Morgunblaðið - 20.06.1978, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1978
37
Sjónvarp í kvöld kl. 20. 30:
Lokaþáttur al-
þýðufræðslu um
efnahagsmál
Fimmtíu ára stúdentar frá M.R. minntust afmælisins á Hótel Sögu síðast liðinn föstudag. 41 stúdent
útskrifaðist frá M.R. árið 1928 og af þeim eru nú aðeins 19 á lífi og mættu 14 í afmælishófið ásamt
mörgum ekkjum látinna skólabræðra.
Á myndinni erui neðri röð frá vinstri Grímur Magnússon. Albert Sigurðsson, Agnar Johnson. óskar
Þórðarson, Sigurður Pálsson, Einar Magnússon fyrrverandi rektor (ekki 50 ára stúdent), Gissur Ólafsson
og Kristján Þorvarðarson. Efri röð Gissur Erlingsson. Gunnar Guðjónsson, Hafliði Ilelgason, Jón E.
Vestdal. Agnar Kl. Jónsson, Þórólfur Ólafsson og Viðar Pétursson. Á myndina vantar ólöfu Árnadóttur,
Jónas Thoroddsen, Ólaf Hansson, Engilbert Guðmundsson og Sigurð Ólafsson en þau voru forfölluð.
Á DAGSKRÁ sjónvarpsins í
kvöld kl. 20.30 er þátturinn
„Alþýðufræðsla um efnahags-
mál" og verður sýndur 6. og
síðasti þátturinn.
Þátturinn í kvöld nefnist
„Þjóðarframleiðsla og hagvöxtur“
og að sögn dr. Þráins Eggertsson-
ar; sem er annar af umsjónar- '
mönnum þáttarins, verður fyrst og
fremst fjallað um þá miklu lífs-
kjarabyltingu sem orðið hefur á
þessari öld og hvernig efnahags-
kerfið hefur breyst. Sýnt verður á
einfaldan hátt hvernig þjóðartekj-
ur á mann hafa breyst og fjölmörg
dæmi verða tekin um það á hvern
hátt fólk lifir öðruvísi nú á dögum
en tíðkaðist hér áður fyrr.
Gerð verður grein fyrir þróun
mannfjöldans á íslandi frá árinu
1703 og fram á þennan dag. Einnig
verða birtar spár um mannfjölgun
fram til aldamóta.
I lok þáttarins verður litið á
ráðstöfun þjóðatekna og lífskjör
Islendinga og annarra landa á
Finnur Torfi
segir Gylfa
hættan
Á FRAMBOÐSFUNDI í
Varmahlíð gerðist það með-
al annars að Finnur Torfi
Stefánsson, efsti maður á
lista Alþýðuflokksins í
Norðurlandskjördæmi
vestra, hældist um yfir því
að Alþýðuflokkurinn væri
nýr flokkur og undirstrikaði
að Gylfi Þ. Gíslason væri
hættur. Þessu svaraði Ólaf-
ur Jóhannesson dómsmála-
ráðherra á þann veg að
langur vegur væri frá því að
drengirnir, sem nú réðu
Alþýðuflokknum, kæmust
með tærnar þar sem Gylfi
hefði hælana.
• m
Olvun ad-
komufólks
á Akureyri
Akureyri, 19. júní.
17. júníhátíðahöldin á Akureyri
voru fjölsótt og fóru hið bezta
fram, allt fram til miðnættis, enda
veður hið bezta. Eftir miðnætti
brá hins vegar svo við að mikið bar
á ölvun og ólátum á almannafæri
og að sögn lögreglunnar átti þar
nær eingöngu hlut að máli að-
komufólk, bæði karlar og konur.
- SV.P.
Pétur
Sigurðsson
áþing
ÉG SKORA eindregið á alla
sjómenn og þá sem vilja sjó-
mannastéttinni vel að styðja
Pétur Sigurðsson í næstkom-
andi alþingiskosningum þann
25. júní.
Það er óhrekjanleg staðreynd
að Pétur Sigurðsson hefur
unnið frábærlega vel að mál-
efnum sjómanna, enda þekkir
hann þeirra mál manna bezt,
en sem kunnugt er stundaði
Pétur sjóinn hér áður fyrr.
Sjálfur veit ég að margir
sjómenn eru sömu skoðunar og
ég og þekkja til verka Péturs.
Stöndum öll með Pétri Sig-
urðssyni.
Kveðja
Gísli Jóhannesson,
skipstjóri.
Flugfélagi Norðurlands
bætist Twin-Otter vél
Akureyri, 19. júní.
FLUGFLOTA Flugfélags Noröur-
lands bættist í fyrrinótt 19 sæta
Twin-Otter flugvél, sem Siguróur
Aðalsteinsson framkvæmdastjóri
og flugstjóri og Torfi Gunnlaugs-
son flugmaöur flugu alla leiö frá
Miami í Florida, Þar sem vélin var
keypt. Feröin heim gekk vel aó
öðru leyti en pví, að peir uröu aö
bíöa hluta af degi í Goose Bay aö
veöurskilyröi á Grænlandi yrðu
hagstæó. Vélin er 10 ára gömul.
Verið er að búa vélina til
farþegaflugs, en mikil verkefni
bíða hennar í sumar. Flugfélag
Norðurlands hefur aðeins eina
aðra vél til umráða í sumar um
þessar mundir þangað til sjúkra-
flugvélin, sem skemmdist á Isa-
firði á dögunum, bætist í hópinn
að lokinni viðgerð. Fjórða vélin,
sem er af Twn-Otter-gerð, verður
í sumar í leiguflugi á Norð-
ur-Grænlandi, þar sem hún er
leigð til þriggja mánaða.
— Sv.P.
Hagnaður af rekstri
Sjóvá 23,1 milljón
AÐALFUNDIR Sjóvátryggingarfé-
lags íslands hf og Líftryggingarfé-
lags Sjóvá hf voru haldnir í
Reykjavík föstudaginn 9. júní s.l.
Fundarstjóri var Benedikt Blöndal
hæstaréttarlögmaöur en fundarrit-
ari Hannes Þ. Sigurðsson deildar-
stjóri.
Siguröur Jónsson framkvæmda-
stjóri flutti skýrslu um starfsemi
félaganna og gerói grein fyrir
reikningum peirra áriö 1977
Hagnaöur af reglulegri starfsemi
Sjóvátryggingarfélags íslands hf áriö
1977 nam 23.1 milljón króna. Heild-
ariögjaldatekjur voru 2.150.4 millj.
kr. og hækkuöu um 285.8 millj. kr.
frá árinu áöur.
Heildartjón ársins námu 1.904.2
millj. kr. og höföu hækkaö um 340.8
millj. kr. frá árinu áöur. Rekstrar-
kostnaöur var 239.2 millj. kr. og
hækkaöi um 55.6 millj. kr. frá árinu
áöur.
í árslok 1977 nam tryggingasjóöur
félagsins 1.549.1 millj. kr. og haföi
Húseignir
vid Lauga-
veg til sölu
„Verðið sem sett er á
Laugaveg 17 er 70 milljónir
króna og á Laugaveg 97 eru
settar 45 milljónir króna“,
sagði Sverrir Kristinsson hjá
Eignamiðluninni er Mbl. for-
vitnaðist um verð á þessum
húseignum, sem auglýstar
hafa verið til sölu.
Sverrir sagði að Laugavegur
17 væri tveggja hæða hús með
kjallara og risi og bakhúsi, en
Laugavegur 97 stendur á 550
fermetra eignarlóð með
byggingarmöguleikum.
ólíku stigi borin saman og þannig
sýnt fram á það hvar við Islend-
ingar stöndum miðað við áðrar
þjóðir í heiminum.
17. júní hátíða-
höldin á Akra-
nesi heppnuð-
ust ágætlega
Akranes, 19. júní
17. JÚNÍ hátíðarhöldin fóru
fram hér með hefðbundnu sniði
og þóttu takast vel. Hátíðin
hófst á hádegi með guðsþjónustu
í Akraneskirkju, þaðan var farið
í skrúðgöngu inn á íþróttavöll-
inn við Langasand. Þar voru
haldnar ræður, keppt í íþróttum,
flutt ávarp fjallkonunnar o.fl.
Hátíðahöldin héldu svo áfram á
Akratorgi með ræðum, söng og
ýmsum skemmtiþáttum. Börn-
um var siðan boðið ókeypis í
Bíóhöllina. Loks var fjölskyldu-
hátíð í íþróttahöllinni og dansð
þar fram á nótt.
Júlíus
hækkaö um 402.4 millj. kr. frá árlnu
áöur. Þar af voru í iögjaldasjóöi 318.8
millj. kr., bótasjóöi 1.224.5 millj. kr.
og áhættusjóöi 5.8 millj. kr.
Eigið fé félagsins nam 226 millj.
kr., þar af hlutafé 62 millj. kr.
Hluthafar eru nú 132.
Hagnaöur af reglulegri starfsemi
Líftryggingarfélags Sjóvá hf nam 2.9
millj. kr.
Heildariögjöld voru 41 millj. kr. og
hækkuöu um 11.6 millj. kr. frá árinu
áöur.
Tjón ársins námu 11.5 millj. kr. en
15.9 millj. kr. árið áður. Rekstrar-
kostnaöur var 14.3 millj. kr. og
hækkaöi um 5.6 millj. kr. frá árinu
áöur.
Líftryggingasjóöur var í ársiok 86.5
millj. kr., en 79.1 millj. kr. áriö áöur.
Eigiö fé nam 14.7 millj. kr., þar af
hlutafé 11 millj. kr.
Fastráönir starfsmenn á skrifstof-
um félaganna voru 64. í stjórn
félaganna eru þeir Sveinn Benedikts-
son formaður, Ágúst Fjeldsted, Björn
Hallgrímsson, Ingvar Vilhjálmsson og
Teitur Finnbogason. Framkvæmda-
stjóri er Sigurður Jónsson.
Sjóvátryggingarfélag Islands hf.
var stofnað áriö 1918 en Líftrygging-
arfélag Sjóvá hf. áriö 1975.
Höfuðkúpu-
brotnaði
í Húsadal
MAÐUR, Indriði Traustason írá
Unnarsholti í Hrunamanna-
hreppi, höfuðkúpubrotnaði í
Húsadal á laugardaginn.
Indriði var að aðstoða jeppaeig-
anda með viðgerð á drifskafti í bíl
hans, þegar hann fékk drifskaftið
í höfuðið. Björgunarsveitarmenn
úr Reykjavík voru í Þórsmörk og
fluttu þeir Indriða á móti lögregl-
unni frá Hvolsvelli, sem síðan
flutti hann til Reykjavíkur í
slysadeild Borgarspítalans.
Óskar Magnús-
son með góðan
afla til Akraness
Akranes, 19. júní.
ÓSKAR Magnússon kom í dag af
togveiðum með 200 lestir af blönduð-
um fiski og skuttogarinn Krossvík
var að koma inn með fullfermi.
Humarveiði hefur verið heldur
dræm að undanförnu.
Júlíus
Smyglað áfengi
fannst í húsi
LÖGREGLAN fann um 60 flösk-
ur af áfengi f húsi f borginni um
helgina, en áfenginu hafði verið
smyglað til landsins með m.s.
Stuðlafossi. Aðallega var um
vodka að ræða.
Kosninga-
handbók
Ný kosningahandbók hefur
verið gefin út fyrir alþingis-
kosningarnar 25. júní nk.(
Kosningahandhókin Val ’78.
Er í henni greint nákvæmlega
frá úrslitum allra kosninga frá
árinu 1958 til 1978. Að sögn
Skafta Harðarsonar, umsjón-
armanns útgáfunnar, er hún
bæði ódýrari og vandaðri en
þær handbækur, sem þegar eru
á markaðnum, en Samtök
ungra sjálfstæðismanna í
Reykjavík gefa hana út. Krist-
ján Hjaltason sá um útlit
bókarinnar, en hún fæst í
öllum bókabúðum.
K0SNINGA
HANDB0KIN
kosningar
25.júní