Morgunblaðið - 28.07.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JULI 1978
5
AU(;lVsIN(;AS!MINN EH:
22480
TEKIZT hefur að útvega fé til að
halda áfram áætluðum fram-
kvæmdum við Borgarfjarðar-
brúna á þessu ári og að þvl er
Snæbjörn Jónasson vegamála-
stjóri tjáði Morgunblaðinu I gær,
þá verður viðbótarféð tekið af þvf
sem fæst með sfðustu benzfn-
hækkunum, en alls er talið að
benzfnhækkunin auki tekjur rfk-
issjóðs um 300 millj. kr.
Þegar Morgunblaðið ræddi við
Snæbjörn sagði hann, að ríkis-
stjórnin hefði nu séð svo um, að
hluti af þvi fé sem fengist vegna
sfðustu benzinhækkunar færi til
framkvæmda við Borgarfjarðar-
brúna. Kvaðst hann eiga von á að
i sumar og haust yrði hægt að
steypa þann hluta af gólfi brúar-
innar, sem áætlað hefði verið, en
ekki væri ljóst hvort hægt yrði að
hefja framkvæmdir við fylling-
una Borgarnesmegin.
Um brúargerð á vegum Vega-
gerðarinnar sagði Snæbjörn, að
þar bæri hæst nýja brú yfir Víði-
dalsá í Húnavatnssýslu, ennfrem-
ur væri verið að byggja brú yfir
Búðargil hjá Húsavík, yfir Eld-
vatn hjá Syðri-Fljótum, í Svínadal
og' yfir Breiðadalsár i Reyðarfirði
og Breiðdal.
ÁSGEIR Friðjónsson,
sakadómari við ávana- og
fíkniefnadómstólinn, sett-
ur rannsóknarlögreglu-
stjóri í fjárdráttarmáli
skrifstofustjóra Rannsókn-
arlögreglu ríkisins, hófst í
gær handa um rannsókn
málsins. Aðspurður, sagði
Ásgeir að hann gæti ekki
að svo komnu máli greint
frá málavöxtum, því rann-
sókn sín væri rétt að hefj-
ast og hann hefði mest far-
ið yfir frumskýrslur og yf-
irheyrt aðila í gær.
Árni Gunnarsson, alþingismaður:
Afborgunarskilmálar
bannaðir með lögum
BANNA á með lögum hvers kon-
ar afborgunarskilmála f verzlun
hér á landi og hafa ströng viður-
lög við brotum á slfku banni.
Þetta segir einn nýkjörinna al-
þingismanna Alþýðuflokksins,
Arni Gunnarsson ritstjóri, f Al-
þýðublaðinu f gær. Segir Arni f
greininni, að sú aðferð að banna
afborgunarskilmála f verzlun
hafi vfða verið beitt með góðum
árangri, en hún hefur þau áhrif,
að fólk fjárfestir ekki fyrir pen-
inga, sem það á ekki til og dregur
stórlega úr kaupum á dýrum
varningi.
í greininni, sem birtist á bak-
síðu Alþýðublaðsins I gær, rekur
Árni nokkuð gengismál og segir
að sumir stjórnmálamenn vilji
ekki heyra minnzt á gengisfell-
ingu og segir hann að vera megi
að hægt sé að dulbúa gengisfell-
ingu á einhvern hátt, t.d. með því
flna orði „gengissig", síðan segir
Árni:
„öllum er ljóst að óttinn við
gengisfellingu hefur gripið um
sig í mynd kaupæðis, sem er að
verða árlegur viðburður hér á
landi. Eftirspurn eftir nýjum bíl-
um er nú I hámarki, kaupmenn
hafa ekki undan að selja heimilis-
tæki hverskonar og svo mætti
lengi telja. Allir telja sig græða á
því að festa fjármuni sína fyrii
hugsanlega gengisfellingu. Þettí
er hluti af hinum alræmda verð-
bólguhugsunarhætti.
íslenzk stjórnvöld hafa aldrei
gripið til neinna ráðstafana af
nokkru tagi til að draga úr þessu
kaupæði og koma almenningi I
skilning um að verðbólguhugsun-
arhátturinn er einn helzti þáttur-
inn I þeim efnahagsvanda, sem
við er að glíma. Hópar manna
græða offjár á verðbólgunni, en
þjóðfélagið I heild tapar ennþá
meiru. Þegar reikningarnir eru
gerðir upp að lokum, hefur þjóð-
arheildin orðið fyrir alvarlegu
tjóni.“
Niðurlag greinar Árna er svo-
hljóðandi og er það feitletrað:
„Eitt af ráðum, sem nota mætti
til að draga úr kaupæði, er stafar
af ótta við gengisfellingu, er að
banna með lögum hverskonar af-
borgunarskilmála í verzlun. Þess-
ari aðferð hefur verið beitt með
góðum árangri í öðrum löndum.
Hún hefur þau áhrif, að fólk fjár-
festir ekki fyrir peninga, sem það
á ekki til og dregur stórlega úr
kaupum á dýrum varningi. Slíkt
bann gæti komið illa við marga,
en við þvl er ekkert að gera. Slíku
banni ætti að koma á hér á landi
og hafa viðurlög ströng við brot-
um á því.“
Margrét Reykdal listmálari heldur um þessar mundir
sýningu á málverkum sinum á Kjarvalsstöðum. Á sýning-
unni eru olíumyndir og nokkrar vantslitamyndir. Þær
eru flestar fígúratífar og unnar á siðasta ári. Margrét
hefur stundað nám í listaháskóla í Noregi í 5 ár. Þetta er
önnur einkasýning hennar.
Hluti benzínhækk-
unarinnar fer í
Borgarfj arðarbrú
Rannsókn í máli skrif-
stofustjórans hafin
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
m
MvKARNABÆR
Laugaveq 20 Laugaveg 66 Austurstræti 22 Glæsibæ. Simi 28155