Morgunblaðið - 03.08.1978, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1978
Heimsókn á skóvinnustofu:
i
Gamlir skór
geta orðið
sem nýir
„Það er hætt að kenna
skósmíði sem slíka, nú heitir
þetta þjónustu-skóvinna, eða
eitthvað í þá áttina. Þegar
maður var í náminu sjálfur,
þótti manni smíðin heldur
tilgangslaus, en nú þykir
mér mjög gaman að hafa
lært hana,“ sagði Hafþór
Edmond, skósmíðameistari.
„Það er verst að ég er ekki
með sveinsstykkið mitt
hérna til að sýna þér.“
Hafþór er með skóvinnu-
stofu í húsi Guðmundar
Ólafssonar, skósmiðs, við
Garðastræti. „Þeir hafa svo
sannarlega haft það gott
skósmiðirnir á þeim tímum,
þegar Guðmundur vann við
þetta. Það hefur þurft eitt-
hvað til að byggja svona
stórt hús, KR fékk húsið að
Guðmundi látnum.“
Systir Hafþórs, Ásta, hef-
ur unnið hjá honum í sjö ár.
„Það eru margir sem halda
Iíafþóri „Hundar sækja mikio í
skóhæla og geta farið mjög illa
með þá.“
Hafþór notar nýja tækni við hælplöturnar.
að við séum hjón. Þegar ég
átti von á barni fylgdust
margir viðskiptavinirnir
með því og óskuðu svo
Hafþóri innilega til
hamingju þegar barnið
fæddist. Hann var ekkert að
leiðrétta það.“
Aðspurður sagði Hafþór
að vel gengi hjá sér. „Við
vinnum hérna þrjú, lærling-
urinn er í sumarfríi, og það
er vinna fyrir fleiri. Hús-
næðið leyfir bara ekki meiri
vinnukraft. Við erum alltaf
með augun opin fyrir nýju
húsnæði en það er erfitt að
flytjast bæði fyrir kúnnann
og mann sjálfan. Spurningin
stæði um að fara ekki of
langt til að halda gömlu
kúnnunum, eða fara á alveg
nýjan stað og eignast nýja
viðskiptavini.
Vinnan er alltaf að aukast.
Eg veit ekki hvers vegna það
er, ég læt mína vinnu tala
fyrir mig. Það er orðið
mögulegt að gera svo miklu
betur við en hérna áður fyrr,
þegar þurfti að negla allt.
Límin eru orðin svo sterk, og
tæknin mikil að það er hægt
að gera mjög illa farna skó
alveg eins og nýja.
Það eru mörg skemmtileg
atvik sem koma fyrir, en þó
finnst mér skemmtilegast
þegar ég kem viðskiptavinin-
um svo á óvart að hann
stendur á gati og segir:
„ha ... er þetta búið!?““
Það hefur um árabil
verið krafa Sovétstjórnar-
innar að Norðurlöndin
verði kjarnorkulaust
svæði og stjórnir ríkjanna
gefi afdráttarlausar yfir-
lýsingar þar um. Kröfum
Sovétmanna um formlega
yfirlýsingu hefur jafnan
verið vísað á bug, og hafa
stjórnir Noregs, Svíþóðar
og Danmerkur bent á í
því sambandi að í fyrsta
lagi sé slík vopn alls ekki
að finna í þessum löndum,
auk þess sem yfirlýsing af
þessu tagi mundi skil-
yrðislaust kalla á aðra
slíka af hálfu Sovét-
manna. Það kemur að
sjálfsögðu ekki til greina
frá sjónarmiði Kreml-
stjórnarinnar, stærsta
kjarnorkuflotastöð í
heimi er sem kunnugt er
um það bil 100 kílómetra
frá norðurlandamærum
Noregs og Finnlands, sem
liggja að Sovétríkjunum.
Krafa Sovétstjórnarinnar um
kjarnorkubann Norðurlandanna
kann því að koma skringilega fyrir
sjónir, en samt sem áður klifa þeir
enn á því að Norðurlöndin gefi
yfirlýsingu þar um. Nýjasta dæm-
ið um þetta er krafa Gromykos
utanríkisráðherra Sovétríkjanna
Faxaborg:
!
Borgfjörð efstur alhliða
gæðinga—Funi setti nýtt
met í 800 metra brokki
UM FYRRI helgi hélt Ile.stæ
mannafélagið Faxi í Borgarfirði
árlegt hestaþing sitt að Faxaborg
við Hvítárbrú. Auk keppni í A- og
H-flokkum gæðinga og kappreiða
fór fram sérstök keppni meðal
unglinga og keppt var í svokiill-
uðu nýliðaskeiði. Eitt íslandsmet
var sett á kappreiðum mótsins og
var það í 800 metra brokki og
setti það Funi, Marteins Valdi-
marssonar í Búðardal. Nýja^
metið er 1.38.6 mín.. cn eldra
metið var 1.40,5 mín., sett á
Mánagrund 1977 af Faxa. Egg-
erts Ilvanndals. Ekki hefur enn
verið viðurkennt neitt met í.
nýliðaskeiði.
í A-flokki gæðinga sigraði Borg-
fjörð, 6 vetra rauðtvístjörnóttur
stóðhestur, knapi og eigandi Reyn-
ir Aðalsteinsson, með einkunnina
8,32. í öðru sæti varð hryssan
Elísa, brún 9 vetra, knapi Ragnar
Hinriksson og eigendur Edda
Hinriksdóttir og Ragnar Hinriks-
son, með einkunnina 8,18 og í
þriðja sæti varð Glaður, 13 vetra
rauðblesóttur, knapi Skúli Krist-
jónsson og eigandi Kjartan Jóns-
son, með einkunnina 8,00.
Efstur af gæðingum í B-flokki
varð Þróttur, rauðstjörnóttur 10
vetra, knapi Ragnar Hinriksson og
eigandi Helga Classen, með eink-
unnina 8,34. Annar varð Lýsingur,
leirljós 10 vetra, knapi Einar
Karelsson og eigandi Hrefna
Sigurvegarar í eldri flokki unglingakeppninnar urðu Gísli Gfslason,
Hofstöðum. sem hér heldur á verðlaunahikarnum, í öðru sæti varð
Aðalsteinn Reynisson, Sigmundarstöðum, og í þriðja sæti Jóna Dís
Bragadóttir, Borgarnesi.
Halldórsdóttir, með einkunnina
8,32 og í þriðja sæti varð Silfri,
grár 6 vetra, knapi og eigandi
Reynir Aðalsteinsson með eink-
unnina 8,20.
Unglingakppnin var tvískipt og
kepptu 13 til 15 ára í sérstökum
flokki en þau yngri í öðrum. I eldri
öðru sæti varð Helga Björnsdóttir,
11 ára, Laugavöllum, og í þriðja
sæti Ilinrik Bragason, 9 ára,
Borgarnesi, á Glókolli.
Nýliðaskeiðið var 150 metrar og
kepptu þar hross, sem ekki höfðu
áður tekið þátt í skeiðkeppni. í
þessari keppni sigraði Elísa, Eddu
Hinriksdóttur og Ragnars Hin-
rikssonar, knapi Ragnar Hinriks-
son, á 17,7 sek., í öðru sæti varð
Borgfjörð, eigandi og knapi Reynir
Aðalsteinsson, á 18,4 sek., og þriðji
Kolseggur, eigandi og knapi Jó-
flokknum sigraði Gísli Gíslason,
15 ára frá Hofstoðum, á Kóp,
annar var Aðalsteinn Reynisson,
13 ára, Sigmundarstöðuum, á Nös
og þriðja Jóna Dís Bragadóttir, 15
ára, Borgarnesi, á Neista. I yngri
flokknum sigraði Eyjólfur Gísla-
son, 12 ára, Hofstöðum, á Ör, í
Reynir Aðalsteinsson sigraði á
stóðhestinum Borgfjörð í flokki
alhliða gæðinga. Ljósm. GTK.
Glóa kemur að marki í 300 metra stökki en knapi er Fríða
Steinarsdóttir.