Morgunblaðið - 20.06.1978, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1978
Slæm knattsppa
í góða veðrínu
ÞRÁTT fyrir besfu hugsanlegar aðstæður var fátt um fína drætti í leik
Þórs og Ármanns í 2. deildinni á föstudagskvöld. Þórsarar sigruðu
með tveimur mörkum gegn einu og var sá sigur sanngjarn ef miðað
er við Þau marktækifæri sem liðin fengu, en ef miðað er við
knattspyrnuna sem liöin sýndu hefði hvorugt liðiö átt að fá stig.
Það var fremur fátt sem gerðist þessum leik. Annars vegar Árni
í fyrri hálfleiknum, ef undan er
skilið mark Ármenninga, sem
Þráinn Ásmundsson skoraði á 44.
mínútu. Þráinn komst einn inn fyrir
vörn Þórs eftir sendingu Egils
Steinþórssonar og skoraði af
öryggi fram hjá Eiríki markverði
Þórs.
í síðari hálfieiknum áttu Þórsarar
nokkur færi og tókst að nýta tvö
þeirra, sem dugði til sigurs. Fyrra
mark Þórsara kom á 71. mín. Jón
Lárusson átti þá gott skot í slá
sem hrökk út til Sigþórs Ómars-
sonar sem skoraði auðveldlega.
Síðara markið kom á 81. mín. og
var Sigþór aftur að verki. Vörn
Ármanns opnaðist þá illilega og
eftirleikurinn var Sigþóri auðveld-
ur. Besta tækifæri leiksins áttu
síöan Þórsarar 5 mínútum fyrir
leikslok. Gefin var há sending fyrir
mark Ármanns þar sem Björn
Víkingsson var einn og óvaldaöur,
en Birni tókst einhvern veginn að
koma boltanum fram hjá þar sem
auöveldara virtist aö skora.
Sem fyrr segir voru færin
Þórsara og sigur þeirra því sann-
gjarn. Það breytir því ekki að
knattspyrnan sem liðið leikur er
fjarri því sem boðlegt er af liði sem
lék í fyrstu deild á síöasta ári.
Lykilmenn, sem voru í fyrra, eins
og til dæmis Sigþór Ómarsson,
viröast gersamlega æfingarlausir
og markvarslan hefir verið höfuð-
verkur hjá liðinu til þessa. Jafnvel
leikmenn eins og Sigurður Lárus-
son, sem aldrei hafa sýnt uppgjöf,
eru fjarri sínu besta. Það er
eitthvað að hjá liöinu og Þórsarar
veröa aö finna lausn á sínum
málum ef liðið ætlar sér eitthvaö
í ár.
Um Ármannsliðið er fátt að
segja. Þaö er skípað liprum
strákum sem geta á stundum gert
ýmsa góöa hluti en detta niður á
milli. Vörn og markvarsla virðast
vera gloppótt og ekki auövelt aö
spá um gengi liðsins í ár fremur
enn annarra 2. deildar liða, en 2.
deildin viröist ákaflega jöfn aö
öðru leyti en því að KR er
yfirburðalið, öruggt um sæti í 1.
deild aö ári.
Tveir menn báru af öðrum í
Stefánsson, ungur miðvörður hjá
Þór, sem er mjög öruggur í sínum
gerðum, og hins vegar Egill
Steinþórsson hjá Ármanni, útsjón-
arsamur og kraftmikill leikmaður.
Friðjón Edvardsson dæmdi leik-
inn af stakri prýði.
— Sigb. G.
Isfiröingar
hirtu bæði
fPilSlPlP®®
• NorðfirðinKur sækir þarna hart að marki Fylkis og virðist hann
Ljósm. Ilagnar Axeísson.
hafa hetur í haráttunni.
Ágúst varði vítið
og Þróttur sigraði
ÞRÓTTARAR komu nokkuð á óvart með því að sigra Fylki 2il
um helgina í annarri deild íslandsmótsins í knattspyrnu.
Leikurinn var lengst af mjög jafn, en ekki er að vita hver úrslit
hcfðu orðið hefði ekki Ágúst markvörður þeirra Norðfirðinga
varið vítaspyrnu Ómars Egilssonar á 25. mínútu fyrri hálfleiks
cn þá var staðan ennþá OiO
Fylkismenn sóttu heldur
meira í byrjun og tvívegis varði
Agúst vel skot þeirra. Áttu
Þróttarar varla nokkuð sem
nefna mætti færi fyrr en á 21.
mínútu er Ögmundur varði vel
skot frá Kristni. En fjórum
mínútum síðar kom fyrrnefnd
vítaspyrna og þótti mörgum um
æði strangan dóm að ræða.
Ómar Egilsson tók spyrnuna, en
spyrna hans að markinu var
grútmáttlaus, og átti Ágúst í
litium erfiðleikum með að verja.
Fátt fleira markvert gerðist það
sem eftir lifði hálfleiksins og
var jafnræði með liðunum.
Ekki voru liðnar nema sjö
mínútur af síðari hálfleik, er
dómarinn blés í flautu sína og
dæmdi vítaspyrnu á Fylki og
var hér um næstum alveg eins
brot að ræða og í fyrra vítinu.
Enn þótti mönnum dómurinn
strangur, en dómarinn var
samkvæmur sjálfum sér. Bjarni
Jóhannesson spyrnti og skoraði
örugglega með þrumuskoti upp
í vinkilinn. Fóru nú Fylkismenn
að sækja af kappi og Þróttarar
gerðu þá skyssu að draga sig
aftur á vellinum, en fram að því
hafði þeim reynst sóknin besta
vörnin. Það fór líka svo að
Fylkir jafnaði og var þar á
ferðinni bakvörðurinn Kristinn
Guðmundsson eftir hamagang
og stangarskot í kjölfar horn-
spyrnu 15 mínútum fyrir leiks-
lok. Gerðu nú Fylkismenn harða
hríð að marki Þróttar, en
útkoman varð hins vegar sú, að
þeir urðu sjálfir að hirða
knöttinn úr eigin netmöskvum
eftir að Bjarni hafði skorað
annað mark sitt 7 mínútum
fyrir leikslok. Kom markið eins
og skrattinn úr sauðaleggnum
eftir að hornspyrnu virtist hafa
verið bægt frá.
Lið Þróttar var mjög jafnt að
þessu sinni, en Guðmundur
Yngvason var þó þeirra bestur
að mati undirritaðs, einnig átti
Ágúst markvörður góðan dag.
Hjá Fylki var bakvörðurinn
Kristinn Guðmundsson lang-
bestur, en einnig voru miðverð-
irnir Ágúst og Ómar góðir.
Framlína Fylkis náði sér aldrei
á strik í leiknum og þar virtist
langtímum saman hver leika
fyrir sig. _
stigin í
Sandgerði
ÍSFIRÐINGAR gerðu
góða ferð til Sand*
gerðis á sunnudaginn.
Þeir léku við heima-
menn og unnu 1«0.
Þetta var jafn leikur
en ísfirðingarnir voru
ákveðnari fyrir fram-
an markið en Reyn-
ismenn og því höfðu
þeir sigur í leiknum.
Reynismenn léku undan all-
sterkum vindi í f.h. og sóttu þá
mun meira en ekki tókst þeim
frekar en í fyrri leikjum að
skapa sér góð marktækifæri. í
seinni hálfleiknum voru það
Isfirðingarnir sem sóttu meira
og sex mínútum fyrir leikslok
tókst þeim að skora markið sem
færði þeim bæði stigin. Markið
skoraði Haraldur Stefánsson
laglega með skalla eftir auka-
spyrnu. Reynismenn börðust
eins og ljón í lokin og reyndu að
jafna en allt kom fyrir ekki.
ísfirðingar voru heldur
ákveðnari í leiknum en Reynis-
menn. Það hefur háð Reyni
mjög í leikjum sumarsins að allt
bit hefur vantað í framlínuna og
það sama var upp á teningnum
að þessu sinni.
- JJ/SS.
KR-sigur
á Eskifirði
KR INGAR máttu teljast heppnir að sigra í leik
sínum við Austra frá Eskifirði sem fram fór í 2.
deild í knattspyrnu síðastliðinn föstudag á
Eskifirði.
Það var Siguröur Indriðason
sem skoraði hið mikilvæga mark
KR á 15 mínútu leiksins. Kom
markið eftir að KR-ingar höfðu
STAÐAN
Staðan í annarri deild
loknum síóustu leikjum:
aA
KR
Ármann
Haukar
Fylkir
ÍBÍ
Aystri
Þ6r
Völsungur
Þróttur
Reynir
6 4 2
5 3 0 2
6 2 2 2
6 3 0 3
4 2 11
6 2
5 2
5 2
6 1
6 1
2 3
1 4
12:1 10
8:6 6
7« 6
6:6 6
4:4 5
4:5 5
4:5 5
4:7 5
7:12 4
4:7 3
Markhæstu leikmenn:
Þróinn Asmundsson Árm. 5
Stefán Ö.Sigurðsson KR 4
fengið innkast á vallarhelmingi
Austra. Var kastað langt inn á
völlinn þar sem einum KR-ingi
tókst að skalla vel inn í vítateiginn
á Sigurð sem skallaði í netið. Var
betta hálfgprt hennnismark
Austramenn áttu besta marktæki-
færið í leiknum er Bjarni
Kristjánsson átti gott tækifæri á
að skora en skaut í þverslá, hrökk
knötturinn út og enn var skotið en
nú í varnarvegg KR.
Leikurinn var nokkuð jafn þótt
svo að KR-ingar væru öllu ákveðn-
ari í fyrri hálfleiknum. Ekki tókst
þeim þó að skapa sér veruleg
marktækifæri. Austramenn komu
mjög ákveðnir til leiks í síðari
hálfleik’num og sóttu þá mun
meira en KR.
Besti leikmaður Austra í þess-
um leik var Halldór Árnason. Hjá
KR-ingum bar Ottó Guðmundsson
nokkuð af og flestar sóknarlotur
Austra strönduðu á honum.
Ævar.
• Sigurmark Völsungs í leiknum gegn Haukum. Hafþór Helgason hefur skallað boltann yfir
markvörðinn og boltinn er á leiðinni í markið. Ljósm. Börkur Arnviðarson.
Haukar réðu ekki við
sterka vörn Völsungs
ÞAO VAR mikiA um fallega og vsl leikna knaftapyrnu í Inik Völaunga
og Hauka, sem fram fór á Húsavík á föafudagskvöld.
Strax í upphafi kom í Ijós að
Völsungar hötðu í fullu tré við
Haukana, og kom það ýmsum á
óvart þar sem Völsungar hafa átt
mjög slæma leiki aö undanförnu.
Allan fyrri hálfleik var nokkuö
jafnt á komiö með lióunum, bæði
sýnu þau mjög góða knattspyrnu
og áttu oft fallegar sóknarlotur en
lítið var um opin færi.
í seinni hálfleik náöu Haukar
betri tökum á miðjunni og press-
uöu á vörn Völsunga, en gekk
erfiðlega aö finna á henni glufur og
þá sjaldan þaö fókst varöi mark-
vörður Völsunga, Gunnar Straum-
land meistaralega. Völsungar náöu
hinsvegar oft aö skapa stórhættu
viö mark Hauka meö snöggum
sóknarlotum. Svo á 15. mín.
gerðist þaö aö sóknarmanni Völs-
ungs var brugöiö innan vítateigs
og var þeim þá dæmd vítaspyrna
sem Ingólfur Ingólfsson skoraöi úr.
Eftir þetta hertu Haukamenn enn
á sókninni og að stundarfjóröungi
liðnum tókst Sigurði Aöalsteins-
syni að senda knöttinn í mark
Völsunna úr hrönnu færi á mark-
teigshorni.
A 40. mín. bættu Völsungar viö
öðru marki og var þar að verki
Hafþór Helgason, sem náöi að
skalla knöttinn yfir markvörö
Hauka eftir laglega aukaspyrnu
sem Kristján B Olgeirsson tók.
Þaö sem eftir var leiksins sóttu
Haukar án afláts en allt kom fyrir
ekki, 2:1 sigur Völsunga var í höfn.
í liöi Hauka stóöu þeir sig best
Ólafur Torfason, Siguröur Aöal-
steinsson og Ólafur Jóhannesson.
í liði Völsunga var það vörnin sem
skaraði frm úr og þó einkum þeir
Gísli Haraldsson og Guðmundur
Jónsson. Sævar Frímannsson
dæmdi þennan leik og skilaði hann
hlutverki sínu ágætiega.
B.A.