Morgunblaðið - 20.06.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1978 5
Framhald Inn-D júpsáætlunar
Samgöngur skipta Vestfirðinga miklu máli
Hér á eftir verða rakin nokkur
þcirra mála sem þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins á Vestfjörðum hafa
hreift á Alþingi og varða Vest-
fjarðakjördæmi sérstaklega. Ekki
er um tæmandi upptalningu að
ræða og mál rakin í tímaröð en ekki
eftir vægi þeirra fyrir kjördæmið.
Þess ber og að geta að ekki eru
talin með þau mál sem flokkurinn
hefur staðið að í formi stjórnar-
frumvarpa.
• Virkjun Suðurfossár
á Rauðasandi
Árið 1974 flytja Þorvaldur Garðar
Kristjánsson o.fl. tillögu til þings-
ályktunar um virkjun Suðurfossár á
Rauðasandi í V-Barðastrandarsýslu.
Tillagan varð ekki útrædd.
• Vegarstæði yfir
Þorskafjörð
10. desember 1974 kemur til
umræðu á Alþingi fyrirspurn frá
ÞGKr. um vegarstæði yfir Þorska-
fjörð. Fyrirspyrjandi lagði áherzlu á
gildi þessarar vegarlagningar og
drap á hugmynd um fiskirækt í
Þorskafirði í því sambandi.
• Jarðhiti við
Bolungarvík
í maimánuði 1975 var útbýtt
fyrirspurn frá Sigurlaugu Bjarna-
dóttur varðandi könnun á jarðhita í
Syðridal við Bolungarvík.
• Flugsamgöngur
við Vestfirði
Sigurlaug Bjarnadóttir flytur
ásamt fleirum tillögu til þingsálykt-
unar um athugun á úrbótum í
flugsamgöngum við Vestfirði. At-
hugunin beinist fyrst og fremst að
lýsingu og öryggistækjum vegna
aðflugs og lendingar á ísafjarðar-
flugvelli; endurbótum og lendingu á
flugbrautinni við Holt í Önundar-
firði og flugbrautinni í Bolungarvík
með það í huga að þær verði
varaflugvellir fyrir Isafjarðarflug;
öryggisútbúnaði og lýsingu á Þing-
eyrarflugvelli og lýsingu og öryggis-
tækjum vegna aðflugs og lendingar
á Patreksfjarðarflugvelli.
• Framhald
Inndjúpsáætlunar
Sigurlaug Bjarnadóttir, Þorvaldur
Garðar Kristjánsson o.fl. fluttu
tillögu til þingsályktunar um fram-
hald Inndjúpsáætlunar.
Tillagan gerði ráð fyrir að ríkis-
stjórnin hlutaðist til um að bændur
á svæði Inndjúpsáætlunar haldi
næstu 5 ár, eftir að starfstima
áætlunar lýkur, lánafyrirgreiðslu til
ræktunar (Stofnlánadeild/Byggða-
sjóður). Hið sama gildi næstu 3 ár
til byggingaframkvæmda á áætlun-
arsvæðinu. Inndjúpsáætlun er nú á
lokaári. Tillagan var samþykkt 5.
maí 1978.
• Verndun varplanda
Sigurlaug Bjarnadóttir og Jóhann-
es Árnason flytja ásamt fleirum
frumvarp til laga um br. á lögum um
fuglaveiðar og fuglafriðun. Frum-
varpið fjallar um varnaraðgerðir, sé
eðlilegum nytjum af æðarvarpi
ógnað af ágangi arnar. Frumvarpi
þessu var vísað til rikisstjórnarinn-
ar.
Sendist: B.Í.S. Box 1247 Litakeppni
Öllum börnum 12 ára og yngri er heimil þátttaka í keppni þessari. Lita skai myndina með vaxlitum og
finna gott slagorð fyrir sirkusinn. Dómnefnd mun velja 3 myndir 29. júní, og hljóta eigendur þeirra
10 boðsmiða hver, í bestu sæti, á eina sýningu Gerry Cottles sirkusins. Póstleggið myndina fyrir 25. júní.
Nafn_______________________________________________________________________ Aidur
Heimili________________________________________________Staður___________________
Slagorð (ekki fleiri en 12 orð):
oc i
FYRIR BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI
VINNIÐ TÍU BOÐSMIÐA Á SIRKUSINN.