Morgunblaðið - 20.06.1978, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1978
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1978
25
n
w
¥
• Arnór Guðjohnsen á þarna í haráttu við tvo Framara um holtann. Annar þeirra er Rafn Rafnsson,
sem fylsdi Arnóri eins og skugKÍnn allan leikinn. Til vinstri á myndinni er Lárus Guðmundsson, 16 ára
piltur sem lék sinn fyrsta leik með Víkinjf-
Stórgott
Víkingi
VÍKINGUR hefur hyrjað verr í 1. deildinni að þessu sinni en menn
áttu von á miðað við írammistöðu liðsins á síðustu árum. Því voru
stijfin tvö. sem VíkinKur fékk í viðureigninni við Fram á
laujíardajíinn. ákaflejja kærkomin fyrir liðið. Víkinjíur vann 1.0 og
enn einu sinni var það þrumuskot frá Gunnari Erni Kristjánssyni,
sem færði Víkinj?i dýrmæt stig.
Það voru alger kaflaskipti í
leiknum á laugardáginn. Fyrri
hálfleikurinn var mjög daufur,
einn sá aldaufasti sem undirritað-
ur minnist í leikjum 1. deildar, en
seinni hálfleikurinn var alger
andstæða. Þá léku bæði liðin opna
og skemmtilega knattspyrnu og
mikið var um marktækifæri á
báða bóga.
Víkingarnir höfðu sterkan vind
í bakið í f.h. og sóttu þá nær
látlaust. En ekki verður sagt að
þessar sóknarlotur liðsins hafi
verið árangursríkar, aðallega
langspyrnur fram völlinn og síðan
áttu framherjarnir að reyna að
vinna úr þeim. Þetta er ekki
leikmáti sem hentar hinum ungu
og efnilegu piltum, sem Víkingarn-
ir eru komnir með í lið sitt og eins
hitt að miðverðir Fram njóta sín
ákaflega vel þegar svona er leikið
á móti þeim. Fáir miðverðir
standa þeim Kristni og Sigurbergi
á sporði þegar um er að ræða að
taka við háum boltum upp völlinn.
Víkingur fékk aðeins eitt umtals-
vert tækifæri í hálfleiknum, hinn
ungi Lárus Guðmundsson skaut
yfir af stuttu færi á 29. mínútu.
Framarar höfðu vindinn í bakið
í s.h. og sóttu nú mun meira en í
þeim fyrri. En Víkingarnir voru
einnig sprækir og þeir sóttu mun
meira gegn vindinum en Frömur-
um hafði tekizt í f.h. Var leikurinn
mjög opinn og skemmtilegur í
seinni hálfleik. Strax á fi. mínútu
átti Lárus stórgóða sendingu inn
fyrir vörn Fram og til félaga síns
Arnórs Guðjohnsen en hann skaut
framhjá markinu. Á 19. mínútu
skaut Ásgeir Elíasson framhjá í
góðu færi og skömmu síðar fékk
Kristinn Jörundsson boltann í
góðu færi en hann var of lengi að
athafna sig og Víkingarnir bægðu
hættunni frá. Aðeins leið mínúta
þá átti Sigurbergur skalla að
Víkingsmarkinu, sem Diðrik varði
mjög vel.
Á 26. mínútu hálfleiksins kom
markið. Víkingarnir brutust í gegn
vinstra megin eins og svo oft í
þessum leik. Jóhannes Bárðarson
fékk boltann, lék upp að enda-
mörkum og gaf fyrir markið.
Lárus Guðmundsson skaut að
markinu, Framarar vörðust og
boltinn barst út í vítateiginn þar
sem Gunnar Örn kom á fullri ferð
og negldi knöttinn efst í mark-
isiandsmðtU) 1. delld
Gunnars
Fram - Víkingur 0:1
Texti:
Sigtryggur Sigtryggsson
Mynd:
hornið, óverjandi fyrir Guðmund.
Þetta var dæmigert mark fyrir
Gunnar, sem sjaldan mistekst að
skora úr færum eins og þessu.
Skömmu síðar átti Gunnar
annað skot að marki Fram eftir
góðan Undirbúning Lárusar en í
þetta skipti skaut hann naumlega
framhjá. En tvö beztu færin áttu
eftir að fallá Pétri Ormslev í
skaut. I bæði skiptin stóð hann
óvaldaður á markteig með boltann
en í fyrra skiptið skaut hann
framhjá marki og í seinna skiptið
varði Diðrik mjög vel.
Um leikinn í heild er það að
sejrja að Víkingar voru meira með
boltann og sóttu meira en Framar-
ar fengu fleiri marktækifæri,
Seinni hélfleikurinn var með því
betra sem Víkingur hefur sýnt í ár
enda hvíldu leikmennirnir sig
aðeins á langspyrnunum og reyndu
að leika saman. Tvær breytingar
voru gerðar frá síðasta leik, 16 ára'
piltur, Lárus Guðmundsson kom
inn' fyrir Jóhann Torfason sem
miðherji og stóð sig mjög vel í
sínum fyrsta leik. Er þarna
greinilega á ferðinni stórefnilegur
piltur. Hann var mjög góður í
framlínunni ásamt Árnóri Guð-
johnsen, sem reyndar var eltur
allan leikinn. Báðir þessir piltar
léku í 3. flokki í fyrra. Adolf
Guðmundsson kom í stöðu bak-
varðar í stað Ragnars Gíslasonar
og stóð sig mjög vel. Auk þeirra
áttu þeir Diðrik markvörður og
Gunnar Örn góðan leik.
Framarar hafa einnig í sínu liði
kornungan mann, sem svo sannar-
lega lofar góðu, Guðmund Bald-
ursson markvörð. Hann var bezti
maður Fram í þessum leik ásamt
„gömlu“ brýnunum Sigurbergi
Sigsteinssyni, Gunnari Guð-
mundssyni og Ásgeiri Elíassyni.
Óvenju lítið bar á Pétri Ormslev
sem verið hefur bezti maður Fram
í vor.
f STUTTU MÁLIi
LauKardalsvöllur 17. júní. íslandsmútið 1.
deild. Fram Víkingur 0,1 (0.0).
MARK VÍKINGS. Gunnar Örn Kristjánsson
á 71. mínútu.
ÁMINNING. Adolf Guðmundssyni Vj'kinií
sýnt Kula spjaldið.
AHORFENDUR. 380.
Skagamenn innbyrða vinn-
ingana
og örugglega
AKURNESINGAR halda áfram að ínnbyrða vinningana í 1. deild létt og
örugglega. Á sunnudaginn komu Keflvíkingar í heimsókn upp á
Skipaskaga og peir máttu pola stórt tap 3:0. Þetta var fyllilega
verðskuldaður sigur hjá Akurnesingum en prátt fyrir að sigurinn væri stór
léku Akurnesingar ekki eins og peir bezt geta. Áttu peir lengí vel í basli
með Keflvíkingana en eins og fyrri daginn var framlína Keflvíkinganna
bitlaus og gat pví ekki nýtt pau tækifæri sem buðust. Undir lok leiksins
náðu Akurnesingar sínum bezta leikkafla og eftir pað lék aldrei vafi á pví
hvoru megin sigurinn lenti.
Það var nokkuð hvasst á Akranesi
á sunnudaginn en sólskin. Akurnes-
ingar léku undan vindinum í fyrri
hálfleik. Fátt markvert gerðist fyrstu
20 mínúturnar en sótt var á báða
bóga. Á 24. mínútu tóku Skagamenn
forystuna meö marki af ódýra
markaönum. Karl Þórðarson, pottur-
inn og pannan í sókn Akurnesinga,
sendi þá stórgóöa sendingu inn í
teiginn til Matthíasar sem skallaði aö
markinu. Þorsteinn markvörður ætl-
aði aö grípa boltann en missti hann
í gegnum klofið á sér til Péturs
Péturssonar sem var óvaldaöur við
marklínuna og skoraöi auðveldlega.
Eftir markiö lifnaði heldur yfir
Akurnesingum og tvisvar munaði litlu
að þeir skoruöu. Fyrst var bjargað á
línu frá Matthíasi og síðan bjargaöi
Þorsteinn á ævintýralegan hátt skoti
Péturs af stuttu færi. Héldu Akurnes-
ingarnir því fram að boltinn hefði
verið kominn inn fyrir línuna en
línuvörðurinn lét leikinn halda áfram.
í upphafi seinni hálfleiks voru
Keflvíkingarnir líflegri og vörn Akur-
nesinga og Jón markvöröur uröu í
nokkur skipti aö taka á honum stóra
sínum. Friðrik Ragnarsson komst í
skyndisókn en missti boltann klaufa-
lega frá sér, Rúnar Georgsson og
Gísli Torfason áttu báöir skalla aö
marki Skagamanna en ekki tókst
þeim að skora. Hinum megin á
vellinum komust Matthías og Kristinn
Björnsson í góö færi en skutu
framhjá markinu. Þá komst Pétur
einn inn fyrir vörn ÍBK en var gróflega
hindraöur af Gísla Torfasyni. Þarna
var um augljósa bókun aö ræöa en
dómarinn dæmdi ekki einu sinni á
brotið!
Annað mark Akurnesinga kom á
30. mínútu seinni hálfleiks. Brotið var
á Kristni Björnssyni rétt utan víta-
IA - IBK 3:0
Texti:
Sigtryggur Sigtryggsson
Myndir: Friðpjófur Helgason
teigs Keflvíkinga vinstra megin. Árni
Sveinsson tók spyrnuna og sendi
boltann beint á höfuð Matthíasar
Hallgrímssonar, sem skoraöi með
mjög föstum skalla. Glæsilegt mark
hjá Matthíasi og óvanalegt að sjá
hann skora svona skallamörk\ Við
markið lifnaði mjög yfir heimamQnn-
um og það sem eftir lifði leiksins
náðu þeir sínum bezta leikkafla. Litlu
munaöi aö Pétri tækist aö skora á
35. mínútu eftir aö hann haföi fengið
sendingu frá Kristni en hann skaut,
rétt framhjá.
En þaö var Kristinn sem innsiglaði
sigurinn á 43. mínúti. Karl Þóröarson
haföi þá leikiö vörn Keflvíkinga
sundur og saman og síðan sent
knöttinn fyrir fætur Kristins, sem
skoraði með þrumuskoti, gjörsam-
lega óverjandi. Annaö glæsimark
Akurnesinga. Á síöustu mínútunni
munaöi minnstu aö Þóröi Karlssyni
tækist að skora fyrir Keflavík og Jón
Þorbjörnsson sýndi hvers hann er
megnugur og varöi stórglæsilega.
Jón átti mjög góöan leik og í
vörninni voru þeir Jón Gunnlaugsson
og Jóhannes Guðjónsson mjög
traustir. Pétur Pétursson var bezti
maður framlínunnar en eins og svo
oft áður var einn leikmanna liösins í
sérflokki, Karl Þórðarson. Þau eru
ófá mörk Skagamanna, sem hann
hefur átt þátt í með leikni sinni og
nákvæmum sendingum.
Keflavíkurliðið lék oft á tíðum vel
saman úti á vellinum en þegar upp
að marki Akurnesinganna kom áttu
framlínumenn liösins ekkert svar viö
sterkum varnarleik Akurnesinga. Er
þetta ekki í eina skiptið í sumar sem
bitlaus sóknarleikur gerir möguleika
þeirra til stigaöflunar nánast enga.
í STUTTU MÁLI:
Akranesvöllur 18. júnl, Islandsmótiö 1.
deild, ÍA — ÍBK 3:0 (1:0)
Mörk Akraneas: Pétur Péturaaon é 24.
mínúti, Matthíaa Hallgrímsson é 75. mínúti
og Kriatinn Björnsaon é 88. mínúti.
Áminning: Jón Alfreósson bókaöur í s.h.
Áhorfendur: 866.
• Pétur Pétursson nýtir sér mistök Þorsteins markvarðar ÍBK og
skorar fyrsta mark Akurnesinga.
• Matthias Hallgrímsson skorar
þrumuskalla eftir aukaspyrnu.
annað mark Akurnesinga með
**%#>*
IL
nmmé''
■ *
• Kristinn Björnsson á auðum sjó og skorar þriðja mark ÍA með
þrumuskoti eftir að hafa fengið holtann frá Karli.
Heilladísirnar
Þorbergur björguðu KA
HEILLADISIRNAR og Þorbergur
Atlason, markvöróur KA, séu svo
um aó KA hlaut annað stigið í leik
liósins é móti ÍBV í 1. deild í
knattspyrnu i Akureyrarvelli síóast-
liðinn sunnudag. Leikurinn fór fram
viö bestu hugsanleg skilyröi, stafa-
logn var og mjög milt veöur.
Vestmanneyingar éttu urmul af
góóum marktækifærum en voru
ekki é skotskónum og nýttu ekki
pau mörgu tækifæri sem peim
géfust. KA-lióiö baröist vel fyrstu 20
mínútur leiksins en síóan dofnaói
mjög yfirleik liósins. KA mé vel viö
una að hafa tryggt sér annaö stigió
í sínum fyrsta heimaleik.
Vel hvattir áfram af fjölmörgum
áhorfendum byrjuðu KA-menn leik-
inn af krafti og léku oft vel saman.
Eyjamenn náðu hinsvegar illa saman
og virkuöu óöruggir. Máske hefur
þeim brugðiö viö aö leika knatt-
spyrnu í svona hagstæðu veöri.
Fyrsta verulega marktækifærið kom
á 10. mínútu leiksins er KA fékk
hornspyrnu og skallaö var rétt yfir
þverslánna. KA-liðið var öllu ákveön-
ara og voru leikmenn yfirleitt fljótari
á knöttinn og hreyfanlegri. A 15.
uo'
mínútu fyrri hálfleiksins náöu þeir
Jóhann Jakobsson og Sigbjörn
Gunnarsson mjög laglegum sam-
leikskafla, og tókst aö leika snyrti-
lega í gegn um vörn ÍBV og gefa
síðan knöttinn vel inn í vítateiginn á
Ármann Sverrisson sem skaut föstu
vinstri fótar skoti og skoraði út viö
stöng, illverjandi fyrir Pál Pálmason
markvörð ÍBV. Var undirbúningur að
marki þessu eins og hann gerist
bestur, snilldarsamleikur og fallegt
mark.
Nú fóru Eyjamenn aö vakna af
dvalanum og fóru aö sækja meira.
Eftir að hafa reynt töluvert af
langspyrnum fram miðjuna, fór liðið
að beita stuttum samleik og þaö
*
Hart barist á marktcig Akureyringa, en Þorbergi tókst að handsama knöttinn eins og svo oft í leiknum.
KA - IBV 1:1
Texti og mynd:
Þórarinn Ragnarsson
skilar alltaf árangri. Á 35. mínútu áttu
Eyjamenn góða sóknarlotu sem
endaöi með sannkölluöum þrumu-
fleyg frá Karli Sveinssyni, Þorbergur
varði skot hans mjög vel en það var
svo fast aö hann hélt ekki knettinum
og Sigurlás kom aövífandi og náði að
skjóta, en Þorbergur var ekki á þeim
buxunum að láta skora hjá sér og
varöi aftur meistaralega. Var þaö
mikil óhepþni hjá ÍBV að nýta ekki
þessi góöu marktækifæri. Nú höföu
Eyjamenn náð góöum tökum á miðju
vallarins og sóttu stíft, vörn KA var
þó vel á verði og gaf ekkert eftir. í
lok fyrri hálfléTksins á 43. mínútu
brunaöi Tómas Pálsson upp vinstri
kantinn, tókst aö leika laglega á
varnarmann og senda knöttinn fyrir
markiö á Sigurlás, sem var ekki aö
tvínóna viö hlutina, heldur lét ríöa af
hörkuskot sem stefndi beint í netiö
en á síöustu stundu náöi Þorbergur
aö verja af hreinni snilld. Svo fast var
skotiö að knötturinn hrökk af Þor-
bergi út í miöjan vítateiginn og Karl
Sveinson kom á fullri ferö sveiflaöi
hægra fæti og negldi á mannlaust
markiö, Þorbergur var ekki búinn aö
standa á fætur eftir fyrra skotið. Ekki
lék lánið viö Karl því skot hans
hafnaði í þverslánni og hrökk knött-
urinn svo aftur fyrir markið. Lengi á
eftir hristist þversláin svo fast var
skotiö. Þarna skall aftur hurö nærri
hælum hjá KA-mönnum.
Alloft í fyrri hálfleiknum tókst
KA-mönnum að leika Eyjamenn
rangstæöa og tóku oft þannig mesta
broddinn úr sókn þeirra.
í síöari hálfleik var um algera
einstefnu aö ræða á mark KA, og
ekkert nema lukkan og frábær
markvarsla hjá Þorbergi bjargaði því
að ekki var skoraö nema eitt mark
hjá KA í síðari hálfleiknum. Kom
markiö á 33. mínútu hálfleiksins eftir
vel framkvæmda hornspyrnu. Sigur-
lás Þorleifsson var á réttum stað og
náði aö skalla efst í markhornið. Litlu
síðar komst Sigurlás aftur í gott
marktækifæri er hann komst einn inn
fyrir vörn KA en var of seinn á sér
aö skjóta og hættunni var bægt frá.
Slík var pressan á mark KA að
síöustu 5 mínútur leiksins áttu
Eyjamenn ekki færri en 5 hornspyrn-
ur í röð en allt kom fyrir ekki. Rétt
í lok leiksins náöu svo KA-menn
skyndisókn er Elmar brunaði upp
kantinn og náöi aö gefa fyrir markið
en framlínumenn KA náðu ekki að
vinna úr sendingunni og var það ekki
í fyrsta skipti í leiknum.
Lið ÍBV var svo sannarlega óhepp-
iö að fara ekki með bæði stigin heim
WSifc
m
L?
r:
FH-ingar
FH-INGAR tryggðu sér dýrmætt stig í fallbaráttunni sem framundan
er. þegar þeir höfðu stig af Þrótti á Laugardalsvellinum á
sunnudaginn. Þá brá all oft fyrir skemmtilegum samleiksköflum í
leiknum og heldur oftar hjá FH-ingum, en hins vegar virðist lið
Þróttar vera mun jafnara og virkaði því sterkara er á heildina er
litið. Hitt er svo annað mál, að FH átti stigið sannarlega skilið. Svo
er það ein sagan enn. að lcikurinn var á köflum afar grófur og tíðum
drógu menn ekkert úr spyrnum sfnum, þótt boltinn væri víðs fjarri
og aðeins fótleggur andstæðings þeirra. Mátti nokkrum sinnum sjá
mótherjana tvo og tvo saman hér og þar á vellinum að ræða málin
í litlu vinfengi. Voru þeir jafnvel að sýna hver öðrum hnúana.
Leiðinlegt að horfa á menn láta svona eins og krakka. þó að mikið
sé í húfi.
með sér eftir þennan leik, því er líða
tók á lelkinn tóku þeir öll völd á
vellinum, samt gekk þeim illa aö ráða
viö betri hluta KA-liðsins þar sem
vörnin var og Þorbergur markvörður
sem var mjög góöur allan leikinn, þá
var kornungur leikmaöur Gunnar
Gíslason hjá KA fastur fyrir og
ákveöinn og átti góöan leik.
I STUTTU MALI
Akureyrarvöllur. 1. deild 18. júní, KA —
ÍBV 1-1 (1-0).
Mark KA. Ármann Sverrisson á 15. minútu.
Mark ÍBV, Sigurl&s Þorleifsson & 78.
mínútu.
Áminning, Engin
Áhorfendur, 1260.
Framan af sendu leikmenn
knöttinn einkum til mótherja eða
út fyrir hliðarlínu en er líða tók á
fór að bregða fyrir knattspyrnu
hjá báðum liðum. Þróttarar áttu
fyrstu færin og var það Baldur
Hannesson sem tvívegis var nærri
því að skora, á 1. og 16. mínútu.
Svöruðu FH-ingar því með þrumu-
skoti Þóris Jónssonar af löngu
færi sem fór naumlega yfir markið
og tveimur mínútum síðar eða á
32. mínútu skaut Páll Ólafsson
þrumuskoti beint úr aukaspyrnu
af 35 metra færi en Þorvaldur
varði meistaralega. En fjórum
mínútum síðar var ekki sami
Þróttur - FH 2:2
Texti:
Guðmundur Guðjónsson
Mynd:
Ragnar Axelsson
meistarabragur á Þorvaldi, er
hann missti boltann klaufalega
undir sig er Páll sótti að honum og
var eftirleikurinn léttur fyrir þann
síðarnefnda, 1—0 fyrir Þrótt. Vörn
FH átti einnig ríflegan skerf af
sökinni. Það var nú skammt stórra
högga á milli og á 42. mínútu kom
fallegasta mark leiksins og fyrra
jöfnunarmark FH. Andrés lék upp
miðjuna, sendi knöttinn út á hægri
vænginn til Ólafs, sem renndi
honum til Þóris þjálfara. Þórir
sendi góðan bolta fyrir markið þar
sem Leifur Helgason kom aðvíf-
andi og skoraði með glæsilegu
skoti.
En mínútu síðar voru FH-ingar
aftur marki undir því að þá
skoraði Baldur Hannesson með
skalla eftir hornspyrnu. Þorvaldur
var nærri því að verja, en tókst
aðeins að slá knöttinn í stöngina
og þaðan rúllaði hann inn fyrir
línuna.
FH-ingar voru frískara liðið í,
byrjun síðari hálfleiks og strax áj
3. mínútu varði Rúnar ve! lúmskt
langskot frá Janusi. Og á 64. j
mínútu átti Þórir hörkuskot sem
dómarinn taldi að hafði lent í
hendi Sverris Einarssonar. Víti
þótti mörgum strangur dómur en
það þýðir ekkert að munnhöggvast
við þann svartklædda og Janus
jafnaði fvrir FH en Rúnar mark-
vörður var átakanlega nærri því
að verja laust skot Janusar.
Þróttarar sóttu mun meira það
sem eftir var en FH-ingar börðust
grimmilega og voru hættulegir í
skyndisóknum inn á milli, Pálmi
Sveinbjörnsson skoraði og í mikl-
um darraðardansi fór knötturinn
inn fyrir línu Þróttara en í báðum
tilvikum voru mörkin dæmd ógild
vegna brota gegn markverðinum.
2—2 urðu því lokatölur þessa leiks
og getur hvorugt liðið nagað sig í
handarbökin yfir því vegna þess að
bæði uppskáru það sem þau áttu
skilið fyrir frammistöðuna.
Lið Þróttar er skipað afar
jöfnum ieikmönnum og þar skarar
enginn fram úr öðrum, þeirra
styrkleiki byggist fyrst og fremst
á þessari breidd, ljóst er þó að
Óttar Hróarsson er alltaf að verða
betri og betri. Öðru máli gegnir
um lið FH, þar snýst allt um þá
Janus, Þóri, Viðar og Ólaf Dani-
vals. Þeir léku allir mjög vel og
einnig var Leifur Helgason góður,
en hann átti við meiðsli að stríða
og lék ekki með í síðari hálfleik.
I STUTTU MÁLI,
1. deild. LauKardalsvöllur 18. júní. Þróttur
- FH 2-2 (2-1).
MÖRK ÞRÓTTAR, Páll Ólaísson (36. roín.)
ok Baldur Hannesson (43. min.).
MÖRK FH, Loifur Helgason (42. mín.) og
Janus Guölaugsson (víti á 64. mín.).
ÁMINNINGAR, Þórir Jónsson FH.
ÁHORFENDUR, 232.
* rt.
»8
- M
♦
... m? *.
. .. . -- ‘ r ■
• Leifur Ilelgason (lengst til vinstri) skoraði glæsilega fyrra mark FII rétt fyrir leikhlé. Rúnar Sverrisson.
markviirður Þróttar sýndist eiga litla möguleika á því að verja skot Leifs.