Morgunblaðið - 10.10.1978, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 10.10.1978, Blaðsíða 30
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1978 Guðmundur Arnfinns- son — Minningarorð Fæddur 2G. desember 1906 Dáinn 1. oktúber 1978. Að morf;ni 1. október s.l. barst niér sú sorf'arfreí'n að Guðmundur móðurbróðir minn væri látinn. Arnfinnur Guðmundur, eins og hann hét fullu nafni, var fæddur í Lambadal í Dýrafirði, sonur hjón- anna Arnfinns Jónssonar bónda þar. og síðar að Drönf{um í Dýrafirði ofí Ingibjargar Sigur- línadóttur. Arnfinnur var sonur Jóns Arnfinnssonar bónda á Kirkjubóli í Bjarnadal í Önundar- firði, af hinni kunnu Grafarætt í Gufudal. Infíibjörf; var dóttir Sif;urlína Kristjánssonar er bjó í Botni í Dýrafirði. Börn þeirra Arnfinns Of; Inf;ibjarf;ar urðu alls sextán, fimm dóu unf;, hin ólust upp í foreldrahúsum til fullorðins ára. Strax ok kraftar leyfðu fór Guðmundur að taka til hendi við marj;s konar störf, er inna þurfti af hendi á hinu stóra heimili. Þar fór saman vinnusemi ok hagsýni í öllum hlutum innan höss sem utan. Aldrei var þar skortur í búi, heldur voru þau Arnfinnur ok Ingibjörf; ávallt veitendur. Þau höfðu oftast í heimili sínu ein- hverja þá, sem höllum fæti stóðu í lífinu, aldna sem unga. Þetta fólk vann þessu stóra heimili, allt sem það mátti, átti þar allt sitt til æviloka. Guðmundur ólst upp í glöðum systkinahópi, en jafnframt með öldruðum og lasburða, skyldum og vandalausum, sem hann lærði að umgangast og hjálpa ef með þurfti. Eftir fermingaraldur fór hann í skólann á Núpi í Dýrafirði, er sr. Sigtryggur Guðlaugsson veitti forstöðu. Varð sú dvöl hans þar honum til gagns, naut hann þeirrar skólagöngu síðar á ævinni og bætti við með heimanámi og lestri góðra bóka. Hann vann síðan við bú foreldra sinna um nokkurra ára skeið, þar til hann hleypti heimdraganum og fór til Reykja- víkur árið 1938. Þar réð hann sig á skip til síldveiða í tvö sumur, en vann ýmis störf á milli er til féllu. Hinn 5. október árið 1940 steig Guðmundur mikið gæfuspor er hann gekk að eiga eftirlifandi konu sína Ester Sigfúsdóttur frá Leiti í Suðursveit. Var hjónaband þeirra einstaklega hamingjusamt og auðnaðist þeim að lifa sem í tilhugalífi væru í nærfellt fjörutíu ár. Var afar gott að sækja þau heim og njóta gestrisni þeirra. Þar sameinaðist gott viðmót húsráð- enda og notalegt andrúmsloft fallegs heimilis. Arið 1941 réðst Guðmundur húsvörður við gamla Iðnskólann við Vonarstræti. Var hann hús- vörður þar í 12 ár, eða til ársins 1953, er þau hjón keyptu húsið á Baldursgötu 32 hér í borg. Það sama ár hóf hann störf hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Hann starfaði þar til ársins 1976, er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Þau Guðmundur og Ester eign- uðust þrjá syni, Sigfús Þór, bifvélavirkja og verkstæðisfor- mann hjá Fíatumboðinu, kvæntan Stefaníu Jóhannsdóttur fóstru, þau eiga fimm dætur, og Helga Knút, sem er við rafvirkjanám. Yngsta soninn misstu þau nýfædd- an. Sonarson sinn, Gunnar, tóku þau kornungan og hafa alið hann upp. Var hann þeim báðum mjög kær. Barnabörnin veittu Guð- mundi mikla gleði, var hann aldrei glaðari en er þau komu í heimsókn eða dvöldu á heimili hans. Hann var mikill heimilisfaðir og ástrík- ur eiginmaður, sem sá heimili sínu vel farborða. Guðmundur var hár maður vexti og herðabreiður og samsvaraði sér vel, kvikur í hreyfingum og sópaði af honum hvar sem hann fór, ræðinn og vinmargur. Hann var hreinskiptinn og fór ekki í laun- kofa með hlutina. Lagði hann hverju góðu máli lið, jafnt innan fjölsk.vldunnar sem meðal starfs- bræðra sinna. Tók hann á sig mörg aukasporin og sparaði hvorki tíma né fjármuni til margs konar fyrirgreiðslu ef með þurfti. Fyrir hálfu öðru ári kenndi hann þess sjúkdóms er leiddi hann til bana. Hann vissi að hverju dró og æðraðist ekki. Eiginkonan létti honum sjúkdómsstríðið og vakti yfir velferð hans til hinstu stund- ar. Mér er Ijúft að þakka honum umhyggju hans fyrir móður minni og okkur systrum, er við nutum við fráfall föður okkar. Vakti hann yfir velferð okkar allt til fullorðins ára. Ég bið guð að launa honum ríkulega. Við ættingjar og vinir kveðjum hann með söknuði og þökkum guði minninguna, sem aldrei gleymist. Ester og sonum hennar, tengda- dóttur og barnabörnum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Far þú í friði friður Guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði Guð þér nú fylgi hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Blessuð sé minning hans. Karen Guðmundsdóttir. Góður frændi er látinn. Andlát hans kom ekki að óvörum, dauðinn leysti hann frá þjáningum ólækn- andi sjúkdóms. Sjúkdóm sinn bar hann með mikilli karlmennsku. Hann og móðir mín voru systk- ini og voru tíðar komur Guðmund- ar á bernskuheimili mitt. Lét hann sér ákaflega annt um systkini sín og systkinabörn og var ávallt reiðubúinn að liðsinna þeim og Minning: Guðmundína Arndís Guðmunds- dóttir var fædd 20. september 1911. Hún lézt 28. september sl. Hún var dóttir hjónanna Önnu Jóhannsdóttur og Guðmundar Torfasonar, sem þá voru til heimilis í Hrafnhólum á Selströnd við Steingrímsfjörð. Lífsbaráttan var hörð hjá þeim hjónum, for- eldrum Guðmundínu. Parturinn var rýr sem þau höfðu og grasnyt lítil enda var Guðmundur einn þeirra sem sótti björg í búið á sjónum. Fór hann á hverju ári til sjóróöra að Djúpi sem kallað var. Hann reri með föður mínum haust og vor frá Drangsnesi. Að Hrafn- hólum reistu þau sér lítið hús. Þeim hjónum varð 7 barna auðið. Síðast voru það tvær stúlkur og er það önnur þeirra sem ég minnist hér í dag. Erfiðleikar þeirra Önnu og fjölskyldum þeirra. Var hann afar frændrækinn og vinafastur. Hann var jafnan hress og kátur og sérlega hjálpsamur og úrræðagóð- ur. Guðmundur var sonur hjónanna Arnfinns Jónssonar bónda að Dröngum í Dýrafirði og konu hans Ingibjargar Sigurlínadóttur. Áttu þau 16 börn og þar af komust 11 til fullorðinsára. Var frændgarðurinn því stór og lét Guðmundur sér mjög annt um sitt fólk. Árið 1940 kvæntist Guðmundur Ester Sigfúsdóttur. Varð hjóna- band þeirra afar hamingjusamt. Hún bjó honum og sonum þeirra, Sigfúsi Þór og Helga Knúti, og sonarsyninum Gunnari fallegt heimili á Baldursgötu 32 hér í borg. Voru þau ákaflega gestrisin Guðmundar urðu svo miklir og óyfirstíganlegir að svo fór, að þau urðu að láta aðra stúlkuna frá sér til fósturs hjá heiðurshjónunum Guðrúnu Guðmundsdóttur og Jó- hanns Jónssonar, sem þá sátu Kleifa á Selströnd. í reynsluskóla lífsins lærist margt. Þar varð hlutverk Guð- mundínu mikið. Hún giftist eftir- lifandi eiginmanni sínum, Andrési Guðbirni Magnússyni árið 1932. Þau byggðu ofan á hús foreldra Guðmundínu. Andrés var dugmik- ill sjómaður og stundaði sjó- mennsku. Þeim varð 15 barna auðið. Eru þrjú þeirra látin, tvær dætur, Anna 7 ára og Hulda 11 ára. En Harald son sinn misstu þau er hann var tvítugur orðinn. Drukknaði hann. Var hann öllum mikill harmdauði. Auk hins stóra barnahóps voru og góð heim að sækja. Annaðist Ester mann sinn frábærlega vel í veikindum hans. Að leiðarlokum þakka ég Guð- mundu samveruna, vináttu hans og hjálpsemi í minn garð og fjölskyldu minnar. Ester og sonum votta ég samúð mína. Blessuð sé minning hans. Guðbjörg Eggertsdóttir Ííveðja til afa I dag fer fram útför afa á Baldursgötu. Við vissum hversu þreyttur hann var orðinn, en eigum samt bágt með að skilja að hann skuli þurfa til Guðs til að vera frískur. I sumar þegar birtir aftur og sólin skín, förum við allar með mömmu í Ölfusborgir. Þá byggjum við með mömmu stóran kastala handa honum: háan og stóran, eins og afi okkar var, og höfum hann með mörgum gluggum. Hann fær eng- inn að eyðileggja. Og þá vitum við allar að hann klappar saman lófunum, hlær og segir: „Svona vill afi hafa það.“ Þegar við horfum á bílinn hans standa einan í portinu hans, þá hugsum við: Nú er afi hress og glaður hjá Guði. Við munum hjálpa Gunna eins og við getum. Hann var afadreng- ur. Okkur kallaði hann drottning- arnar sínar. Megi afi okkar sofa rótt. Hafi hann hjartans þökk fyrir allt. Elsa, Erna. Inga. Arna. Hildur og mamrna. gömlu hjónin á neðri hæðinni sem fyrr segir. Sjálfsagt var það ungu hjónunum lystistöng fyrstu árin. En er aldur færðist yfir gömlu hjónin nutu þau hlýju og umönn- unar Guðmundínu og Andrésar allt til hinztu stundar. Guðmundína og Andrés voru harðgerð og dugmikil hjón. Hinn stóri barnahópur, sem þau komu upp, er til marks um það. Öll eru þau vel metin og hið mesta dugnaðarfólk. Hefur þessi harðgerði stóri hópur lagt drjúgan skerf til þjóðarbúsins. Þegar fregnir berast af láti þess fólks, sem hefur lifað og starfað á sama tíma og maður sjálfur, setur mann hljóðan. Minningarnar flykkjast að, ein af annarri koma þær fram í hugann. Guðmundína var aðeins 7 ára er hún lagði mér lið ásamt móður sinni. Það var á erfiðri stund í lífi mínu. Hún var síðan hjá okkur hjónum þrjú sumur í röð. Alla tíð vorum við í nágrenni hvor við aðra, allt til þess að við fluttumst 1929 að Gautshamri, en þá var ein bæjarleið sem skildi okkur að. Nú er jarðvist Guðmundínu lokið. Allt til enda var hún hin glaða og kraftmikla kona. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég mína kæru vinkonu hinztu kveðju. Og við trúum því að, við hittum ástvini vora, sem komnir eru yfir landamærin á undan okkur. — Kristur sagði: Ég lifi og þér munuð lifa. Andrési og öllum niðjum Guð- mundínu og hans bið ég blessunar Guðs, svo og systkinum hennar. A Hrafnistu. Þuríður Guðmundsdóttir frá Ba“ á Selströnd. + Faöir okkar, JÓNAS GUNNAR GUÐJÓNSSON, andaöist 27. september s.l. Útförin fór fram í kyrrþey þann 6. október. Viö viljum nota þetta tækifæri til aö þakka öllum þeim, sem önnuöust hann í hans langvarandi veikindum. Elísabet Jónasdóttír, Emil Jónasson, Guðjón Jónasson, Siguróur Jónasson. Hjartkær eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, HJÖRTUR M. HJARTARSON, frá Hellisholti, Vestmannaoyjum, Hvannhólma 2, Kópavogi, andaöist í Landakotsspítala 8. október. Jaröarförin auglýst síöar. Sólveig Hróbjartsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Stjúpfaðir minn, SIGFÚS GRÍMSSON, tróamíóameiatari, Reynimel 23, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 11. október kl. 13.30. Jón Sigurósson. + Maöurinn minn, faöir, stjúpfaöir okkar og sonur minn, ÞORSTEINN EIRÍKSSON, yfirkennari, Langholtsvegi 116 B, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, miövikudaginn 11. október kl. 1.30. Solveig Hjörvar, Jóhann Þorsteinsson, Helgi, Róaa og Guórún Haraldsbörn, Eiríkur Þorsteinsson. Eiginkona mín, + SESSELJA VILHJÁLMSDÓTTIR, Laugarásvegi 7, er látin. Helgi Bjarnason. + Fööurbróöir okkar og mágur, JOHANNES GEORG GUOMUNDSSON, viatmaóur á Hrafnistu, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövlkudaginn 11. október kl. 3. Guörún Ág. Janusdóttir, Jensína S. Janusdóttir, Jóhanna Ásgeirsdóttir. + Systir okkar, GRÓA SIGMUNDSDÓTTIR, Lönguhlíð 23, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 11. okt. kl. 10.30. Blóm vinsamlegast afþökkuö. .. . Systkmin. Guðnumdma AmcUs Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.