Morgunblaðið - 17.06.1978, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 17.06.1978, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1978 Sœnskar söngdrottningar TVÆR heimsþekktar sænskar óperusöngkonur eru nú staddar hér á landi i tilefni listahátíðar, þær Birgit Nilsson og Elisabeth Söderström. Hélt Söderström hljómleika i Háskólabiói sl. miðvikudagskvöld við Undirleik Ashkenazys, en Birgit Nilsson söng í Laugardalshöll i gærkvöldi með Sinfóníuhljómsveit íslands. Þrátt fyrir mikið annriki gáfu söngkonurnar sér tima til að ræða við blaðamann Morgunblaðsins. Elisabet Söderström: „Við Guðmund- ur dönsuðum saman ballett” Birgit Nilsson: „Alltaf spennandi að syngja í fyrsta sinn einhvers staðar” ELÍSABETH Södcrström raddi við blaðamann Morgunblaðsins sl. fimmtudaK. en hún mun dvelja hér á landi í nokkra daga. Blm. innti hana eftir því hvernÍK henni hefði þótt að syngja hcr í þetta skipti, en hún hefur sem kunnuKt er sungið hér á landi einu sinni áður. — „Það er nú eiginlega áhorfend- anna að dæma um það hvernig þetta tókst í gærkvöldi en ég vona að það hafi gengið vel. Það var allténd gaman að syngja hér aftur. Mér þótti það mjög skemmtilegt þegar ég var hér fyrir nokkrum árum og varð þá afskaplega hrifin af Reykjavík og langaði mikið að koma hingað aftur og skoða mig þá svolítið um. Það ætla ég svo að gera núna næstu dagana. Eyjar heilla mig alltaf. Fólk sem býr á eyjum er líka alltaf svolítið sérstakt. Það er svo opið gagnvart gestum sem koma yfir hafið. Svo finnst mér líka alltaf gott að sjá til hafs þar sem ég er, enda er ég gift yfirmanni í sænska flotanum. Þar fyrir utan hef ég fjarska gaman af því að ganga á fjöll, þannig að ég held að það sé næsta öruggt að ég kunni vel við mig hér.“ — Hafið þið Ashkenazy oft komið fram saman áður? — „Já, samstarf okkar hófst á því að við vorum beðin að flytja lög eftir Rachmaninoff á hljómplötu og þegar við höfðum svo lokið við það bað útgáfufyrirtækið okkur um að gera fleiri slíkar og við erum nú búin að gera fjórar slíkar plötur. Auk þess höfum við svo haldið hljómleika í London og Stokkhólmi og víðar. Það er geysilega skemmtilegt að vinna með Ashkenazy." — Geturðu nefnt einhver tónskáld sem þér þykja skemmtilegri en önnur? — „Ja, það er nú kannski svolítið erfitt, enda er það skylda manns að þykja það ætíð skemmtilegast sem maður er að vinna að hverju sinni. Ég get þó sagt það að ég hef sérhæft mig nokkuð með árunum eftir því sem ég finn hvað á best við mína rödd. Nú syng ég mikið eftir Mozart og Strauss og svo Janacek. Einnig hef ég sungið mikið af nútímatónlist. Ég tók til dæmis þátt í frumupp- færslu á óperu eftir Ungverjann Ligeti í Stokkhólmi nú nýlega. Fólk var búið að bíða eftir þessari óperu í átta ár svo það ríkti mikil eftirvænting þegar verið var að vinna að þessu verki sem fjallar um heimsendi sem ekki verður." — Hvort þykir þér áhugaverðara að syngja í óperum eða að halda einsöngskonserta? — „Helst vil ég nú blanda þessu saman. Þetta er hvort tveggja skemmtilegt og ómögulegt að taka annað fram yfir hitt.“ — Þegar þú lítur til baka yfir þessi síðustu ár, hvernig þykir þér hafa til tekist? — „Ég er mjög ánægð með minn feril. Ég hef gert næstum allt sem mig hefur langað til og fengið tækifæri til að ferðast mikið um heiminn og skoða mig um og ég á góða fjölskyldu sem er mér mjög mikils virði. Þegar synirnir mínir þrír voru yngri ferðuðust þeir um allt með mér en eftir að þeir hófu skólagöngu verða þeir að láta sér nægja að ferðast með mér þegar þeir Framhald á bls. 25. Birgit er á mikilli hraðferð og heldur utan á föstudag og því reyndist ógerlegt að ná tali af henni nema simleiðis á miðvikudag. Blm. spurði söngkonuna fyrst hvernig henni litist á að syngja hér. — „Það er alltaf spennandi syngja í fyrsta sinn einhvers staðar en ég hef aldrei sungið hér á landi áður. Ég er búin að æfa með hljómsveit- inni og það gekk ágætlega. Það er áhugasamt og dugmikið fólk í hljómsveitinni." — Hvernig þótti þér hljómburð- urinn vera í Laugardalshöllinni? — „Ég hef nú ekki heyrt neitt nema kvartanir um það en mér fannst hljómburðurinn ágætur. Það var náttúrlega ekkert fólk í salnum á æfingunni svo þetta breytist kannski eitthvað á hljómleikunum sjálfum en þetta hljómaði ágætlega í dag.“ — Hvar hefur þér fundist skemmtilegast að syngja? — „Þetta er afskaplega erfið spurning. Ég er búin að syngja á svo ótalmörgum stöðum. Ég veit hreint ekki... Það er vissulega mjög gaman að syngja í tónlistarborginni PEUCEOT DIESEL Viö útvegum dieselvélar og fylgihluti til ísetningar í ýmsar geröir bifreiöa. Frekari upplýsingar gefur HAFRAFELL HF VAGNHÖFÐA 7, SÍMI 85211 UGE FQLKE H0ÍSKO1E UGE Lýöháskólinn, Tinglev Danmörk. NÝR NORRÆNN LÝÐHÁSKÓLI í DANMÖRKU 6 mánaöa námskeiö, er hefst 1/11, veröur haldið fyrir alla eldri en 18 ára. Venjulegar lýðhaskólanáms- greinar. Mikiö úrval námsgreina í handmennt. Sundkennara- menntun. — Skrifiö eftir kennsluskrá. Norrænn-evrópskur skóli. DK-6360 _________ Myrna og Carl Vilbæk. jazzBOLLeCCGkóLi Búru( líkom/rcekt j.b.S. < N ★ Síðasta námskeiö fyrir sumarfrí hefst 26. júní. ★ 3ja vikna námskeiö. ★ Líkamsrækt og megrun fyrir dömur á öllum aldri. ★ Morgun-, dag- og kvöldtímar. ★ Tímar tvisvar og fjórum sinnum t viku. Vaktavinnufólk athugið „lausu tímaha“ hjá okkur Sérstakir matarkúrar fyrir þær, sem eru í megrun. _ Sturtur — sauna — tæki — Ijós. |\i ★ Muniö okkar vinsæla sólaríum. ★ Hjá okkur skín sólin, allan daginn, alla daga. ★ Upplýsingar og innritun í síma 83730. ^JdZZBQLLeCCBkÓLÍ BÓPU 5 rT cr co 7$ p 2 Börn úr Eyjafjalla- hreppum heimsækja Reykjavík KYNNISFERÐ borgar- barna í sveit er fastur liður í starfsemi Æskulýðsráðs Reykjavíkur. í samvinnu við Samband sunnlenskra kvenna hefur verið boðið til slíkra ferða á sunnlensk sveitaheimili undanfarin ár, og hafa þegar um 200 reykvísk börn notið þeirra. Um 20 börn úr Reykjavík dvöldu á bæjum í Austur- og Vestur Landeyjum dag- ana 13. —15. júní. Til Reykjavíkur komu 20 börn úr Eyjafjallahreppum 13. AUCíLVSINtiASÍMtNN ER: 22480 JfUreunblabib

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.