Morgunblaðið - 05.08.1978, Page 1

Morgunblaðið - 05.08.1978, Page 1
48SÍÐUR OGLESBÓK 167. tbl. 65. árg. LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1978 Prentsmiója Morgunblaðsins. Hershöf ðingja f al- in stjórnarmynd- un í Portúgal ? Lissahon. 1. áRÚst. Router. í DAG, föstudaR, átti Eanes, forseti PortÚBals fundi með Cunhal forystumanni kommún- istafiokks landsins, svo og for- svarsmönnum UDP — sem er lengra til vinstri. Er búizt við því að Eanes Ijúki þessum „könnun- arviðræðum“ sínum á morgun með því að kalla Mario Soares fráfarandi forsætisráðherra á sinn fund og búizt er við því að forsetinn muni síðan um helgina útnefna nýtt forsætisráðherra- efni og fela stjórnarmyndun. Síðustu daga hafa verið á kreiki í Lissabon áleitnar raddir um að Eanes muni fela stjórnarmyndun- ina Mario Firmino Miguel, 46 ára gömlum hershöfðingja, sem var varnarmálaráðherra í fráfarandi stjórn og er úr flokki sósíalista. Soares hefur haft uppi varnaðar- orð sem benda til þess einnig að hann viti hug Eanesar, því að Soares sagði að það kynni að vera varasamt og gæti aukið spennu í landinu ef maður úr röðum hersins tæki að sér að mynda stjórn. Freitos do Amaral, leiðtogi mið- Fleiri Gyðing- ar frá Sovét Genf. I. á«. AP. FJÖLDI sovézkra Gyðinga sem flutzt hefur frá Sovétríkjunum hefur aukizt mjög snögglega á fyrra helmingi ársins 1978, sam- kvæmt opinberum tölum sem birtar hafa verið í Genf. Þar kom fram að 11.500 sovézkir Gyðingar hafa komið frá Sovétríkjunum til Vínarborgar frá því í janúar og fram til loka júnímánaðar og er aukningin um 60%. Flestir þeirra fóru til Bandaríkjanna og Israels. Parísarmorðin: demókrata lét í veðri vaka í kvöld eins og sl. daga að flokkur hans væri reiðubúinn að reyna að gera aðra tilraun til að ganga til stjórnarsamstarfs með Sósíali.sta- flokknum, þó svo að það hafi rofnað nú á dögunum eins og alkunna er. Do Amaral sagði að hann styddi eindregið þá viðleitni Portúgalsforseta að sneiða hjá kosningum að svo stöddu og myndu miðdemókratar reyna eftir föngum að koma til móts við Sósíalistaflokkinn svo að ekki þyrfti að kjósa í Portúgal fyrr en 1980 eins og áætlað var. Flugslys Allir komust lífs af Buenos Aires 4. ág. Reuter. AP FARÞEGAFLUGVÉL frá Chile, sem var á leið frá Ncw York til Chile, hrapaði til jarðar og brann, rétt við flugvöllinn í Buenos Aires í morgun, en til tíðinda telst að allir, sem með vélinni voru, 64 talsins, munu hafa komizt lífs af. Þrettán voru fluttir í sjúkrahús í grennd við flug- völlinn en samkvæmt opinber- um heimildum var enginn í lífshættu. Vélin var af gerðinni Boeing 707 og var að gera tilraun til nauðlendingar á Ezeizaflugvelli þegar slysið varð. Þoka grúfði yfir og skyggni var afleitt. Strax eftir slysið þustu björgunarsveit og slökkviliðs- menn á slysstaðinn sem var skammt frá Kjarnorkustöð Ezeiza. Framin samkvæmt skipun Abu Nitals París. 1. ágúst. Ucutcr. ARABARNIR tveir sem myrtu tvo starfsmenn Frelsissamtaka Palestínuaraba úr launsátri í gær, segjast hafa fengið skipun um það frá leiðtoga öfgasinnaðra Palestínuaraba í Bagdad, Abu Nidal, að sögn frönsku lögreglunnar. Hinir myrtu voru fulltrúar PLO í Frakklandi, leiðtogi samtakanna þar, Ezzedine Kalak og aðstoðar- maður hans Adnan Hammad. Er þetta síðasti blóðugi kaflinn í stríði PLO við öfgasinnaða Palestínuaraba og hefur Valery Giscard d'Estaing Frakklandsfor- seti fyrirskipað Louis de Guirin- gard fjármálaráðherra að gera nána skýrslu um diplómata í París og erindagjörðir þeirra til að koma í veg fyrir átök af þessu tagi. Þá vill Frakklandsforseti koma á auknu eftirliti með ferðum og komum erlendra diplómata til landsins. PLO-mennirnir voru myrti,r aðeins þremur dögum eftir árás á sendiráð Iraks í París, þar sem starfsmaður sendiráðsins og franskur öryggisvörður voru myrt- ir í skotbardaga við Araba sem hélt gíslum í sendiráðinu. Fyrir fimm vikum fór PLO þess á leit við stjórn Iraks að hún afhenti þeim Abu Nidal og sam- verkamenn hans, þar eð þeir hefðu myrt fulltrúa PLO í London og Kuwait fyrr á þessu ári. Á leiðinni út í helgina og væntanlega með veizlu í farangrinum. Ljósm. Emilía. Miðausturlönd: Vance kemur til Jerúsalem í dag Washington. 1. ág. Rcutcr. AP. CYRUS Vance, Utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, lagði upp í ferð til ísraels og Egyptalands í kvöld og er talið að hann muni leggja sig allan fram um að fá deiluaðila til að hefja að nýju samningaviðræður um frið í þcssum heimshluta. Fréttum bar ekki saman um það hvort hann hefði nýjar tillögur Bandaríkja- stjórnar upp á vasann, sem hann myndi leggja fyrir Begin og Sadat. en talið er að einhverjar nýjar hugmyndir verði þó lagðar fram. Fréttaskýrendum ber saman um að ástandið sé nú að verða slíkt að ekki sé mikill tími til stefnu ef einhverjar vonir eigi að vera til að lífga við friðarviðræður Egypta og ísraela. Þó er sagt að í Israel er eindreginn vilji til þess að einhver hreyfing verði í málinu segir í fréttaskeytum og Yadin, áðstoðar- forsætisráðherra Israels, sagði í kvöld að hvorugur deiluaðila hefði efni á því að láta við svo búið standa. í fréttum frá Líbanon sagði að þar væru veður válynd sem oft fyrr og mjög hörð átök hefðu verið í Beirut í dag og virtist sem ógerningur væri að komast að neinu samkomulagi er tryggði vopnahlé er varanlegt mætti teljast. I Suður-Líbanon hvöttu bæði ísraelar og líbanska stjórnin tvö herfylki kristinna hægri manna, sem lúta stjórn Saad Haddads majors, sem oft hefur komið við sögu og Mbl. hefur nokkrum sinnum rætt við, til þess að leyfa líbönskum hermönnum að komast leiðar sinnar í Suður-Líbanon. Saad Haddad maj- or neitaði harðlega og kvaðst mundu halda uppi hríð að líbönsku hermönnunum ef honum þóknað- ist enda væru þeir útsendarar Sýrlendinga. Saad Haddad hefur verið kvaddur til viðræðna við stjórnina í Beirut en neitar að gera það, þar sem hann segir að þar standi Sýrlendingar að baki og muni nota tækifærið til að hand- taka sig vegna þess hve tregur hann hefur verið að hlýðnast skipunum frá Beirut. Kynþáttafordómar í Svíþjóð áhyggjuefni Stokkhólmi, 4. áýíúst. Reuter. SÆNSKA stjórnin hefur ákveð- ið að láta rannsaka staðhæfing- ar um kynþáttamisrétti og fordóma sem fullyrt er að komi fram gagnvart erlendum yerkamönnum í Svíþjóð. Kjell Öberg forstjóri Innflytjenda- ráðs Svíþjóðar var skipaður formaður slíkrar rannsóknar- nefndar í morgun. Sagði hanr. ( samtali við Svenska Dagbladet að efnahagur Svíþjóðar væri ótraustari en áður og matti rekja margt í því til þeirra fordóma sem ríktu í viðhorfi til útlenzkra verkamanna. Hann sagði nauðsynlegt að aðhafast eitthvað raunhæft í málinu snarlega áður en allt færi í bál og brand milli Svía og innflytjendanna. Hann sagðist hafa sérstakar áhyggjur vegna fordómafullrar afstöðu meðal ungu kynslóðarinnar. Nýleg skoöanakönnun í barnaskóla í Gautaborg leiddi í ljós að méirihluti barnanna sagði að innflytjendurnir væru „ógeð“ en aftur á móti Svíar sjálfir bæði „kurteisir og sætir“. Nú eru um 425 þúsund verkamenn af er- lendu þjóðerni við störf í Svíþjóð, flestir frá Júgóslavíu, Grikklandi, Þýzkalandi og Tyrk- landi. Manntjón í flóðum Washington. 1. á«. AP. Rcutcr. CARTER forseti Bandarikjanna lýsti í kvöid yfir neyðarástandi í Texas vegna flóða í ríkinu þar síðustu daga. Er nú vitað að 20 manns að minnsta kosti hafa drukknað og ámóta margra er saknað. Mikið eignatjón hefur orðið. Björgunaraðgerðir standa yfir og hafa þyrlur verið notaðar mikið til að bjarga fólki sem flúið hefur upp á húsþök og upp í tré. í flóðunum hefur m.a. gröf Johnsons fyrrv. Bandaríkjaforseta farið undir vatn, en hann er greftraður í heimagrafreit við búgarð þann sem hann átti í Austin í Texas. Enn eru mjög miklar rigningar víðast hvar í Texas og því ekki útlit fyrir að flóðin sjatni alveg á næstunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.