Morgunblaðið - 05.08.1978, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1978
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
Fraktflug:
SAS-kaupir
SAS hefur nú með milli-
göngu sænska fjárfestinga-
félagsins Incentive AB
keypt Olsen & Wright AB
en það er stærsta vörumiðl-
unarfyrirtækið varðandi
flugfrakt á Norðurlöndum
í dag.
SAS þarf að notast við
milligöngu Incentive þar
sem það er ennþá bundið af
Byggðastcfna Flugleiða
Einn af mikilvægustu
þáttum hins daglega lífs
okkar eru samgöngumálin.
Gildi góðra samgangna
kemur fram í ýmsum
myndum bæði beint og
óbeint og ómótmælanlegt
er að þau hafa sérstakt
gildi fyrir þá sem búa utan
við helztu þéttbýlissvæðin.
Til að afla nánari frétta af
stöðu og skipan þessara
mála í dag ræddi Við-
skiptasíðan við Einar
Helgason framkvæmda-
stjóra innanlandsflugs
Flugleiða og Þorstein
Thorlacius deildarstjóra,
og kom m.a. fram hjá þeim
að Flugfélagið flýgur í
sumar 116 ferðir frá
Reykjavíká viku og er
aukning farþegaflugsins í
ár um 4% frá því í fyrra.
Einar sagði að upphafið að
þeirri skipan mála sem nú er, og
snýr að Flugleiðum, væri að leita
allt aftur til ársins 1965 en það ár
var hafizt handa um endurnýjun
flugflotans og var þá jafnframt
ákveðið að kaupa góðar og vel
búnar vélar sem flygju milli
Reykjavíkur og aðalþéttbýlis-
kjarnanna úti á landsbyggðinni.
Síðan voru skipulagðar, í sam-
vinnu við heimamenn, ferðir til
vaeri um þessa skipan mála á
Vestfjörðum og Austfjörðum og
tók fram að allan tímann hefði
verið gott samstarf milli þeirra og
umferðadeildar Pósts og s.íma.
Segja má að næsti þáttur í
byggðastefnu Flugleiða hefjist
1975. Það ár var Flugfélag Norður-
nærliggjandi byggðarlaga sem
voru í tengslum við flugferðir
félagsins. Með þessu skipulagi
tókst hvort tveggja í senn þ.e. að
stækka markaðssvæði Flugfélags-
ins og einnig að bæta samgöngur
innan hinna einstöku landshluta.
Sérleyfifshafarnir fengu í upphafi
ákveðna tekjutryggingu frá Flug-
félaginu sem síðan hefur þróazt í
beina styrki. Sagði Einar að mest
lands stofnað og óskuðu heima-
menn eftir samstarfi við Flugleið-
ir um rekstur félagsins. Var því
boði tekið og tók hið nýja félag
m.a. að sér ýmsa starfsemi sem
Flugleiðir höfðu áður haft á hendi,
þ.e.a.s. flugið út frá Akureyri.
Flugfloti Flugfélags Norðurlands
hefur verið endurnýjaður og með
betri nýtingu véla hefur verið
hægt að bjóða betri samgöngur en
Utan úr heimi
Norðurlöndini í nýlegri skýrslu
um 500 stærstu fyrirtækin á
Norðurlöndunum kemur fram
aö meöal 10 arösömustu fyrir-
tækjanna eru átta dönsk.
Arösamasta fyrirtækiö er
finnska áfengiseinkasalan en
meðal Þessara tíu eru fimm
dönsk landbúnaðarfyrirtækí og
er Það skýrt á Þann hátt að
meiri stööugleiki sé í dönskum
landbúnaöi en öðrum atvinnu-
greinum.
USA. Á fyrri hluta þessa ars
dróst innflutningur á hráolíu til
Bandaríkjanna saman um
12.8% og er þá miðað við sama
tímabil 1977. Þetta er ekki sízt
athyglisvert fyrir þær sakir að
olíunotkunin jókst um 3.4% í
OECD löndunum á fyrsta árs-
fjórðungi þessa árs. Sérfræðing-
ar vara þó við of mikilli
bjartsýni vegna þessa árangurs
þar sem þeif spá meiri inn-
flutningi á olíu fram til næstu
áramóta.
Fjárfesting í Bandaríkjunum
virðist vera vænleg fyrir erlenda
aðila um þessar mundir. Fyrstu
sex mánuði þessa árs fjárfestu
erlendir aðilar í 182 fyrirtækj-
um í Bandaríkjunum á móti 281
allt árið í fyrra.
Kanadai Kanadískir hag-
fræðingar spá nú 4% aukningu
þjóðarframleiðslunnar í ár og
4.1% aukningu næsta ár í stað
2.9% aukningar 1977. Á þessu
ári er gert ráð fyrir rúmlega 4%
aukningu þjóðarframleiðslunn-
ar í Bandaríkjunum.
Bretlandi
Heildarbílaframleiðslan í Bret-
landi nam í júní 723.000 bifreið-
um á móti 711 þús. bílum í júní á
síðasta ári. Þetta svarar til þess
að um 120.000 bílar eru fram-
leiddir í hverjum mánuði í
Bretlandi.
Spánni Spánverjar hafa nú
þurft að taka í notkun 5000
peseta seðla og eru orsakirnar
þær að verðbólgan hefur verið
mikil hjá þeim eins og okkur og
einnig hafði prentsmiðjan ekki
lengur undan að prenta 1000
peseta seðlana.
V-Þýskalandi Commerzbank
hefur kunngjört það álit sitt að
iðnaðarframleiðslan í Þýska-
landi muni einungis aukast um
2% á þessu ári. Þær atvinnu-
greinar sem spáð er mestri
aukningu í eru bíla-, tölvu- og
byggingariðnaður.
Bandarikini Bandaríski seðla-
bankinn hefur tilkynnt að iðn-
aðarframleiðslan þar í landi
hafi aukizt um 0.3% í júní og
nemi þá heildaraukningin frá
því í júní 1977 7%.
Tölvuri Eftir að Carter hafði
bannað sölu á tölvum til Rúss-
lands til að mótmæla dómunum
yfir andófsmönnunum á dögun-
um gagnrýndi dagblaðið Rauða
Stjarnan í Moskvu hann harð-
lega. Nú, fyrir hvað? Hann hafði
nýlega samþykkt að selja Kín-
verjum töluvert magn af banda-
rískum tölvum.
reglum IATA. Olsen &
Wright hefur ráðið yfir
35% af öllu fraktflugi í
Svíþjóð og um 8% í Dan-
mörku og sjálfsagt má
búast við að þessar tölur
hækki eitthvað eftir að SAS
hefur tekið við rekstrinum.
Það má minna á það hér
að Cargolux hefur nýlega
hafið mikla sókn á Norður-
löndum enda fer fraktflug
hraðvaxandi um allan heim
og þá sérstaklega á Asíu- og
N-Atlantshafsleiðunum.
• •
áður þekktust. Nú er t.d. flogið allt
árið fimm sinnum í viku til
Raufarhafnar, Þórshafnar og
Vopnafjarðar og er allt flugið í
tengslum við flug milli Reykjavík-
ur og Akureyrar. Einnig má benda
á að nú í sumar hóf Flugfélag
Norðurlands að sinna verkefnum á
Grænlandi og styður það mjög við
bakið á starfssemi félagsins.
Svipaða sögu má segja um þátt
Flugleiða í þróun flugmála á
Austfjörðum en þar buðu heima-
menn þeim aðild að Flugfélagi
Austurlands. Flugkostur þess
félags hefur verið endurnýjaður
ferðir eru nú tíðari en áður og
árangurinn stórbættar samgöngur
til og frá Austurlandi og einnig
innan landsfjórðungsins.
Þriðji þáttur byggðastefnunnar
er þátttaka Flugleiða í hótel-
rekstri á Húsavík. Húsvíkingar
byggðu stórt og skemmtilegt hótel
í tengslum við félagsheimili og
1976 var ákveðið að Flugleiðir
styddu við bakið á heimamönnum
og var litið á það framlag af hálfu
félagsins sem viðurkenningu til
heimamanna fyrir þeirra merka
og góða framtak. Hótel Húsavík
hefur verið og er rekið með
miklum glæsibrag sögðu þeir
Þorsteinn og Einar en þrátt fyrir
síbatnandi nýtingu hafa afborgan-
ir og vextir lána úr Ferðamála-
sjóði verði of þungur baggi fyrir
fyrirtækið en þessi lán eru bundin
við þróun framfærsluvísitölunnar.
Á þessu yrði að verða breyting ef
takast ætti að halda uppi góðri
aðstöðu fyrir ferðamenn úti á
landsbyggðinni.
Einar og Þorsteinn sögðu að það
hefði komið ú ljós, að sú stefna
sem mörkuð var 1965 hefði verið
rétt. Samgöngur hafa verið stór-
bættar bæði til þéttbýlissvæðanna
og annarra staða en auk þess
hefur atvinnuöryggið verið eflt á
landsbyggðinni og er það sjálfsagt
mikilvægasti árangurinn sögðu
þeir að lokum.
Ofug-
þróun
ÞAR SEM oft er verið að
bera saman þróun ýmissa
hagstærða í Danmörku og á
íslandi er ekki úr vegi að
geta lítillega um þróun
almennra launahækkana í
þessum löndum á undan-
förnum árum. Almennar
lg.unahækkanir í Danmörku
voru 1974 20%, 1976 12% og
1977 10% en á íslandi nam
hækkunin 38.5% 1974, 20%
1976 og 44% á síðasta ári.
Þetta er atriði sem vert er
að gefa gaum.
Gengis-
þróun
HÉR fer á eftir yfirlit um þróun
gengis síðan 1972. Miðað er við
vísitölu meðalgengis, þ.e.a.s.
meðaltal kaupgengis og sölu-
gengis.
Hækkun frá
1972 = 10« fyrra ári
1973 = 108.77 8.77%
1971 = 120.80 11.06%
1975 = 189.03 56.50%
1976 = 214.24 13.30%
1977 = 236.79 10.50%
jan. 1978 = 266.49 feb. 1978 = 309.25 mar. 1978 = 318.74 apr. 1978 = 318.88 maí 1978 = 318.61 34.60%
Vísitala meðalgengis hefur
hækkað um 34.6% frá meðaitali
ársins 1977 til maí 1978
Hver kaupir inn?
EF MARKA má könnun,
sem nýlega var gerð í
Arhus í Danmörku, eru
það konurnar sem annast
að mestu hin daglegu
innkaup heimilanna.
Nið-
urstaða könnunarinnar
var sem sagt sú að í 42%
tilfella voru konurnar ein-
ar í innkaupaferðunum, í
24% tilfellanna var eigin-
maðurinn með og í 14%
tilfella var hann einn.
Ætli þetta sé svipað og
hér á landi?