Morgunblaðið - 20.06.1978, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1978
fHttgtmllIftfcifr
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavfk.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guómundsson.
Fróttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson
Ritstjórn og afgreiðsla Aóaistræti 6, sími 10100.
Auglýsingar Aöalstræti 6, sími 22480.
Áskriftargjald 2000.00 kr. i minuói innanlands.
í lausasölu 100 kr. eintakið.
Svikin lof orð,
glundroði,
bitlingastríð
Landsmenn hafa kynnzt því sem við mætti búast af nýrri
vinstri stjórn í landinu með því að fylgjast með athöfnun
hins nýja vinstri meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Þær
hafa einkennzt af sviknum kosningaloforðum, glundroða og
baráttu um bitlingana.
í marga mánuði fyrir borgarstjórnarkosningar hömuðust
Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag á kröfunni um „samningana
í gildi“. Að kosningum loknum og eftir að hinn nýi meirihluti
hafði tekið við völdum í borgarstjórn Reykjavíkur, var fyrsta
verk þessara flokka að svíkja gefin fyrirheit. Vísitöluskerðingin
nam hjá starfsmönnum Reykjavíkurborgar 1050 milljónum
króna. Hinn nýi meirihluti hefur ákveðið að bæta aðeins 30%
af þeirri skerðingu. Þannig standa Alþýðuflokkur og Alþýðu-
bandalag við stóru orðin og þannig mundu þeir haga sér, ef
kjósendur veittu þeim brautargengi inn í ríkisstjórn. Mikil
fyrirheit og loforð fyrir kosningar. Svik eftir kosningar.
Þessi kosningasvik hafa vakið þjóðarathygli en eftirtekt fólks
hefur ekki síður beinzt að glundroðanum, sem nú þegar einkennir
vinstri meirihlutann í Reykjavík. Hans fór að gæta að ráði, þegar
einn af borgarfulltrúum Alþýðubandalagsins greiddi atkvæði í
stjórn BSRB með mótmælum gegn þeirri ákvörðun vinstri
meirihlutans í borgarstjórn að bæta aðeins 30% af skerðingunni.
Síðan vippaði borgarfulltrúinn sér á borgarstjórnarfund og
greiddi atkvæði þar með því, sem hún hafði mótmælt í
BSRB-stjórninni. Næsta glundroðamerki sást, þegar sami
borgarfulltrúi sagði í bókun í stjórn BSRB, að ekki hefði náðst
samstaða í meirihluta borgarstjórnar um greiðslu fullra
vísitölubóta strax. Þegar innt var eftir því, hver hefði verið á
móti því varð lítið um svör. Kristján Benediktsson, borgarfull-
trúi Pramsóknar, kvaðst ekki hafa staðið gegn greiðslu fullra
vísitölubóta. Björgvin Guðmundsson, borgarfulltrúi Alþýðu-
flokks, upplýsti að hvorki borgarfulltrúar Alþýðubandalags né
aðrir hefðu nokkru sinni lagt fram tillögu um greiðslu fullra
bóta. Sigurjón Pétursson sagði, að fjárhagsstaða borgarinnar
leyfði ekki greiðslu strax vegna þess, að það vantaði milljarð.
Guðrún Helgadóttir sagði á borgarstjórnarfundi, að fjárhags-
staðan væri engin afsökun fyrir því, að borga ekki fullar
vísitölubætur strax. Þeir peningar sem til þyrfti væru bara
smápeningar í stóra kassanum. Þegar hér var komið sögu
upplýsti Morgunblaðið, að Guðrún Helgadóttir hefði sagt orðrétt
á stjórnarfundi BSRB, þegar hún var innt eftir því, hvers vegna
ekki væru greiddar fullar vísitölubætur strax: „Við komumst
ekki lengra með Kristján Benediktsson." Þar með hefur
borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins lagt sökina á herðar
Framsóknarfulltrúans. En jafnframt skýrði Tíminn, málgagn
Framsóknarflokksins, frá því að ágreiningur innan Alþýðu-
bandalagsins hefði valdið því, að ekki náðist samkomulag innan
nýja meirihlutans um greiðslur fullra vísitölubóta, eins og tveir
af þremur meirihlutaflokkum höfðu lofað.
Þetta sjónarspil er forsmekkur af því, sem koma skal. Svona
var ástandið í vinstri stjórninni 1971—1974 og svona verður
ástandið ef vinstri stjórn nær völdum í landinu á ný á
sunnudaginn kemur. En ekki nóg með það. Baráttan um
bitlingana stendur nú yfir í meirihlutaflokkunum. Guðmundur
J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands íslands hefur
lengi setið í hafnarstjórn. Hann gerði kröfu til þess að verða
formaður hafnarstjórnar. Þá kom til sögunnar Björgvin
Guðmundsson, borgarfulltrúi Alþýðuflokksins, og sagði: Nei
takk, ég ætla að verða formaður hafnarstjórnar! Alþýðubanda-
lagið féllst á það og jafnframt hófu tveir helztu forsprakkar þess
í borgarstjórn, þau Sigurjón Pétursson og Adda Bára
Sigfúsdóttir, tilraun til þess að bola Guðmundi J. Guðmundssyni
úr hafnarstjórn. Þeirri tilraun er ekki lokið. Á fundi
borgarstjórnar sl. fimmtudag var kosningu í hafnarstjórn
frestað. Nú stendur yfir í Alþýðubandalaginu hinn versti slagur
um það, hvort Guðmundur J. verður áfram í hafnarstjórn eða
hvort Sigurjóni Péturssyni og Öddu Báru tékst að sparka honum
þaðan.
Ef Guðmundur J. fer með sigur af hólmi í þeirri orustu hefst
svo slagur um það, hvor þeirra verður formaður hafnarstjórnar,
hann eða Björgvin Guðmundsson.
Þetta er vinstri stjórn í hnotskurn: svikin loforð, glundroði,
og bitlingastríð. Vill þjóðin kjósa þetta yfir sig á landsmálavett-
vangi líka?
[SIGURVON
SIGURVON tekur nýtt
hús i notkun í Sandgerdi
Sandgerði, 19. júní.
SLYSAVARNADEILDIN Sig-
urvon í Sandgerði, sem er elsta
deildin innan Slysavarnafélags
íslands. hélt upp á hálfrar
aldar afmæli sitt í gær með
kaffiboði í nýju slysavarnahúsi
sem björgunarsveit deildarinn-
ar hefur reist hér við Strand-
götu.
Húsbyggingin hefur staðið
yfir nú f nokkur undanfarin ár
og f gær var húsið tekið
formlega í notkun og vígt af
sóknarprestinum séra Guð-
mundi Guðmundssyni með að-
stoð kirkjukórs Hvalsnes-
kirkju.
Húsið er hið myndarlegasta í
alla staði, um 2100 rúmmetrar
að stærð á tveimur hæðum og
hefur mestur hluti vinnunnar
við húsbygginguna verið unninn
í sjalfboðaliðsvinnu af björgun-
arsveitarmönnum og fleirum og
hafa mjög margir lagt þar mikið
af mörkum.
Hluta neðri hæðarinnar
keypti Miðneshreppur af björg-
unarsveitinni undir slökkvistöð
og var sá hluti hússins tekinn í
notkun fyrir tæpum tveimur
árum. Hinn hluti neðri hæðar-
innar er notaður fyrir björgun-
arstöð og einnig hefur Bókasafn
Miðneshrepps þar stórt herbergi
á leigu. En á efri hæðinni er
vistlegur fundar- og samkomu-
salur.
Margt manna var við afmæl-
is- og vígsluathöfnina, þar á
meðal forseti Slysavarnafélags
Islands, Gunnar Friðriksson, og
framkvæmdastjóri þess, Hannes
Hafstein.
Margar ræður voru fluttar og
árnaðaróskir og kveðjur komu
víða að. Einnig bárust deildinni
margar góðar gjafir, bæði frá
einstaklingum og félögum, þar á
meðal ein milljón króna frá
Slysavarnafélagi Islands og ein
milljón króna frá Miðneshreppi.
Formaður Sigurvonar er
Kristinn Lárusson en formaður
björgunarsveitarinnar er
Sigurður Guðjónsson.
— Jón
Sigurður Guðjónsson formaður björgunarsveitarinnar afhendir Gunnari Friðrikssyni forseta SVFÍ
húsið en Gunnar afhenti það síðan Kristni Lárussyni formanni Sigurvonar sem er fremst til hægri
á myndinni.
Eiríkur Alexandersson:
150 milljónírkr.
til Suðurnesja
í RÆÐU Eiríks Alexanderssonar
bæjarstjóra í Grindavík, sem
skipar 4. sætið á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjaneskjördæmi, í
útvarps- og sjónvarpsumræðun-
um á sunnudaginn kom það fram,
að stjórn Fiskveiðisjóðs hefði
ákveðið að verja a.m.k. 150
milljónum kr. til fyrirtækja á
Suðurnesjum.
Eiríkur sagði m.a.: „Nú hefur
það áunnizt, að skv. ósk ríkis-
stjórnarinnar og fyrir ötula bar-
áttu Sjálfstæðismanna í stjórn
Framkvæmdastofnunar ríkisins,
hefur Byggðasjóður verið opnaður
fyrir Reykjavík og Reykjaneskjör-
dæmi vegna fiskiðnaðar og skipa-
kaupa. Þá hefur miklu fé verið
veitt til Suðurnesja úr gengis-
munarsjóði, og ennfremur er mér
kunnugt um, að á síðasta fundi
stjórnar Fiskveiðisjóðs voru allir
stjórnarmenn sammála um, að af
þeim 300 milljónum kr., sem
ákveðið hefur verið að verja til
viðbótar til stuðnings fiskiðnaðin-
um í landinu á yfirstandandi ári,
skuli a.m.k. 150 milljónir ganga til
fyrirtækja á Suðurnesjum."
Tilkoma hitaveitu jafngildir
3,5% kaupmáttaraukningu
„ÞETTA er það sem hefur verið
að gerast víða um land, að
hitaveiturnar færa með sér kaup-
máttaraukningu“, sagði ólafur
Daviðsson hjá Þjóðhagsstofnun
er Mbl. ræddi við hann í fram-
haldi af þcim ummælum Matt-
hfasar Á. Mathiesen fjármálaráð-
herra í sjónvarpi á sunnudaginn
að sparnaður vegna Hitaveitu
Suðurnesja jafngilti 3,5% kaup-
máttaraukningu fyrir meðalfjöl-
skyldu á Suðurnesjum.
Ólafur Daviðsson sagði að vísi-
tala framfærslukostnaðar mældi
framfærslukostnað í Reykjavík,
þar sem er hitaveita, en olía er
ekki inni í vísitölugrundvellinum.
Sagði Ólafur að gjaldskrár hita-
veitna væru ekki allar eins, en
lækkun kyndingarkostnaðar með
tilkomu hitaveitu jafngilti líklega
um 3,5% af vísitölu framfærslu-
kostnaðar, sem væri sparnaður af
MINNINGARFYRIRLESTUR
prófessors Níelsar Dungals verð-
ur fluttur í Lögbcrgi, stofu 101,
þriðjudaginn 20. júní klukkan 17.
Fyrirlesturinn flytur prófessor
ráðstöfunartekjum og kæmi fram
sem aukinn kaupmáttur. Að vísu
mætti benda á á móti að olíustyrk-
urinn félli niður, en hann sagði
Ólafur að mætti líta á sem
tímabundið ástand.
J.N.P Davies frá háskólanum í
Albany í New York fylki í
Bandaríkjunum. Fjallar fyrirlest-
urinn um nýjungar í faraldsfræði
krabbameins með sérstöku tilliti
til Hodgkins-sjúkdóms.
Minningarfyrirlestur
Níelsar Dungals í dag