Morgunblaðið - 09.09.1978, Side 1

Morgunblaðið - 09.09.1978, Side 1
204. tbl. 65. árg. LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1978 Prentsmiöja Morgunblaðsins. Teheran. 8. sept. AP — Reuter. TALIÐ ER að um 100 manns hafi beðið bana í Teheran í íran í da>? þegar hermenn hófu vélbyssuskothríð á þúsundir mótmælenda sem mótmæltu aðgerðum stjórnar keisaransosherlÖKum sem sett voru á í landinu í morgun. Mörs hundruð manna voru handteknir. Fram eítir desi mátti heyra skothvelli í borjtinni eftir að mótmælasansan hafði verið leyst upp og útsönKubann tekið gildi. Hermenn voru á verði víða í borginni og víða mátti sjá merki þcirra átaka og óeirða scm verið hafa í borginni undanfarið. brennd farartæki og hús. Frumvörp Jörgensens samþykkt Kaupmannahöfn, 8. sept. — Reuter DANSKA þingið samþykkti í dag frumvörp nýju ríkisstjórnarinn- ar um hækkun virðisaukaskatts og verðstöðvun. Frumvarpið um hækkun virðisaukaskatts úr 18 í 20.25% var samþykkt með 86 atkvæðum gegn 84. en mikill meirihluti þingmanna samþykkti lögin sem gera ráð fyrir verð- stöðvun fram til 26. febrúar n.k., en í þeim er jafnframt gert ráð fyrir því að engar verðtengdar launahækkanir verði á þessu tímabili. Kristilegi flokkurinn snerist á síðustu stundu gegn áformum stjórnarinnar um að hækka virðis- aukaskattinn um 2,25 stig í stað tveggja stiga eins og áður hafði verið ráðgert og munaði því aðeins tveimur atkvæðum. Ian Smith forsætisráðherra Ródesíu kemur frá minningarathöfn í Salisbury um áhöfn og farþega flugvélarinnar sem skæruliðar skutu niður í landinu fyrir nokkru. símamynd ap Utvarpið í Teheran sagði í dag að hermennirnir hefðu fengið fyrirmæli um að skjóta á mótmæl- endurna þegar þeir byrjuðu að kasta hand- og eldsprengjum að hermönnunum í nágrenni þing- hússins. Mótmælagangan hafði verið úrskurðuð ólögleg. Herlögin sem sett voru, gilda i Teheran og 11 öðrum borgum og eiga að gilda í sex mánuði. Atburðirnir í dag eiga rót sína að rekja til breytinga sem keisar- inn og stjórn hans hafa gert á framkvæmd trúarlegra laga, en þeim hafa heittrúaðir múhameðs- trúarmenn verið andvígir. Ný ríkisstjórn tók völd í Iran fyrir tæpum tveimur vikum en henni hefur ekki tekizt að lægja öldurn- ar en undanfarna átta mánuði hafa um þúsund manns látið lífið í óeirðum og mótmælaaðgerðum. Sjá nánar um atburðina í dag „Brenndu allt sem þeir gátu brennt" á bls. 17. og einnig grein um íran og ástandið þar á bls. 19 Leitar Zambíustjórn aðstoðar Kúbumanna? Salisbury, Lusaka London, 8. sept. AP, Reuter. KAUNDA Zambi'uforseti sagði í dag að hann myndi leita aðstoðar annarra ríkja utan Afríku ef Bretum og Bandarikjamönnum tækist ekki að koma í veg fyrir innrás Suður-Afríku eða Ródesíu- manna í Zambíu. Talið er að forsetinn hafi átt við Sovétríkin og Kúbu. Kaunda sagði einnig að Bretar myndu einir bera alla ábyrgð á því tjóni sem verða kynni ef Ródesiuher gerði innrás í Zambíu. I Salisbury fór í dag fram minningarathöfn um þá 48 farþega og flugliða sem fórust með Viscount-skrúfuþotunni sem skotin var niður fyrir nokkru. John da Costa biskup í Salisbury flutti ræðu og réðst harkalega á leiðtoga Bret- lands, Bandaríkjanna og Alþjóða- kirkjuráðsins fyrir að hafa ekki fordæmt árásina á flugvélina og kvað hann þögn þeirra „ærandi". Smith forsætisráðherra Ródhesíu var meðal þeirra sem voru við athöfnina. Hann mun flytja sjón- varps- og útvarpsræðu á sunnudag og gera grein fyrir áformum stjórn- ar sinnar. Smith segir í viðtali við bandaríska blaðið Christian Science Monitor í dag að vel kunni svo að fara að fresta þurfi valdatöku blökkumanna í landinu sem fyrir- huguð er um áramót. Skæruliðar úr hreyfingu Roberts Mugabes sem aðsetur hefur í Mozambique gerðu í dag árás á þorpið Umtali skammt innan landa- mæra Ródesíu og beið einn aldraður blökkumaður bana í árásinni. Háttsettir starfsmenn bandaríska utanríkisráðuneytisins komu í dag til London til að reyna að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu stríðsins í Rhodesíu í samráði við Breta. Munu ráðgerðir margir fundir með brezk- um ráðamönnum um málið næstu daga. Rannsaka síritann Ósló, 8. sept. Frá Jan-Erik Lauré, fréttaritara Mbl. NORSKA stjórnin ákvað í dag að verða ekki við kröfum Sovét- stjórnarinnar um að skila Sovét- mönnum síritanum, sem skráð hefur flugsögu síðustu flugferð- ar sovézku flugvélarinnar, sem fórst á smáey við Svalbarða í lok ágúst. Var í staðinn ákveðið að farið yrði yfir upplýsingarnar úr síritanum eða „svarta kassan- um“ í Noregi og Sovétmönnum boðið að senda fulltrúa til að fylgjast með rannsókninni. Upp- haflega ætluðu Norðmenn að láta rannsaka ritann í rann- sóknastofu í Bretlandi, en því mótmæltu Sovétmenn harðlega og kváðu ekki koma til mála að blanda þriðja ríkinu inn í rannsókn málsins. Frydenlund utanríkisráðherra sagði á blaða- mannafundi í dag að stjórnin hefði tekið tillit til framtíðar- sambúðar Noregs og Sovétríkj- anna við ákvörðun sína. Aukin bjartsýni um Camp David fundinn Begin, Carter og Sadat kanna heiðursvörðinn við Camp David sl. fimmtudag. Símamynd Ap Camp David, 8. sept. AP, Reuter. NOKKURRAR bjartsýni virtist í dag gæta um að miða kynni í samkomulagsátt f viðræðum Begins forsætisráðherra ísraels, Sadats Egyptalandsforseta og Carters Bandaríkjaforseta á sveitasetri Bandarfkjaforseta í Camp David í fjöllunum í Marylandriki. Mikið kapp hefur verið lagt á að engar fréttir berist út af viðræðufundun- um, en Jody Powell blaðafulitrúi Bandaríkjaforseta sagði í dag að það fyrirkomulag hefði reynzt mjög vel og að viðræðuaðilarnir væru allir ánægðir með það. Var þetta tekið til marks um að eitthvað hefði miðað áfram í viðræðunum og því til stuðnings er einnig nefnt hve vingjarnlegir Sadat og Begin hafa verið í garð hvor annars. Leiðtogarnir þrír áttu með sér sameiginlegan fund, en ræddu einnig við ráðgjafa sína og aðstoðarmenn. Síðari hluta dags kvaddi Carter þá Sadat og Begin á sinn fund hvorn í sínu lagi en af gangi þeirra viðræðna var ekkert að frétta frekar en öðrum fundum ráðamannanna. Þykir fréttamönnum með ólíkindum hvernig tekist hefur að halda efni viðræðnanna leyndu og sögðu í dag í gamni að eini „lekinn“ sem koitiið hefði á fundinum hefði verið þegar vatn lak inn í fréttamannamiðstöð- ina skammt frá Camp David. Gert er ráð fyrir að leiðtogarnir þrír hittist sameiginlega aftur á sunnudag, en ólíklegt þykir að fundinum ljúki fyrr en í fyrsta lagi á mánudag. Um hundrað drepijir í vélbyssuskothríð í Iran

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.