Morgunblaðið - 20.06.1978, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1978
23
Blikarnir í sárum eftir eitt
tapið enn
IIANN'var undarlcgur í meira lagi leikurinn í Kópavogi í gærkveldi.
Fyrri hálflcikur hefði vart getað verið lélegri þó að leikmenn hefðu
haft bundið fyrir augun og sérstaklega voru það Valsmenn sem virtust
vart kunna að sparka. Blikarnir voru mun skárri og voru þeir þó
engir snillingar. En jafnvel gegn slökum Völsurum í fyrri hálfleik
virtist vörn Blikanna vera miður sín og í síðari hálfleik var sá grunur
staðfcstur, er Valsmenn fóru að leika meira í átf við það sem menn
eiga von á frá þeirra hendi. Leiknum lauk með öruggum sigri Vals,
4 — 1 og Blikarnir hafa ekki íyrr í sumar sokkið jafn djúpt í forina.
leikur þeirra í sfðari hálfleik var næstum til skammar og ekki var
til barátta í fólkinu.
Ef við rennum augunum yfir
minnisbókina, kemur í ljós að
hægt er að fara fljótt yfir fyrri
hálfleikinn, Blikarnir léku betur
úti á vellinum, enda léku Vals-
menn alls ekki, en brodd vantaði
í sókn heimamanna og færi áttu
þeir ekki nógu góð. Valsmenn áttu
þrjú þrátt fyrir allt, þar af Ingi
Björn tvö og Jón Einarsson eitt.
En Ægir Guðmundsson markvörð-
ur UBK, í meiðslaforföllum Sveins
Skúlasonar, varði tvívegis vel og
þriðja færið rann klaufalega út í
sandinn. Staðan í leikhléi var því
í samræmi við leikinn, eða eitt
stórt núll.
I síðari hálfleik snerist þetta
algerlega við og var hann jafn
ólíkur hinum fyrri og búrhveli er
ólíkt hrossaflugu. Nú voru það
Blikarnir sem hneigðust til leik-
leysu og Valsmenn, sem mættu
tvíefldir til leiks, gengu á lagið af
grimmd. Þegar á fyrstu mínútu
brunuðu Valsmenn upp hægri
kantinn, gefið var fyrir markið og
enginn Bliki sá ástæðu til þess að
fipa Guðmund Þorbjörnsson við að
skora. Tveim mínútum síðar var
Jón Einarsson í góðu færi, en
skaut yfir. Og Valsmenn óðu í
færum, á 12. mínútu tók Albert
hornspyrnu hægra megin og Ingi
i
w;
síS. ,
* ,ianinmwr mí0
m
Björn skallaði fast í netið, og enn
stóðu varnarmenn Blikanna
stjarfir. Mínútu síðar var Ingi
næstum búinn að skora þriðja
markið, en það þurfti engu að
síður ekki að bíða lengi eftir því.
Það kom aðeins 3 mínútum síðar,
þá skoraði Ingi Björn auðveldlega
eftir að Albert hafði einleikið í
gegn um gaddfreðna vörn UBK.
Það rigndi mörkum þessar mínút-
urnar og það voru Blikarnir sem
áttu það næsta á 19. mínútu, en þá
skoraði Sigurjón Randversson af
stuttu færi eftir góðan undirbún-
ing Hákonar Gunnarssonar. Og
enn var skorað. Á 22. mínútu var
Albert enn á ferðinni á hægri
kantinum ög sendi nú á Atla sem
skoraði af mjög stuttu færi, 4—1
fyrir Val. Fram til þessa höfðu
Valsmenn leikið rnjög vel, enda
stóð ekki steinn yfir steini hjá
UBK og þó að dofna tæki yfir
leiknum, héldu Valsmenn öllum
völdum á vellinum og þeir Albert,
Jón og Ingi Björn hefðu allir getað
bætt mörkum við. Blikarnir fengu
þó eitt af bestu færum leiksins
átta mínútum fyrir leikslok, er
þeirra frískasti leikmaður Hákon
Gunnarsson lék upp hægri væng-
inn og sendi vel fyrir markið og í
þeim hamagangi sem þar fór fram
i
9$,
■
x.
■■ :
... . .*-■*■-
,
■:■*?■■ ■
■
m
Ingi Björn Albertsson átti góða spretti í síðari hálfleik og skoraði þá tvívegis. Hér skorar hann annað
mark sitt og þriðja mark Vals og átti Albert Guðmundsson (annar frá hægri) allan heiðurinn af markinu.
björguðu Valsmenn tvívegis á línu
frá þeim Hinrik og Ólafi. Munaði
svo litlu í síðara skiptið, að
áhorfendur voru farnir að fagna
marki.
Það er einkennilegt með Valslið-
ið hvað það á erfitt með að leika
vel í 90 mínútur, iðulega eru þeir
góðir aðeins annan hálfleikinn en
hrynja síðan saman í hinum,
hlýtur þetta að vera þeim umhugs-
unarefni. Sigurður Haraldsson var
þeirra eini maður sem lék vel allan
leikinn, en í síðari hálfleik var
Albert frábær og flestir Vals-
mennirnir mjög góðir.
Blikarnir eiga greinilega í mikl-
um erfiðleikum þessa dagana, þeir
áttu það til að leika myndarlega
saman úti á vellinum en vörnin
var álíka örugg og 100 ára gömul
mæðiveikigirðing. Og sóknarleik-
urinn er fjarri því að vera nógu
mín) Ingi Björn (57. og 61. mín) og Atli
Eðvaldsson (67. mín).
Áminningari engin.
Dómarii Eysteinn Guðmundsson,
Áhorfenduri 1010.
STAÐAN
Staðan í fyrstu deild eftir leiki
*N
Llð vlkunnar
*N
J ,
Gunnar Gíslason (KA) Þorbergur Atlason (KA) Úlfar Hróarsson (Þrótti)
Jóhannes Guðjónsson (ÍA) Janus Guölaugsson (FH)
Albert Guðm. (Val) Gunnar Ö. Kristinss. (Víking), Karl Þórðarson (ÍA)
Ólafur Danivalss. (FH) Pétur Péturss. (ÍA) Sigurlás Þorleifss. (ÍBV)
beittur. Langbesti leikmaðurinn í helgarinnari
þeirra röðum var varamaðurinn ÍA 7 6 1 0 22- -5 13
Hákon Gunnarsson sem oft skap- Valur 6 6 0 0 17- -5 12
aði hættu við mark Vals. Ægir Fram 7 4 0 3 10- -8 8
Guðmundsson, markvörður UBK ÍBV 6 3 2 1 10- -7 8
og bróðir Alberts hjá Val átti Þróttur 6 1 4 1 9- -10 6
einnig þokkalegan dag og er varla Víkingur 7 3 0 4 10- -12 6
hægt að saka hann um mörkin. KA 6 1 3 2 6- -7 5
ÍBK 7 1 2 4 9- -13 4
1 STUTTU MÁLI. FH 7 0 3 4 8- -19 3
Kópavogsvöllur 1. deild. UBK — Valur 1—4 UBK 7 0 1 6 4- -18 1
Mörk UBKi Sigurjón Randversson á 64.
mínútu.
Mörk Vals. Guðmundur Þorbjörnsson (46.
Markhæstu menn eru nú>
Matthías Hallgrímsson ÍA 9
Ingi Björn Albertsson Val 6
ÞBÓTTUR:
Rúnar Sverrisson
Guðmundur Gíslason
Úlfar Hróarsson
Jóhann Hreióarsson
Sverrir Einarsson
Halldór Arason
Sverrir Brynjólfsson
Agúst Hauksson
Daói Harðarson
Póll Ólafsson
Baldur Hannesson
Þorgeír Þorgeirsson (varam)
Þorvaldur Þorvaldss. (varam)
FH:
Þorvaldur Þórðarson
Jón Hinriksson
Þórir Jónsson
Gunnar Bjarnason
Logi Ólafsson
Janus Guðlaugsson
Viðar Halldórsson
Andrés Kristjánsson
Ásgeir Arnbjörnsson
Ólafur Danivalsson
Leifur Helgason
Pólmi Sveinbjörnss. (varam)
Elnkunnagjðfin
KA:
Þorbergur Atlason
Helgi Jónsson
Sigbjörn Gunnarsson
Guðjón Haröarson
Haraldur Haraldsson
Gunnar Gunnarsson
Gunnar Gíslason
Eyjólfur Ágústsson
Elmar Geirsson
Jóhann Jakobsson
Ármann Sverrisson
Gunnar Blöndal (vm)
ÍBV:
Póll Pólmason
Örn Óskarsson
Snorri Rútsson
Þórður Hallgrímsson
Friðfinnur Finnbogason
Sveinn Sveinsson
Valpór SigÞórsson
Óskar Valtýsson
Sigurlós Þorleifsson 1
Pólsson
Karl Sveinsson
Ólafur Sigurvinsson (vm)
Dómari: ArnÞór Óskarsson 1 Dómari: Óli Olsen
FRAM:
Guðmundur Baldursson
Trausti Haraldsson
Gústaf Björnsson
Gunnar Guðmundsson
Kristinn Atlason
Sigurbergur Sigsteinss.
Rafn Rafnsson
Kristinn Jörundsson
Pétur Ormslev
Ásgeir Elíasson
Eggert Steingrímsson
Rúnar Gíslason (vm)
VÍKINGUR:
Diðrik Ólafsson
Adolf Guðmundsson
Magnús Þorvaldsson
Gunnar Örn Kristjónsson
Róbert Agnarsson
Heimir Karlsson
Jóhannes Bafðarson
Viðar Elíasson
Lórus Guðmundsson
Arnór Guðjohnsen
Óskar Tómasson
Dómari:
Arnar Einarsson
IA:
Liö UBK:
Ægir Guömundsson
Gunnlaugur Helgason
Benedikt Guðmundsson
Valdimar Valdimarsson
Einar Þórhallsson
Helgi Helgason
Vignir Baldursson
Jón Orri Guðmundsson
Hinrik Þórhallsson
Jón Þorbjörnsson 3 Sigurjón Randversson 2
Guðjón Þórðarson 2 Ólafur Friðriksson 2
Árni Sveinsson 2 Heiðar Breiðfjörð (varam) 1
Jóhannes Guöjónsson 3 Hókon Gunnarss. (varam) 3
Jón Gunnlaugsson 3
Jón Áskelsson 2
Karl Þórðarson 4
Jón Alfreðsson 2 • *
Pétur Pétursson 3
Matthías Hallgrímss. 2
Kristinn Björnsson 2
ÍBK: Lið Vals:
Þorsteinn Bjarnason 2 Sigurður Haraldsson 3
Óskar Færselh 2 Guðmundur Kjartansson 2
Guöjón Guðjónsson 2 Grímur Sæmundsen 2
Sigurður Björnvinss. 3 Höröur Hilmarsson 2
Gísli Torfason 2 Dýri Guðmundsson 2
Skúli Rósantsson 3 Sævar Jónsson 2
Einar Á. Ólafsson 2 Ingi Björn Albertss. 3
Ólafur Júlíusson 2 Atli Eðvaldsson 2
Steinar Jóhannsson 2 Albert Guðmundss. 4
Rúnar Georgsson 2 Guðmundur Þorbjörnss. 2
Friðrik Ragnarsson 1 Jón Einarsson 2
Þórður Karlsson (vm) \ 1 Úlfar Hróarss. (varam) 1
Vilhjólmur Kjartanss. (varam) 1
Dómari: Dómari:
Valur Benediktsson 2 Eysteinn Guðmundsson 3