Morgunblaðið - 28.07.1978, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 28.07.1978, Blaðsíða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JULl 1978 fclk f fréttum + Þessar myndir voru teknar á dögunum, er Helmut Schmidt kanzlari V-Þýzkalands og for- sætisráðherra Kanada voru f Qanmörku og áttu fund með forsætisráðherra Dana, Anker Jörgensen. — A efri myndinni má sjá kanslarann f danskri sveitakirkju þar sem þeir höfðu viðkomu. Þar settist Schmidt við orgel kirkjunnar og lék á það. Sóknarpresturinn f kirkjunni, sem heitir Jordlöse Kirke, hafði spurt gestinn hvort hann myndi ekki fáanleg- ur til að leika á kirkjuorgel næsta sunnudag. — Á neðri myndinni eru þeir Ánker Jör- gensen og Pierre Trudeau (til hægri). Hann kom þar að sem mótmælt var seladrápi Kanada- manna. Þar hafði hann sagt við nærstaddan selavin, sem sagð- ist vera að mótmæla kópadrápi: — Drepið þið Danir ekki sjálfir humar og rækjur með að stinga þeim lifandi ofan f sjóðandi pottana? + Þetta er hún María Ástríður, stórhertogadóttir í Luxembourg, sem nú er í Lundúnum að læra ensku. Stúlkan er orðin 24 ára og mörg undanfarin ár hafa ýmsir bent á hana sem heppilegt kvonfang Karls Bretaprins. Filipus prinsfaðir fór nýlega til Luxembourgar og þá fengu sögurnar um yfirvofandi hjónaband byr undir báða vængi, en siðameistarar í Buckingham-höll brugðust hart við og sögðu slíkt hina mestu firru. Erindi Filipusar hefði verið það eitt að heiðra stórhertogahjónin, Jón og Jósefinu Karlottu, á silfurbrúðkaupsdegi þeirra. + Þetta er ungur færeyskur pólitíkus, Adolf Hansen. Hann er að hefja undirbúning að því að stofna nýjan stjórnmála- flokk I Færeyjum. Segir hann í samtali við blaðið Dimmalætt- ing, að hann hafi átt samtal við Kjartan Mohr sem er í forustu- liði Framburðsflokksins, um að stofnaður verði nýr stjórnmála- flokkur: Fiskivinnuflokkur sem verði flokkur þeirra er starfa við fiskframleiðsluna á sjó og í landi, „alt sum hevur tilknýti til fiskivinnu.“ Flýtur varla yfir laxinn í Norðurá Veiðin hefur verið sæmilega góð hér að undanförnu, þó að vatnið sé orðið svo lítið að varla flýtur yfir laxinn," sagði Guð- jón i veiðihúsinu við Norðurá. Frá því að nýir leigutakar tóku við Norðurá þann 1. júli, hafa veiðst um 1000 laxar, sem er feiknalega góð veiði. Meðal- þunginn er 6—7 pund og stærsti laxinn til þessa vó 17,5 pund. Hann veiddist milli Fossa á flugu. Veiðin á því svæði er orðin mjög góð og einnig er töluvert farið að veið- ast fyrir ofan Glanna. Á mánu- daginn höfðu tæpir 900 laxar gengið um teljarann i Laxfossi. Sem fyrr segir, hefur ótrúlega vel veiðst í þurrkunum að und- anförnu og hafa veiðimenn fengið allt upp i 5—6 laxa á dag og í fyrradag veiddist einn 16 punda fyrir neðan Laxfoss og veiddist hann á flugu eins og allt siðan 1. júlí en þá var bann- að að beita maðki. Mokveiði í Grímsá Svo góð hefur veiðin verið í Grimsá i sumar, að nú vantar aðeins tæpa 100 laxa upp á, að heildarafli siðasta sumars hafi náðst á land. Þegar við ræddum við Jóhannes i veiðihúsinu i gær, voru komnir 1054 laxar á land og hafði veiðin verið furðu góð miðað við þurrkana að und- anförnu, en Grímsá er orðin æði vatnslítil eins og vænta má. T.d. var veiðin í fyrramorgun mjög góð, veiddust þá 40 laxar, þar af 16 í Skarðshyl, en þeir sem hann flengdu misstu þó um 20 fiska. Hafði leiðsögumaður- inn að sögn aldrei komist í ann- að eins. Fyrri vika var metvika, en þá veiddust hvorki meira né minna en 370 laxar. Það voru útlendingar sem veiddu þetta allt og þess má geta, að 80% af aflanum slepptu þeir erlendu aftur i ána. Laxinn I Grímsá er mjög misjafnlega stór, flestir eru laxarnir frá 3 pundum og upp I 14 pund, en stærsta lax- inn til þessa veiddi Svavar Gestsson þann 7. júli I Fossin- um á Skrögg-túpu. Það var 17,5 punda hængur. Besti veiðistað- urinn er Armótahylurinn, þar sem Tunguá fellur í Grímsá, en einnig eru Strengirnir, Þing- nesstrengirnir og Lambakletts- fljót góð. Teljari er í ánni skammt neðan Lambakletts og hafði hann talið í gær um 930 laxa. Það hljómar skringilega, þegar haft er í huga að heildar- aflinn er kominn yfir 1000 fiska, en þess ber að geta, að teljarinn bilaði i heila viku fyr- ir skömmu, auk þess sem vitað I er að mikill lax var kominn í ána áður en teljarinn var gang-1 settur. Gljúfurá hefur tekið við sér Þær voru ekki uppörvandi fréttirnar sem Mbl. fékk um veiðina i Gljúfurá, þegar rúm vika var liðin af veiðitimanum, varla tugur laxa kominn á land og áin köld sem jökull. Það var betra hljóðið I Sigurði i Sól- heimatungu þegár við ræddum við hann í gær, þá sagði hann okkur, að fljótlega eftir áður- nefnt viðtal hefði áin tekið að hlýna verulega og veiðin að glæðast og í gær voru um 160 laxar komnir á land, þar af nokkrir 10 punda og einn 18 punda, sem veiddist í Kerinu snemma í sumar. Meðalþung- inn er 6—7 pund. Þrátt fyrir þurrkana að undanförnu hefur veiðst vel í ánni, en hún er þó orðin ansi vatnslitil nú. Það bjargar Gljúfurá, að vatnsmiðl- unarstifla er i Langavatni. Hún getur þó brugðist ef þurrkarnir eru langvarandi, eins og t.d. í ágústlok í fyrra. —gg- Þessir voru að fá ’ann, minna má nú sjá. Myndin er þó ekki frá þvf ( sumar og sennilega hefur enginn lax veiðst enn sem skákað gæti tröllinu á myndinni. Stærsti lax sem fregnir hafa borist um I sumar var 23 punda fiskur austur við Iðu og einnig hafa borist fregnir af 22 punda löxum, m.a. I Þverá og Soginu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.