Morgunblaðið - 10.10.1978, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.10.1978, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1978 12 skákmenn mættu il leiks i Munaðarnesi — þegar 3 fyrstu umferðir deildakeppninnar fóru þar fram um helgina SKÁKLISTIN réð ríkjum í Munaðarnesi um helgina. Þar voru staddir 112 skákmenn víðs vegar að af Iandinu og sátu þoir að tafli bæði á laugardag og sunnudag. Skáksamband Islands gerði þarna tilraun til þess að koma deildarkeppni sambandsins myndarlega af stað. Allar þátttökusveitirnar voru mættar til leiks og voru þrjár fyrstu umferðir keppninnar tefldar. Þótti þessi tilraun takast vel og er stefnt að því að hafa sama hátt á í framtíðinni. Morgunblaðsmenn brugðu sér upp í Munaðarnes á sunnudaginn og fylgdust dag- part með því sem fram fór. Þriðja umferöin var í fullum gangi og var teflt af kappi. Aðstaða er ágæt í^Munaðar- nesi til svona mótshalds. Keppendur búa í sumarhús- um BSRB en tefla í matskála bandalagsins. Það sem helst „Keppnin hefur að mínu mati farið mjög vel fram. Aðstaða til dvalar er hér einstaklega skemmtileg og það er ágætt að tefla hér í salnum enda þótt segja megi að hér sé full þröngt. Tilgangurinn með þessu er tvíþættur. í fyrsta lagi að gefa skákmönnum víðs vegar að af landinu tækifæri til þess að hittast á nesi eða annars staðar á landinu. Það er enginn vafi á því, að þetta fyrirkomulag gefur mótinu skemmtilegri blæ en ella hefði orðið.“ Alls voru 16 sveitir mættar til leiks, 8 keppa í 1. deild og 8 í 2. deild. Hafa þær allar lokið við fyrstu 3 umferðirn- ar en seinni 4 umferðirnar verða tefldar í vetur, sú síðasta í apríl. Nokkuð bar á því í Munaðarnesi að sveit- irnar gætu ekki mætt með sína sterkustu menn, þar sem þeir áttu ekki heimangengt. Eftir 3 fyrstu umferðirnar hefur Taflfélag Reykjavíkur tekið örugga forystu í 1. deild en Seltjarnarnes og Suður- land standa bezt að vígi í 2. deild. (Jrslit í 1. deild. 1. UMFERÐ: Hafnarfj. — Hreyfill Ekki voru þeir allir háir í loftinu sumir skákkapparnir. Þessi tefldi á 1. borði B-sveitar TR. 4 '/2:3 ‘/2 Taflf. Rvíkur — Akureyri 5 :3 Keflavík — Kópavogur 4'/2:3‘/2 Mjölnir — Austfirðir 7 :1 2. UMFERÐ: Kópavogur — Hreyfil! 4'/2:3V2 Taflf. Rvíkur — Keflavík 6 :2 Akureyri — Austfirðir 5 :3 Kópavogur — Hreyfill 4'/2:3'/2 Hafnarfj. — Mjölnir 5 :3 3. UMFERÐ: Kópavogur — Hafnarfj. 4'/2:3!4 Taflf. Rvíkur — Hreyfill 7'k: 'k Guðlaug Þorsteinsdóttir var eina konan, sem keppti í mótinu eftir því sem blm. veit bezt. Hún tefldi fyrir Mjölni. Svipmynd frá viðureign Mjölnis og Akureyringa. Ljósm. Mbl. Emelía. mátti finna að var að heldur var þröngt um skákmennina í matsalnum þegar allar sveit- irnar sátu að tafli í einu. í skáksalnum hittum við Einar S. Einarsson forseta Skáksambands íslands að máli og inntum hann eftir því hvernig skákhelgin í Munaðarnesi hefði heppnast: einum stað og gefa þannig keppninni skemmtilegri blæ en ella og í öðru lagi er þetta hagkvæmt fyrir alla aðila. Mér hefur skilist á mönnum að þeir séu almennt ánægðir með þetta fyrirkomulag og vonandi getum við haft þenn- an hátt á í framtíðinni hvort sem við hittumst í Munaðar- Vel lukkað og skemmti- legt mót Þorkotill Sigurðsson. Ilorna- firði. Okkur í Austfjarðasveitinni hefur gengið hálfilla enda vantar tvo beztu mennina í liðið okkar, þá Trausta Björns- son skólastjóra á Eskifirði og Þorstein Skúlason bæjarfógeta á Neskaupstað. Þeir komust ekki hingað vegna anna. Ég held að þessi deildakeppni leysist ekki nema hafa hana svona á einum stað, hitt væri of mikill kostnaður. Við Hornfirð- ingarnir þurfum að ferðast 1300 km til þess að komast þetta fram og aftur en við sjáum ekki eftir því ferðalagi því þetta hefur verið vel lukkað og mjög skemmtilegt. Skáklíf á Austurlandi er vaxandi og er það mest að þakka Trausta Björnssyni, sem er mjög dríf- andi maður. Skákáhugi fer mjög vaxandi þar sem ég bý á Hornafirði og munar mestu um að skákin er nú komin inn í skólana. Helsta áhyggjuefnið er það, að fáir menn fást til þess að veita taflfélaginu for- ystu og hef ég því orðið að vera formaður, miklu lengur en ég hafði ætlað mér. Þetta er iíklega alls staðar eins, svona var þetta a.m.k. í Ólafsvík þegar ég var þar. .... Deilda- keppnin mjog þorf Albert Sigurðsson. Akur- eyri. Við Norðlendingar teflum fram einni sveit og hefur okkur gengið alveg ágætlega, betur en við áttum von á. Við höfum þó ekki okkar sterkustu sveit hérna, m.a. vantar Halldór Jónsson í sveitina. Það hefur verið ákaflega ánægjulegt að vera hér í Munaðarnesi og framkvæmd keppninnar hefur tekizt vel að mínu mati. Einnig hefur þetta verið gagnlegt fyrir mig sem formann Skáksam- bands Norðlendinga að fá tækifæri til þess að hitta hér að máli forystumenn í öðrum skáksamböndum. Það er heldur að lifna yfir skákáhuga á Norðurlandi en mestur er áhuginn á Akureyri og í Eyja- firði. A Húsavík er búið að endurvekja taflfélagið og er skákin í sókn þar. Ég vil að lokum segja það að deilda- keppnin er að mínu mati ákaflega þörf keppni, hún gefur okkur tækifæri til þess að hitta skákmenn víðs vegar um landið og maður fær nýjar hugmyndir við það að taka þátt í svona keppni. Vaxandi skákáhugi á Vestíjörðum Valdimar Gíslason. Dýra- firði. Við Vestfirðingar sendum eina sveit til leiks í 2. deild og hefur okkur gengið bærilega, erum með 11 vinninga eftir 3 fyrstu umferðirnar. Mótið hér í Munaðarnesi hefur heppnast vel og framkvæmdin verið góð. Þessi deildakeppni hefur marga góða kosti og þann helst að þarna fáum við tækifæri til þess að tefla við sterkari menn en venjulegt er. Því miður getum við ekki teflt fram okkar sterkasta liði að þessu sinni, það vantar tvo sterka menn, m.a. Sigurð Ólafsson, sem er Vestfjarðameistari. Það hefur að mínu mati marga kosti að tefla svona á einum stað fyrstu umferðirnar en heppilegra hefði verið að tefla í Reykjavík því það er þó nokkurt viðbótar- ferðalag fyrir okkur Vestfirð- inga að fljúga tii Reykjavíkur og þurfa síðan að fara í bíl upp í Borgarfjörð. Skákáhugi er töluvert mikill á Vestfjörðum, mestur í Bolungarvík, en í Núpsskóla, þar sem ég kenni fer áhugi á skák vaxandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.