Morgunblaðið - 17.06.1978, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JUNI 1978
27
sjálfri, Vín, ég hef sungið mikið þar
og þekki þar allt svo vel. Svo er mjög
skemmtilegt að syngja einhvers
staðar í fyrsta sinn eins og ég sagði
áðan og ég hef gert sérlega mikið af
því á þessu ári. Ég er búin að syngja
í fyrsta sinn í íran í ár og auk þess
í Suður-Kóreu og svo núna hér á
íslandi."
— Veistu hvað þú hefur sungið í
mörgum löndum?
— „Nei, það veit- ég alls ekki.
Öllum Evrópulöndunum, Suður- og
Norður-Ameríku raunar í öllum
heimsálfum nema Afríku. Þegar
maður er búinn að syngja á svona
mörgum stöðum rennur þetta allt
saman í höfðinu á manni svo það er
ómögulegt að hafa tölu á þessu."
— En á milli allra þessara ferða-
laga hlýturðu að hafa einhvern
samastað. Hvar býrðu?
— „Ég bý í Sviss en dvel mikið í
sumarhúsinu mínu á Skáni á sumrin.
Ég bjó áður í París, en ég kann betur
við mig í Sviss. Það er líka mjög
miðsvæðis þannig að það hentar vel
svona manneskju eins og mér sem er
á stöðugum ferðalögum."
— Syngurðu mikið í Sviss?
— „Nei, ég geri nú ekki mjög
mikið af því. Það eru raunar ágætar
óperur þar í mörgum borgum, en ég
kem ekki oft fram þar, miklu oftar
í Vín og í Þýskalandi."
— Áttu þér einhver uppáhaldslög
eða uppáhaldstónskáld?
— „Ég á mörg uppáhaldslög og ég
syng nokkur af þeim á tónleikunum
hér. Annars syng ég afskaplega oft
í óperum eftir Wagner. Röddin mín
hæfir vel verkum hans og tónsmíðar
hans eiga því mjög vel við mig, en
það eru svo mörg góð tónskáld að
það er illmögulegt að nefna eitthvert
eitt þeirra sérstaklega sem eftirlæt-
istónskáld."
— Syngurðu eitthvað eftir
Wagner á hljómleikunum í Laugar-
dalshöll?
— „Nei ég geri það nú ekki. Það
er nú fyrst og fremst vegna þess að
það er nauðsynlegt að nota mjög
stóra sinfóníuhljómsveit við flutning
verka eftir hann og það er ekki
mögulegt hér.“
— Að lokum. Þekkirðu einhverja
íslenska óperusöngvara?
— „Ég get nú ekki sagt að ég
þekki neinn þeirra, en ég veit að hér
eru ýmsir góðir söngvarar og eitt-
hvað af þeim var við nám í
Óperuskólanum í Stokkhólmi um
leið og ég.“
DAGINN eftir Hljómleika Birgit
Nilsson i Laugardalshöll náði Mbl.
einnig talí af nokkrum innlendum
óperusöngvurum og innti pá eftir
áliti peirra á hljómleikunum:
Guðrún Á Símonar: — „Hún var
stórkostleg. Þetta er glæsileg
kona. Hljómsveitin spilaði lika
afskaplega vel undir stjórn þessa
stjórnanda. Þetta var sko söngur,
sannkallaöur söngur."
Krístinn Hallsson: — .Tón-
leikarnir voru stórfenglegir alveg
eins og tónleikar Söderström, enda
þótt þessir væru með mjög ólíku
sniði. Maður varð alveg hugfang-
Inn. Það var sérstaklega gaman aö
heyra hana syngja Verdi. Þetta var
frábær söngur og samspil hennar
og hljómsveitarstjórans var líka
sérlega eftirtektarvert. Þau hafa
aldrei unnið saman áður.“
Þuríður Pálsdóttir: — „Fram-
koma Birgit Nilsson var stórbrotin.
Þetta var alveg toppurinn. Tónn
hennar var mjög skýr þrátt fyrir
árin sextíu sem hún á nú að baki.
Hljómsveitin hefur aldrei spilaö
betur, held ég. Þetta voru dýrölegir
tónleikar."
Garðar Corfes — „Þetta voru
alveg stórkostlegir hljómleikar.
Birgit Nílsson er frábær söngkona
með mikiö raddmagn. Það er
ekkert hægt aö segja um þetta.
Þetta er yfirnáttúrulegt.''
Mbl. haföi samband við nokkra
íslenska óperusöngvara daginn
eftir tónleika Elisabethar Söaer-
ström. Söngvararnir höfðu eftir-
farandi aö segja:
Guðrún Á Símonar: — „Elisa-
beth Söderström er stórkostleg
listakona og mikill „performer".
Hún túlkaöi Ijóðin af lífi og sál burt
séð frá öllum hefðum."
Kristinn Hallsson: — „Þetta
voru alveg frábærir tónleikar.
Stórkosttegur flutningur og elsku-
leg framkoma hjálpuðust að við að
gera stemmninguna geysilega. Það
er alltaf dásamlegt aö heyra
Elisabeth Söderström syngja."
Þuríður Pálsdóttir — „Söder-
ström er yndisleg söngkona og
glæsileg og hefur afskaplega fína
tækni. Hún er frábær listakona og
hefur að mínu áliti verið einhver
besta söngkona t heimi undanfarin
tíu ár.“
Guömundur Jónsson: — „Ég
veit ekki hvað er hægt að segja, —
hún Söderström er frábær og ég er
svo heppinn að þekkja hana og get
því sagt að hún er geysileg
heíöursmanneskja þar aö aukt.
Þetta voru stórkostlegir tónleikar
og þó geta menn sagt sér það
sjálfir að það er mjög erfitt að
syngja með svona miklum einlelk-
ara elns og píanósnillingnum
Ashkenazy."
Jón Pálsson, Sigurjón Pétursson forseti borgarstjórnar og
Hinrik Bjarnason framkv.stj. Æskulýðsráðs Reykjavíkur
ásamt börnum úr Eyjafjallahreppum í sal borgarstjórnar.
júní, en þau börn voru
gestgjafar Reykjavíkur-
barna sumarið 1977.
Börnin þáðu fyrst heim-
boð hjá þeim sem verið
höfðu gestir þeirra í fyrra
er ftir hádegi beið þeirra
ky inisferð um borgina á
vegum Æskulýðsráðs
Reykjavíkur. Hófst hún
með því að forseti borgar-
stjórnar, Sigurjón Péturs-
son, tók á móti þeim í sal
borgarstjórnar og rabbaði
við þau um borgina og
stjórn hennar. Því næst var
farið á ýmsa merkisstaði
svo sem Árbæjarsafn, í
Hallgrímskirkjuturn, á sýn-
ingu Errós á Kjarvalsstöð-
um og víðar.
Deginum lauk með ferð í
kvikmyndahús og pylsu-
veislu á Fríkirkjuvegi 11.
LTMEÐ
EIMSKIP
- .(
A næstunm ferma [
skip vor til íslands, J
sem hér segir:
ANTWERPEN: [
Fjallfoss 21. júní
Lagarfoss 26. júní
Fjallfoss 3. júlí | |
ROTTERDAM:
Fjallfoss 22. júní |
Lagarfoss 27. júní
Fjallfoss 4. júlí |
FELIXSTOWE:
Dettifoss 19. júní
Mánafoss 26. júní
Dettifoss 3. júlí
Mánafoss 10. júlí
HAMBORG:
Dettifoss 22. júní
Mánafoss 29. júní
Dettifoss 6. júlí
Mánafoss 13. júlí
PORTSHMOUTH:
Bakkafoss 28. júní
Hofsjökull 29. júní
Skeiðsfoss 5. júlí
Brúarfoss 19. júlí
Bakkafoss 19. júlí
Selfoss 26. júlí
GAUTABORG:
Laxfoss 19. júní
Háifoss 26. júní
Laxfoss 3. júlí
KAUPMANNAHÖFN:
Laxfoss 20. júní
Háifoss 27. júní
Laxfoss 4. júlí
HELSINGBORG:
Urriöafoss 21. júní
Grundarfoss 26. júní
Urriðafoss 5. júlí
MOSS:
Grundarfoss 27. júní
Urriðafoss 6. júlí
§
I
i
i
I
i
I
I
I
s
I
9
®
KRISTIANSAND:
Urriöafoss 23. júní í
Grundarfoss 28. júní
Urriðafoss 7. júlí
STAVANGER:
Urriðafoss 24. júní :
Urriðafoss 8. júlí [
GDYNIA: [
Múlafoss 21. júní
VALKOM: j
Múlafoss 19. júní f
írafoss 3. júlí
WESTON POINT:
Kljáfoss 27. júní
Kljáfoss 11. júlí
Rsglubundnar ferðir alla
mánudaga fré Reykjavík til
isafjarðar og Akureyrar.
Vörumóttaka í A-skála á föstu-
dögum.
ALLT MEÐ
EIMSKIP
laepfBqEpfllalSPalBfl!l
Morgunblaðið óskar
eftir blaóburóarfólki
Uthverfi
Hólahverfi II
Blikahólar, Sogavegur,
Rauöageröi.
Upplýsingar í síma 35408
Allt á sama Stað Laugavegi 118 - Simi 22240
EGILi. VILHJALMSSON HE
Michelin hjólbarðar
Eftlrtaldar stæröir af Michelin
hjólböröum eru til á lager
145x10
135x13
145x13
155x13
165x13
175x14
185x14
180x15
205x16
Einnig seldir í Hjólbaröastöö
inni s.f., Skeifunni 5.