Morgunblaðið - 17.06.1978, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.06.1978, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1978 25 ár frá blóðugri valdbeitingu rússnesks herafía gegn vopnlausri a/þýðu í kröfugöngu í Austur- Ber/ín Sovéskir skriðdrekar í Lcipzigcrstrasse í A-Bcrlín 17. júní 1953. „Rússncskt skriðdrekalið „verndar“ austur-þýzkan vcrkalýð fyrir bættum kjörum.“ Þetta er fyrsta myndin sem barst tii Vesturlanda frá júníhyltintíunni í A-Berlín. Fyrir 25 árum, eða dagana 16. og 17. júní 1953, gerði vopnlaus verkalýður Austur-Berlínar uppreisnartilraun gegn ofbeldisstjórn kommún- ista í Austur-Þýzkalandi. Rússneskar stormsveit- ir, sem fluttar voru í skyndi til borgarinnar úr nágrenninu og búnar voru þungum skriðdrekum, bældu uppreisnina vægðarlaust niður. Rússneska hernámsstjórnin setti þegar herlög í borginni og þeir sem voru handteknir voru umsvifalaust leiddir fyrir herrétt og aftökur hafnar strax. Mótmælaalda verkalýðsins breiddist skjótlega til annarra borga landsins en var strax brotin á bak aftur. Vinnuskylda aukin án launa Þann 16. júní 1953 lögðu verka- menn við byggingu við Stalín- stræti í A-Berlín niður vinnu og gengu í fylkingu til stjórnarráðs- bygginganna í borginni. Upphafleg krafa þeirra var sú að tilskipun austur-þýzkra yfirvalda frá 28. maí s.á. þess efnis að verkamenn ykju vinnuafköst sín um 10% , án þess að sú vinnuskylduaukning væri borguð, yrði afnumin. Fregnin um kröfugöngu verka- mannanna barst eins og eldur í sinu um alla borgina og þúsundir annarra verkamanna og ríkis- starfsmanna lögðu niður vinnu og fylktu sér í gönguna. Mannfjöld- inn í kröfugöngunni varð svo gífurlegur að lögreglulið borgar- innar fékk við ekkert ráðið. Þegar fólkið gerði sér grein fyrir því að lögreglan mátti sín einskis gegn því — óx því kjarkur og kröfur voru bornar fram um frjálsar kosningar, allsherjarverkfalli var hótað og þess ennfremur krafizt að stjórn kommúnista færi þegar frá völdum. Þegar kommúnistastjórnin gerði sér grein fyrir framgöngu og J OPNUM turni forystu- skriödrekans stendur Gretschko yfirhershöfbingi. Allt í einu breyta skriödrek- arnir um stefnu oy aka beint inn í verkamannahópinn og hrœ&ilegt marr heyrist: For- ystuskriódreki Gretschkos er í miöri mannþrönginni og blóbugir líkamshlutar manna liggja á dreif um abalgötu Berlínar Unter den Linden“. Tekib úr frásögn Dieters Borkowski í blabinu Welt am Sonntag af atburbum 17. júní 1953 í götunni Unter den Linden í A-Berlín. Borowski var ábur náinn samstarfs- mabur Honecker ríkisleib- t.oga A-Þýzkalands, en var handtekinn eftir uppreisnar- tilraunina, og sat í 2 ár í fangelsi í A-Berlín. Borkowski skrifabi síban fyrir Die Zeit undir dulnefni 1966 — 1971. — Þá var hann handtekinn og dæmdur í 7 ára fangelsi fyrir landráb. Eftir 1 árs veru í fangelsi keypti V-þyýzka stjórnin hann lausan. Joísundir verkamanna í A-Berlín lögbu nibur vinnu og söfnubust saman á stræt- unum ib mibborginni. Þeir gengu í þéttri fylkingu um Friedrichstrasse og stefndu til stjórnarbygginganna.: — Vib erum verkamenn, en ekki þrælar! Burt meb stjórn kommúnista! Vib heimtum frjálsar kosningar! Rússneskir skribdrekar æba inn x borgina. Vélbyssu- skothríb í Potsdamer-torgi. Skribdrekarnir rússnesku, sem vega 1,0 tonn, aka vœgö- arlaust á múginn í Fried- rickhsstrasse og hold þýzkra verkamanna er kramiö undir stálplötum skribdrekanna. Leikurinn er ójafn — berir vinnulúnir hnefar alþýbunn- ar gegn stáli, blýi og dýna- miti kommúnista.“ heift verkalýösins glúpnaði hún og lét útvarpa tilkynningu um að fyrrnefnd tilskipun um aukna vinnuskyldu væri úr gildi fallin og hefði verið stór mistök af þeirra hálfu. Við það lét göngufólkið sitja en róstusamt var á götum borgarinn- ar fram eftir kvöldi og aðsúgur var gerður að rússneskum hermönnum sem stóðu vörð við opinberar byggingar. Við erum verkamenn en ekki þrælar“ Miðvikudaginn 17. júní var allsherjarverkfall í allri A-Berlín. Strax um morguninn tóku verka- menn að safnast saman til funda í miðborginni sem varð eitt mannhaf. Kröfugöngur voru farn- ar um göturnar og fólkið hrópaði á frelsi, „Við heimtum frelsi. Við erum verkamenn en ekki þrælar“. Ráðizt var með grjótkasti á verzlanir ríkisins og kveikt í bifreiðum háttsettra kommúnista. Þannig fékk niðurbælt hatur fólksins á kommúnistastjórninni útrás. Um hádegisbilið var rauði fán- inn, sem blakt hafði á Branden- borgarhliðinu, rifinn niður og brenndur á bálkesti með áróðurs- spjöldum kommúnista sem fyrir hafði verið komið um alla borgina. — En snemma um daginn fór að bera á öflugu rússnesku storm- sveitarliði sem flutt hafði verið til borgarinnar, skriðdrekar og her- menn dreifðu sér um borgina. Skothríð á vopn- lausan fjöldann Um kl. 16.00 um daginn byrjuðu rússnesku hermennirnir að skjóta miskunnarlaust á mannfjöldann. Vélbyssum var beint að fólkinu á Potsdamertorgi og skothríðin látin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.