Morgunblaðið - 10.10.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1978
27
í endataflinu er
Korchnoi sterkari
í FYRSTA sinn síðan að
Anatoly Karpow varð hcims-
meistari í skák árið 1974 varð
hann að bíta í það súra cpli að
tapa tveim skákum í röð. því að
á sunnudag þvingaði Korchnoi
hann til þess að gefa 29.
einvígisskákina eftir alls níu
klukkustunda baráttu. Horfur
Korchnois í einvíginu hafa því
hcldur betur batnað. en fyrir
tíu dögum var staðan 5—2
heimsmeistaranum í vil. En á
þessum tíu dögum heíur Korch-
noi sýnt öllum heiminum fram
á ótrúlegan baráttuvilja sinn
og minnkað muninn niður í
einn vinning gegn sér 20 árum
yngri manni eftir að hafa teflt
næstum hvfldarlaust í þrjá
mánuði.
Á meðan þrek Korchnois
virðist aukast við hverja viður-
eign virðist sjálfstraust Karp-
ovs að sama skapi fara þverr-
andi. Eftir að hafa haft sigur-
inn næstum í hendi sér er
Karpov skyndilega kominn í
mjög erfiða aðstöðu og ef hann
hristir ekki af sér slenið von
bráðar er hætt við að áratuga
reynsla Korchnois í löngum og
erfiðum mótum og einvígjum
geri út um einvígið áskorand-
anum í vil.
Korchnoi hafði hvítt í 29.
skákinni og mætti til leiks á
laugardag fullur af kvefi og
sólbrenndur eftir baðstrandar-
ferð sem hafði augljóslega ekki
verið nægilega vel undirbúin.
Margir bjuggust því við að
áskorandinn myndi tefla rólega
og sætta sig við jafntefli,
sérstaklega þar sem staða hans
eftir byrjunina virtist ekki hafa
upp á neina sérstaka möguleika
að bjóða. En engar sáttaumleit-
anir fóru fram og um síðir fór
skákin í bið. Hún virtist þá mjög
jafnteflisleg, fáir menn voru
eftir á borðinu og þó að lið
Korchnois væri virkara hafði
Karpov mjög trausta stöðu. En
fljótlega eftir að biðskákin hófst
á sunnudag lagðist Korchnoi í
djúpa þanka og tók síðan
allmikla áhættu, þrátt fyrir að
aðeins einn afleikur af hans
hálfu hefði gert út um einvígið.
Skák
Margeir Pétursson
skrifar um 29.
ein vígisskákina
Og áskorandanum tókst hið
ótrúlega, þrátt fyrir að hann
væri naumur á tíma, útreikning-
arnir stóðust og eftir mistök
Karpovs var Korchnoi sigurinn
vís. Karpov skipti litum áður en
hann gafst upp, en að vonum var
Korchnoi mjög ánægður. „Ég
hef enn dálitla flenslu, auk þess
sem ég er dauðþreyttur," kvart-
aði áskorandinn, en engu að
síður var hann í sjöunda himni.
Sovétmenn voru hins vegar
þungbúnir. Meðal áhorfenda á
29. skákinni var Vitaly Se-
bastionov, fyrrum geimfari og
núverandi forseti sovézka skák-
sambandsins. Hann var við-
staddur setningarathöfnina og
kom síðan aftur til Baguio eftir
að Karpov hafði unnið sinn
fimmta sigur, enda talið að nú
væri stutt í lok einvígisins. Það
er vafalaust rétt, en hins vegar
getur brugðið til beggja vona
hver fagnar sigri í lokin.
29. skákini
Ilvítti Viktor Korchnoi
Svart. Anatoly Karppv.
Enski leikurinn.
1. c4 - Rff. 2. Rc3 - ef. 3. e4.
(Þetta er í fyrsta skipti i
einvíginu sem Korchnoi beitir
þessu hvassa afbriðgi, en hann
hefur oft notað það áður, að vísu
með misjöfnum árangri.
c5
(Tízkuleikurinn um þessar
mundir. Áður léku menn 3... d5
4. e5 — d4 5. exf6 — dxc3 6. bxc3
- D.xf6 7. d4 - c5 8. Rf3 - h6 9.
Bd3 — Rc6, en nýlega uppgötvr
uðu menn peðsfórnina 10. 0—0
sem gefur hvítum mjög þægi-
lega stöðu).
4. e5 - Rg8 5. d4.
(Að undanförnu hefur peðsfórn-
in 5. Rf3 - Rc6 6. d4 - cxd4 7.
Rxd4 — Rxe5 mjög verið í
brennidepli, en oftast hefur
svörtum tekist að halda sínu.
Korchnoi velur því örúggara
framhald).
cxdl 6. Dxd4 — Rc6 7. De4 —
d6 8. Rf3 - dxe5 9. Rxe5 -
Rff.
(í athyglisverðri skák á milli
þeirra Vdovins og Korunskis í
Sovétríkjunum í fyrra lék svart-
ur hér 9... Bd7!? og fékk
vinningsstöðu eftir 10. Rxd7 —
Dxd7 11. Bg5?! - Bb4 12. Hdl -
Dc7 13. Bd2 - Rf6 14. Rd5??
0-0—0! 15. Rxf6 — Hxd2!
Heimsmeistarinn velur hins
vegar öllu rólegri leið)
10. Rxc6 — Db6
(En tæplega 10... Rxe4 11. Rxd8
- Rxc3 12. Rxf7 - Kxf7 13.
bxc3 og hvítur hefur unnið peð)
11. DÍ3 - bxcf. 12. Be2 - Bb7
13. 0-0 c5 14. Dh3 - Be7 15.
Bf3 - 0-0 16. b3 - Hfd8 17.
Be3 - Bc6 18. Ral - Dc7
(Hvítur hefur nú greinilega
betri möguleika vegna traustari
peðastöðu sinnar, en hann á
erfitt með að gera sér mat úr
þessu vegna ágætrar stöðu
svörtu mannanna. I endatafli
ætti þó hvítur að standa betur
að öllu óbreyttu. Korchnoi
hugsaði sig nú um í 35 mínútur).
19. Bxc6 — Dxc6, 20. Iladl —
IIac8. 21. Dg3 - Bd6. 22. Dh4
- Be7. 23. f3 - Kf8
(Dæmigerður leikur fyrir
Karpov. Eins og Capablanca
byrjar hann ávallt snemma að
undirbúa endataflið)
24. Df2 - Ilxdl. 25. Hxdl -
Dc7, 26. Dg3
(Mjög eðlileg ákvörðun. Hvítur
skiptir upp i endatafl sem
hlýtur að vera hagstæðara
vegna veikleikans á c5. Karpov
tekur áskoruninni, enda er mjög
erfitt að benda á leið fyrir
hvítan sem eykur stöðuyfirburði
hans).
Dxg3. 27. hxg3 - h5!. 28. Kf2
- Ke8. 29. Ke2 - gfi. 30. Rc3
- a6. 31. Ral - IIc6. 32. Ilhl
- Bd6. 33. Bf2 - Rd7
(Öruggara var 33. — Ke7 og
líklega gerir hvorugur meira en
að halda í horfinu)
34. g4!
(Með þessum leik tekur
Korchnoi að vísu á sig stakt
tvípeð, en nú fær hann yfirráð
yfir opinni línu og það gefur
honum visst frumkvæði).
hxgl. 35. Hh8+ - Ke7. 36. Íxg4
- g5. 37. Be3 - f6. 38. Rc3 -
Kf7. 39. Hh7+ - Ke8. 40. Re4
- Be7
(Hér fór skákin í bið. Korchnoi
íhugaði biðleik sínn í 36 mínút-
ur, hann ætlaði greinilega ekki
að kaupa köttinn í sekknum.
Hvítur hefur töluvert frum-
kvæði í biðstöðunni og tvípeð
hans virðist fullgott til þess að
halda peðameirihluta svarts á
kóngsvæng niðri).
41. Ilhf. - KÍ7. 42. Hh7+ -
KÍ8. 43. IIh8+ - Kf7. 44. Bd2
(Hér bjuggust flestir við 44.
Ha8, en í heimsmeistaraeinvígi
vinnast tvísýnar biðstöður ekki
á því að fara þá leið sem liggur
beint af augum).
Rf8. 45. Hhl - Kg6,46. Hdl -
Í5?!
(í þessari viðkvæmu stöðu var
vafalítið betra að bíða átekta,
því að í skák eru freistingarnar
aðeins til þess að standast þær).
47. Rf2 - Bd6. 48. Bc3 - Rd7.
49. gxf5+ - exf5.50. g4! - Rb6
(Eftir 50. — f4?, 51. Re4 fær
hvítur' bráðlega óskoruð yfirráð
yfir d-línunni).
51. Kf3 - Be7. 52. Ba5 - Hf6,
53. Kg2 - fxg4. 54. Rxg4 -
He6. 55. KÍ3 - BÍ6.56. Rxff. -
IIxf6+. 57. Kg l
(Hvítur hefur nú sterkan biskup
gegn máttlitlum riddara svarts,
auk þess sem öll peð svarts eru
stök. Aðstaða svarts er því
þegar orðin mjög erfið, jafnvel
þó að ekki sé öll nótt úti).
Rc8. 58. Bd8 - Hf4+. 59. Kg3
- IIf5. 60. al - KÍ7. 61. IId3
- He5
(Hér átti Korchnoi aðeins 11
mínútur eftir fyrir næstu 11
leiki, það kom honum þó heldur
til góða en hitt, því að Karpov
hóf nú að leik^ mjög hratt, en
ekki að sama skapi vel. í síðustu
leikjunum sannar Korchnoi enn
yfirburði sína í endatafli).
62. Kg4 - Kg6. 63. a5 - Hcl+.
64. Kf3 - HÍ4+. 65. Ke3 -
IIh4?
(Afgerandi mistök, svartur varð
að reyna 65. — Hf8 og svara 66.
Hdðmeð Hf5)
66. Hd5! - Ilh3+. 67. Kd2 -
IIxb3. 68. Hxc5 - IIb8. 69.
IIc6+ - Kf5. 70. Ilxaf. - gl.
71. IIÍ6+! - Kc4
(Eftir 71. - Ke5, 72. Bc7+ -
Kxf6, 73, Bxb8 á svartur ekkert
svar við framrás a-peðsins)
72. Bc7 - IIb2+. 73. Kc3 -
IIb7. 74. Bh2 - IIh7. 75. Bb8 -
IIb7. 76. Bg3 - Hbl. 77. IIÍ4+
- Ke3. 78. II f8 - Re7. 79. a6!
Karpov gefst upp. 79. — Rc6
yrði svarað með 80. a7 — Hxa7,
81. Bf2+.
Liðsauki sendur Karpov frá Sovétríkjunum
eftir að Korchnoi hafði unnið 29. skákina
BaKÍuo. 9. októhor.
VIKTOR Korchnoi hafði hvítt í
29. skákinni og beitti enskri
b.vrjun og svaraði Karpov með
því að leika athyglisvert af-
brigði af Nimzo-indverskri vörn.
Þetta leiddi til þess að hann
eyddi alllöngum tíma en tryggði
honum allgóða stöðu. Hann
varöist ágæta vel sem skákin
var tefld fram og líkur á því að
hún yrði jafntefli blöstu við. En
f 29. leik lék heimsmeistarinn
Karpov leik sem leiddi til þess
að hann tapaði peði. Enda þótt
Korchnoi væri kominn í nokkur
vandræði vegna tímahraks fann
hann frábæran leik, þótt
áhættusamur verði að teljast, til
að hagnast á vafasömum leik
Karpovs, og á kostnað tvípeðs á
kóngsvæng hóf hann nú árás á
þeim vængnum. Skákin fór í bið
eftir fjörutíu leiki og virtist
staðan vera nokkuð Korchnoi í
hag, en ekki eygðu menn vinn-
ingslíkur þótt skákin væri síðan
könnuð. Korchnoi notaði 36
mínútur í að hugsa biðieikinn og
þetta spáði ekki góðu fyrir
næstu lotu þegar tekið yrði til
við skákina að nýju á sunnudeg-
inum. Satt að segja komst hann
tvisvar í erfiðleika vegna tímans
og þótt furðulegt megi telja varð
það honum fremur til fram-
dráttar en hitt. í bæði skiptin
sem þetta kom upp á lék Karpov
alltof hratt þótt hann hefði
nægan tíma og gerði þá skyssur
sem gáfu Korchnoi tækifæri til
að neyða fram vinningsstöðu sér
til handa í óvenjulegu endatafli.
Sennilega gerði Karpov síðustu
vitleysuna í 64. leik þegar hann
lék Hf4 í staðinn fyrir Kf5.
Þegar Karpov gafst upp í 79.
leik var niðurstaðan að hann var
einum vinningi hærri en Korch-
noi og hafði fimm vinninga en
Korchnoi fjóra og tuttugu skák-
ir hafa orðið jafntefli.
Þessi 29. skák reyndist því
hinn mesti sigur fyrir áskorand-
ann, Korchnoi, og hefur hann nú
unnið tvær skákir í röð ög sýnt
að hann er sannkallaður
meistari í endatafli. Það er og
merkilegt að honum skuli takast
þetta þegar haft er í huga að
hann þjáist af slæmum sólbruna
og kvefi og er vissulega glæstur
vitnisburður um þol og líkams-
hreysti hans, sem er rösklega 20
árum eldri en keppinauturinn. Á
hinn bóginn er ekki að neita að
frammistaða heimsmeistarans
Karpovs hefur valdið miklum
vonbrigðum og svo virðist sem
það sé fremur hann sem er
þreyttur en ekki áskorandinn.
Nú hefur einvígið staðið yfir í
áttatíu daga og þegar 30. skákin
verður leikin á morgun, þriðju-
dag, mun einvígið hafa náð því
að verða næst lengsta keppni
slíkrar gerðar á þessari öld, en
fram til þessa hefur einvígið
1935 milli Alekhines og Euwes
verið næstlengsta. Og ekki er
óhugsandi að heimsmeistaraein-
vígið á Filippseyjum nú verði
lengra en keppnin milli þeirra
Alekhine og Capablanca árið
1927 en þeir tefldu 34 skákir.
Augljóst er af öllu að Sovét-
menn eru kvíðnir vegna þeirrar
stöðu sem upp er komin í
einvíginu og hafa nú sent
liðsauka til Karpovsendinefnd-
arinnar sem ætlað er að aðstoöa
hann tæknilega og ekki síður
siðferðilega og stappa í hann
stálinu. Hefur til þess síðara nú
komið á vettvang hinn frægi
geimfari Vitaly Sebastianov
sem er forseti Sovézka skáksam-
bandsins. Hann þykir hinn
mesti sómamaður, hógvær og af
hjarta lítillátur og þó hreinskil-
inn og auk þess eins og skák-
sambandsforseta sæmir hefur
hann nokkuð gott vit á skák.
Með Sebastianov kom stór-
meistarinn Evgeny Vasiukov
sem nýlega vann til fvrstu
verðlauna á alþjóðaskákmóti í
Nýju-Delhi og skákaði þar
filippínska stórmeistaranum
Torre. Augljóst er að Vasiukov
er ætlað að veita aðstoð við að
ránnsaka biðskákirnar og hann
gaf mér það reyndar í skyn
þegar við ræddum hér saman í
gær.