Morgunblaðið - 05.08.1978, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 05.08.1978, Blaðsíða 7
JMORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1978 7 Blaöafrétt eöa blaöagrein er sitt hvaö Haraldur Blöndal skrif- ar nýlega grein í dagblaö- iö Vísi Þar sem hann segir m.a.: „íslenskir blaðamenn hafa yfirleitt átt í miklum erfiöleikum meö aö gera greinarmun á frétt og skoöun. Það er helst Morgunblaöiö, sem gerir Þar skýran mun á. Morgunblaðið leggur hins vegar mat á fráttir, eins og raunar hin blööin meö Því aö ákveöa stærö fréttarinnar eöa staö hénnar í blaöinu. Önnur blöö eru hins vegar því marki brennd, að blaöamenn láta um of skoöun sína í Ijós í fréttum. Þannig fer inn- rætingin fram. Sem dæmi vil ég nefna, aö í lok síðustu viku var sagt frá stjórnarmyndunarvið- ræöum í Vísi. Blaöamaö- urinn oröaöi fréttina eitt- hvaó á Þá leið, aö Fram- sóknarflokkurinn ætti eftir aó fallast á nokkrar umbótatillögur AlÞýöu- flokksins. Hér er lagt pólitískt mat á atburðina. Tillögur AlÞýöuflokksins eru kall- aöar umbótatillögur og Því góöar, og umhugsun- arfrestur Framsóknar- manna er Þar meö oróinn aó Þrjósku. Þó er Vísir ekki mjög illa skrifaöur að Þessu leyti. Dagblaðið hins veg- ar er yfirfullt af allskonar fullyrðingum í Þessa átt, — og Þaö sem verra er: Starfsmenn Þess blaðs eru einstaklega ónákvæmir með staö- reyndir, hvort sem Það er vegna áhugaleysis, Þekkingarleysis eöa óskýrrar hugsunar. Tíminn er nú á vega- mótum, — Þjóöviljinn er ekki blað heldur mál- gagn, og er lesinn skv. Því.“ „Nákvæmni í frásögn undantekning" „íslenzkir blaðamenn geta ekki sérhæft sig með sama hætti og víóa erlendis. Af Þessu leiöir, aö Þeir veröa oft aó skrifa um hluti, sem Þeir hafa ekki tiltakanlega mikla Þekkingu á . Slíkt ætti Þó ekki að koma aö sök, ef Þeir legðu sig fram um aö setja sig inn í mál og kynna sér Þau áóur en Þeir skrifa um Þau. Á Þessu vill verða mis- brestur. Einkaniega hef ég orðið Þessa var í skrifum Haraldur Blöndal um dómsmál, en Þar er vanÞekking blaðamanna átakanleg. Þaó er sjald- an, sem íslenskur blaða- maður skrifar heila frétt víllulausa ef hún er um dómsmál, — öll hugtök Þvælast fyrir Þeim og nákvæmni i frásögn er undantekning. Gott dæmi um Þetta eru skrif Halkfórs Hall- dórssonar undanfarió um Guöbjart heitinn Pálsson. Ég hef eins og fleiri lesið greinar Halldórs Halldórssonar. Þaó er hægt aó lýsa Þessum greinum meö tveimur oróum: illgirni og heimsku. Halldór Halldórsson sýnir í Þessum greinum sínum, aó hann er ekki aó leita sannleikans í málinu. Hann er aö reyna aö koma höggi á Sam- vinnubankann og Einar Ágústsson og er aö reyna aö sýna fram á glæpsam- legar aðferðir bankans eöa Einars í Þessu sam- bandi. Ekki hefur hann Þó sýnt fram á, að Einar hafi nokkuö til saka unnið annað en aö Þekkja Guö- bjart og er Það ekki refsivert. Það er heldur ekki refsivert af bankans hálfu aó eiga viöskiptí við Guöbjart. Halldór hefur ekki sýnt fram á nein refsiverö viöskipti Þarna á milli.“ „Þá er líka til Þess aö taka að flest Þau vió- skipti, sem Halldór ræöir um áttu sér staö fyrir um 10 árum eöa meira og er sök, ef nokkur var, löngu fyrnd. Guðbjartur Pálsson lést stuttu eftir aó hann var handtekinn með ólöglegum hætti og sætti hraklegri meðferð sinna yfirheyrsluaðila. Meöan hann var í varö- haldi voru ýmis einka- skjöl hans tekin af Þess- um yfirheyrsluaöilum. Ég fæ ekki betur séö en i Halldór Halldórsson hafi Þar komist meö puttann í, — allavega er hann meö undir höndum skjöl, sem hann hefur enga lagalega heimild til Þess aö vera meö. Guöbjartur Pálsson átti böm. Þessi börn eiga aö lögum Þá réttarvernd, aö faðir Þeirra sé ekki svert- ur meö óviöurkvæmileg- um hætti. Þessi börn eiga líka Þá vernd að lögum, aö óviðkomandi maóur úti í bæ fari ekki meö skjöl fööur Þeirra, eöa illa fengin afrit af Þeim og birti í blöðum í hagnaóar- skyni. ..“ DÓMKIRKJAN. Messa kl. 11 árdegis. Sr. Hjalti Guðmunds- son. Organleikari Ólafur Finns- son. HÁTEIGSKIRKJA. Messa kl. 11 árdegis. Sr. Arngrímur Jóns- son. Organleikari Helgi Braga- son. IIALLGRÍMSKIRKJA. Messa kl. 11 árdegis. Lesmessa n.k. þriðjudag kl. 10:30 árdegis. Beðið fyrir sjúkum. Sr. Karl Sigurbjörnsson. LANDSPÍTALINN. Messa kl. 10 árdegis. Sr. Karl Sigur- björnsson. GRENSÁSKIRKJA. Messa kl. 11 árdegis. Altarisganga. Halldór S. Gröndal. BÚSTAÐAPRESTAKALL. Guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Prestur sr. Sigurður Haukur Guðjónsson. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. NESKIRKJA.Guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Kjartan Jónsson guðfræðinemi prédikar. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. KÓPAVOGSKIRKJA. Guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Sr. Árni Pálsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA. Skírnarguðsþjónusta kl. 11 ár- degis. Gunnþór Ingason sóknar- prestur. ELLIIIEIMILIÐ GRUND. Guðsþjónusta kl. 10 árdegis. Séra Lárus Halldórsson messar. HJÁLPRÆÐISHERINN. Kl. 20:30. Fagnaðarsamkoma fýrir GUÐSPJALL DAGSINS: Lúkas 18. Farísei og tollheimtumaður LITUR DAGSINS: Grænn. Litur vaxtar og þroska. nýjan deildarforingja, major Gudmund Lund, og frú Lilly. FÍLADELFÍUKIRKJAN. Guðsþjónustur helgarinnar verða í sumarmóti hvítasunnu- manna að Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð. Einar J. Gíslon. DÓMKIRKJA Krists konungs, Landákoti. Lágmessa kl. 8:30 árdegis. Hámessa kl. 10:30 árdegis. Lágmessa kl. 2 síðdegis. Alla virka daga er lágmessa kl. 6 siðdegis nema á laugardögum þá kl. 2 síðd. FELLAHELLIR. Guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Ágúst K. Eyjólfs- son þjónar fyrir altari. KAPELLA St. Jósefs systra Garðabæi Hámessa kl. 2 síðdeg- is. EF ÞAÐ ER FRL' T- NÆMT ÞÁ ER ÞAt> l MORGUNBLAÐINU Al'GLVSING A- SÍMINN ER: 22480 Viö stelpurnar í ísbúöinni veröum á staönum um helgina og tökum þaö ísí meö dýfu. ísar meö öllum brögöum. ísbúöin v/Hlemm I öllum bænum sveltið ekki um verzlunarmannahelgina Takiö meö ykkur Kráarham- borgara í maga í ferðina. Ferlega þykkur og flottur borg- ari, gæti veriö þingeyskur eftir undrauppskrift Kidda Kráar- bónda meö hráum lauk, tómat- sneiö, frönskum og hrásaiati. Sé þig í Kránni KRAJN v/Hlemm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.