Morgunblaðið - 03.08.1978, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 03.08.1978, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1978 45 -JU kn VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100KL 10—11 FRÁ MANUDEGI TnwiUÆnfix-aa'u ir HRAUN KERAMIK íslenskur listiðnaður L>7IWJ GLIT HOFOABAKKA9 REVKJAVIK SIMI 85411 þykja þessi skrif nokkuð af viti, en eigi að síður langaði mig til að varpa þessu fram í von um að umræður um efnahagsmálin og verðbólguna haldi áfram. Mér finnst alltof lítið koma frá almenningi í þær umræður og þær geta vel farið fram í lesendadálk- um aiveg eins og í einhverjum stórfréttum eða greinum lærðra manna. Aurasál." Undir síðustu orðin frá bréfrit- ara getur Velvakandi tekið. Því ekki að ræða efnahagsmálin hér í dálkunum? Þar geta lesendur komið sínum skoðunum og hug- myndum á framfæri og bent á það sem þeir telja rétt að gera til lausnar þessum vandamálum. En frá peningamálunum er horfið að atvinnumálum: • Alltaf íslenzkt? Unnandi íslenzks iðnaðar eins og hann vildi láta nefna sig hafði eftirfarandi að segja um íslenzkan iðnað: „Fyrir nokkru var hvatt til þess af hálfu Iðju á Akureyri að mig ininnir að íslenzkur iðnaður fengi að njóta alls forgangs sem mögu- legt væri og að menn keyptu innlendan iðnaðarvarning eins og bezt þeir gætu og mættu. Ekki er nema gott um það að segja og sjálfsagt er að stuðla að því að hinn íslenzki iðnaður fái að vaxa og dafna, að hann fái sín tækifæri eins og aðrar greinar. Eitt smáatriði langar mig þó til að benda á í þessu sambandi, en það er varðandi vöruvöndun. Mér finnst aldrei vera lögð nægileg áherzla á það af hálfu hinna íslenzku framleiðenda að vöru- vöndun verður að vera ofar öllu. Það má ekki verða þannig að fólk kaupi erlendan varning aðeins vegna þess að sá íslenzki er ekki nógu vandaður. Fólk kaupir ís- lenzkan varning þótt hann sé e.t.v. stundum örlítið dýrari en sá erlendi, því að flestir vilja íslenzkt, en fyrir kemur að varningur er af einhverjum ástæðum ekki fullkomlega nógu góður og þá getur farið svo að menn hugsi sig um tvisvar áður en keypt er íslenzkt aftur. - Á þetta vildi ég benda og allt í góðu, ég hef engin sérstök dæmi að nefna og er alls ekki að „ráðast á“ íslenzkan . iðnað, en vil hvetja menn til að gefa þessu atriði gaum og hvetja fólk til að kaupa íslenzkt. Þessir hringdu . . . • Fáránlegt að banna? Sportveiðimaður. — Ég tel það fáránlegt að banna sportveiðar, eins og lagt hefur verið til í dálkum hjá Velvakanda nýlega. Talað var um t.d. rjúpnaveiðibann og hvaladráp og talað um að slíkt sport ætti að leggja niður. Eitthvað var líka minnst á laxveiðar. Mér finnst engin ástæða til að banna t.d. rjúpnaveiði, því hún er ekki eingöngu sport heldur veiða menn sér til matar og er þetta hið mesta lostæti. Jafnvel geta sumir ekki haldið jól nema rjúpur séu á borðum. Ef fuglafræðingar og aðrir sérfræðingar telja af ein- hverjum ástæðum nauðsynlegt að banna rjúpnaveiði þá væri það svo sem í lagi, en að láta sér detta í hug að gera það án nokkurrar sérstakrar ástæðu finnst mér ekki eðlilegt. Það sama gildir um hvalveiðar, þær ætti eklci að þurfa að banna vegna þess að þær eru þjóðhagslega hagkvæmar og skapa útflutningsverðmæti eða hver veit hvað og meðan ekki er sannað að SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á opnu skákmóti í Lugano í Sviss í sumar kom þessi staða upp í skák þeirra Joncic.s, Júgóslavíu og Stehlis. Sviss, sem hafði svart og átti leik. hvalveiðar Islendinga séu að ganga af stofninum dauðum, þá eru þær í lagi að mínu viti. I sambandi við rjúpnaveiðina vildi ég líka benda á annað. Nú er veiðitíminn frá því um miðjan október og fram undir jól. Ég held að betra væri að hafa þennan tíma mánuði aftar, þ.e. leyfa veiðar t.d. frá 15. nóvember til 15. janúar. Ástæðuna fyrir þessu tel ég vera þá að ungarnir eru vart komnir úr hreiðrunum, þ.e.a.s. eru ekki orðnir nógu stálpaðir til að geta bjargað sér fullkomlega. Hvað segja menn við bessu? HOGNI HREKKYÍSI „Það var skipt... við töpuðum, en Högni vann!“ Wrangler UFO-wndcat Gallabuxur Flauelsbuxur Aldrei meira úrval Svona líta slárnar út, þegar viö opnum en þegar við lokum, Þá eru Þær svona GEísm 24. ... Bf3! 25. gxf3 (Eftir 25. g3 — h4 er sókn svarts of sterk) exf.3 2fi. Rg3 - h4 27. I)b2 - hxg3+ 28. fxg3 - Hxh3+! 29. Kgl (Eða 29. Kxh3 — Dh5 mát) Dxg3+ 30. Kfl — Hhl mát. MANNIOG KONNA HAGTRYGGING HF ♦ KvERT El&UIA VIO AO FARA 7 6ARÁ ElTHVAO UPP l' SVEIT ne.v-iev, ÉO EK 5ko ( , ÖDRUNl ft'L.OG- ÉG- FÓR E.KKI SV O N A ^HRATTj^ FARIÐ GÆTILEGA í LAUSAMÖL OG KRÖPPUM BEYGJUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.