Sovétríkjanna og
A-Evrópu gengu út úr veizlu sem
haldin var í alþýðuhöllinni í
Peking í gærkvöldi og er það í
annað sinn sem slíkt gerist á
fjórum dögum, en ástæðan voru
ummæli varaforsætisráðherrans
Li Hsien-Nien, sem ásakaði Rússa
fyrir að reyna með öllum hætti að
færa út kvíarnar á S-Kvrrahafs-
svæðinu.
Fulltrúarnir gengu út í þann
mund er Kínverjar buðu forsætis-
ráðherra Fijii-eyja velkomin í
opinbera heimsókn, en Ratu Sir
Kamisese Mara hafði komið til
Peking fyrr um daginn og var
veizlan haldin til heiðurs honum.
Áður höfðu sovézku fulltrúarnir
gengið út í mótmælaskyni s.l.
fimmtudag þegar annar varafor-
sætisráðherra Kína, Teng Hsiao-
ping, ásakaði Sovétríkin um íhlut-
un í Afríku. Þetta er í þriðja sinn
sem móðgaðir Sovét-fulltrúar
ganga úr opinberum veizlum í
Peking á þessu ári.
innanríkismálum landsins. Gagn-
rýni Pravda nú er til komin vegna
skýrslu, sem Carter afhenti-
bandaríska þinginu nýlega um
ástand mannréttindamála í
Sovétríkjunum og hversu miklu
mannréttindaákvæði Helsinkisátt-
málans hefðu breytt þar um.
Á sunnudag sagði Pravda að
ræða Carters í síðustu viku um
sambandið við Sovétríkin væri
„óleyfileg uppákoma", sem minnti
á orðaskipti ríkjanna á meðan
kalda stríðið stóð yfir.
Um Afríku sagði Pravda: „Full-
yrðingar um að umsvif Banda-
ríkjamanna í Zaire séu „takmörk-
uð“ blekkja engan. íhlutun Banda-
ríkjanna í málefni Víetnams hófst
einnig með því að þangað voru
sendir nokkrir „ráðgjafar", sem
örugglega voru ekki fleiri en þeir
325 sem nú eru í Zaire.“
I blaðinu Washington Post segir
í dag að 14 þingmenn bandarísku
fulltrúadeildarinnar hafi sent
Carter forseta bréf þar sem þeir
biðja hann ab gera grein fyrir
afstöðu sinni til samskipta Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna og
afstöðu sinni til málefna Afríku.
Starfsmaður í Hvíta húsinu sagði
í dag að ræða Carters í fyrri viku
markaði mjög greinilega stefnu
hans í samskiptunum við Sovétrík-
in, en viðurkenndi jafnframt að
honum væri ekki kunnugt um
stefnu Carters í Afríku-málunum.
Stokkhólmi, 11. júní, AP.
ENN LOGAÐI í glæðum bruna-
rústa hótelsins í Borás í Svíþjóð
á sunnudagsmorgunn næstum
sólarhring eftir að eldurinn. sem
varð tuttugu manns að bana kom
upp.
Slökkviliðið í Borás í suð vestur
Svíþjóð vann að því að ráða
endanlega niðurlögum eldsins á
laugardagsnótt og sunnudag.
Eldsupptök eru enn ókunn en
rannsókn gat ekki hafist strax
vegna hættu á hruni byggingar-
innar sem var sex hæðir. Borin
hafa verið kénnsl á öll líkin,
tuttugu talsins, þar af þrjú úr
sömu fjölskyldu samkvæmt heim-
ildum frá spítalanum í Borás. Hin
látnu voru öll búsett í Borás, flest
ungmcnni á aldrinum sextán til
tuttugu og eins árs sem voru að
halda upp á skólaslit í danssal
hótelsins þetta örlagaríka kvöld.
Meðal hinna látnu voru hjón og
dóttir þeirra sem höfðu verið að
halda upp á próflok unnusta
dótturinnar en hann komst lífs
af.
Fimmtíu og níu þeirra sem
sluppu iifandi voru fluttir í
sjúkrahús með brunasár, beinbrot,
taugaáfall og önnur meiðsli. Flest-
ir fengu þó að fara út af spítalan-
um á sunnudag.
Mikil sorg ríkir í Borás'en þetta
er mesti hótelbruni sem orðið
hefur í Svíþjóð. Allir fánar voru
dregnir í hálfa stöng í bænum,
skemmtunum og fundum var
frestað og fólk gekk sorgbitið um
götur bæjarins til að votta hinum
látnu virðingu sína.
Karl Gústaf Svíakonungur og
Silvía drottning, sem stödd eru í
opinberri heimsókn í Sovétríkjun-
um, sendu strax samúðarskeyti,
þar sem þau tjáðu aðstandendum
hinna látnu samúð sína.
Eldurinn kom upp í hótelinu í
Hæsta verð
fyrir bók
sem um
getur
London, 12. júní, Reuter.
FORNBÓKASALI í London til-
kynnti í dag að hann hefði haft
milligöngu um að selja Texas-há-
skóla Gutenberg biblíuna og
hefði skólinn greitt 2,4 milljónir
dala fyrir og er það hæsta verð
fyrir bók eða handrit sem um
getur.
Fornbókasalinn, Bernard Quar-
itch, sagði að hann hefði selt
biblíuna fyrir sjóð kenndan við
Carl og Lily Pforzheimer, sem
Framhald á bls. 32
Borás aðfararnótt laugardagsins á
fyrstu hæð hússins. Sjónarvottar
segja að eldurinn hafi breiðst út á
nokkrum mínútum þar til öll
byggingin stóð í björtu báfi,
veitingas^lurinn á annarri hæð og
næturklúbbur og danssalur á
þriðju hæð. Um hundrað og
fimmtíu manns voru staddir í
hótelinu þegar bruninn varð.
Anddyri hótelsins hafði nýlega
verið klætt óeldfimu efni.
Að sögn lögreglustjórans í
Borás, Olofs Nordgren, er talið að
eldurinn hafi komið upp í anddyri
veitingasalarins og breiðst þaðan
út. Slökkviliðsstjórinn í Borás:
Ragnar Brodell, sagði að hótelið
hefði orðið alelda á fimm mínút-
um. Hótelið var byggt fyrir ellefu
árum.
Eldurinn kom upp klukkan 2.30,
þegar gestir voru að stíga síðasta
dansinn. Starfslið hótelsins reyndi
að ráða niðurlögum eldsins áður
en kallað var á slökkviliðið.
Sumir gestanna köstuðu sér
strax út um glugga og lentu á
bifreiðum fyrir utan, aðrir misstu
meðvitund fljótlega og flestir
hinna látnu virðast hafa kafnað í
reyknum.
Nordgren lögreglustjóri sagði í
dag að engar sannanir væru fyrir
því að eldsprengja hefði valdið
brunanum og neitaði með öllu
sögusögnum um handtökur grun-
aðra brennuvarga.
Danir vemda fiski-
skip i Eystrasalti
Bonn 10. júní. AP. Reuter
VESTUR-ÞYZKA utanríkisráðu-
neytið tilkvnnti í dag að Danir
hefðu ákveðið að veita fiskiskip-
um landa Efnahagsbandalags
Evrópu aukna vernd, svo skipin
geti veitt óáreitt út af Borgundar-
hólmi. Hafsvæði þetta er innan
landhelgi sem Pólverjar tóku sér
fyrr á árinu, en dönsk og
vestur-þýzk skip hafa haldið
áfram veiðum á svæðinu í trássi
við pólsk lög.
Ákvörðun Dana fylgir í kjölfar
nokkurra árekstra sem orðið hafa
á miðunum milli pólskra varðskipa
og fiskiskipa og hafa nokkur skip
verið færð til hafnar í Póllandi
vegna meintra landhelgisbrota.
SíÓast var skip fært til hafnar nú
um helgina og var það vest-
ur-þýzka skipið „Capella", sem
fært var til Kölberg. Neyddist
vestur-þýzka stjórnin til að greiða
jafnvirði tæpra sjö milljóna króna
áður en skipinu var leyft að snúa
aftur til Vestur-Þýzkalands. Þá
var afli skipsins gerður upptækur
en hann var metinn á tvær og
hálfa milljón króna.
Að sögn eigenda skipsins var
það að veiðum út af Borgundar-
hólmi ásamt nokkrum öðrum
dönskum og vestur-þýzkum skip-
um er pólskt varðskip bar að.
Lagði pólska skipið upp að fiski-
skipinu og stuttu síðar réðist
hópur landhelgisgæzlumanna til
uppgöngu. Var skipshöfninni skip-
að með vopnavaldi að sigla þegar
í stað til pólskrar hafnar. Þaðan
var skipinu síðan bannað að sigla
fyrr en greidd hafði verið áður-
nefnd upphæð. Sögðu eigendur
fiskiskipsins að Pólverjarnir hefðu
verið mjög harðir í afstöðu sinni
til landhelgisbrotsins, en þeir
Þetta gerðist
1971 — Herinn tekur völdin í
lýðveldinu Jemen.
1970 — Stjórn Brazilíu iætur 40
pólitíska fanga lausa í skiptum
fyrir sendiherra Vestur-Þjóð-
verja.
1907 — Rússar hvetja til
aukafundar Allsþerjarþings SÞ
til að fá ísraelsmenn til að skila
herteknum svæðum.
1956 — Síðustu hersveitir Breta
fara frá Súez-skurði og afhenda
Egyptum skurðinn sem Bretar
ráku í 74 ár.
1910 — París lýst óvarin borg.
1917 — Bandaríski hershöfðing-
inn Pershing kemur ásamt
herráði sínu til Parísar.
1916 — Smuts hershöfðingi
tekur bæínn Wilelsthal í Þýzku
Austur Afríku.
1900 — „Boxara-uppreisnin"
gegn Evrópumönnum hefst í
Kína.
1819 — Óeiröir róttækra bældar
niður í París.
1721 — Engiand gerist aðili að
Madridsamningi Spánverja og
Frakka.
1667 — Floti hollenzka flotafor-
ingjans De Ru.vter brennir
Sheerness Englandi til ösku,
siglir upp ána Medway, ræöst á
skipasmiðastöð og stelur báti
konungsfjöiskyldunnar.
1653 — Brezkur floti sigrar
Hollendinga.
1612 — Matthías af Bæheimi
kjörinn keisari.
1502 — Kólumbus finnur eyna
Martinique i Vestur-lndíum.
Afmæli dagsins: Richard Barn-
field, enskt skáld (1574 — 1627)
— Fanny Burney, ensk skáld-
kona (1752—1840) — Thomas
Arnold, brezkur sagnfræðingur
(1795-1842) - William B.
Yeats, írskt skáld (1865—1939).
Innlent: Verzlun gefin frjáls
öllum þegnum Danakonungs
(einokun aflétt) 1787 — D. Jón
Sveinsson landlæknir 1803.
Orð dagsins: Við höfum tvö
e.vru og aðeins eina tungu til
þess að við getum heyrt meira
og talað minna — Diogenes,
grískur heimspekingur (um
412-325 f.Kr.).
hefðu samt komið vel fram við
áhöfnina.
Vestur-þýzki utanríkisráðherr-
ann Hans-Dietrich Genscher sagði
í dag að stjórn sín væri mjög
ánægð með ákvörðun dönsku
stjórnarinnar að auka vernd út af
Borgundarhólmi. Sagðist hann
vona að ákvörðunin kæmi í veg •
fyrir frekari átök á miðunum.
Danska stjórnin heldur því fram
að fiskiskip frá löndum Efnahags-
bandalagsins hafi fullan rétt til
veiða og áiítur að landhelgi
Póllands nái aðeins til línu miðja
vegu milli Borgundarhólms og
pólsku strandarinnar.
Pólverjar líta hins vegar svo á
að fiskiskip frá Vestur-Þýzkalandi
hafi alla tíð frá því landhelgi
Póllands var færð út veitt innan
hennar. í janúar færði Pólland
landhelgina út og afmarkast hún
nú af línu sem dregin er um mitt
Eystrasalt. Austur-Þýzkaland og
Svíþjóð færðu landhelgi sína út á
sama tíma og miða þeir einnig
landhelgi sína við miðlínu Eystra-
saltsins.
Braut Sky-
labs rétt
Houston, Texas 11. júní. Reuter.
VÍSINDAMÖNNUM heppnaðist í dag
aö rétta braut bandarísku geim-
stöövarinnar Skylab, og fyrir bragöið
mun Skylab vera á braut umhverfis
jöröu nokkrum mánuöum lengur en
talið var.
Geimstööin fór út af braut fyrir
nokkru vegna óvæntra breytinga á
sólblettum út í himingeimnum og
jókst pá aðdráttarkraftur jarðar til
muna. Var um tíma óttast að fara
mundi fyrir Skylab svipað og fór fyrir
sovéska njósnagervihnettinum
Cosmos, sem hrapaði til jarðar fyrr á
árinu.