Morgunblaðið - 10.10.1978, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 10.10.1978, Blaðsíða 42
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1978 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1978 23 FRAM OG VALUR I ÚR- SLIT REYKJAVÍKURMÓTS ENN IIAFA ekki fengist úrslit í Reykjavíkurmótinu í körfuknattleik, en síöasta umferð mótsins var leikin á sunnudaginn. Voru þá þrír leikir á dagskrá. Mesta athygli vakti að Fram og Valur unnu sína leiki og urðu því efst og jöfn með 8 stig. Leika þau til úrslita í kvöld í Laugardalshöllinni klukkan 20.00. En víkjum nú að leikjum helgarinnar. Fram - IS 116-102 (54—41) Leikurinn var jafn í upphafi, en Framarar, sem allan leikinn virtust sterkari aðilinn, náðu góðu forskoti um miðjan fyrri fialfleik, sem stúdentum tókst aldrei að ógna. Leikur þessi einkenndist þó mest af óöryggi stúdenta og verða þeir aldeilis að taka sig saman í andlitinu ef þeir ætla sér að vinna KR-inga í íslandsmótinu um næstu helgi. Framarar geta þakkað þjálf- ara sínum og leikmanni John Johnson, þær framfarir sem þeir hafa tekið. Johnson dreif þá áfram í vörninni og skoraði sjalfur 57 stig í leiknum. Heyrðist á sumum Frömurum að þeim ofbyði kröfuharka Johnsons, en óhætt er þó að fullyrða að Framarar hafa nú Glentoran dæmt AGANEF'ND UEFA hefur dæmt norður-frska liðið Glentoran í sekt. sem nemur 740.000 íslenskra króna. í kjölfarið á óeirðum er brutust út meðal áhorfenda að loknum leik Glentoran og Vestmannaeyja, í UEFA-keppninni fyrir skömmu. Eins og menn rekur eflaust minni til. tókst nokkrum æstum smátöffurum að ná til leikmannanna áður en þeir hurfu af leikvellinum. Sló einn þeirra Friðfinn Finnbogason í höfuðið með lítilli flaggstöng við það tækifæri og var það rothögg. Ekki varð þó Friðfinni frekar meint af högginu, en nú verður knattspyrnufélagið Glentoran að gjalda fyrir fávitana í áhorfendastæðunum. Landinn rak lestina ÍSLENSKA landsliðið í blaki reið ekki feitum hesti frá NM sem fram fór í Danmörku um helgina. íslendingar höfnuðu í 5. og síðasta sætinu, unnu ekki eina hrinu, töpuðu öllum leikjum sínum með núlli. Finnar unnu mótið eins og vænta mátti, Svíar urðu í 2. sæti. Danir í þriðja, Norðmcnn í fjórða og loks íslendingar. Rangur skilningur, staðlaus í síðasta þriðjudagsblaði Morgunblaðsins birtist á íþrótta- síðu grein frá stjórn Handknatt- leiksdeildar Þórs á Akureyri um kæru Handknattleiksdeildar Breiðabliks vegna seinni leiks þessara félaga umsæti í 2. deild, sem fram fór á Akureyri 4. maí s.l., og málsmeðferð og dóm dómstóls H.S.Í. En leikur þessi var dæmdur ógildur, svo að nýr leikur verður nú að fara fram. Um dómaramál og málsmeðferð dómstóls H.S.I. höfum við tjáð okkar skoðanir á hliðstæðum vettvangi áður. Og raunar sýnist svo, að allir séu sammála um það, að ekki hafi tekist að koma þessum málefnum handknattleiksins í eðlilegt horf. Þar þurfi að bæta um betur og það stórlega og strax. En grein Þórs snérist ekki aðeins um þetta. I henni gera höfundarnir óvænta atlögu að íþróttaheiðri Breiðabliks, sem óhjákvæmilegt er að ansa, þótt leitt verkefni sé. Alger misskilningur Fyrst verður þó að víkja að því, að í grein Þórs kemur fram sá algeri misskilningur, að kæra okkar hafi verið gegn Þór, eins og sagt er berum orðum í greininni: . . . „Það hefði því ekki verið til mikils mælst að Þór fengi að leggja orð í belg, því málið var höfðað gegn Þór.“ Það var auðvitað deginum ljós- ara frá upphafi, að það var framkvæmd leiksins, sem kærð var, en hún var í höndum H.S.I. Þetta mál var því alls ekki höfðað gegn Þór, heldur H.S.Í. AUar bollaleggingar í grein Þórs, sem byggjast á þessum algera mis- skilningi þeifra, falla þannig um sjálfar sig. Gersamlega staðlaus ásökun Þessi framangreindi mis- skilningur er afsakanlegur, þótt hann sé annars næstum óskiljan- legur. Hinu þykir okkur þyngri þraut að kyngja, þegar við erum í grein þessari ásakaðir um óheiðar- lega framkomu gagnvart Þór, bornir þeim sökum að hafa fyrir umræddan leik samþykkt dómar- ann, sem kæran síðan spratt af, og þetta jafnvel fullyrt með stuðningi af sögu þar um og að viðlögðum drengskap stjórnar Handknatt- leiksdeildar Þórs, sem ritar grein- ina. Þetta er svo gersamlega stað- laus ásökun, að engu tali tekur, og sagan þar um tilbúningur frá rótum. Nákvæmlega ekki neitt kom fram fyrir þennan leik, sem kallaði á efa um að skipan dómaramálanna væri með eðlileg- um hætti, enda höfðum við ítrekað fyrir ferðina norður óskað eftir því við þáverandi framkvæmdastjóra H.S.I., að vandað yrði til dóm- gæslu, og á leikstað fyrir leikinn var ekki vikið einu orði að því við okkur að ekki væri allt með feildu. Sagan í grein Þórs um hið gagnstæða er skáldsaga, sem við vonum að greinarhöfundar þeirra séu ekki sjálfir höfundar að. Nógu bölvað er að leggja drengskap sinn við slíkan söguburð, þótt sagan sé ekki líka heimabökuð. Það væri hægt að skýra þetta • Ármenningar og ÍR-ingar riðu ekki feitum hesti frá Reykjavíkur- mótinu í körfuknattleik. En bæði liðin eiga þó leikmenn, sem eiga framtíðina fyrir sér. Tveir þeirra sjást hér að ofan, þeir Jón Steingrímsson Ármanni og Stefán Kristjánsson IR. mál allt lið fyrir lið og nefna þar til fjölmörg nöfn, svo að ljóst mætti verða, að engar líkur gátu legið til þess að við samþykktum eða hefðum samþykkt hinn ólög- mæta dómara. Það er hins vegar efni í lengra mál en ástæða er til að hafa um þetta hér að sinni. Enda er sjálfsagt að óska eftir því fyrst, að undirritaður, sem skrifar þessar athugasemdir fyrir hönd Handknattleiksdeildar Breiðabliks og var jafnframt ábyrgðarmaður deildarinnar í umræddum leik, að ég fái að sjá framan í þann, sem vill standa við söguna um sam- þykki mitt eða einhvers okkar við dómgæslu hins ólögmæta dómara. Það hlýtur að vera merkur maður, en þó af öðrum toga en ég hef hingað til kynnst á Akureyri. Sá hinn sami á ef til vill eftir að reyna að sannfæra mig og aðra um að hvorki ég né aðrir úr Breiðablik hafi verið á staðnum, heldur einhverjir allt aðrir. Það væri álíka gáfulegt. Heiðarlegt og réttlátt En enda þótt svo hrapallega hafi til tekist af hálfu Þórs að blanda skáldsagnagerð í þetta mál allt, sem var þó nógu leitt fyrir, og þannig orðið til þess að vega að íþróttaheiðri okkar, nennum við með engu móti að reiðast því. Við erum fyrst og fremst undrandi, og þar til annað kemur í ljós ætlum við að líta á söguburð og dreng- skaparheit Þórsara þar um sem mistök, að vísu alvarleg mistök í íþróttasamskiptum okkar og innan handknattleiksstarfsins almennt. Nei, við áttum í allan fyrravetur undir högg að sækja, að fá notið heiðarlegrar og réttlátrar þátt- töku í íslandsmóti fyrir þann keppnisflokk, sem mætti Þórsur- um á Akureyri 4. maí sl. Agnúarn- ir í því sambandi voru orðnir okkur allt of kunnir til þess okkur hefði til hugar komið, að fara að hampa þeim. Við höfðum þvert á móti gert ráðstafanir til þess, að þeir skytu ekki upp kollinum þarna enn á ný. Og að ætla okkur þá ósvinnu, eftir allt, sem á undan var gengið, að við yrðum síðan til þess að beita fláttskap og sækja rétt með röngu, er of langt gengið. Það sem vakti fyrir okkur með kæru okkar út af umræddum leik, var það eitt, að láta ekki enn einu sinni fara með okkur eins og ómerkinga, einmitt það. Enda er ljóst, að í leik af þessu tagi, um deildarsæti, hefði slík framkvæmd aldrei komið til greina, sem þarna varð raunin á, ef t.d. hefði verið keppt um 1. deildarsæti. Það getur hver maður hengt sig upp á. Og við eigum einfaldlega sama rétt og vildum standa á því. Hitt er svo annað mál, að eins og leikurinn var framkvæmdur, gat hann til viðbótar við ólöglegan dómara aldrei skorið réttlátlega úr um það, hvort liðið væri betra í þessum leik. Því að hinn ólögmæti dómari var einnig óhæfur með öllu til starfsins, og það svo, að dómgæslan í heild var í algerum molum, sem nefna mætti um hin furðulegustu dæmi. Þetta er þó ekki sagt viðkomandi dómurum til lasts, sem persónum, þeir hafa efalaust gert sitt besta við erfiðar aðstæður, sem annar þeirra réði ekkert við af hreinu þekkingar- leysi um verkefni sitt. Hann á einfaldlega eftir að afla sér þeirrar þekkingar, sem lög gera ráð fyrir. Og enginn þarf að halda að reglur um dómara, þekkingu þeirra, reynslu og aldur til mis- jafnlega erfiðra verkefna, séu settar hreint út í bláinn. Þetta mál staðfesti einmitt að svo er ekki. Þessar reglur á að halda en ekki hundsa, sem og aðrar grundvallar- reglur í skipulegu handknattleiks- starfi. Fh. Handknattleiksdeildar Breiðabliks, Herbert Guðmundsson, formaður. fengið þann leikmann, sem lyftir þeim upp úr meðal- mennskunni og yfir slíku er ekki hægt að kvarta. Þótt Johnson sé lofsunginn, þá eiga Framarar allir hrós skilið og þá sérstaklega Símon Ólafsson, sem skoraði 32 stig og gerði Dirk Dunbar lífið leitt í vörninni. Dunbar var langbestur stúd- enta og skoraði 47 stig þrátt fyrir að Símon gætti hans mjög vel. Sýnir það e.t.v. best hvað maðurinn getur. Næstur Dunbar kom svo Jón Héðins- son með 12. stig. Valur - KR 89-85 (44-40) Leikur þessi fór mjög rólega af stað og virtist sem leikmenn beggja liða væru í hinu besta sunnudagsskapi. Liðin skoruðu jafnt á báða bóga. Aðeins 4 stig skildu liðin í fialfleik. Valsmönnum í vil, og þegar upp var staðið var munurinn enn sá sami. Körfuknattleikur- inn, sem leikinn var í þessum leik, var hinn ágætasti, en það var ekki fyrr en í lok leiksins að örlaði á þeirri baráttu, sem einkennt hefur leik liðanna áður. KR-ingar hafa e.t.v. eytt allri sinni baráttu í seinni hálfleiknum gegn Fram á dögunum, en einnig virkar liðið þyngra en í fyrra. Vals- menn hins vegar hafa nú breytt talsvert um leikstíl með tilkomu Tim Dwyers og reynir URSLITALEIK- URINN í KVÚLD í KVÖLD klukkan 20.00 leika saman í Laufrardalshöll Fram og Valur. en eins og fram kemur annars staðar í blaðinu urðu liðin efst og jöfn í Reykjavíkurmótinu í körfuknattleik. HvoruKU liðanna hefur áður tekist að vinna þetta mót þannÍK að til mikils er að vinna. Við höfðum samband við John Johnson þjálfara Fram og var honum sama hverjum Framarar mættu í úrslitunum, en kvaðst helst hafa viljað hefna sín á KR-ingom. Hins vegar ætluðu Framarar að sigra í þessum úrslitaleik, sem yrði vafalaust mjög spennandi. Leikur I'ram og Vals í Reykjavíkurmótinu lyktaði með 10 stiga sigri Framara, 81—71, en segja má að Valsmenn hafi þá vart verið búnir að ná sér eftir hina óvæntu burtför Hockenosar. Nú tefla Valsmenn fram Tim nokkrum Dwyer og er óhætt að segja að munurinn í leikslok verður ekki 10 stig á hvorn veginn sem leikurinn fer. • Valsmenn hafa nú tryggt sér aukaleik gegn Frömurum í Reykjavíkurmótinu. Á myndinni sést Tim Dwyer renna sér í gegnum vörn KR-inga, en John Hudson reynir án árangurs að fiska boltann af honum. (Ljósm. gíg). nú meir á liðið í heild en áður. Ekki er annað að sjá að þessi aukna pressa falli Valsmönn- um vel í geð, því að langt er síðan þeir lögðu KR að velli síðast. Bestir Valsmanna voru þeir Tim Dwyer og Kristján Ágústsson. Tim, sem e.t.v. er enginn stjörnuleikmaður, fell- ur vel inn í Valsliðið og skoraði 24 stig. Kristján skoraði 18 stig af sinni einstöku harðfylgni. KR-ingar hafa oft leikið af meiri sannfæringu en í þessum leik og e.t.v. var það aðeins vegna þess að Valsmenn leyfðu þeim ekki að leika betu En það er víst, að liðin eiga eftir að reita stigin hvort af öðru í íslandsmótinu, þannig að þetta er aðeins forleikurinn. Stiga- hæstir KR-inga voru Jón Sig- urðsson og John Hudson ÍR—Ármann 81-74 (36-28) Þetta var án efa slakasti leikur dagsins enda ekkert í húfi fyrir liðin. Ármenningar léku án Stew. Johnsons, en Ir-ingar voru með sitt sterk- asta lið. Þrátt fyrir það tókst þeim aldrei að losna almenni- lega við Ármenninga heldur leiddu Ieikinn með 6 til 14 stiga mun. ÍR-ingar virðast einhvern veginn ekki nógu sannfærandi, en slíkt breytist vonandi þegar Islandsmótið hefst. Vantar helst baráttu í liðið og þann sigurvilja, sem prýddi liðið hér á árum áður. Bestir ÍR-inga voru þeir Paul Stewart, sem skoraði 31 stig og Kristinn Jörundsson, sem skoraði 14 stig. Bestir Ármenninga voru Hallgrímur „prúði“ Gunnars- son, sem skoraði 16 stig og Guðmundur Sigurðsson, sem skoraði 12 stig, en einnig var Atli Arason sprækur, þótt oft hafi hann verið betri. gíg. STAÐANOG STIGAHÆSTU Fram 5 4 I 474- Valur 5 4 1 421- KR 5 3 2 423- ÍS Ármann 5 2 3 461- 5 1 4 447—' ÍR 5 1 4 419- 115 6 stig 160 1 stig 2 stig 2 stig Aths: Ka'rumál stúdonta gogn Armonningum or onn óútkljáð. Stigahæstu monm Dirk Dunbar ÍS 211 stig John Johnson Fram 210 stig Paul Stewart ÍR 166 stig Stew Johnson Árm. 164 stig John Hudson KR 147 stig Víkingur og Valur unnu létt REYKJAVÍKURMÓTIÐ í hand- knattloik var f fullum gangi um helgina. Á laugardag voru leiknir fjórir leikir í meistaraflokki karla. Þróttur sigraði Fylki 20—17, Vík- ingur vann yfirburðasigur á slöku liði ÍR-inga 26—17. Og Armenning- ar lögðu lið Leiknis af velli með tíu marka mun, 26—16. Var lið Leiknis mjög slakt og ætti að sjá sóma sinn í því að taka iþróttina alvarlegar en þeir gera. Síðasti leikurinn á laugardaginn var á milli KR og Fram. Réð hann úrslitum um hvort liðið léki í úrslitakeppninni um fjögur efstu sætin í mótinu. Var leikur KR og Fram nokkuð góður á köflum og líflegur. KR-ingar höfðu yfir í leikhléi 15—11, og héldu forystunni út leikinn og sigruðu Fram með 28 mörkum gegn 22. Sigurinn tryggði þeim þátttöku í lokakeppninni ásamt Víkingi, Val og Ármanni. Úrslitakeppni fjögurra efstu lið- anna hófst á mánudagskvöldið er það nýmæli í Reykjavíkurmóti að leikið sé um efstu sætin með þessu fyrirkomulagi. Fyrri leikurinn á sunnudag var milli Víkings og Ármanns en hinn síðari milli KR og Vals. Víkingur — Ármann 25-18(13-7) Víkingar voru ekki í vandræðum með að vinna góðan sigur á Ármanni. Sigruðu þeir með sjö marka mun, 25—18. Staðan í leikhléi var 13—7. Það er greini- legt að hinn pólski þjálfari hjá Víkingi er að gera mjög góða hluti • Páll Björgvinsson er í góðri aefingu um þessar mundir. Ilann átti góðan leik á móti Ármann og skoraði átta mörk. með liðið. Allir léikmenn virðast vera í mjög góðri líkamsæfingu, og draga hvergi af sér í leiknum. Þá hefur hann lagt ríka áherslu á hröð upphlaup og tókust þau mjög vel hjá Víkingi í þessum leik. Er allt annað að sjá lið vera jafn fljót í sóknina eins og Víkingar voru í leiknum við Ármann. Þau voru og ekki ófá skiptin sem þeir skoruðu úr hraðaupphlaupum og komu vörn Ármanns úr jafnvægi. Þá notuðu Víkingar breidd vallarins vel í leiknum og skoruðu lagleg mörk úr hornunum og lika af línunni. Að vísu var veikasti hlekkur Ármenninga í þessum leik vörnin og því fengu Víkingar oft . stórar glufur tii að skjóta gegnum. Vantaði allan kraft og baráttu í vörn Ármanns. Sóknarleikur Á- rmenninga var allþokkalegur í leiknum en þó voru leikmenn full bráðir í skotum, sóknirnar hefðu mátt standa lengur. Bestu menn Ármenninga í leiknum voru þeir Björn Jóhannsson og Pétur Ingólfsson. I liði Víkings átti Páll Björg- vinsson góðan leik og Kristján í markinu var ágætur í fyrri hálf- leiknum. Einnig komu þeir vel frá leiknum Viggó, Árni og Ólafur Jónsson. Mörk Víkinvs. Páll BjörxvinKson 7, Olafur Jónsson 5. Erlendur Hermannsson 4, Víkbó Sigurflsson 3, Árni Indriðason 3. Skarphéðinn Óskarsson 2. Steinar Tómas- son 1. Mörk Ármanns, Björn Jóhannsson 8, Pétur InKÓIfsson 4, Einar Þór 2, Friðrik Jóhannsson 2, Grétar Árnason 1, Ragnar Gfslason 1. Valur - KR 23-18(10-12) KR-ingar komu mjög á óvart í • Valsmaðurinn Þorbjörn Jensson kemur á fullri ferð á KR vörnina. byrjun leiks síns á móti Val. Var mikill kraftur í varnarleik þeirra og í sóknarleiknum skoruðu þeir hvert markið öðru fallegra. Náðu þeir í upphafi forystu og héldu henni út fyrri hálfleikinn. Höfðu tvö mörk yfir í leikhléi 12 gegn 10. I fyrri hálfleiknum átti Björn Pétursson góðan leik og skoraði mörg mörk með erfiðum undir- skotum gegnum vörn Vals. Vals- liðið var seint í gang, og léku fyrri hálfleikinn undir getu. I síðari hálfleiknum var ekki eins mikil stemmning í leik KR og Valsmenn létu nú meira að sér kveða. Á 20. mínútu síðari hálf- leiksins ná þeir að jafna metin, 13 mörk gegn 13. Og eftir það gáfu þeir aldrei neitt eftir og sigruðu með 23 mörkum gegn 18. Kom vel í ljós í síðari hálfleiknum hvort liðið hafði yfir meiri reynslu að ráða. Það keniur oft fyrir hiö ágæta lið KR að bötninn dettur úr leik þess. Erfitt er að gera upp á milii leikmanna í liði Vals, liðið getur mun meira en það sýndi í þessum leik. Þorbjörn Guðmundsson sýndi góðan leik og skoraði grimmt með þrumuskotum langt utan af velli. I lok leiksins var Jóni Pétri Jónssyni vísað af leikvelli og fær eins leiks bann fyrir grófa framkomu að mati dómara leiksins. Þess má geta, að dómgæsla í báðum leikj- um kvöldsins var slök. Mörk Valsi borbjörn Guðmundsson 8. Gísli Blöndal 5. Steindór Gunnarsson 3, Jón Pétur Jónsson 2. Bjarni Gunnarsson 2. Jón Karlsson 1, Þorbjörn Jensson 1. Stefán Gunnarsson 1. Mörk KRi Björn Pétursson 4. Simon Unndórsson 5. ólafur Lárusson 1. Jóhannes Guójónsson 1, FriÓrik Guðmundsson 1. Kristinn óskarsson 2, Sigurdur óskarsson 4. i>r.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.