Morgunblaðið - 03.08.1978, Blaðsíða 1
48 SIÐUR
165. tbl. 65. árg. FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Shcharansky úr
haldi innan tíðar
VínarhorK. 2. áuúst. AI\ Rciiter.
SOVÉTMENN vilja fá úr haldi
a.m.k. þrjá njósnara sem eru í
haldi á Vesturlöndum í skiptum
fyrir sovéska andófsmanninn
Anatoly Shcharansky og annan
ónefndan rússneskan gyðing. að
því er áreiðanlegar heimildir í
Vín hermdu í dag.
Samningaviðræður eru taldar
vera á lokastigi hvað varðar
Shcharansky, sem í síðasta mán-
uði var dæmdur af sovéskum rétti
fyrir njósnir í þágu bandarísku
leyniþjónustunnar. Þeir njósnarar
sem talið er að Sovétmenn vilji fá
lausa eru bandaríkjamaður í haldi
í Bandaríkjunum og tveir Aust-
ur-Þjóðverjar í haldi í Vest-
ur-Þýzkalandi.
Auk þess að sleppa Shcharansky
og ónefndum gyðingi segja
áreiðanlegar heimildir að þar að
auki verði 6 rússneskum gyðingum
veitt brottfararleyfi frá Sovét-
ríkjunum.
Ef af samningum verður er talið
að Shcharansky verði fluttur frá
Moskvu til ísraels, en hann hefur
lýst þeim vilja sínum að setjast
þar að. — í Moskvu hermdu fréttir
að móður og bróður Shcharanskys
hefði verið veitt leyfi til að
heimsækja hann í fangelsi þar sem
hann er hafður í haldi til að ræða
þá möguleika við hann að honum
yrði sleppt úr haldi innan tíðar.
I Bandaríkjunum hefur Carter
forseti lýst því yfir að ef
Shcharansky verði sleppt hafi það
mjög jákvæð áhrif á sambúð
stórveldanna sem hefur verið með
kaldasta móti upp á síðkastið.
Flugumferð í
ólestri áfram
París. 2. áRÚst. Ucutcr.
FRANSKIR flugumferðarstjórar
unnu í dag að þvi' að koma
flugsamgöngum aftur í samt lag
eftir fimm daga seinagangsað-
gerðir sínar, sem fa*rðu allt
áætlanaflug í Vestur-Evrópu
meira og minna úr skorðum. Allt
útlit er þó fyrir að þeir grípi til
sömu bragða aftur um næstu
helgi til að leggja áherzlu á
kröfur sínar um bætt starfsskil-
yrði og hærri laun.
Brúðhjónin Christina og Sergei Kauzov eftir giftinguna í Moskvu á þriðjudag. Þau
hyggjast nú halda til „Síberíu“ til að eyða hveitibrauðsdögunum í friði og ró. Sjá frétt
bl. 18. Síma mynd AP.
r
Anægja með afnám
vopnabanns á Tyrki
Dollarinn
enn neðar
London. 2. ágúst. AP.
Dollar náði enn einu
lágmarkinu gagnvart japanska
jeninu á gjaldeyrismörkuðum í
dag. Dollar var seldur á 184.65
jen sem er það lægsta frá upphafi
og hafði lækkað um tæplega 3 jen
frá deginum áður.
Dollar hjarnaði á sama tíma
nokkuð við gagnvart gjaldmiðlum
í Evrópu, t.d. þýzka markinu og
sérfræðingar staðhæfa að útkom-
an hefði verið betri ef ekki hefði
komið til orðrómur um 10%
olíuhækkun seinna á þessu ári.
Flugumferðarstjórar á fjórum
stærstu flugvöllum Frakklands
samþykktu að halda áfram að fara
sér hægt um næstu helgi sæju
stjórnvöld ekki að sér og settust að
samningaborði með þeim fyrir
þann tíma. Þeir krefjast þess að
létt verði af þeim störfum og
aðstæður bættar til að þeir geti
sinnt þeim 300Ö flugvélum, sem
daglega eiga leið um franska
lofthelgi.
Þar sem búist er við áð taka
muni a.m.k. tvo daga að koma
flugumferð í fastar skorður á ný,
lætur að líkum að endurnýjaðar
seinagangsaðgerðir flugumferðar-
stjóranna myndu hafa langvar-
andi áhrif á ákveðin flugfélög, sem
neyðst hafa til að aflýsa flugferð-
um fram að þessu.
Briissd. 2. áKÚst — AP.
FORYSTUMENN allra aðildar-
rikja Atlantshaísbandalagsins
utan Grikklands lýstu í dag
mikilli ánægju sinni með þá
ákvörðun Bandaríkjamanna að
aflétta vopnasölubanni því af
Tyrklandi sem sett var 1975 í
kjölfar innrásar þeirra á Kýpur.
Forystumennirnir telja ákvörð-
unina ótvírætt verða til þess að
auka varnarmátt bandalagsins á
austanverðu Miðjarðarhafi, en
það svæði var talið nokkuð veikur
hlekkur í varnarkeðju
bandalagsins.
I yfirlýsingu stjórnarinnar í
Bonn kemur fram að hún telur
ákvörðunina um afléttingu vopna-
sölubannsins vera vel til þess
fallna að rétta við það ójafnvægi
Verður Soares við
stjórnvölinn áfram?
Lissahon. 2. átíúst. AP.
FJÖGURRA daga kapphlaup til
að binda endi á stjórnarkreppuna
í Portúgal hófst í morgun eftir að
Eanes forscti hafði gefið stjórn-
málaleiðtogum landsins frest
fram yfir helgi til að koma sér
saman um stjórn. Að öðrum kosti
hyggst forsctinn beita sér fyrir
utanþingsstjórn sem hann veldi
ráðherra í sjálfur eða jafnvel
þingkosningum.
Eanes forseti lýsti þeirri skoðun
sinni að æskilegt vaeri ef þess væri
nokkur kostur að Söares tækist að
jafna ágreininginn við íhaldsflokk
miðdemókrata og héldi áfram. —
Er Soares var spurður um þessa
hugmynd, svaraði hann því til að
sér fyndust harla litlár Wkur til
þess að svo mætti verð«.
Jose Ribeiro e Castro ieiðtogi
íhaldsflokks sosíaidémókrata
sagði um þá ákvöroun forseta
landsins, að gefa aðeins fjögurra
daga frest, að það sýndi hversu
ábyrgur hann væri og það væri hið
eina rétta í stöðunni. Hann
gagnrýndi hins vegar harðlega þá
hugmynd forsetans að gömlu
ríkisstjórnarflokkarnir tveir
reyndu með sér aftur. Samstjórn
þeirra hefði „ekkert" fylgi meðal
portúgalskra kjósenda.
Diego Freitas do Amaral leið-
togi íhaldsflokks miðdemókrata
lýsti þeirri skoðun sinni enn einu
sinni að hann teldi góða möguleika
fyrir því að flokkur Soaresar og
íhaldsflokkur miðdemókrata gætu
sett niður innbyrðis deilur sínar
og hafið viðræður um áframhatd.-
andi stjórnarsamstarf.
sem ríkt hefur í austurhluta I
Miðjarðarhafsins milli NATO og |
Atlaga að
Sendiráði
/
Iraks
Karachi. Pakistan. 2. ágúst. AP.
TVEIR ungir Arabar réðust
vopnaðir vélbyssum og með
handsprengjur inn í sendiráð
íraks í Karachi í Pakistan og
kveiktu í anddyri sendiráðs-
ins.
Þegar sló í brýnu með
árásarmönnum og lögreglu og
féll annar árásarmannanna í
þeirri viðureign en hinn var
handtckinn. Einn sendiráðs-
manna særðist og illa.
Arás þessi í Karachi er hin
þriðja í röðinni á skömmum
tíma á sendiráðsbyggingar og
aðrar eignir Iraka erlendis.
I sambandi við árásina á
sendiráðið í París, þar sem einn
lögreglumaður féll fyrir kúlu
öryggisvarðar í sendiráðinu
hefur franska stjórnin nú
ákveðið að öryggisvörðunum
verði vísað úr iandi.
Nokkuð hefur slegið í brýnu
með írökum og skæruliðum A1
fatah vegna þessara mála, og
gáfu írakar út yfirlýsingu í
Baghdad í dag, þar sem Yasser
Arafat leiðtogi skærutiðasam-
takanna er eindregið varaður
við auknum átroðningi við
Iraka. Iraksstjórn telur að
skæruliðar A1 fatah eigi mikinn
þátt í þeim aðgerðum sem
hafðar hafa verið í frammi við
sendiráð landsins að undan-
förnu.
Austantjaldsríkjanna. Þá hafi
vopnasölubannið aldrei gert annað
en ógagn og rýrt verulega varnar-
mátt bandalagsins gagnvart
Sovétmönnum. Einnig hafa Vest-
ur-Þjóðverjar í hyggju að veita
Tyrkjum efnahagsaðstoð til þess
að þeir geti nýtt sér til hlítar
afnám bannsins, en þeir eru ekki
taldir hafa bolmagn fjárhagslega
til að kaupa það magn vopna sem
nauðsynlegt er.
Gríska stjórnin gagnrýnir
ákvörðun Bandaríkjamanna harð-
lega, og segir hana aðeins ala á
ófriði og óöryggi milli Grikkja og
Tyrkja og ábyrgð sú sem Banda-
ríkjamenn axli með þessu sé
óendanlega mikil.
Korchnoi
náði
jafntefli
ltauuio. Kilippscyjuni. 2. áirúst. \P.
Victor Korchnoi náði óvamt
jafntefli í 7. skákinni um heims-
meistaratitilinn við Karpov í dag
eftir að flestir skákskýrendur
höfðu talið biðstöðu hans
gjörtapaða.
Þegar eftir að Korchnoi hafði
leikið 42. leikinn í skákinni bauð
heimsmeistarinn Karpov jafnteflí
sem Korchnoi þáði.
Þá gerðist það að ákveðið var að
fjarlægja um 200 fremstu sætin í
áhorfendasalnum, sen. þýðir það
að rússneski dulsálfræðingurinn
Zouchar sem jafnan hefur setið á
öðrum bekk og starað á Korchnoi,
verður að víkja aftur í salinn.
Talið er fullvist að þessar breyt-
ingar hafi verið gerðar að kröfu
áskorandáns. Sjá nánar bls 30.