Morgunblaðið - 03.08.1978, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 03.08.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1978 5 Litróf úr sænskri Níu af fremstu listamönn- um Svía halda grafíksýn- ingu í Norræna húsinu. FÖSTUDAGINN 4. ágúst verður opnuö í Norræna húsinu sýning á grafíkmyndum 9 sænskra lista- manna. Hópur pessi kallar sig IX-gruppen, og hefur hann reynzt flestum sam- bærilegum hópum langlífari. Með- limirnir eru allir taldir í röð fremstu listamanna Svía og fást peir allir við annað en grafík. Árið 1964 tóku peir boði um samsýningu í Póllandi og stofnuöu pá til pessa hóps. Síðan hafa peir sýnt saman 35 sinnum víða um heim. Myndlistarmennirnir 9 eru Gösta Gierow, Karl Erik Hággblad, Bengt Landin, Lars Lindeberg, Alf Osson, Nils G. Stenqvist prófessor, Göran Nilsson forstööumaður Sveriges All- mánna Konstförening og Philip von Schantz prófessor, forstööumaður Moderna Museet í Stokkhólmi. Þeir Per Gunnar Thelander notar kartöfl- una í pessari mynd: „Reiðmaður". grafíklist koma allir til landsins á föstudag og verða viö opnun sýningarinnar þá um kvöldið. Síðan ráðgera þeir að dveljast hér á landi í nokkra daga, hitta íslenzka listamenn og ferðast um landið. i sýningarskrá er rædd forsenda þess, hve IX-gruppen hefur orðið langlífur hópur. Þar segir, að gagn- stætt við mörg slík samtök ungra listamanna, hafi þeir félagar engar sérstakar sameiginlegar skoöanir sem þeir reyni að fylgja í hvívetna og hefti sköpunargleöi þeirra. „Þeir mynda öllu heldur litróf, sem endurspeglar ólík viðhorf innan þeirrar kynslóðar, sem hefur rutt sér braut í sænskri grafíklist,“ segir í skránni. Á sýningunni í Norræna húsinu eru 66 myndir, og eru þær allar til sölu. Hún verður opin frá 5. til 20. ágúst kl. 14—19 daglega. IX-gruppen: F.v.: Gösta Gierow, Pár Gunnar Thelander, Karl Erik Hággblad, Alf Otsson, Philip von Schantz, Göran Nilsson, Nils G. Stenqvist, Lars Lindeberg og Bengt Landin. □ gallabuxum □ flauelsbuxum □ canvasbuxum □ bolum □ stutterma blússum □ stutterma skyrtum □ kjólum □ pilsum □ mittisjökkum dömu og herra □ vestum □ plastregnkápumo.fl. Ofsalegt úrval af fatnaöi fyrir verzlunar- mannahelgina Sumar- og feröaskór í úrvali TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS MvKARNABÆR Laugaveg 20 Laugaveg 66 Austurstræti 22 Glæsibæ Sími 28155 15% afsláttur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.