Morgunblaðið - 10.10.1978, Blaðsíða 40
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1978
AH.I.YSINÍ,ASIMINN KR:
22480
Mikið tjón varð á bænum Vötnum í Ölfusi um helgina er
Kripahús og hlaða á bænum brunnu með þeim afleiðingum að
17 kýr drápust og einn hestur. Á myndinni sést yfir rústir
* fjóssins ok hlöðunnar. Sjá hls> 19.
I.jósm. Emilía.
Lúðvík Jósepsson formaður Alþýðubandalagsins:
Ríkisstjórninni láðist
að leita eftir samkomu-
lagi við stuðningsflokka
„1>AÐ ER alveg augljóst. að
ri'kisstjórninni láðist að leita eftir
samkomulagi við sína stuðnings-
flokka um meginstefnuna í fjár-
„KOSTNAÐUR ríkissjóðs af kröf-
um kennarasamtakanna. I.SFK
og SGK. nemur 197 milljónum
króna á ársgrundvelli miðað við
gildandi laun." sagði Þorsteinn
Geirsson skrifstofustjóri fjár-
málaráðuneytisins er Mhi. spurði
hann um þetta atriði í gær.
lagafrumvarpinu." sagði Lúðvík
Jósepsson formaður Alþýðu-
handalagsins í samtali við Mbl. í
gær.
Þorsteinn sagði að kostnaðurinn
við að færa „réttindamennina" til
samkvæmt kröfunum væri 184
milljónir króna og einnig hefði
Landssamband framhaldsskóla-
kennara gert svipaðar kröfur til
handa réttindalausum kennurum
og væri kostnaðurinn við þær
tilfærslur 13 milljón krónur á ári.
Lúðvík sagði, að af Alþýðu-
bandalagsins hálfu hefði það verið
talið eðlilegast eins og á stóð að
ríkisstjórnin notfærði sér það
fjárlagafrumvarp sem til var í
fjármálaráðuneytinu og legði það
fram með almennri athugasemd
þar um og síðandiefði verið fyllt út
í frumvarpið á Alþingi. Þetta hefði
þó ekki orðið, því fjármálaráð-
herra hefði viljað leggja fram
frumvarp sem bæri merki stefnu
núverandi stjórnar og því væri nú
unnið að því að ná samkomulagi
ríkisstjórnarflokkanna um megin-
atriöi þess til þess að flokkarnir
gætu allir staðið að frumvarpinu,
þegar það verður lagt fram.
Sagði Lúðvík að búið væri að
halda tvo fundi um fjárlagafrum-
varpið, en hann kvaðst engu vilja
spá um það, hvenær þessari vinnu
lyki.“ En þessir fundir hafa verið
alveg eðlilegir," sagði Lúðvík.
Kröfur kennara
kosta ríkissjóð 197
milljónir kr. á ári
Valur fékk 700 þúsund
Fékk Víkingur 4 millj?
MORGUNBLAÐIÐ íékk það staðfest í gær hjá formanni knattspyrnu-
deildar Vals. Pétri Sveinbjarnarsyni. að Val hefði borist ávísun frá
belgíska félaginu I.okaren að upphæð 1500 þúsund krónur vegna
félagaskipta Skotans James Bett frá Val yfir í Lokaren.
Ekki mun þó öll þessi upphæð
hafa runnið til knattspyrnudeild-
arinnar. Það, sem í hlut hennar
kom, voru 700 þúsund krónur.
Lokaren hafði gengið í ábyrgð
fyrir James Bett vegna skuldar
hans hér á landi, og var það gert
að skilyrði af hendi Vals, að hún
yrði greidd samhliða þeirri
greiðslu sem átti að renna til
knattspyrnudeildar Vals. Pétur
Sveinbjarnarson sagði í viðtali við
Mbl., að hann liti svo á málið, að
Valur væri að fá greiddan útlagð-
an kostnað vegna þjálfunar og
fleira í sambandi við félagaskipti
Betts. Full samráð voru höfð við
James Bett um allar hliðar máls-
ins.
Framkoma Lokaren í , málinu
var ekki til fyrirmyndar og hefði
Valur átt að fara fram á verulegar
skaðabætur vegna hennar, sagði
Pétur.
Mbl. hafði í gær samband við
formann knattspyrnudeildar Vík-
ings, Þór Símon Ragnarsson, og
innti hann eftir því hvað hann
hefði að segja um félagaskipti
Arnórs Guðjohnsens. Sagði Þór, að
væntanlega kæmi yfirlýsing frá
knattspyrnufélaginu Víkingi um
málið.
Mbl. hefur fregnað eftir áreið-
anlegum heimildum, að Lokaren
hafði greitt Víkingi rúmlega fjórar
milljónir króna vegna félagaskipta
Arnórs, en upphaflega mun Vík-
ingur hafa farið fram á 7 milljón-
ir.
Sjá nánar um málið á íþrótta-
síðu.
Fer Flókalundur
undir hamarinn?
Verð- og gengistryggt
lán sligar reksturinn
IIORFUR eru á því að hinn
gla'silegi gististaður. Flókalund-
ur í Vatnsíirði. verði seldur á
uppboði einhvern næstu daga
sakir þess að ekki hefur reynzt
unnt að standa í skilum með
afborganir lána. sem fengin voru
þegar staðurinn var reistur fyrir
fáeinum árum.
Það er hlutafélagið Gestur á
Patreksfirði sem stendur fyrir
rekstri Flókalundar og Bjarka-
lundar. Reksturinn hefur alla tíð
verið erfiður en þó tekizt að halda
í horfinu, þrátt fyrir að staðirnir
séu aðeins opnir yfir sumartím-
ann. Reynt hefur þó verið að halda
þeim opnum lengur en gerist og
gengur um aðra sumargististaði
eða allt fram í október eða
nóvember.
Ástæðan fyrir því hvernig kom-
ið er með Flókalund mun vera sú,
að þegar gistitaðurinn var reistur
árið 1972 var tekið lán hjá
ferðamálasjóði, samtals að fjár-
hæð 8.5 milljónir króna. Lánið var
hins vegar með þeim skilmálum,
aö það var í senn verðtryggt og
vísitölutryggt, og heildarfjárhæð
þess nú er þannig orðin um 70
milljónir króna. Rekstrartekjur
Flókalundar hefðu ekki nægt til
þess að standa undir þessum
stofnkostnaði.
Ferðamálasjóður á allar veð-
! skuldir í Flókalundi og er búizt við
að hann eignist staðinn. Barð-
strendingum mun hins vegar
þ.vkja mikil eftirsjá í Flókalundi
því að langt er á milli áningar-
staða þarna um slóðir ef hann
hverfur úr sögunni og mun verið
að kanna í héraði hvað sé til ráða.
afbrot
24 ARA gamall Ilafnfirðingur
var úrskurðaður í ailt að 16
daga gæzluvarðhald um helg-
ina vegna meintra
kynferðisafbrota.
Maðurinn var kærður til Rann-
sóknarlögreglu ríkisins á laug-
ardaginn vegna afbrigðilegrar
hegðunar gagnvart litlum
drengjum. Var maðurinn hand-
tekinn samdægurs og þótti rétt
að úrskurða hann í gæzluvarð-
hald á meðan rannsókn málsins
fer fram.
í gæzlu
fyrir kyn-
ferðis-
Þórunn Ashkenazy:
„Erum flutt frá
fslandi — í biir
„JÁ, ÞAÐ er rétt að við erum
flutt frá íslandi. — í bili," sagði
Þórunn Jóhannsdóttir Ashken-
azy þegar Morgunblaðið ræddi
við hana í síma f gærkvöldi á
heimili þeirra Vladimirs’Ashken-
azys í Luzern í Sviss.
„Ástæðan var fyrst og fremst
sú, að við Vladimir sáum varla
börnin okkar. Á árinu 1977 vorum
við ekki nema 30 daga í allt heima
á íslandi, og þegar við höfðum
jafnmikið á íslandi hér eftir sem
hingað til. Þau hygðust eiga hús
sitt í Reykjavík áfram og dveljast
þar í leyfum, eins oft og aðstæður
leyfðu. Þau yrðu hér um næstu jól
og páska væntanlega líka. Hún
sagði að lokum, að þegar fjöl-
skyldan settist að hér á íslandi
hefðu þau hjónin gert sér vonir
um að flugsamgöngur ættu eftir
að fara batnandi. Sú hefði ekki
orðið raunin, og þau væru þannig
Vladimir og Þórunn Ashkenazy í flugvél á leið til Bretlands nýlega.
komizt að raun um það að elzti
strákurinn, sem er í skóla í
Englandi, var það barnanna, sem
við sáum mest, var ekki um annað
að ræða en að gera róttækar
ráðstafanir til að ráða bót á þessu.
Þess vegna erum við búin að taka
hús á leigu hér og börnin eru
komin í enskumælandi skóla.
Þetta er allt annað líf. Sviss er svo
miðsvæðis og samgöngur greiðar í
allar áttir. Héðan fara til dæmis
átta flugvélar á dag til London og
þaiígað er ekki nema eins og hálfs
tíma flug.“
Þórunn bætti því við að senni-
lega mundu þau hjónin verða
stödd í tilverunni að það væri
þeim meiriháttar hagsmunamál
að búa þar sem hægt væri að
komast á milli landa á fljótlegan
hátt.
Þórunn bætti því við að endingu
að fjölskyldunni hefði bætzt nýr
meðlimur, Sankti Bernharðshund-
ur. Væri þetta hvolpur, sem þegar
væri orðinn svo mikilúðlegur að
Sonja litla dóttir þeirra, sem er
fjögurra ára, væri eins og peð við
hliðina á honum. „Okkur hefur
alltaf langað til að eiga hund, en
gátum ekki látið það eftir okkur
fyrr en nú, því að í Reykjavík var
ekki hægt að vera með hund.“