Morgunblaðið - 05.08.1978, Qupperneq 37
37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1978
Akureyrarradíó í síma 96-11004.
Ennfremur er hægt að koma
aðstoðarbeiðni á framfæri í gegn-
um hinar fjölmörgu talstöðvabif-
reiðir sem eru á vegum úti um
verslunarmannahelgina. Munu
ökumenn þeirra hlusta á tíðninni
2790 KHz og 27185 MHz. Þeir
munu tilkynna staðarákvörðun og
ferðaáætlun á tímunum kl. 14.00,
15.30,17.00,18.30, 20.00 og 21.30.
Þeir sem óska aðstoðar ættu að
gefa upp númer bifreiðar og
staðsetningu auk upplýsinga um
það hvort viðkomandi er félagi í
FÍB eða ekki, en félagar ganga
fyrir um þjónustu.
Vegaþjónusta FÍB bendir öku-
mönnum á að hafa með sér
viftureimar af réttri stærð, vara-
hljólbarða og helstu varahluti í
kveikju. Það skal tekið fram að
félagsmenn FIB fá helmingsaf-
slátt af verði þeirrar þjónustu sem
þeir kunna að njóta af vegaþjón-
ustubifreiðum félagsins.
Þjónustutími FIB er frá kl.
14—21 á laugardag og kl. 14—23 á
mánudag.
Upplýsinga-
miöstöð
Eins og undanfarin ár munu
umferðarráö og lögreglan starf-
rækja upplýsingamiöstöö í lög-
reglustöðinni viö Hverfisgötu í
Reykjavík um verslunarmanna-
helgina. Veröur þar leitast viö aö
safna upplýsingum um umferö,
ástand vega, veöur og annaö sem
gæti orðið feröafólki aö gagni.
Upplýsingamiðstööin verður starf-
rækt sem hér segir:
föstudaginn 13.00—22.00 4. ágúst kl.
laugardaginn 09.00—22.00 5. ágúst kl.
sunnudaginn 13.00—19.00 6. ágúst kl
mánudaginn 7. ágúst kl
10.00—24.00
Þessa daga veröur sömuleiöis
beint útvarp frá upplýsingamiö-
stööinni og mun Óli H. Þórðarson
framkvæmdastjóri umferöarráös
sjá um útsendingar. Þar aö auki er
fólki heimilt aö hringja til
upplýsingamiðstöðvarinnar í síma
27666.
Umferöarráö hvetur vegfarendur
til sérstakrar árvekni, tillitssemi og
varkárni um þessa mestu feröa-
helgi ársins og beinir þeim tilmæl-
um til ökumanna aö þeir hagi akstri
sínum alltaf eftir aöstæöum og
minnist þess aö aögát er besta
tryggingin í umferöinni. Takmarkiö
er slysalaus verslunarmannahelgi.
Hvernig á aö
bregöast viö
Það er að sjálfsögðu von allra að
verzlunarmannahelgin verði slysa-
laus. En slysin gera ekki boð á
undan sér og það getur hent hvern
og einn vegfaranda að verða
fyrstur á vettvang þar sem alvar-
legt umferðarslys hefur orðið. Þá
er gott að hafa við höndina
leiðbeiningar um það hvernig
bregðast eigi við þannig að þeir
sem slasaðir eru fái sem bezta og
skjótasta hjálp. Þær leiðbeiningar,
sem hér fara á eftir eru í
samantekt Hannesar Þ. Hafstein,
framkvæmdastjóra SVFÍ:
Orsakir umferðarslysa eru hinar
margvíslegustu, afleiðingar þeirra
einnig og oftast nær hinar alvar-
legustu. Þess vegna er það fyrsta
skilyrði, þegar komið er á slysstað
að rasa ekki um ráð fram, fara að
öllu með gát, vega og meta allar
aðstæður og skipuleggja hjálpar-
og björgunarstarfið eins fljótt og
auðið er af einurð og ákveðni.
Sérhver, sem kemur þar að, þar
sem orðið hefur alvarlegt um-
ferðarslys, má búast við hinni
ömurlegustu aðkomu og að við
honum blasi eyðilegging og skelf-
ing. Umferðarslysin eru þess eðlis.
Þetta eru staðreyndir, sem hver og
einn verður að gera sér ljósar og
vera ávallt viðbúinn hinu erfiðasta
og vandasamasta hlutverki.
Þegar komið er á slysstað,
getum við gengið út frá því sem
gefnum hlut, að staðurinn sé
fljótandi í benzíni og af þeim
sökum yfirvofandi íkveikju- og
sprengihætta, ef óvarlega er farið
með eld. Því eru reykingar og
annað það, sem orsakað getur
íkveikju eða bruna stranglega
bannað. Ef hægt er, á að rjúfa
straum bifreiðarinnar (bifreið-
anna), sem lent hefur í slysinu.
Annars er rafmagnsíkveikja yfir-
vofandi. Þá skulum við og hafa
hugfast, að sýran af rafgeymunum
VANDIÐ VAL BJÖRGUNARVESTA
, STÆRÐ ÞEIRRA OG GERÐ
iörqunarvestið
efur. þann kost, að það snýr sjálfkrafa manni þeim. er Það notar.
flotlegu á bakið með munn og nef yfir vatnsfletinum.
essi gerð hentar fólki á öllum aldri.
VERIÐ VARKAR
VARIST SLYSIN
ingavestiS
aðeins ætlað góðu sund-
:i, er stundar siglingar. Létt
lipurt í notkun. Framleitt í
írðum fyrir fullorðna og
nga, en ekki fyrir börn.
SundbeltiS
er aðeins ætlað þeim, sem eru
að læra sund.
getur auðveldlega runnið niður og
flotið um slysstaðinn. Af því sem
að framan er sagt, getur verið
nauðsynlegt að flytja hina slösuðu
af slysstaðnum, finna þeim þægi-
legan hvílustað í næsta nágrenni
og hlúa að þeim með klæðnaði,
undir- og yfirbreiðslum. En um-
fram allt skulum við hafa hugfast,
að flutningur á öllu slösuðu fólki
verður að fara fram af hinni
mestu varúð, þar sem meiðslin
geta hæglega verið þess eðlis, að
ekki sé á færi leikmanna að dæma
þar um. Nauðsynlegt er að koma
fyrir aðvörunarmerkjum við slys-
staðinn, svo að aðrir, sem þar
koma að geri sér ljóst, hvað komið
hafi fyrir og þörf sé á hjálp þeirra
og aðstoð. Okkur ber skylda til að
tilkynna slysið og verðum að gera
það svo fljótt sem auðið er, til þess
að koma hinum slösuðu sem allra
fyrst í hendur læknis. Og muna
verðum við að gefa eftirfarandi
upplýsingar:
Hvar slysið hefur átt sér stað.
Hvers eðlis slysið er.
Hve margir hafi slasazt, og
hvort um alvarleg meiðsli sé að
ræða.
Einnig ætti sérhver, er tilkynnir
slys, að láta ávallt nafns síns getið
ásamt símanúmeri og hvaðan
hann hringi.
Þegar komið er á slysstað,
veitum við hinum slösuðu alla þá
aðstoð, hjálp og hjúkrun, er við
frekast getum. Við yfirgefum
aldrei slysstað, fyrr en hjálp
hefur borizt og skiljum aldrei
hina slösuðu cftir eina og yfir-
gefna. Það getum við því aðeins að
við séum einir á ferð og á fáfarinni
leið. Aðeins þegar þannig stendur
á, getum við yfirgefið slysstaðinn,
til að fá hjálp, en muna verðum við
að veita hinum slösuðu hjúkrun,
áður en við förum, og snúa til baka
til þeirra aftur, er við höfum
tilkynnt slysið og óskað aðstoðar.
Hvað getum við svo gert og í
hverju er hin fyrsta hjálp og
hjúkrun fólgin, sem við leik-
mennirnir getum veitt?
A - ANDARDRATTURi Hafi
öndun stöðvazt verður að hefja
lífgun STRAX með blástursað-
ferðinni. Hér skipta sekúndur
máli, því stöðvist öndunin í
samfellt fjórar mínútur veldur
það varanlegu heilsutjóni.
Blástursaðferðin á ekki eingöngu
við í drukknunartilfellum,
HENNI Á AÐ BEITA í ÖLLUM
TILFELLUM, ÞEGAR ÖNDUN-
IN HEFUR STÖÐVAZT.
Styðjið annarri hendi á enni
sjúklingsins, en setjið hina í
hnakkagrófina og sveigið síðan
höfuðið eins langt aftur og unnt er
með eðlilegu móti.
Dragið andann djúpt og umljúk-
ið munn sjúklingsins með ykkar
vörum og blásið síðan ofan í
munninn. Til þess að koma í veg
fyrir, að loftið leiti út um nasir er
þeim lokað með því að leggja
vangann að þeim um leið og blásið
er í munn hins sjúka.
Fylgizt með, hvort brjóstholið
bifast.
Einnig er hægt að koma í veg
fyrir, að loftið leiti út um nef
sjúklingsins með því að taka með
þumal- og vísifingri þeirrar hand-
ar, sem á enninu hvílir, um nasir
sjúklingsins og þrýsta þeim sam-
an.
Öndunargjöfinni má eins miðla
gegnum nefið. Sem fyrr er annarri
hendinni tekið undir höku sjúkl-
ingsins og henni ýtt upp. Gæta
verður þess vandlega, að munnur
hins sjúka sé vel lokaður, svo loftið
leiti ekki þar út. Þegar blásið er
um nefið, þá verður að opna munn
eða varir sjúklingsins til að hindra
eðlilega útöndun.
Þegar öndunarleiðin hefur verið
opnuð, er blásið nokkuð hratt sex
til sjö sinnum. Síðan með jöfnu
millibili, en eðlileg öndunargjöf
við fullorðið fólk er tólf sinnum á
minútu en við börn og unglinga
nokkuð örar, átján til tuttugu
sinnum. Ef um lítið barn er að
ræða, þá er blásið samtímis um
munn þess og nasir. Fylgjast
verður vel með brjóstholi sjúkl-
ingsins. Það á að bifast við
blásturinn (innöndun), en hníga
við útöndun.
B — Blæðingari Alvarlegar og
miklar blæðingar er auðveldast að
stöðva með þrýstingi á sárið.
Leggja skal hreinan klút eða klæði
á sárið og vefja síðan þéttingsfast
yfir. Dugi þetta ekki er nauðsyn-
legt að nota þrýstiumbúðir. Veljið
harðan hreinlegan hlut og leggið á
umbúðirnar, þar sem sárið er
undir og vefjið svo þéttingsfast
yfir að nýju. Nauðsynlegt er að
búa hinum slasaða þægilegan
hvílustað og róa hann, því allar
meiriháttar blæðingar geta auð-
veldlega orsakað lost. Reynið
ávallt að lina þjáningar hinna
slösuðu með því að fara mjúkum
höndum um særða líkamshluti.
C — Lost (Chock)i Lost er það
sjúklega ástand kallað, sem orsak-
ast af líkamlegu eða andlegu
áfalli. Taugakerfið lamast að
meira eða minna leyti og megnar
ekki að vinna störf sín. Allir
meiriháttar áverkar á líkamann
geta valdið losti. Og ekki þarf
áverka til. Sá, sem sleppur
ómeiddur úr slysi, þar sem aðrir
slasast hættulega, getur hæglega
fengið lost. Lost getur varað lengri
eða skemmri tíma, eftir því hvað
hið sjúklega ástand er alvarlegt,
og á því eru öll stig frá léttri
aðkenningu til bráðs bana. Lækn-
ishjálp er því aðkallandi. Fyrsta
og bezta hjálpin, sem leikmaður
getur veitt í þessu tilfelli, er að
hagræða hinum sjúka í láréttri
hliðarstellingu með höfuðið lágt og
hlú að honum með öllum tiltækum
ráðum. Talið hlýlega og róandi til
hins sjúka og beinið athygli hans
frá þeim atburði, er leiddi til hins
sjúklega ástands. Um fram allt
verður að snúa sjúklingnum þann-
ig, að hann sjái ekki það, sem
komið hefur fyrir. Varast ber að
láta hina sjúku og slösuðu liggja á
bakinu, þar sem öndunarleiðin
getur þá auðveldlega lokast. Forð-
ast verður að gefa nokkuð inn
þeim, er orðið hafa fyrir alvarleg-
um áverkum. Verum minnug þess,
að hinir slösuðu geta alltaf hlotið
innvortis meiðsli, sem leikmenn
geta alls ekki dæmt um og er
aðeins á færi lækna að úrskurða.
Þess vegna er það fyrsta skilyrði,
að fá lækni á slysstað eða koma
hinum slasaða sem fyrst í læknis-
hendur.
Fariö varlega
meö eld
Væntanlega munu þúsundir Is-
lendinga búa í tjöldum, hjólhýsum
og tjaldvögnum um verslunar-
mannahelgina. Bæði tjöld og
hjólhýsi eru gerð úr eldfimnum
efnum og skal því fólk minnt á það
hér, að fara varlega með öll
eldfæri. Eldunartæki knúin gasi
eru sérstaklega varasöm og á ekki
að nota þau nema í undantekning-
artilfellum inni í tjöldum og þá
innst í þeim, þannig að útgöngu-
leið sé greið. Ef slík tæki eru notuð
til að hita upp tjald, skal ávallt
slökkt á þeim áður en farið er að
sofa. Einnig er gott að hafa það í
huga, að ef tækin eru höfð inni í
tjaldi þarf undirstaðan að vera
traust og góð og úr eldfimu efni.
Aldrei má skipta um gashylki inni
í tjöldum. Hjólhýsi eru yfirleitt
hituð upp með gasi og gas notað til
eldunnar. Þarf að hafa sérstaka
aðgæslu á því. Á aldrei að hafa
gaskúta inni í hjólhýsi og ékki skal
hafa gashitun á meðan fólk sefur.
Þjónusta í
höfuöborginni
Allar verslanir Reykjavíkur
verða lokaðar í dag, sunnudag og
mánudag. Söluturnar verða hins-
vegar opnir að venju, og kvik-
myndahús verða opin. Morgun-
blöðin koma út á morgun, sunnu-
dag, en síðan ekki fyrr en á
miðvikudag en síðdegisblöðin
koma út á þriðjudag. Um þjónustu
lækna, apóteka og sjúkrahúsa má
lesa í dagbók á bls. 6 í blaðinu í
dag og þar er ennfremur sagt frá
bilanavakt.