Morgunblaðið - 03.08.1978, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 03.08.1978, Blaðsíða 48
 FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1978 Viðræður hefjast í dag um myndun þjóðstjómar FORMAÐUR Sjálfstæðisflokksins, Geir Ilaiigríntsson, mun ásamt varaformanni flokksins, Gunnari Thoroddsen, væntanlega í dag hefja viðræður við forsvarsmcnn hinna flokkanna þriggja sem fulltrúa eiga á Alþingi, um hugsanlegan möguleika á myndun þjóðstjórnar, þ.e. samstjórnar aiira þessara fjögurra fiokka. Tilgangur þessarar stjórnar yrði fyrst og fremst að vinna að lausn efnahagsvandans, sem nú vofir yfir, ráðast gegn verðbólgunni og vinna að breytingum á kjördæmaskipan og kosningalögum. Ekki er talið eðlilegt að starfstimi stjórnar af þessu tagi yrði nema hálft kjörtímabil, þar eð andstætt er þingræðisskipulagi hér á landi að ekki sé fyrir hendi virk stjórnarandstaða, eins og Geir Haligrimsson sagði á fundi með blaðamönnum í gærdag eftir að hafa kynnt forseta ísiands þá ákvörðun sína að hafa forustu um stjórnarmyndunarviðræður, eins og forsetinn hafði farið á leit við hann. Ekki geta horfur á stjórnarmyndun af þessu tagi þó talizt bjartar af ummæium Geirs Hallgrímssonar og forsvarsmanna hinna stjórnmálaflokkanna að dæma. Geir Hallgrímsson gekk á fund forseta Islands, dr. Kristj- áns Eldjárns, um hádegisbil í gær og skýrði honum frá að hann mundi verða við málaleit- forsetans um að hefja an viðræður milli stjórnmálaflokk- anna um myndun ríkisstjórnar er styddist við meirihluta á Alþingi. Á blaðamannafundi með Geir skömmu síðar gerði hann grein fyrir hugmyndum sínum um að reyna myndun þjóðstjórnar í fyrstu tilraun, og enda þótt Geir viðurkenndi að horfur á slíkri stjórnarmyndun væru ekki bjartar, teldi hann rétt að ganga úr skugga um hvort þessi möguleiki væri fyrir hendi. Að þessum möguleika 'rátöldum sagði Geir að í ljósi undangenginna stjórnarmynd- unartilrauna hlytu viðræður milli Alþýðuflokks, Framsókn- arflokks og Sjálfstæðisflokks að vera nærtækastar. Sjá nánar „Geir Ilallgrímsson á hlaðamannafundi" á miðsfðu og „Forsvarsmenn hinna flokkanna vantrúaðir á þjóðstjórn" á bls. 2 Þyrla Andra^ Heiðberg á slysstað í Álftakrók í gærkvöldi. Ljósmyndari Morgunhlaðsins, Emilía Björnsdóttir, tók myndina skömmu eftir að Varnar- liðsþyrla hafði sótt Andra, en menn frá Flugmála- stjórn urðu eftir á slysstað til að rannsaka þyrluna. Þyrlu hlekktist á í Álftakrók norðan Eiríksjökuls: Flugmaður slasaður á fjöllum í 2 sólarhringa ANDRI Heiðberg þyrluflugmaður varð að nauðlenda þyrlu sinni 8.1. mánudagskvöld f Alftakrók við Norðlingafljót 15 km norðan Eirfksjökuls, en ekki fréttist um slysið fyrr en um kl. 18 í gær þegar Gufunesradfói var tilkynnt um slysið. Andri slasaðist ekki alvar lega, en þyrlan er mikið skemmd. Varnarliðsþyrla fór skjótt af stað eftir að fréttist um slysið og náði f flugmanninn og flutti hann til Reykjavfkur. Hafði hann þá verið í tvo sólarhringa á slysstað. Andri var í rannsókn þegar Mbl. fór í prentun f gærkvöldi, en hann mun hafa brákast f baki og rifbrotnað. Var líðan hans tiltölulega góð, en hann var búinn góðum hlífðarföt- um. Samkvæmt upplýsingum Jóns Jóhannssonar læknis á Slysadeild kvaðst Andri hafa verið að flytja landmælingamenn milli staöa á svæðinu og var hann að ná í mælingamann sem var staddur á einu fjallinu þarna við mælingar. Átti Ándri eftir 4 kílómetra flug þegar vélarbilun varð í þyrlunni og gat Andri stjórnað henni til lend- ingar nema síðustu metrana þegar hann missti stjórn áývélinni. Mælingamaðurinn sem Andri var að sækja, sá þegar vélin nauðlenti og mun hann hafa gengið á slysstaðinn, en í lendingunni mun talstöð vélarinnar hafa bilað og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir gátu þeir ekki látið vita af sér þar sem þeir voru fjarri feröaleiðum. Andri Heiðberg við komuna til Reykjavfkur í gær á leið í sjúkrahús í fylgd eiginkottu srnnar og barna. Neyðarsendir þyrlunnar fór í gang þegar vélin lenti, en þar sem Andri flaug ekki eftir flugáætlun, fylgdist flugumferðarstjórn ekki með ferðum hans. Hins vegar heyrði vél í innanlandsflugi Flugfé- lagsins neyðarsendingu á þriðjudag í flugi yfir hálendinu og einnig tilkynnti erlend flugvél um neyðar- sendingu. Flugstjórn sendi þá vél flugmálastjórnar inn yfír hálendið, en vélin er búin tækjum til að hlusta á neyðarsenda. Fór hún af stað kl. 4 á þriðjudag, en þá heyrðist engin neyðarsending og þar sem engrar flugvélar var saknað sam- kvæmt flugáætlunum hjá flugmála- stjórn var leit hætt. Ekki var ljóst í gærkvöldi hvort bifreið sem fór utan alfaraleiðar á hálendinu ók fram á þá félaga eða að mælinga- maðurinn hafi gengið fram á bílinn, en ökumaður bifreiðarinnar til- kynnti Gufunesradíói atburðinn. Tekur Norðurás hf. við byggingu verka- mannabústaðanna? — BRÉF frá Brciðholti hf. liggur nú fyrir stjórn verkamannabústaða til athugunar, en í því bréfi segir m.a. að nokkrir starfsmenn og fulltrúar eigenda veða vilji freista þess að nýtt fyrirtæki yfirtaki verksamning milli Breiðholts hf. og stjórnar verkamannabústaða og ljúka því verki, sagði Magnús L. Sveinsson varaformaður stjórnar verkamannabústaða í samtali við Mbl. — í bréfi þessu segir einnig, sagði Magnús, að Breiðholt geri sér vel ljóst að til tíðinda geti dregið varðandi framtíð fyrirtækisins ef ekkert verði að gert og telji þeir heppilegt að Norðurás hf., nýstofn- að fyrirtæki, yfirtaki þennan verksamning. — Við þurfum að fá svör við ýmsum spurningum áður en þetta verður ákveðið m.a. hver sé fjár- hagsstaða hins nýja fyrirtækis, tækjabúnaður og hvort það sé undir það búið að taka að sér verkið. Líka þarf að tryggja það að uppgjör við starfsmenn Breiðholts verði tryggt, laun, launatengd gjöld o.fl. Ég geri ráð fyrir að þetta skýrist allt næstu daga. — Mín skoðun er sú, sagði Magnús L. Sveinsson að lokum, að vel komi til greina að verkamanna- bústaðirnir taki framkvæmdirnar í eigin hendur a.m.k. í bili og athuga megi e.t.v. síðar hvort einhverjir verkþættir yrðu boðnir út.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.