Morgunblaðið - 05.08.1978, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1978
19
Þetta gerðist
Blaðamennimir
greiddu
Moskvu. 4. ágúst. AF.
CRAIG R. Whitney, blaðamaður
við New York Times, greiddi í
dag sekt þá, sem sovéskur dóm-
stóll hafði skipað honum að
greiða vegna þess að Whitney og
félagi hans, Harold D. Piper,
neituðu að draga til baka skrif
sín um réttarhöldin yfir andófs-
manninum Zviad Gamsakhurdia.
Whitney greiddi einnig sektina,
sem Piper var gert að greiða og
auk þess greiddi hann málskostn-
að.
sektina
„Eg greiði sekt mína með
hálfum hug, því að ég vil ekki að sú
ákvörðun mín, að greiða hana, sé
skilin þannig, að ég hafi sætt mig
við úrskurð dómstóla," sagði
Whitney.
Whitney og Piper var skipað að
greiða 50 rúblna sekt (22.100
krónur), þegar þeir neituðu að
draga opinberlega til baka frásögn
sína af réttarhöldum yfir sovésk-
um andófsmanni. Þeir fullyrtu að
réttarhöldin hefðu verið sett á
svið.
Myndin hér að ofan er af trélíkani af „geimskutlunni“ við Kennedy-geimstöðina í
Florida, en þar er nú verið að skipuleggja næstu ferð „geimskutlunnar“. Stendur til að
sú ferð verði til Skylab en geimfarar um borð í Skylab taka að sér stjórn
„geimskutlunnar“ er hún kemur þangað. Þaðan mun „geimskutlan“ annaðhvort verða
send á hærri braut umhverfis jörðu eða þá að hún snýr aftur til jarðar.
Þau eru vinsælasta viðfangsefni ljósmyndara um víða veröld þessa
daganai Karóli'na fyrrv. prinsessa og brúðgumi hennar Philippe
Junot. Hér á baðströnd í New Jersey en hingað komu þau ásamt
furstafrúnni í Monakkó til að heilsa upp á ömmu Karólínu sem gat
ekki verið við brullaup þeirra sakir elli og hrumleika.
Gasbruni
í Iowa
Fort Madison. lowa 4. ágúst AP.
PRÓPANGASleiðsla sprakk í
dag í suðausturhluta Iowa
fylkis í Bandaríkjunum, með
þeim afleiðingum að bónda-
býli eyðilagðist og tvær
aldraðar manneskjur létu
lífið. Þá slösuðust einnig sex
aðrir í sprengingunni.
Eldurinn §em kviktiaði við
sprenginguna brenndi til
grunna íbúðarhús, hlöðu,
bílskúr og tvö útihús á einum
bóndabæ, en auk þess
skemmdust tvö önnur íbúðar-
hús, að því er heimildir
hermdu.
„Eldstungurnar stóðu hátt
í loft upp,“ sagði Carol Faeth,
sem býr í nágrenni við
slysstaðinn. „Þetta var gam-
alt timburhús og stór gömul
timburhlaða og húsin bara
fuðruðu upp. Þetta var alveg
eins og kyndill," sagði Faeth.
Erlent.
1973. — Tveir hermdarverka-
menn úr hryðjuverkasamtökun-
um Svarti September ráðast
með handsprengjum og vélbyss-
um á farþega á flugvellinum í 1675 — Oddur Sigurðsson lög-
Aþenu. Þrír láta lífið og 55 maður 1741 — Hjálmar Jónsson
særast. frá Bólu 1875 — Bólu-Hjálmar
1%2 — Bandaríska kvik- dæmdur 1839 — Hátíðarhöld á
myndaleikkonan Marilyn Þingvöllum 1874 — „Útiiegu-
Monroe finnst látin í íbúð sinni í maður“ Einars Jónssonar gefinn
Los Angeles. landinu 1904 — D. Guðlaugur
1952 — Japan tekur aftur upp Gíslason bæjarfógeti 1913 — F.
stjórnmálasamband við Kína. Eirikur Kristófersson 1892 —
1949 — Bandaríkin hætta Guðmundur Einarsson frá Mið-
efnahagsaðstoð sinni við Kína. dal 1895.
— Rúmlega sex þúsund manns Aímæli dagsins.
farast í jarðskjálfta í Equador. — Neii Armstrong, bandarísk-
1914 — Austurríki — Ung- ur geimfari og fyrsti maðurinn
verjaland lýsij stríði ó hendur sem steig fæti sínum á tunglið
Rússum. (1930—), John Huston, banda-
1884 — Hornsteinn Frelsis- rískur kvikmyndaleikstjóri
styttunnar er lagður í mynni (1906—).
New York-hafnar. Orð dagsins.
1858 — Lokið er við að leggja — „Karlmenn hafa yfirleitt
fyrsta sæsimastrenginn yfir meiri áhuga á konum, sem hafa
Atlantshaf. áhuga á þeim, en konum með
Innient. fallega fætur." Marlene Die-
— Þing\>allafundur 1848 — D. trich, þýzk-ættuð leikkona,
Br.vnjólfur Sveinsson biskup (1901 — ).
Farber í
Hackensack, New Jersey,
4. ágúst. Reuter.
MYRON Farber, fréttamaður
New York Times, hóf í dag að
afplána fangelsisvist sem
hann var dæmdur í fyrir að
neita að afhenda ýmis skrif-
leg gögn sem vitað var hann
hefði undir höndum varðandi
morðmál. Farber hefur bar-
izt mjög fyrir því að fangels-
fangelsi
isdómurinn yrði ógiltur, en í
kvöld var lokaniðurstaða
kveðin upp. Farber er fertug-
ur og upphaf málsins var að
hann fór að grafast fyrir um
dularfull dauðsföll sem urðu
á litlu sjúkrahúsi í New
Jersey fyrir allmörgum ár-
um. Greinaflokkur sá sem
hann ritaði leiddi til að
maður var handtekinn og
ákærður fyrir morð.
London. 4. ájíúst. Reuter.
ENN íéll dollarinn í verði gagn-
vart evrópskum gjaldmiðli í dag
en kaupæðið, sem greip um sig
eítir fail hans í gær, minnkaði
aftur í dag.
Gagnvart japanska jeninu hef-
ur dollarinn staðið nokkurn
veginn í stað síðan í gær en þá
komst hann upp í 190 jen úr 183,3
fyrr í vikunni. Fjármálaráðherra
Costa delSol:
Brjóstin skal
hylja klæðum
Malasa. Spáni 4. áKÚst. Reuter.
Héraðsstjórinn í Malaga lagði í
dag blátt bann við því að konur
væru naktar að ofan á baðströnd-
inni á Costa del Sol. Hefur
baðstrandarvörðum verið fyrir-
skipað að sjá til þess að konur
gangi ekki berar fyrir ofan beltis-
stað á baðströndinni.
Japans. Tatsuo Murayama, telur
að jenið muni brátt falla í verði
eftir þá gífurlegu hækkun sem
hefur orðið gagnvart bandaríkja-
dal 8.1. tvær vikur.
Sérfræðingar í gjaldeyrismálum
benda ekki á neina ákveðna orsök
fyrir falli dollarsins gagnvart
evrópskum gjaldmiðli í dag en
segja hann enn hafa vantraust á
gjaldeyrismarkaðinum.
I gær komst bandaríkjadalur í
alger), lágmark í Sviss og var á
1.6890 svissneska franka.
Seðlabankinn í Frankfurt keypti
16.6 milljónir bandaríkjadála eftir
að dollarinn féll úr 2.0335 mörkum
niður í 2.0285 í dag og í London féll
hann úr 2.0330 mörkum í 2.0270
mörk. Það er álit ýmissa sérfræð-
inga í gjaldeyrismálum að ráðandi
aðilar á gjaldeyrismarkaðinum
muni reyna að koma dollaranum
niður fyrir tvö mörk og er það
lægsta staða hans gagnvart evr-
ópskum gjaldmiðli s.l. hálft ár.
Kröftugur jarð-
skiálfti í Chile
Santiago — 4. ágúst — AP.
UM 20 manns slösuðust alvarlega í
námaborgunum Copiapo og
Potrerillas í Chile í kröftugum
jarðskjálfta, sem þar varð á
fimmtudag. Óttazt er einnig, að
fjöldi námamanna, sem voru að
störfum í námum þegar skjálftinn
varð, hafi látizt. Um það bil 50 hús
eyðilögðust í skjálftanum og
nokkrum minni skjálftum, sem
honum fylgdu. Rafmagnslaust
varð um tíma á þessu svæði og
járnbrautarsamgöngur stöðvuð-
ust.
Skj'álftinn mældist 6,7 stig á
Richter-kvarða og átti upptök sín í
Kyrrahafinu um 30 mílur frá
Copiapo. Hans varð vart í allt að
850 mílna fjarlægð frá Copiapo.
VEÐUR
víða
um heim
Akureyri 12 alskýjað
Amsterdam 19 skýjaö
Apena 34 bjart
Barcelona 26 lóttskýjaó
Beriín 25 sól
Briissel 23 bjart
Chicago 23 bjart
Frankfurt 25 skýjaó
Helsinkí 22 skýjaó
Jerúsalem 27 sól
Jóhannesarborg 21 sól
Kaupmannahöfn24 skýjað
Lissabon 25 sól
London 21 skýjaó
Los Angeles 27 skýjað
Madrid 32 sól
Majorka 31 léttskýjaó
Malaga 29 heióskírt
Miami 31 hilfskýjaó
Montreal 24 skýjaö
Moskva 28 bjart
New York 29 rígning
Osló 22 skýjaó
París 21 skýjaó
Rómaborg 30 skýjað
Stokkhólmur 2* sól
Sydney 18 bjart
Tel Aviv 28 sól
Tókíó 32 skýjaó
Vancouver 26 léttskýjaö
Vínarborg 25 sól
Bandaríkin selja
Egyptum
Kairó. 4. ágúst. Reuter.
DAGBLAÐIÐ Al-Ahram skýrði I
frá því í dag, að Egyptaland og
Bandaríkin hafi skrifað undir
samning, þar sem kveðið er á um
kaup Egypta á 50 F-5E orrustu-
þotum.
Dagblaðið hermir að samning-
urinn hafi verið undirritaður á
miðvikudag. Þá segir blaðið einnig
50 þotur
að Egyptar fái 10 fyrstu vélarnar
fyrir lok þessa árs.
Carter Bandaríkjaforseti fékk
fyrir skömmu samþykkt þingsins
til að selja Egyptum þotur þessar,
sem og að selja Saudi-Arabíu 60
F-15S orrustuþotur og Israel 15
F-15S og 5 F-16S þotur.
Al-Ahram sagði að nú væru
nokkrir egypzkir flugmenn í
Bandaríkjunum, þar sem þeir fái
þjálfun í að fljúga vélunum.
Enn sveifl-
ast dollarinn