Morgunblaðið - 10.10.1978, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTOBER 1978
3
Gatnamálastjóri:
Notið ekki
neglda
hjólbarða
í TILKYNNINGU frá gatnamála-
stjóranum í Reykjavík kemur
fram að eins og undanfarna vetur
verður sólarhringsvakt á gatna-
kerfinu þegar sá tími er kominn.
að vinna þarf gegn hálkunni. 15
kg sandpokar til að þyngja
bifreiðarnar og til notkunar í
viðlögum verða afhentir ókeypis í
hverfisbækistöðvum gatnamála-
stjóra við Elliðaár. Sigtún og
Meistaravelli. virka daga frá kl.
7.30-16.00.
Einnig mælir gatnamálastjóri
með ónegldum snjóhjólbörðum til
notkunar hér í borginni og minnir
á það, að engin skylda er að aka
með neglda hjólbarða eftir 15.
október en þá má skv. lögum nota
eftir þann tíma.
Útvarpsdagskrá
í tilefni áttrœðis-
afmælis Hagalíns
í TILEFNI áttræðisafmælis
Guðmundar Gíslasonar Ilaga-
líns verður sérstök dagskrá í
útvarpinu kl. 21.20 í- kvöld.
Eiríkur Hreinn Finnbogason.
cand.mag. tekur saman dag-
skrána. flytur inngangsorð og
segir frá afmælisbarninu.
Baldvin Halldórsson Ieikari
les eitt ljóð cftir Guðmund
Ilagalfn, kafla úr „Bh'tt lætur
veröld" og sjálfsævisögu
Guðmundar. Ilöfundur mun
síðan sjálíur lesa úr bók sinni
„Márus á Valshamri og meist-
ari Jón".
Einn í gæzlu
MAÐUR nokkur var úrskurðaður í
allt að 30 daga gæzluvarðhald á
laugardaginn vegna rannsóknar
fíkniefnamálsins, sem fíkniefna-
deild lögreglunnar í Reykjavík
hefur nú til meðferðar. Sitja þá 4
ungir menn í varðhaldi vegna
rannsóknar málsins.
Hákur
á
hvolfi
VERIÐ er að kanna skemmdir
þær sem urðu á dýpkunar-
pramma hafnarmálastjórnar-
innar, Háki, en prammanum
hvolfdi úti af Þormóðsskeri sl.
laugardagsmorgun, þar sem
vitaskipið Árvakur var með
prammann í togi í vonzkuveðri.
Vitaskipinu tókst þó að draga
prammann áfram á hvolfi inn
undir Akranes en þar kom
flotkrani Reykjavíkurhafnar til
móts við skipiö og tókst að
rétta prammann við. Hann var
síðan dreginn inn á Skerja-
fjörð. Hákur mun vera mikið
skemmdur eftir.
Bílvelta
BÍLVELTA varö á Þing-
vallavegi seinnipart laugar-
dagsins. Bíll, sem var á íeið
til Reykjavíkur frá Þing-
völlum, valt rétt ofan við
Seljabrekku. Hjón með lítið
barn voru í bílnum og
sluppu þau að mestu án
meiðsla. Bifreiðin er stór-
skemmd.
VERKSMKkJU-
ÚTSALAN
SLÆR ÖLL FYRRI MET
Teppi
frá kr.
2.300
karlmannaskór frá kr. 4.
FRÁG Ullarteppi Teppabútar Áklæði Gluggatjöld Buxnaefni Kjólaefni iEFJUN Ullarefni Sængurveraefni Garn - Margar gerðir Loðband Lopi o.m.m. fl. FRÁ SKÓVERKSM. IÐUNNI Karlmannaskór Kvenskór Kventöflur Unglingaskór FRA FATA- VERKSM. HEKLU Fyrir dömur, herra og börn Gallabuxur Anorakkar Vinnubuxur Peysur Smekkbuxur Sokkar FRÁ HETTI Fyrir dömur, herra og börn. Mokkalúffur Mokkahúfur
Lager — Iðnaðardeildar Peysurfrákr.2000- píisfrákr.2.000- , .. r || Fóöraöir jakkar frá kr. 5.000.- Vesti frá kr. 2000.- IIZKUVOrUr ur Ull Prjónakápur frá kr 4.000.- Ofnar slár frá kr. 6.000.-
Allir gera það gott...
og þú líka — þegar þú kemur
SAMBAN DSVERKSMIÐJURNAR
GEFJUN HEKLA HÖTTUR IÐUNN
Iðnaðarmannahúsið Hallveigarstíg 1