Morgunblaðið - 02.08.1978, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1978
+ Faðir okkar
BENEDIKT KRISTJANSSON,
Höföavegi 20, Húsavik,
andaðist á sjúkrahúsi Húsavíkur 31. júlí. Synir.
+
Móöir okkar,
KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR,
kaupkona,
Túngötu 23, Keflavík,
sem lést 28. júlí, veröur jarösungin laugardaginn 5. ágúst kl. 2 eftir hádegi frá
Keflavíkurkirkju.
Þeim, sem vilja minnast hennar er bent á slysavarnafélagiö eöa sjúkrahús
Keflavíkur. Guðmundur Jóhannsson,
Ingi Þór Jóhannsson,
Halldór Jóhannsson.
Utför
SIGURBJÖRNS STEFÁNSSONAR,
Stigahlíö 41,
fer fram frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 2. ágúst kl. 13.30.
Fyrir hönd aöstandenda.
Dóra Guömundsdóttir.
+
Utför föður okkar,
JÓNASAR GUÐMUNDSSONAR,
frá Læk,
Skógarströnd,
til heimilis aö Sólvallargötu 46, Keflavík, fer fram frá Breiöabólstaöarkirkju,
laugardaginn 5. ágúst kl. 2. e.h. Bílferð veröur frá umferöamiöstööinni kl. 9
árdegis.
Börnin.
+
Þökkum innilega öllum þeim sem vottuöu okkur samúö vegna andláts
ÞÓRUNNAR EINARSDÓTTUR,
frá Merki i Grindavík.
Sérstaklega þökkum viö starfsfólki og vistmönnum Garðvangs i Garöi, fyrir
frábæra vinsemd og umönnum.
Fyrir hönd ættingja.
GunnÞórunn Gunnarsdóttír, Óli B. Bjarnason,
Einar Gunnarsson, Sigriður Guðbrandsdóttir.
+
Þeim mörgu er á einn eöa annan hátt minntust
SVEINBJARGAR AUDUNSDÓTTUR,
viö útför hennar 27. júlí sl. þökkum viö hjartanlega. Sérstakar þakkir færum
viö þeim, er önnuöust hana á Landspítala og Sólvangi, Hafnarfirði.
Pétur Guömundsson,
Friörik Pétursson,
Gunnar Pétursson,
Guðbjörg Guðbrandsdóttir.
Baldur Baldvinsson á
*
Ofeigsstöðum -Minning
Afi okkar + INGVAR JÓNSSON
frá Skagaströnd,
verður jarðsunginn frá Hólakirkju, Skagaströnd fimmtudaginn 3. agust kl. 2
e.h. Jóhanna Valdemarsdóttir, Margrét Valdemarsdóttir, Jón Valdemarsson, Valdemar Valdemarsson, Ólafur Valdemarsson.
Útför +
EINARS B. SIGURDSSONAR, sem andaðist 25. júlí fer fram frá Fossvogskapellu, fimmtudaginn 3. ágúst kl.
1.30. Guóbjörg Jónsdóttir, Einar Logi Einarsson, Sverrir Sigurósson, Elín M. Siguröardóttir, Viðar Sigurðsson, og sonardætur.
+ Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall sona okkar er fórust
17. júní s.l. STEFÁN RAGNAR /EGISSON,
SÍMON HILMARSSON,
EGILL ANTONSSON, GUNNARJÓNSSON.
Alma Stefánsdóttir, Ægir Þorvaldsson, Guórún Benediktsdóttir, Stefán Arnpórsson, Halla Jónsdóttir, Anton Angantýsson, Hekla Tryggvadóttir, Jón Jónason.
Ég sé út um skrifstofugluggann
minn, að búið er að flagga í hálfa
stöng á elsta húsi Kaupfélags
Þingeyinga. íslenski fáninn blakt-
ir þarna fyrir hægri sunnan golu
og ber í bláleit Kinnarfjöllin. Hvað
hefur komið fyrir? Baldur á
Ofeigsstöðum er dáinn.
Þetta kom að vísu ekki á óvart. í
meira en ár var hann búinn að
liggja fársjúkur á Sjúkrahúsinu í
Húsavík og þess mátti vænta þá og
þegar að kallið kæmi. Og svo kom
kallið, og fáninn blaktir í hægri
golu. Auðvitað voru þessi umskipti
líkn áttræðum öldungi, við þessar
aðstæður, en það vekur ættingjum
og vinum trega.
Minningarnar streyma fram í
hugann um þennan glaða góða
dreng, manninn, sem átti svo létt
með að skapa bjart og glatt
mannlíf umhverfis sig. Nú er því
lokið, morgundagurinn verður ekki
lengur eins og dagurinn í gær.
Merkur héraðshöfðingi setur ekki
lengur svip á mannlífið í okkar
héraði. Blaktandi fáninn kallar
fram söknuð.
Baldur Baldvinsson bjó allan
sinn aldur á Ófeigsstöðum og tók
þar við búsforráðum, í upphafi af
foreldrum sínum. Hann kvæntist
ungur Hildi Friðgeirsdóttur frá
Þóroddsstað, en missti hana eftir
stutta sambúð, sonur þeirra er
Baldvin bóndi á Rangá. Síðari
kona Baldurs er Sigurbjörg
Jónsdóttir frá Litlu-Strönd, en
börn þeirra eru Svanhildur hús-
móðir á Ófeigsstöðum, og Ófeigur
lögregluþjónn á Akureyri.
Baldur hafði aldrei mjög stórt
bú á Ófeigsstöðum, en fjárhags-
lega komst hann vel af, hann hafði
sérstaka ánægju af að umgangast
og hirða sauðfé, en engan áhuga
hafði hann á að safna veraldlegum
auði. Því meiri var áhugi hans að
safna vináttu, og treysta samfé-
lagsþræði, við mikinn fjölda
manna, það var fjársjóður sem
hann átti mikinn að leiðarlokum.
Baldur og Sigurbjörg gengu
marga ferðina fram á hlaðvarp-
ann, til að fagna gestum sínum, og
síðar að kveðja þá við brottför.
Gestir voru umvafðir vinarþeli,
sem streymdi frá húsráðendum og
heimafólki, og gestirnir komu
aftur og aftur. Allt þetta hafði að
sjálfsögðu áhrif á búskapinn, en
gestrisnin sat fyrir öllu, ogstöðugt
var haldið áfram að spinna þræði
vináttunnar, bæði við fólkið sem
bjó nær og fjær.
Baldur var að eðlisfari mikill
félagsmálamaður, hann kom því
mjög við félagslega sögu Þingey-
inga. Hann tók þátt í miklum
störfum fyrir sveitina sína, Kinn-
ina, hann var mikill forystumaður
í Búnaðarsambandinu, og stjórn-
armaður í Kaupfélagi Þingeyinga í
fjölda ára. I sambandi við það
starf er mér ljúft að færa fram
þakkir okkar Kaupfélagsmanna.
Baldur þurfti því um dagana að
mæta á mörgum fundum, og hann
var fjölhæfur fundarmaður. Hann
átti það til að vera harður í horn
að taka, og verja fast skoðanir
sínar og stefnu. Hann átti það þó
oftar til að vera sáttamaðurinn í
ræðuflutningi, þegar deilur risu
meðal fundarmanna.
Oft var það, eins og hann ákvæði
það fyrirfram, að taka ekki beinan
þátt í fundarstörfum, en sitja
afsíðis með vasabók og búa til
vísur úr ræðum fundarmanna. I
kaffi- eða matarhléi flutti hann
svo stundum vísurnar, oftast
snjallar og hnitmiðaðar og skipaði
þannig gleðinni hátt á loft. Oft fór
þannig í fundarlok, að margir
höfðu gleymt ræðunum, en mundu
því betur hinar fleygu vísur
Baldurs.
Baldur var snjall og fyndinn
hagyrðingur og átti marga góða
vini og samstarfsmenn á því sviði.
Hann gisti oft heima hjá okkur
hjónunum í Húsavík, þar fauk hjá
honum og félögum hans mörg
fleyg vísan. Þetta er minninga-
sjóður, sem við erum þakklát fyrir
að eiga.
Ríkasti þáttur í eðli Baldurs var
heit og björt trú á lífið. Hann var
trúhneigður og taldi mesta og
merkasta rannsóknarefnið væri
um lífið eftir dauðann. Hann var
traustur og jafnan tilbúinn að
bera sorgina með öðrum, og styðja
þá á hálu svelli lífsins. Bjartsýnin
var hans sterki þáttur, þegar hann
var 75 ára sagði hann við mig. Mér
finnst gaman að lifa, á hverju
kvöldi hlakka ég til næsta dags.
Þannig stráði hann lífsgleðinni í
kringum sig og allir samferða-
mennirnir hrifust með.
Útför Baldurs á Ófeigsstöðum
var gerð á Þóroddsstað. Það var
mildur júlídagur, sólin skein
gegnum þunna þokuslæðu. Kinnin
tjaldaði sínu bezta, öll blóm og
gróður skörtuðu sínu fegursta,
engjarnar, áin og fljótið, allt var á
sínum stað, til heiðurs föllnum
foringja.
Þennan milda júlídag, virtust
allra leiðir liggja til Þórodds-
staðar. Mikill mannfjöldi kom á
kirkjustaðinn. Ef til vill er þetta
fjölmennasta jarðarför, sem nokk-
urn tíma hefur farið fram í
Þóroddsstaðarkirkju, ég veit það
ekki með vissu en fjölmennið sýnir
vinarþelið, og þakklæti héraðsbúa
fyrir manninn sem var merkisberi
gleði, vináttu og alltaf drengur
góður.
Ég sendi Sigurbjörgu og
ættingjunum öllum hugheilar
samúðarkveðjur.
Finnur Kristjánsson.
Einar Gtslason málara-
meistari — Minning
í dag fer fram útfor Einars B.
Sigurðssonar iðnrekanda. Hann
varð bráðkvaddur aðfararnótt
þriðjudagsins 25. f.m. Hann haföi
ekki áður látið þess getið, að heilsu
hans væri að neinu leyti ábóta-
vant. Kom því fráfall hans öllum
er til þekktu mjög á óvart.
Einar var fæddur 11. september
1911, sonur hjónanna Sigurðar B.
Runólfssonar forstjóra frá Norð-
tungu í Borgarfirði, og Jóhönnu
Rögnvaldsdóttur frá Lambanes-
reykjum, Fljótum í Skagafirði.
Systkini átti hann þrjú: Elínu,
Viðar og Sverri, sem eru öll á lífi.
Sigurður er látinn fyrir mörgum
árum, en Jóhanna lést háöldruð í
janúar s.l. Það kom fram hjá
Einari drenglyndi hans við móður
sína, hve oft hann gerði komur
sínar til hennar, enda hafði alla
tíð verið einkar kært á milli
þeirra.
Kynni okkar Einars hófust árið
1931, er hann gerðist félagi í
Karlakór K.F.U.M. (síðar Fóst-
bræður). Það tókst fljótlega með
okkur góður kunningsskapur og
síðar vinátta, sem alla tíð hefir
haldist með okkur. Einar hafði
mikla og fagra söngrödd. Ekki var
hann búinn að vera lengi í
kórnum, þegar honum var falið
hlutverk einsöngvara. Það var ekki
vandalaust að taka við því af
forverum hans, þeim Símoni Þórð-
arsyni og Óskari Norðmann undir
stjórn hins góðkunna söngstjóra
Jóns Halldórssonar. Minnisstæður
er mér söngur hans í sænska
laginu „Jag drömde", er við
sungum það í Almannagjá á
Þingvöllum, með hamravegginn að
bakhjarli.
Hann kvæntist Ásgerði Einars-
dóttur og eignaðist með henni son,
Einar Loga, hljómlistarmann og
rithöfund. Þau slitu samvistum.
Síðar á lífsleiðinni bjó hann með
Guðbjörgu Jónsdóttur, er var hans
önnur hönd við framleiðslustörfin.
Hún er framúrskarandi velvirk og
dugleg kona og hefir staðið
heilshugar við hlið hans. Ég bið
henni styrks nú, þegar hún hefir
misst förunaut sinn og bezta vin.
Veri minn gamli góði vinur svo
kært kvaddur af mér og mínum.
Bjarni Jónsson.
Afmœlis- og
minningargreinar
AF GEFNU tilefni skal það enn ítrekað, að
minningargreinar, sem birtast skulu í Mbl., og
greinarhöfundar óska að birtist í blaðinu útfarardag,
verða að berast með nægum fyrirvara og eigi síðar en
árdegis tveim dögum fyrir birtingardag.
EFÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
Al (ÍLVSINGA-
SÍ.MINN ER:
22480