Morgunblaðið - 05.08.1978, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1978
VINNINGAR
HAPPDRÆTTI
14 ™ maG
1978-1979
íbúðarvinningur kr. 5.000.000.—
35360
ALFA-ROMEO SPRINT bifreiö kr. 3.600.000
67146
BHrtiift eftir vaK Itr. 1.000.000
12837 40849 55745 72366
16457 52916 56265
Utanlandslerð eftir vali kr. 300.000
12629
litanlandsferft eftir vali kr. 200.000
15372 57798
Utanlandsferft kr. 100 þús.
1230 18605 31691 47931 71113
7751 19652 31763 49893 72921
9393 19858 36563 57480
13956 25202 41084 59963
15790 28666 46657 69759
Húsfaúnaftur eftir vaK kr. 50 |iúk
1799 17817 28685 43072 55676
7231 17860 29707 45491 61606
7463 19689 32488 46763 61964
8051 20171 35743 46787 62909
10792 20477 36633 47477 64423
10929 21754 38128 51366 71523
16702 24853 42506 54153 74455
Húsbúnaður eftir vali kr. 25 þús.
i 10000 19781 29586 40673 50691 58137 65985
60 10231 19966 29699 40715 50784 58189 66147
79 10405 19967 30058 41040 50785 58234 66228
259 10702 20203 30068 41303 51132 58297 66992
370 11733 20649 30197 41329 51167 58305 67198
604 12030 20671 31291 41700 51265 58353 67281
6X1 12150 21014 31500 41919 51278 58364 67332
997 12190 21481 32003 42787 51339 58457 67451
1013 12330 21572 32242 42874 51400 58879 67588
1263 12479 21805 32517 42878 51461 59191 67591
1598 12527 22164 32759 42897 51772 59194 67747
1726 12563 22182 32959 42962 51947 59304 67748
1776 12723 22196 33199 42967 52406 59323 68136
2017 12777 22440 33597 43239 52464 59545 68487
2376 13106 22594 33600 43535 52485 59647 68742
2444 13291 22695 33720 43543 52491 59692 69263
2738 13337 22952 33869 43625 52556 59837 69530
2805 13637 23106 34112 43653 52573 59961 69645
2832 13639 23258 34319 43744 52904 59995 69814
2846 13841 23426 34398 44143 52981 59996 70209
3045 14118 23504 34778 44188 53059 60029 70366
3084 14841 23664 34859 44274 53071 60061 70692
3271 14861 24182 35133 45287 53324 60241 72083
3574 15076 24208 35341 45756 53341 60246 72125
3648 15149 24221 35396 45899 53394 60617 72572
4985 15307 24282 35451 46027 53453 60826 72725
4994 15332 24503 35627 46060 53490 60970 72734
5049 15352 24643 35682 46199 53901 61470 73105
5134 15377 24763 35997 46226 53929 61709 73108
5441 15598 24995 36013 46242 53956 61732 73201
5478 15776 25763 36080 46372 53965 61832 73293
5521 15890 25792 36096 46860 54132 61949 73363
5606 15928 26331 36471 47106 54144 61961 73385
5859 15979 26416 36709 47200 54200 62057 73440
6312 16197 26720 37998 47325 54223 62118 73447
6562 16236 26803 38018 47580 54257 62461 73449
6799 16254 27080 38134 47805 54928 62475 73527
6918 16423 27141 38486 47835 55366 62904 73590
6933 16518 27156 38588 47884 55707 63000 73593
7188 16626 27483 39032 48123 56423 63038 73689
7228 16643 27555 39285 48388 56442 63346 73769
7459 16668 27830 39332 48517 56594 63588 73960
7468 16714 27920 39346 48748 56625 63798 73964
7798 17266 27987 39447 48971 56896 64330 73977
7882 17789 28079 39554 49234 56980 64354 74042
7938 17948 28244 39825 49280 57027 64382 74053
8480 19090 28468 40001 49316 57153 64584 74113
8561 19156 29027 40261 49581 57626 64702 74367
8869 19312 29161 40320 49691 57655 64834 74397
9013 19393 29207 40368 50124 57809 64851 74478
9022 19429 29249 40434 50172 57884 64963 74637
9502 19574 29325 40438 50313 57908 65095 74748
9667 19588 29399 40465 50390 58020 65272 74952
9732 19678 29558 40665 50676 58117 65550
Dansa í
Neustadt
STARFSEMI bjóðdansafélags
Reykjavíkur heíur á liðnum vetri
verið með nokkuð svipuðum hætti
og undanfarin ár. að því er segir í
frétt frá félaginu. í barnaflokk-
um var kennt í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu. Lauk námskeiöinu
þar með sameiginlegri sýningu
barna á Hótel Sögu hinn 9. apríl
8.1. Námskeið ■ gömlu dönsunum
voru haldín og sóttu þau um 400
manns.
Félagar úr Þ.R. tóku þátt í
listahátíð með um klukkustundar
langri sýningu í síbylju-dagskrá
listahátíðar þ. 10 júní s.l. Þessari
sýningu stjórnaði Sigríður Val-
geirsdóttir. Auk þess hafa smærri
hópar úr Þ.R. sýnt íslenzka dansa
við ýmsileg tækifæri, m.a. á 17.
júní í Reykjavík, á hestamanna-
móti á Þingvöllum, á barnakóra-
móti Norðurlanda í Háskólabíói, á
nokkrum norrænum eða alþjóðleg-
um ráðstefnum í Reykjavík og
nágrenni.
Hópur dansara, söngvara og
hljóðfæraleikara úr Þ.R. tekur um
þessar mundir þátt í alþjóðlegu
þjóðdansa- og þjóðbúningamóti i
Neustadt í Norður-Þýskalandi.
Mótið stendur yfir dagana 28. júlí
— 5. ágúst og mun hópurinn sýna
íslenzka dansa á ýmsum stöðum í
borginni alla þessa daga.
Greinargerð stjórnar Bifrastar um varnarliðsflutninga:
25% lækkun Eimskips á
þeim flutningum ekki
þjóðarbúinu til tekna
VILL Eimskip ekki halda sig við
staðreyndir um lækkun á farm-
gjöldum fyrir varnarliðið?
Tekjutapið fyrir þjóðarbúið sem
leiðir af lækkun Eimskip á farm-
gjöldum fyrir varnarliðið nemur
allt að 500 milljónum króna miðað
við heilt ár og þetta gerist á sama
tíma og farmgjöld til Islendinga á
sömu leið eru óbreytt frá því sem
verið hefur.
Staðreyndin í máli því sem
varðar undirboð á flutningi fyrir
varnarliðið er þessi:
Frá því að Bifröst hf. hóf
flutninga til og frá Bandaríkjun-
um hafa flutningsgjöld félagsins
verið þau sömu og Eimskipafélags-
iiis. Það sem Eimskipafélagið
kallar undirboð af hálfu Bifrastar
hf. mun vera vegna fyrstu ferðar
m/s Bifrastar til Bandaríkjanna,
en sú ferð var farin á vegum
skipamiðlunar Gunnars Guðjóns-
sonar sf., sem hafði skrásett á sínu
nafni farmgjaldataxta í Washing-
ton DC. á flutningi fyrir varnarlið-
ið.
Farmgjaldataxti sá sem skipa-
miðlunin hafði skráðan var fram
til 1. nóvember 1977 hinn sami og
taxti Eimskipafélagsins. Hinn 1.
nóvember 1977 hækkaði Eimskip
sinn taxta um 10% án þess að
hirða um samráð við skipamiðlun-
ina um hækkun til samræmis og
var taxti hennar því enn skráður
10% lægri hinn 18. nóvember 1977
þegar m/s. Bifröst lestaði hér
heima vörum fyrir varnarliðið á
vegum skipamiðlunarinnar, en 30
daga fyrirvara þarf til hækkunar
farmgjalda, sem skráð eru í
Washington.
Taxtar Bifrastar hf. hafa frá
upphafi verið þeir sömu og Eim-
skipafélagsins, en þeir gengu í
gildi 1. janúar 1978 og fyrr hóf
félagið ekki siglingar til og frá
Bandaríkjunum á eigin vegum.
Verður því að krefjast þess að
Eimskipafélag íslands leggi fram
gögn er sýni annað.
Varðandi aðra Ameríkuflutn-
inga Bifrastar hf. og „boð um
lækkun til innflytjenda, sem vildu
flytja talsvert magn bifreiða
hverju sinni" skal tekið fram, að
hér fer Eimskip enn ranglega með
staðreyndir. Farmgjöld þau sem
í 60 daga
gæzluvarð-
hald vegna
kynferðis-
brota
NOKKUÐ hefur borið á því að
undanförnu að lögregluyfirvöld
hafi þurft að hafa afskipti af
mönnum, sem sýnt hafa af sér
kynferðisbrot gagnvart börnum
eða leitað á börn. Var einn
maður úrskurðaður í allt að 60
daga gæsluvarðhald um miðjan
síðasta mánuð. Er hér um að
ræða mann, sem áður hefur
gerst sekur um að leita á börn
og var hann að þessu sinni
settur inn eftir að hafa leitað á
barn í þorpi fyrir austan fjall
og þá hefur ekki enn verið
endanlega afgreitt sambærilegt
afbrot, sem þessi sami maður
framdi í Hafnarfirði. Um síð-
ustu helgi var annar maður
handtekinn í Reykjavík fyrir að
sýna á ,sér kynfærin á
almannafæri.
Að lokinni rannsókn málsins
var manninum sleppt.
Bifröst hf. bauð á flutningi
bifreiða eru í dag þau sömu og
félagið bauð frá 1. janúar 1978 er
það hóf siglingar til Bandaríkj-
anna og eru það 46.50 Bandaríkja-
dollarar fyrir hvert rúmtonn. Það
er sama gjald og Eimskip tók fyrir
flutning bifreiða á árinu 1977 og
eins og réttilega kemur fram í
grein Eimskipafélags íslands;
„Það ár flutti Bifröst hf. enga
bíla.“
Verður því Eimskip að sætta sig
við þá staðreynd að farmgjöld
fyrir bílaflutninga — 46.50 Banda-
ríkjadollarar á hvert rúmtonn er
það gjald sem félagið setti upp
áður en Bifröst hóf reglubundnar
siglingar hinn 1. janúar sl.
I greinargerð Eimskip í Mbl.
hinn 4. ágúst er talað um að
farmgjöld vegna bifreiðaflutninga
hafi verið lækkuð 31. júlí 1975.
Rétt er það.
En sú lækkun kom í kjölfar
könnunar sem bifreiðainnflytjend-
ur létu gera á kaupum og rekstri
bílaflutningaskips snemma árs
1975 og leiddi í ljós að lækka mátti
flutningsgjöld allverulega.
Skipafélagið Bifröst hf. er stofn-
að hinn 12. janúar 1977, en þrátt
fyrir það verður að telja að 25%
lækkun flutningsgjalds auk 40%
lækkunar á uppskipunarkostnaði á
árinu 1975 hafi verið bein afleiðing
könnunar bifreiðainnflytjenda á
kaupum og rekstri bílaflutninga
skipsins á þessu sama ári.
Bein samkeppni Bifrastar hf.
sýnir einnig þegar litið er á
hækkun flutningsgjalda bifreiða á
árunum 1973—1978 að annars
vegar nam hækkunin á gjöldunum
frá Bandaríkjunum 400% en hins
vegar á gjöldunum frá Englandi
580%, en á þeirri siglingaleið og
frá meginlandi Evrópu er um enga
samkeppni að ræða af hálfu
Bifrastar.
En óhaggað stendur það, að
Eimskip lækkaði farmgjöld til
varnarliðsins um 25% án þess að
lækka flutningsgjöld til íslenzkra
aðila samsvarandi.
Bifröst hf. hefur hins vegar
ákveðið að lækka flutningsgjöld til
íslendinga um 25% og hvort það er
ábatasamt fyrir íslenzka þjóðar-
búið skal ósagt látið, en 25%
lækkun farmgjalda til varnarliðs-
ins verður aldrei talið þjóðarbúinu
til tekna.
Björgvin Friðriksson
klœðskeri—Minning
Fæddur 3. júní 1920
Dáinn 9. júlí 1978.
Ástkær faðir okkar og afi lést í
Borgarspítalanum 9. júlí síðastlið-
inn eftir rúma tveggja sólarhringa
legu.
Sárt var það og mikill missir þó
við hefðum alltaf mátt búast við
að svona færi.
I mörg, ár var hann búinn að
vera sjúklingur, og þó mest síðasta
ár, því þá gat hann lítið sem
ekkert gert. En hann kvartaði
aldrei, og hefur eflaust fundið
meira til en við gerðum okkur
grein fyrir, það sjáum við núna
þegar hann kveður svo fljótt.
Hann var sjálfur þessu viðbúinn
því margt sá hann fyrir og vissi
sem við köllum yfirnáttúrulegt,
því honum leið vel á síðustu
stundu, hann kveið ekki fyrir að
kveðja þann heim sem við þekkj-
um. Hann vissi að handan landa-
mæranna miklu myndi hann hitta
sína nánustu ættingja og vini.
Oft gaf hann okkur kraft í
veikindum og erfiðleikum sem að
steðjuðu, og ég trúi að hann eigi
eftir að gera það áfram.
Við erum fjögur systkinin,
Arnar Ö. Björgvinsson, Jón E.
Björgvinsson Guðbjörg Björgvins-
dóttir og Ágúst Björgvinsson.
Barnabörnin eru sjö sem sjá eftir
góðum afa. Ég lærði það hjá föður
mínum að kvíða ekki dauðanum,
sem við eigum öll eftir að mæta, en
hugsum e.t.v ekki svo mikið útí.
Móðir okkar Arnfríður Jónsdóttir,
sem lifir hann nú, var honum allt í
veikindum hans, mikil vinna lagð-
ist á herðar hennar, samt gat hann
alltaf treyst á návist hennar.
Drengjunum minum tveimur
var hann mjög góður afi, alltaf var
hann tilbúinn að leyfa þeim að
vera hjá sér og líta eftir þeim,
þolimmóður og lét lasleikann ekki
á sig fá þegar barnabörnin, sem
ekki skynja lasleikann, voru hjá
afa og ömmu. Heimili foreldra
minna var drengjunum mínum
sem annað heimili því stutt var á
milli og alltaf var afi heima.
Margt lærðu þeir hjá afa sínum,
sem seinna á eftir að koma þeim
vel. Svona var hann við öll börn,
enda leituðu þau mikið til hans
niður í kjallara, þar sem hann var
með litla vinnustofu og þar
dundaði hann við ýmiss konar
smíðar því allt virtist leika í
höndum hans. Hann spilaði á
harmonikku á sínum yngri árum
og reyndar af og til þau ár sem
hann lifði.
Eftir að hann treysti sér ekki til
að stunda iðn sína var hann
tímunum saman niðri í kjallara í
vinnustofu sinni og smíðaði og
skar út fallega hluti, steypti
andlistsmyndir og styttur úr leir.
Þarna fengu synir mínir að reyna
við sínar fyrstu smíðar. Sigurþór
yngri sonur minn sem er fimm ára
gerir sér ekki alveg grein fyrir
þessu enn, en hann veit samt að afi
er kominn til guðs. Sá eldri, Ágúst,
spurði svo oft um þessa hluti; af
hverju deyjum við? Hvert förum
við? Og ég veit, að afi hans var
búinn að skýra þetta vel fyrir
honum. Örlög sín vissi hann
eflaust fyrir ásamt mörgu öðru
sem hann tók með sér.
Ég vona bara að við eigum öll
eftir að fara svona sátt og ókvíðin
eins og Pabbi. Við vonum að hann
hvíli vel og í nálægð okkar allra.
Dóttir og dóttursynir
Guðbjörg, Ágúst og Sigurþór.