Morgunblaðið - 03.08.1978, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 03.08.1978, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1978 47 Pétur markakóngur? Ingi meiddur og Matthías hættur YFIRGNÆFANDI líkur eru á því að Akurnesingur- inn Pétur Pétursson verði markakóngur íslandsmóts- ins annað árið í röð. Pétur er nú langhæstur á markalistanum, hefur skorað 15 mörk í 14 leikjum. Segja má að aðeins tveir menn eigi möguleika á því að ná Pétri, þeir Ingi Björn Albertsson og Matthías Hall- grímsson, en báðir hafa skorað 11 mörk. Hins vegar er staðan sú að Ingi Björn er meiddur og mun væntanlega missa úr 2—3 næstu leiki Vals og Matthías er að sögn hættur að leika með Akranesliðinu vegna óánægju með það að vera skipt útaf í tveimur síðustu leikjum liðsins. Það virðist því ekkert geta komið í veg fyrir að Pétur verði markakóngur í ár og spurningin virðist aðeins sú hvort Pétur nær að bæta markamet Hermanns Gunnarssonar í 1. deild, sem er 17 mörk á keppnistímabili. - SS. Kvennaknattspyrnan: r SVO KANN að tara að úrslit ráðist í kvennaknattspyrnu íslandsmótsins í kvöld, en Þá leika Valur og FH á Valsvellinum klukkan 20. Nægir Val jafntefli til pess að veröa islands- meistari. Þá fara fram tveir leikir í 2. deild í kvöld. KR og Ármann leika á Laugardalsvelli og Haukar og Reyn- ir á Hvaleyrarholtsvelli. Hefjast báðír leikirnir klukkan 20. KSÍ kærir Lokaren STJÓRN KSÍ hefur ritað Alþjóða knattspyrnusamband- inu (FIFA) og belgíska knatt- spyrnusambandinu bréf, þar sem belgíska félagið Lokaren er kært fyrir að hafa fengið til sín leikmenn frá Islandi á miðju keppnistímabili. Að sögn Ellerts B. Schram formanns KSÍ er búist við því að Lokaren verði beitt ein- hverjum viðurlögum. þar sem bannað er samkvæmt lögum FIFA að hafa samband við leikmenn þegar keppnistíma- bil stendur sem hæst. Tveir leikmenn hafa sem kunnugt er skrifað undir samning við Lokaren, Arnór Guðjohnsen Víkingi og James Bctte Val. Dr. Youri á yfir- reið um Austfirði LANDSLIÐSÞJÁLFARINN í knattspyrnu, dr. Youri Ilitchev, hefur undanfarna daga dvalið á Austfjörðum og átt þar viðræður við knattspyrnuþjálfara og stjórn- að æfingum. Youri hefur farið á æfingar á Breiðdalsvík, Fáskrúðs- firði og Neskaupstað og síðar í vikunni fer hann til Eskifjarðar og Hafnar í Hornafirði. Youri hefur stjórnað æfingum yngri flokka og veitt þjálfurum leiðbeiningar. Youri Ilitchev fer þessa ferð að frumkvæði Þróttar í Neskaupstað. Fórholuí höggi og fékkbflinn! ÞAÐ ÓVÆNTA gerðist á Opna golfmótinu í Köln um helgina, að sá keppandi sem hafnaði í 22. sæti, hlaut mun hærri fjárupphæð heldur en sigurvegarinn. Það var Tony Jacklin, sem fór holu í höggi á 15. braut og fékk fyrir það nýjan Mercedes Benz að verðmæti 50.000 mörk. Sevriano Ballesteros frá Spáni, sigraði hins vegar á mótinu á 268 höggum og runnu í vasa hans 24.000 mörk. Niel Coles frá Englandi varð í öðru sæti á 270 höggum. Sjá einnig íþróttir á blaðsíðu 34 stórkostlegt Háskólabolir. Stutterma skyrtur ! Jakkar, alls konar. Gallabuxur. Flauelisbuxur. | Canvas buxur. ■ '■ céH&oá amo® flF STRÐ SKflL HflLDA alvöru gallabuxi Levi's er merkió

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.