Morgunblaðið - 10.10.1978, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.10.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1978 7 Kommúnismi og kristin trú Þaö kemur ekki á óvart, Þegar Þjóðviljinn agnúast út í kristna trú eóa boóendur hennar. Þvílíkt ber alltaf viö ann- að slagið og nú hina síðustu daga alveg sór- staklega. Tilefnið var Það, aö efnt var til sam- komu I Neskirkju, Þar sem hlýtt var i predikar- ann heimskunna, Billy Graham, af myndsegul- bandi. Fjölmargir lögðu leiö sína Þangað. Þar á meöal var blaðamaður Þjóðviljans, eins og ósmekklegar lýsíngar hans af Þessari samkomu sýna. Enginn getur búizt við Því, að honum falli öll útlegging Biblíunnar. Enda er trúarÞörfin mis- munandi og fer eftir persónugerð og lífs- reynslu ekki sízt. Þannig dýrkar einn guð sinn i hljóði og einveru, annar á samkomum eins og í Neskirkju. Fyrir báöum Þessum mönnum er guðsdýrkunin helgidóm- ur, af Því að peir eru einlssgir í sinni trú. Eitt af Því, sem börnum hefur lengi verið kennt á íslandi, er Það, að bera virðingu fyrir trú annarra, láta fólk í friði meö trú sína. Og almennt gera menn Það, eru svo borg- aralega Þenkjandi, svo að notazt sé við marxískt tungutak. En Þjóðviljamenn eru hér sér á báti sem víðar og kunna illa umburðar- lyndi íslendinga fyrir trú- arbrögöum. Einkanlega virðist Þeim uppsigað við kristna trú. Kannski vegna Þess, að dýrkun kommúnismans svipar að ýmsu leyti fremur til afguöadýrkunar en hins, að unnt sé að líta á hana sem stjórnmálaskoðun. Dansinn í kringum mammon Allir pekkja úr Biblíunni gullkálfinn og dansinn í kringum hann. Eins og sönn dæmisaga er hún sífellt að endur- taka sig í óteljandi til- brigðum. í mörgum Þeirra er stefiö úr fræð- um Marx. Á Því er söngl- að sýknt og heilagt, að í hinu marxítíska ríki, par sem sóvézkir búskapar- hættir eru ráöandi, purfi enginn að vinna fremur en hann langar til. Hins vegar fái hann pað, sem hann Þarfnast, upp í hendurnar. Forystugreinar Þjóð- viljans hafa verið af Þessu tagi upp á síðkast- ið og meðal annars blandazt inn í Þær fyrir- litning á vinnunni og hinum almenna borgara, aö ógleymdum trúar- brögðunum: „ ...en í raun er öll hans aðferð við Það miðuð, aö Meðal- jóninn geti kastað sér í laug hefðbundins vakn- ingakristindóms án Þss að hverfa frá kjötkötlun- um eða breyta svo nokkru nemi lífsstíl vel- megandi smáborgara," segir Þar. Andúðin á kristinni trú leynir sér ekki, enda af sama toga og austan við járnmúrinn, Þangað sem viðkomandi blaöamaður sækir sínar fyrirmyndir, sína sterku menn, „sem kippa málunum í lag“. Og vitaskuld er öfundin undirtónninn. „Lífsstíll velmegandi smáborgara“ er óskilgreindur, en ætl- að að gefa lesendum Það til kynna að aðrir hafi Það betra en hann, Þ.e. í „auðvaldsríkjunum", pví að vitaskuld drýpur smjör af hverju strái í löndum sósíalismans. Gera hosur sínar grænar „Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og Þjóðfrelsis" er sá langi titill, sem blaðamenn Þjóðviljans kafna undir á hverjum degi. Ekki sízt, Þegar Þeir eru aö gera hosur sínar grænar fyrir verkalýðnum í landinu. Þannig minnast menn Þess, Þegar skrifað var um „samningana í gildi“ fyrr á Þessu ári. Þá var rétturinn til að semja um kaup sin og kjör heilagur; ekki kom til mála, að ríkisvaldið gæti gripið par inn (. Nú ver petta sama „málgagn verkalýðs- hreyfingarinnar“ löngum dálkum undir varnarskrif Þess efnis, að út af tyrir sig geti Þaö verió til hagsbóta fyrir verkalýðs- hreyfinguna aö gengið sé á kjarasamninga, svo sem ríkisstjórnin hefur gert. Það er annað Jón og séra Jón. Þetta er afsakað með Því, aö um sé að ræða „aðgerðir af opinberri hálfu til aukningar sam- neyzlu eða til ýmiss kon- ar félagslegra umbóta“ og Því síðan bætt við, að „Þaö væri árás á verka- lýðshreyfinguna í landinu að leggja nú til atlögu gegn félagslegum um- svifum hins opinbera. Þess skyldu menn minn- ast í sambandi við tog- streitu stjórnarflokkanna um gerð f járlaga“. Ekki dylst neinum, hvað hér hangir á spýt- unni. Annars vegar má vænta pess, að frekari afskipti stjórnvalda af kjarasamningum séu í deiglunní. Hins vegar á að Þyngja skattaálögur undir Því yfirskini, að Það sé „til félagslegra um- bóta“. Það er býsna teygjanlegt hugtak og sígild afsökun peirra stjórnmálamanna, sem hafa Það að sérstakri hugsjón aö vera með nefið ofan í hvers manns koppi. Skýrust kemur mann- fyrirlitning Þjóðvilja- manna Þó fram, Þegar Þeir taka að tala um „Meðaljón". Eða hver skyldi Það vera nema hinn venjulegi launamaö- ur, Þessi Jón eða Þessi Guðrún sem vinnur í frystihúsinu eða kaupté- laginu? Það er „lífsstíll" Þessa fólks, sem hvít- flibba-kommarnir gjöra oftast gys að á síðum Þjóðviljans, ef grannt er skoöað, sbr. tilvitnun hér 'áður. Hægara pælt en kýlt eftir Magneu Matthíasdóttur Hægara pælt en kýlt gerist annars vegar í heimi ævintýranna, hins vegar í heimi eiturlyfjanna. i ævintýraheiminum er háð barátta upp á líf og dauöa, í heimi eiturlyfjanna virðist ríkja ró sálariífsins, en varla nema á yfirboröínu — því aö óttinn er einnig áhrifamikill þar. Þessir tveir heimar snertást aila söguna í gegn, renna jafnvel aö einhverju leyti saman. Hvar fáum viö — venjulegir lesendur — fest hendur? Alls staöar, því að viö komurrtst aö því aö hér er engu ööru lyst en veruleikanum sjálfum. Sagan er fyrsta skáldsaga kornungs hofundar og þó ber hún öll merki þjálfunar og reynslu bæöi aö því er snertir efnistök, persónulýsingar og meöferð málsins. Er ekkí vafi á því aö hér eftir verður beöið meö óþreyju eftir hverrí nýrri bók frá Magneu Matthíasdóttur. Magnea sendi frá sér Ijóöabókina Kopar áriö 1976 og hefur ritaö barnasögur fyrir útvarpið. Almenna bökafclagið Austurstræti 16 — Sfmí 19707 Skemmuvogi 36, Kópavogi — Sími 73055. GROHE = VATN + VELLfÐAN GROHE Grohe blöndunartækin eru þekkt fyrir tæknilega hönnun, fallegt utlit og goöa endingu Vinsældum Grohe blöndunartækjanna er ekki sist aö þakka ..hjartanu" . Já Grohe hefur hjarta, en svo köllum viö spindilinn sem allt byggist á. Eini spindillinn sem er sjálf- smyrjandi. auk þess sem vatniö leikur ekki um viökvæmustu staöina eins og á öörum spindlum Þetta gefur Grohe tækjunum þessa miklu endingu og lettleika sem allir sækjast eftir. Urval blöndunartækja er mikiö og allir finna eitthvaö viö sitt hæfi. Þiö eruö örugg meö Grohe - öll tæki meö 1 árs abyrgö. og mjög fullkominn varahlutaþjónusta. RR BYGGINGAVÖKUR HE SUÐURLANDSBRAUT 4. S(MI 33331. (H. BEN. HÚSIÐ) 8 dagar 21.10—28.10 Dvaliö i Hotel Mandevílle, Y-Hotel og Alans Guest House. Þá viku veröa mjög margir leikir í 1. deildinni ensku. háöir í London og nágrenni. Má Þar m.a. nefna leiki milli Arsenal og Southampton QPR og Everton West Ham og Stoke. Annars veröur ferö til London alltaf ævintýraferð, pví par er aö finna fjölbreytt næturlíf, tónlist og sýning- ar, margs konar ráðstefnur, ípróttir, verslanir og margt fleira. Verö frá kr. 88.700. En sjón er sögu ríkari. Því ekki aó koma meö til London.7 j Ferðamiðstöðin hf. f Aðaistræti 9 — Símar 11255 - 12940

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.