Morgunblaðið - 03.08.1978, Side 27
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1978
Eftir því sem ég kemst næst, þá er núna grænt ljós.
„Þarna getið þér sjálfur séð hversu auðveldlega þér
getið meitt yður á yðar eigin heimili. Tryggingin sem
ég býð yður ...“
7BEKr
„Taktu þessu ekki sona illa, elskan. Við höfum þó
ennþá hvort annað.“
Hjólreiðar eru ekki
bara fyrir börn
Það er sjaldan sem maður sér
fullorðna á hjóli hér á götum
borgarinnar, eins og er svo algengt
t.d. í Danmörku. Sumum finnst
það hallærislegt að stíga á hjól
eftir 15 ára aldurinn, jafnvel
hlægilegt. En hjólreiðar eru ein-
mitt mjög góð hreyfing og tilvalin
íþrótt til að stunda með börnun-
um. Hér á landi hefur lítið sem
ekkert verið gert til verndar
hjólreiðamönnum, t.d. er það
næstum hættulegt að hjóla hér
eftir aðalgötunum í borginni.
Og
það er bannað að hjóla á gang-
stéttunum, svo hvað er þá til ráða
fyrir þá sem vilja njóta útiveru á
hjóli? Að sjálfsögðu er mögulegt
að hjóla í sumum íbúðarhverfun-
um og það er hægt að hafa hátt um
tillitsleysi bifreiðarstjóra á götun-
um gagnvart hjólreiðafólki.
En af
hverju ekki að taka hjólin með í
skottinu út á land og skoða
náttúruna úr hnakknum?
Krokket og
golf verða síf-
ellt vinsælli
hér á landi.
Krokketið
verður
stöðugt
vinsælla
hér á landi
Þegar fólk hefur lokið við að
tjalda og komið sér fyrir úti í
náttúrunni er ýmislegt hægt að
gera sér til skemmtunar. Margir
kjósa að fara í gönguferðir,
aðrir fara í boltaleiki, eða spila
badminton, svo eitthvað sé
nefnt.
Eitt er það sem alveg tilvalið
er að taka með sér í ferðalagið,
en það er krokket. Leikreglurn-
ar eru mjög einfaldar og öll
fjölskyldan getur verið með.
Hægt er að fá ýmsar gerðir af
þessu spili, sem sífellt verður
vinsælla og vinsælla, og er
verðið á bilinu 5 til 15 þúsund og
fæst spilið í flestum sportvöru-
verslunum.
Einnig er hægt að fá lítil
golfsett í hentugum pakkning-
um til að taka með sér í ferðalög
og er verðið í kringum 6 þúsund.
Þetta eru þó aðeins nokkur
dæmi um það sem hægt er að
gera sér til skemmtunar, og
viljum við eindregið hvetja fólk
til að gera eitthvað heilbrigt og
skemmtilegt.
Það er þó því miður allt of
algeng sjón að sjá fólk veltast
útúrdrukkið í kringum tjöld sín
og hafa lítið annað fyrir stafni
en að röfla hvert við annað.
Slíkt getur oft endað með
ósköpum og við viljum því
frekar ráðleggja fólki að kveikja
lítinn varðeld, og hafa það
notalegt í kringum hann. Þá er
tilvalið að hafa með sér gítar og
taka lagið.