Morgunblaðið - 09.09.1978, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1978
17
Rússar í
kjölfarinu
Briissel — 8. september — AP
IIERSKIP NATO sem eru að
flotaæfingum sigldu f átt til
Iljaltlands í dag og sovézk
njósnaskip og flugvélar fylgdu
þeim fast eftir að því er skýrt var
frá í Briissel í dag. Framkvæmda-
stjóri NATO, Josef Luns, var í
hópi embættismanna sem biðu á
Iljaltlandi til að fylgjast með
landgönguæfingu á morgun.
Van Waning sjóliðsforingi úr
hollenzka flotanum sagði í aðal-
bækistöðvum æfinganna í Nort-
wood, Englandi, að Rússar sýndu
mikinn áhuga á þeim.
Danskar fréttir herma að so-
vézka eldflaugabeitiskipið „Ad-
miral Makarov“ og eldflauga-
tundurspillir væru meðal þeirra
skipa sem eltu NATO-herskipin
og að vaxandi íjöldi rússneskra
njósnaskipa hefði siglt um
dönsku sundin á ánudag og
þriðjudag til að fylgjast með
æfingunum sem ganga undir
nafninu „Northern Wedding“ og
fara fram á Ermasundi og í
Norðursjó.
Crawford til
Bandaríkjanna
Moskvu, 8. sept. AP. Reuter
BANDARÍSKI kaupsýslumaður-
inn Francis J. Crawford hélt í
dag frá Moskvu, en hann hlaut í
gær fimm ára skilorðsbundinn
dóm fyrir meint gjaldeyrissvik.
Tass skýrði svo frá að hann heíði
verið rekinn úr landi.
Ekki fyrir
okkur segja
Rúmenar
Vín, 8. september. AP
RÍIMENAR sögðu í dag að
Evrópukommúnismi væri góður
fyrir Vesturlönd en ekki fyrir
kommúnistarfki. í þessu felst að
rúmenska stjórnin hyggst ekki
leyfa eins mikla andstöðu gegn
Sovétríkjunum og ýmsir
kommúnistaleiðtogar á Vestur-
löndum hafa haft í frammi.
Þetta kemur fram í opinberu
riti, „Rúmeníufréttum“. Rúmen-
ar og evrópskir kommúnista-
flokkar hafa lengi haldið því
fram. að Sovétríkin séu ekki
lengur miðstöð heims-
kommúnismans og þessi afstaða
var ítrckuð í rúmenska ritinu.
Jafnframt fór fram í dag fyrsti
embættismannafundur Rúmena
og Bandaríkjamanna síðan
rúmenski hershöfðinginn Ion
Pacepa, starfsmaður leyniþjón-
ustunnar og innanrikisráðuneyt-
isins. flýði til Bandarikjanna
fyrir sex vikum.
Matthew Nimctz frá banda-
ríska utanríkisráðuneytinu ræddi
við rúmenska ráðherra í
Búkarest og var sagður hafa látið
f Ijós von um að mál Pacepa
hershöfðingja spillti ekki sambúð
landanna.
P undu auða
íbúð Stolls
Diisseldorf — 8. september — AP
LÖGREGLUMENN leituðu í dag
í auðri íbúð í Diisseldorf þar sem
talið er að búið hafi hryðjuverka-
maðurinn Willy Petcr Stoll sem
var skotinn til bana í kínversku
veitingahúsi f borginni á mið-
vikudag samkvæmt áreiðanlegum
heimildum.
Stoll var eftirlýstur vegna
morðanna á Siegfried Buback
rfkissaksóknara. JUrgen Ponto,
hankastjóra Dresdner Bank og
iðnrekandans Hanns Martin
Schleyers.
Ananda Marga að-
stoðar Korchnoi
Baguio-borg, Filippsoyjum.
8. september. AP.
VIKTOR Korchnoi taldi sig í
dag hafa fundið óbrigðula leið
til að verjast hugsunargeislum
þeim, sem hann segir sovéska
dulsálfræðinginn beita gegn
sér. Korchnoi hyggst leita á
náðir tveggja félaga í Ananda
Marga-samtökunum og gerir
hann sér vonir um að þeir muni
róa sálarlff hans.
Er Korchnoi sneri aftur til
Baguio frá Manilla voru félag-
arnir tveir, sem eru jógakennar-
ar, í för með honum, til þess að
hjálpa honum að yfirstíga
„líkamleg og andleg" vandamál.
Jógarnir, Steven Dwyer og
Victoria Sheppard, sögðu blaða-
mönnum að þeir væru komnir
til Baguio „til að hjálpa Viktor
og komast að raun um hvað
angraði hann“.
Aukalið kallað
út í Nicaragua
Managua, 8. september. Reuter.
ÞJÓÐVARÐLIÐAR í Managua og fleiri bæjum í
Nicaragua fengu liðsauka í dag eftir óróasama nótt
sprengjutilræða sem þjóna þeim tilgangi að kollvarpa
stjórn Anastasio Somoza forseta.
Kröftugar sprengjur sprungu í nokkrum bæjum
umhverfis Managua, sú öflugasta í Masaya, tveimur km
suður af höfuðborginni, og Rauði krossinn óttaðist að
slys hefðu orðið á fólki.
Masaya er á svæði þar sem
Indíánar af Moninbo-ættflokkn-
um eru fjölmennir, en þeir
stóðu að uppreisninni er Þjóð-
varðliðið braut á bak aftur í
febrúar með stuðningi flugvéla
og herliðs.
Varðflokkur sem leitar uppi
hryðjuverkamenn varð fyrir
handsprengjuárás í Las
Mercedes, norðaustur af
Managua, en opinberlega var
ekki skýrt frá manntjóni.
Heimildir í kirkjunni herma
að stjórnarhermenn hafi gert
leit í guðfræðiskóla í Masaya og
í kirkju í útjaðri höfuðborgar-
innar.
Þrjár vikur eru liðnar síðan
gert var verkfall til að steypa
Somoza forseta af stóli, en
forsetinn hefur heitið því að
gefast ekki upp. En andstæðing-
ar stjórnarinnar efast um að
forsetinn komist upp með þetta.
Moon lézt vegna of-
neyzlu svefnlyfja
London, 8. sept. Reuter.
TILKYNNT var í dag. að
trommulcikarinn Keith Moon
hefði látizt vegna ofneyzlu svefn-
lyfja. Skýrt var frá dánarorsök-
inni að lokinni krufningu, en
Moon lézt á fimmtudag. 31 árs að
aldri.
Talsmaður hljómsveitarinnar
sagði að Moon hefði ekki verið
vanur að nota svefnlyf eða önnur
eiturlyf, utan hvað hann hefði átt
það til að reykja hass. Svefnlyfin
kvað talsmaðurinn Moon hafa
tekið, þar sem hann ætti á
stundum erfitt með svefn.
Moon var einn af stofnendum
hljómsveitarinnar Who, en hinir
liðsmenn hennar hafa lýst því yfir
að þeir muni halda áfram að leika
Keith Moon
saman, en líklega breyti þeir um
nafn. Moon var kunnur fyrir
ófriðlega framkomu og sjálfur
sagðist hann hafa greitt 200.000
sterlingspund (118 milljónir
króna) vegna skemmda, sem hann
hefði valdið á hótelum víðs vegar
um heim. Einnig átti trymbillinn
það til að taka upp á furðulegustu
uppátækjum, og má nefna að eitt
sinn kastaði hann fimm hæða
afmælistertu í framámenn hljóm-
plötufyrirtækis nokkurs. Þegar
kappinn hugðist flýja undan lög-
reglu rann hann á marsípani og
braut í sér framtönn. Sama
kvöldið ók hann Lincoln-bifreið út
í sundlaug og eyðilagði bifreiðina
að mestu leyti.
Kyrrlát
ártíð Maos
Peking, 8. sept. Reuter
TVÖ ÁR verða liðin frá andláti
Mao Tse-tungs á ntorgun og
dagurinn mun líða hljóðlega þar
sem Kínverjar eru um þessar
mundir að endurskoða stefnu
sfna.
Þótt myndir af Mao séu á öllum
opinberum byggingum og þótt oft
sé til hans vitnað í opinbcrum
ræðum eru ráðamenn Kínverja
staðráðnir í því að hverfa frá
blindri hlýðni við stefnu hans.
Áherzlan er nú lögð á breyting-
ar í núti'maátt. hagvöxt og
tæknifullkomnun í iðnaðar- og
landbúnaðarframleiðslu sem oft
var látin sitja á hakanum á
árunum fyrir dauða Maos.
Engin athöfn mun fara fram á
morgun gagnstætt því sem gerð-
ist fyrir einu ári þegar grafhýsi
i formannsins var opnað.
Fabre rekinn
úr flokki sínum
París, 7. september. AP.
ROBERT Fabre, fyrrverandi
leiðtogi róttæku vinstri hreyfing-
arinnar (LRM), var rekinn úr
flokknum á fimmtudag. vegna
þess að hann féllzt á þá málaleit-
an Giscard d'Estaing Frakk-
landsforseta, að kanna til hlítar
atvinnuleysið í landinu. Róttæka
vinstri hreyfingin er smáflokkur
í stjórnarandstöðu Frakklands.
Heimildir innan flokksins
hermdu að stjórn flokksins hefði
farið þess á leit við Fabre hinn 9.
ágúst, að hann yrði ekki við beiðni
forsetans, en Fabre sinnti ekki
vilja flokksstjórnarinnar. Á fundi
á fimmtudag komst stjórnin að
þeirri niðurstöðu að Fabre hafði
„samkvæmt eigin ósk, sagt sig úr
flokknum".
„Bfenndu allt sem
þeir gátu brennt
Teheran, 8. september. AP
„ÞEIR brenndu allt sem þeir
gátu hrennt þegar þeir flýðu,“
sagði sjónarvottur að óeirðun-
um í Teheran í dag þegar
hermenn skutu á nokkur
þúsund manns sem söfnuðust
saman til að mótmæla stefnu
stjórnarinnar og allt að 100
voru drepnir, nokkrum
klukkustundum eftir að stjórn
landsins setti herlög í höfuð-
borginni og 11 öðrum borgum.
Mótmælendurnir kveiktu í
nokkrum byggingum, benzín-
stöðvum og stórverzlunum og
reyndu að rífa niður minnis-
merki. Trúarleiðtoginn Ayatullh
Noori reyndi að fá mannfjöld-
ann til að gæta stillingar en
hann æstist aðeins við það og
Noori var hrópaður niður.
Mótmælafólkið gekk fylktu
liði með unglinga og konur með
andlitsblæjur i broddi fylkiogar
í átt að röð hermanna og kastaði
múrsteinum og grjóti að þeim
að sögn sjónarvotta.
Hermennirnir skutu út í loftið
en síðan á mannfjöldann, segja
sjónarvottarnir.
Sjónarvottarnir segja að
margir blóðidrifnir mótmælend-
ur hafi hnigið til jarðar og að
þeim hafi verið ekið burtu í
vörubílum. Mótmælafólkið
kveikti í nokkrum byggingum og
reyndi að rífa niður minnis-
merki í austurhverfi borgarinn-
ar þar sem þinghústorgið er.
Ríkisútvarpið segir að „því
miður hafi mótmælafólkið og
óeirðaseggirnir neitað að dreifa
sér og margir hafi verið drepnir
og særzt þegar öryggissveitirnar
skutu af byssum sínum."
Hermenn vopnaðir véibyssum
skutu á mannfjölda sem reyndi
að kveikja í stórverzlun skammt
frá flugstöð suðaustur af
Téheran. Kveikt var í benzín-
stöðvum, verzlunum og trjám á
svæðum fyrir austan höfuð-
borgina.
Margir mótmælendur báru
spjöld með vígorðum. Aðrir rifu
niður íranska fánann og hróp-
uðu „Lerigi lifi lýðræðislega
íranska lýðveldið."
Samkvæmt opinberum
heimildum voru engir út-
lendingar viðriðnir átökin í
Teheran eða annars staðar.
Rúmlega 120.000 útlendingar
starfa í íran, þar af 50.000
Bandaríkjamenn.
í Washingt.on var sagt að
bandarískum borgurum í íran
væri ráðlagt að forðast marg-
menni og halda sig frá órólegum
stöðum. En talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins
sagðist ekki vita um að áform
væru uppi um strangari ráðstaf-
anir til að verja bandarískar
eignir og bandaríska borgara.
Eitt skotmark mótmælend-
anna var aðalsímstöðin en þeim
var dreift áður en þeir komust
þangað. Tveir skriðdrekar eru
við bygginguna til að verja
fjarskiptakerfi landsins.
Þegar óeirðirnar fjöruðu út í
dag stigu reykjarsúlur til
himins á ýmsum stöðum í
Teheran.