Morgunblaðið - 03.08.1978, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.08.1978, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1978 17 Um fréttaflutning sjónvarps 2. febr. 1976 Undanfarna daga hefur nokkuð verið fjallað í dagblöðum um fréttaflutning fjölmiðla, þ.á m. sjónvarps, af innlendum stjórn- málaviðburðum hin seinni ár. Ingvar Gíslason alþingismaður kom að þessu efni í grein í Tímanum 20. júlí. I forystugrein Morgunblaðsins 25. júlí var þetta rætt, og þar segir m.a.: „Þegar málið um „yfirhylmingar" Ólafs Jóhannessonar var tekið fyrir á Alþingi 1976 var sjónvarpið mætt, þó að fæstir þingmenn — og allra sízt Ólafur Jóhannesson — hefðu haft hugmynd um til hverra tíðinda þar ætti að draga.“ í þættinum Á víðavangi í Tímanum 26. júlí segir (Þ(órarinn) Þ(órarinsson) til viðbótar um þetta mál: „Rétt er að geta þess að sjónvarpið varpaði út umræddum umræðum að kvöldi þess dags, sem þær fóru fram, og breytti verulega dagskrá sjónvarpsins til þess að gera það framkvæmanlegt. Sú dagskrárbreyting var gerð án nokkurs samráðs við útvarpsráð og sama gilti um upptökuna á Alþingi. „í þættinum Staksteinar í Morgunblaðinu 27. júlí er enn rætt um þetta efni og m.a. talið „æskilegt að heyra andsvör við- komandi fréttastofu við þessum orðum útvarpsráðs." ráðherra var ekki flutt þennan dag, heldur kvaddi Sighvatur Björgvinsson sér hljóðs utan dagskrár og hóf umræður um svonefnt Klúbbmál og í framhaldi af því um Geirfinnsmálið, m.a. með tilvísunum til Hauks Guðmundssonar rannsóknarlög- reglumanns. Ræðu Sighvats svar- aði Ólafur Jóhannesson sem frægt var. Ekki er unnt að bera á móti því að þjóðin hafði einnig áhuga á þessum málum um þessar mundir. Ólafur Jóhannesson hafði einmitt í símaviðtalsþætti í hljóðvarpi kvöldið áður 1. febrúar, talað um „Vísismafíu.“ Úr því nú að upp- tökubifreið sjónvarps var við alþingishúsið þennan dag, 2. febr., þótti eðlilegt að taka upp það sem fram fór. Þegar til kom síðar um daginn, ákváðu forráðamenn sjón- varps að senda þetta efni út sama kvöld sem sérstakan dagskrárlið, og taka það þannig af okkur umsjónarmönnum Þjóðarskútunn- ar. í staðinn fengum við loforð fyrir upptöku aftur næsta dag, 3. febr., og þá var upptökubifreiðin á ný send að Alþingishúsinu. Þann dag flutti forsætisráðherra loks umrædda skýrslu sína um viðræð- urnar við Breta. Við fengum að kvöldi þess sama dags óvenju langan tíma fyrir þjóðarskútuna í Björn Teitsson og Björn Þorsteinsson Okkur undirrituðum, sem á þessum umrædda tíma sáum um þingfréttaþátt sjónvarpsins, þykir rétt að skýra hér nokkuð atburðar- ásina 2.-3. febr. 1976., í ljósi þeirra venja sem ríktu um upptöku stjónvarpsefnis í þingsölum. Þátturinn Þjóðarskútan var á kvölddagskrá sjónvarps annan hvern þriðjudag veturinn 1975—76 og stóð yfirleitt í hálftíma hvert sinn. Okkur var umhugað um að efni þáttarins væri yfirleitt sem nýjast af nálinni, og þá helzt frá umræðum á Alþingi. Oftast nær fóru upptökur því fram á mánu- degi fyrir útsendingu, en þannig gafst dagsfrestur til að klippa þáttinn. Um mánaðamótin jan.- febr. 1976 stóð svo á að forsætis- ráðherra, Geir Hallgrímsson, var nýkominn heim frá London, og vitað var að hann hugðist flytja þingi og alþjóð skýrslu um viðræð- ur sínar og annarra íslenzkra fulltrúa við brezk stjórnvöld um fiskveiðideilu þjóðanna, sem þá stóð yfir. Mánudag 2. febr. voru liðnir fáeinir dagar frá heimkomu sendinefndarinnar og töldu starfs- menn sjónvarps afar sennilegt að skýrslan yrði flutt þennan dag. Við undirritaðir vildum ná sem beztri upptöku af ræðu forsætisráðherra og væntanlegum umræðum um hana fyrir þátt okkar daginn eftir, og forráðamenn frétta- og fræðsludeildar sjónvarps féllust á sjónarmið okkar. Því var upptöku- bifreið sjónvarps send að alþingis- húsinu um hádegi þennan dag til upptöku. Landhelgismálið var í brennidepli um þessar mundir, eins og menn muna, og þessi ákvörðun því skiljanleg. Hins vegar bar svo við, að skýrsla kvölddagskrá sjónvarps, og voru þá sendir út langir kaflar úr umræðunum um landhelgismálið. Tæpt stóð, að unnt væri að klippa efnið til samdægurs fyrir þáttinn, en það tókst þó. Skylt er að taka fram, að samstarf okkar undirritaðra árin 1972—76 við útvarpsráð, ekki sízt formenn þess, var að okkar dómi prýðilegt. Við höfðum þann hátt á að biðja þingforseta munnlega í hvert sinn um leyfi til upptöku í þingsölum, og mun það einnig hafa verið gert bæði 2. og 3. febr. 1976. Ætíð veittu forsetar þessi leyfi góðfúslega. Næsta haust eftir framan- greinda atburði var ekki leitað til okkar um gerð sjónvarpsþátta um störf Alþingis. Við álítum að það hafi stafað af því að eðlilegt hafi þótt að skipta öðru hvoru um menn í þessu starfi, og munum við álíta það unz annað sannast. Að okkar dómi er eðlilegt og nauðsyn- legt að ríkisfjölmiðlar segi ræki- lega og án hlutdrægni frá öllu því markverðasta — og oft um leið umdeildasta — sem fram fer á sjálfu Alþingi íslendinga. Þessi greinargerð er af okkar hálfu einungis ætluð til skýringar á ákveðinni atburðarrás dagana 2.-3. febr. 1976, og hún er algerlega gerð að okkar eigin frumkvæði. Við samningu hennar hefur verið stuðzt við minnis- punkta okkar og dagblöð frá þessum tíma. Reykjavík, 31. júlí 1978. Björn Teitsson. Björn Þorsteinsson. va sl •o Allt til helgarínnar AUtí ferðalagið Ávextir og grænmeti á Vörumarkaösveröi nýreyktir hangiframpartar á Vörumarkaösveröi. Barnamatur og bréfbleyjur á Vörumarkaös- veröi. Sælgæti og vestfirskur haröfiskur á Vörumark- aösveröi. Pakkasúpur og kex á Vörumarkaösverði. Allt Vörumarkaösálegg á Vörumarkaösveröi. Kartöfiuflögur og saltstangir á Vörumarkaös- veröi. Niðursoðiö kjöt, fiskbollur og ávextir á Vörumarkaðsveröi. Okkar vöruverð, yðar kjarabót. W Vörumarkaðurinn hf. S: 86111. HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS Hæsta vinningshlutfall í heimi! Endurnýjun r • 1.000.000,- 500.000- 100.000,- 50.000,- 15.000.- 18.000.000, 9.000.000, 32.400.000, 33.750.000, 134.595.000, 227.745.000, 75.000,- 2.700.000. 230.445.000- Láttu ekki óendurnýjaðan miða þinn glata vinnings- möguleikum þínum. Það hefur hent of marga. Endurnýjaðu strax í dag. Viö drögum 10 ágúst 10.008 36 — 10.044

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.