Morgunblaðið - 28.07.1978, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.07.1978, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JCLl 1978 + SIGURBJÖRN STEFÁNSSON. Stigahlið 41, lézt að Hátúni 10B. þann 26. júli. Fyrir hönd aðstandenda.> Dóra Guðmundsdóttir. + SIGUROUR HEIOBERG. Sólvalhígötu 54. lést á Heilsuverndarstöðinni miðvikudaginn 26 júli. Guðný Guðmundsdóttir og fósturdatur hins látna. Afi okkar. INGVARJÓNSSON. frá Skagaströnd. andaðist á elliheimilinu Blönduósi að morgni 27 júli. Jóhanna Valdamarsdóttir, Margrét Valdemarsdóttir. Jón Valdemarsson, Valdemar Valdemarsson, Ólafur Valemarsson. + Systir okkar, SESSEUA JÓHANNESDÓTTIR SVENDSEN frá Fagradal, Hólsfjöllum. lést að heimíli sinu Anesv 10 N-8616, Basmoen, Noregi 25 júli. Jarðarför ákveðin 2 ágúst Fyrir hönd vandamanna Sveinbjöm Jóhannesson Jón Jóhannesson + Sonur okkar og bróðir, HJÖRTUR ÞÓR GUNNARSSON lézt á Landspítalanum 26 júlí. Hadda Hálfdánardóttir Gunnar Jóhannesson Jóhannes Gunnarsson Gunnar Gunnarsson + Maðurinn minn GUÐJÓN GÍSLASON. Hvolsholti. verður jarðsettur frá Villingarholtskirkju laugardaginn 29 júli kl. 2. Skúla Þórarinsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við fráfall og útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa ÓLAFS ODDS GUOJÓNSSONAR Vigdts Ólafsdóttir Ólafur M. Ólafsson, Hlin Nielsen, Laufey Ólafsdóttir. Stefán Þorvarðarson, og bamaböm + Okkar innilegustu þakkir færum við öllum er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför HERMANNS KRISTINS GUÐMUNDSSONAR. Bókhlöðustig 5. Stykkishólmi Guð blessi ykkur öll Sigurborg Stulaugsdóttir, Guðlaug G uðmundsdóttir, Kjartan Guðmundsson og aðrir vandamenn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginmanns mins og föður KJARTANS JÓNSSONAR. vélsmiðs. Faxastlg 8A, Vestmannaeyjum. Ragnhildur Jónsdóttir Svanhvit Kjartansdóttir. + Hjartanlegar þakkir til allra er auðsýndu okkur samúð, hjálp og vináttu við fráfall og jarðarför TRYGGVA GUÐMUNDSSONAR. Austurhól. Homafirði. Foreldrar. systkini og aðrir vandamenn. Korchnoi hef- ur undirtökin AÐEINS 50 ihorfendur urðu vitni aí því í Baguio City & Filippseyjum í g»r að Viktor Korchnoi þjarmaSi illilega aS Anatoly Karpov heimsmeist- ara í skemmtilegri skðk. Þeg- ar skákin fór í biS var staSa Korchnois mjög sigurstrang- leg a8 áliti skákskýrenda í Baguio og viSar. Korchnoi var aS vísu kominn í tíma- þröng undir lok skákarinnar. en þaS hindraSi hann ekki í aS tefla af mikilli nákvæmni. Mikill hitabeltisstormur geis- ar nú í Baguio auk þess sem rignir eins og hellt sé úr fötu og er það vafalaust skýringin á því hversu fáir áhorfendur mættu til leiks. Aðstoðarmenn keppi- nauta voru þó að sjálfsögðu á staðnum og var enski stór- meistarinn Raymond Keene, einn af aðstoðarmönnum Korchnois, mjög hress í bragði er hann var spurður álits á biðskákinni: „Hvítur hefur unn- ið tafl '. Korchnoi stýrði hvitu mönnunum í skákinni. Argen- tínski stórmeistarinn Miguel Najdorf tók í sama streng: „Korchnoi hefur góða vinnings- möguleika, hann tefldi mjög vel i dag". Bandariski stór- meistarinn Robert Byrne hafði sama álit á stöðunni og Najdorf og fréttaritari Mbl. Harry Golombek segir allar likur á að i dag komi fyrsti vinningur ein- vígisins. Reyndar kom óvænt atvik fyrir í fimmtu skákinni. Meðan Karpov var að hugsa um 23. leik sinn fóru Ijósin af i eina mínútu. Það er orðið mjög at- hyglisvert hversu oft rafmagns- truflanir og skákeinvígi fara saman. En lítum nú á fimmtu skákina: Hvitt: Viktor Korchnoi Svart: Anatoly Karpov Nimzoindversk vörn 1 c4 — Rf6, 2 d4 — e6. 3. Rc3 — Bb4, 4. e3 — c5, 5. Re2 — d5 (í þriðju skákinni lék Karpov hér 5.... cxd4, 6. exd4 — d5, en varð að sætta sig við Skák Margeir Pétursson skrifar um fimmtu einvígisskákina þrengri stöðu eftir 7. c5!) 6. a3 — Bxc3 + , 7. Rxc3 — cxd4. 8. exd4 — dxc4, 9. Bxc4 — Rc6, 10. Be3 — 0-0, 11.0-0 (Stöður ekki ósvipaðar þessari eru mjög altjengar á skákmót- um núorðið. Hvítur hefur stakt peð á d4, en i stað þess bisk- upaparið og frjálsari stöðu) b6. 12. Dd3 — Bb7, 13. Had1 — h6, (Nauðsynlegt var að hindra 14. Bg5 Eftir t.d. 13. . . Dd7, 14 Bg5! — Rd5, 15. Rxd5 — exd5, 16. Ba2 hefur hvítur mjög góð sóknarfæri). 14. f3! (Óvæntur. en djúphugsaður Steinunn Guðbjarts- dóttir — Minning Fædd 13. október 1946 Dáin 22. júif 1978 Kæra tengdadóttir, þótt mjög sé mér erfitt um mál, á þessari stundu, er við heyrðum um hið skyndilega andlát þitt, vil ég minnast þín með nokkrum kveðjuorðum, þótt orð séu magn- vana og fátækleg. Það er þá að- eins til að þakka samverustund- irnar, undanfarin ár. Þakka og minnast þeirra gleðidaga er þú gast átt með okkur, þó þeir væru alltof fáir, sökum veikinda þinna og vanheilsu. Við sem búum við sæmilegt heilsufar eigum oft erf- itt með að setja okkur i spor þeirra er sffellt búa við vanlfðan og dvfnandi heilsu og við gerum okkur tæpast grein fyrir þvf, þeg- ar viðkomandi er lfka ungur að árum, og þvf eðlilegt að langt líf sé framundan, að skapadægrin séu að nálgast. En enginn ræður sfnum næturstað og engu fáum við breytt um ákvarðanir hans er öllu ræður okkur til góðs, því við sem dauðlegir menn, skynjum ekki eða skiljum þau lögmál er ráða ríkjum. Þó vitum við, að kær- leikurinn er þeirra mestur. Steinunn Guðbjartsdóttir, and- aðist f svefni aðfaranótt laugar- dags 22. þ.m. aðeins 32 ára gömul. Hún hafði verið sæmilega hress daginn áður og voru þau hjónin í sumarferðalagi að Húsafelli með börnum sfnum er andlát hennar bar að. Steinunn var fædd 13. október 1946, dóttir Guðbjarts Erlingsson- ar er lengi var vagnstjóri hjá Strætisvögnum Reykjavíkur og konu hans Sigurborgar Magnús- dóttur. Guðbjartur og Sigurborg eignuðust sex börn. Guðbjartur andaðist er Steinunn var enn á barnsaldri. Hafði sá sorgaratburð- ur mikil og djúp áhrif á hina viðkvæmu barnssál hennar, og stóð henni enn skýrt fyrir hug- skotsjónum, þó langt væri nú um liðið. Steinunn giftist Halldóri B Þorsteinssyni 22. nóvember 1965 Eignuðust þau tvö börn: Þorstein, er nú er 12 ára og Asthildi 10 ára. Bæði voru börnin góð foreldrum sfnum, myndarleg og dugleg. Og er missir þeirra mikill, við fráfall móður sinnar, er þau svo ung verða að há svo mikla lffsreynslu með föður sínum. Við biðjum algóðan guð að styrkja þau og blessa á þessari sorgarstundu og gefa þeim þrek og mátt til að standast þessa raun. Við tengdaforeldrar Steinunn- ar Guðbjartsdóttur viljum færa móður hennar Sigurborgu Magn- úsdóttur okkar innilegustu sam- úðarkveðjur og við þökkum henni af heilum hug hve mikið hún var þeim hjónum og börnum þeirra. Systkinum Steinunnar, Kristjáni og Bryndfsi, þökkum við hið ljúfa og fallega samband þeirra við systur sína og fjölskyldu hennar frá fyrstu tíð. Þessu kærleiksrfka og góða fólki viljum við enn einu sinni þakka og við teljum okkur rfkari að hafa átt samleið með þeim á lffsleiðinni. Ein alþjóðleg bæn, sem alltaf er f fullu gildi, og enginn er svo stór eða sterkur að hann geti ekki af heilum hug tekið sér hana f munn, og tileinkað sér þann boð- skap og þá speki er hún færir honum: Guð gef mér æðruleysi, til að sætta mig við það, sem ég fæ ekki breytt. Kjark til að breyta þvf, sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. Við biðjum Halldóri og börnum hans blessunar guðs, styrk og þrótt í erfiðleikum þeirra á þess- ari sorgarstundu. Þorsteinn Halldórsson + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vínáttu við andlát og útför bróður okkar. ÞORSTEINS EINARSSONAR múrara, RauSarárstig 30. Guðborg Einaradóttir Ingvaldur Eínarsdóttir Guðriður Einarsdóttir Guðrún Einarsdóttir Júllus Einarsson. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát ogútför. HARALDAR KRISTJÁNSSONAR, stöðvarstjóra. ísafirði. Pétur Haraldsson. Geirlaug Jónsdóttir, Ásta Dóra Egilsdóttir, Jón Jónsson, Egill Kristjánsson, Guðrún Guðjónsdóttir. Kristján Kristjánsson. Elsa Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.