Morgunblaðið - 10.10.1978, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1978.
Skipulagsmál Sjálfstæðisflokksins Skipulagsmál Sjálfstædisflokksins Skipulagsmál Sjálfstædisflok
í FRAMHALDI af þeim umræðum, sem urðu á aukaþingi Sambands ungra sjálfstæðismanna ffyrir rúmri viku
um breytingar á fyrirkomulagi forystu Sjálfstæðisflokksins, hefur Morgunblaðið snúið sér til nokkurra
trúnaðarmanna Sjálfstæðisflokksins og leitað álits Þeirra á hugmyndum, sem fram hafa komið í bessu efni, en
þær eru fyrst og fremst eftirfarandi:
• Sérstakur ritari verði kjörinn á landsfundi, sem jafnframt verði formaður framkvæmdaráðs og beri
ábyrgð á flokksstarfi.
• Auk formanns og varaformanns flokks og þingflokks verði kjörnir formaður og varaformaður miðstjórnar
flokksins.
• Fram komi á landsfundi sameiginlegt framboð til formanns og varaformanns
Hér á eftir fara svör Þeirra, sem leitað var til:
Gísli Jónsson:
Yfirbygging
flok/csins má
ekki verða of
stór og flókin
Gísli Jónsson á Akureyri.
ha'jarfulltrúi Sjálfsta'ðisflokks-
ins:
„Eftir fljótlega athugun á þess-
um hugmyndum hef ég ekki gert
upp hug minn endanlega en ég
býst við, að þessár hugmyndir feli
í sér óskina um valddreifingu og er
hún að mínum dómi út af fyrir sig
góðra gjald verð. En framkvæmd
slíkra hugmynda má ekki verða til
þess að yfirbygging flokksins verði
of stór og flókin, þannig að hver
geti vísað á annan og ábyrgð af
sér. Meðan flokkurinn hefur for-
mann, varaformann, fram-
kvæmdastjóra, miðstjórn og
flokksráð hlýtur ábyrgðin á
flokksstarfinu að hvíla á þessum
aðilum og stofnun embættis rit-
ara, sem bæri ábyrgð á flokks-
starfinu í heild, held ég að væri því
af framangreindum ástæðum
vafasöm ráðstöfun.
Um kosningu formanns og vara-
formanns er það að segja, að ég fæ
ekki séð, að það fyrirkomulag, sem
hér er nefnt, sé neitt betra en það
sem er og vel hefur reynst að
mínum dómi. Mér finnst það
fækka kostum og þrengja val, ef
negla á saman kjör formanns og
varaformanns.
Um allar þessar hugmyndir
finnst mér, að þær séu ekki
komnar fram af skipulagslegri
nauðsyn, fremur að sóst sé eftir
breytingum breytinganna vegna.
Ég held að þær breytingar, sem
þessar hugm.vndir fælu í sér, yrðu
flóknar í framkvæmd og gagnslitl-
ar í raun.“
Inga Jóna
Þórðardóttir:
Réttara að efla
miðstjóm en bœta
einni nefndinni
ofan á aðra
Inga Jóna Þórðardóttir, Akra-
ncsi. fyrsti varaformaður Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna:
„I sambandi við framkvæmda-
nefndina og ritarann, sem þá yrði
kosinn á landsfundi, er því ekki að
neita að auðvitað kæn>i hann til
með að breikka forystusveitina.
En hugmyndirnar að baki fram-
kvæmdanefndinni finnast mér
fyrst og fremst vera tilkomnar
vegna þess, að miðstjórnin stendur
sig ekki í starfi, fundirnir eru of
sjaldan og miðstjórnin er mjög
lítið virk. Miðstjórnin er eins og
nú er háttað hvorki afgerandi virk
varðandi stefnumótunina eða dag-
legan rekstur flokksins. Fram-
kvæmdanefndinni er ætlað að
vinna almennt að eflingu flokks-
starfsins og hafa á hendi umsjón
með útbreiðslu og áróðursmálum.
Ég álít, að með því að setja fram
hugmyndina um framkvæmda-
nefndina sé á ákveðinn hátt verið
að losa þá, sem kosnir eru í
miðstjórnina, undan ábyrgð á að
starfa á þeim vettvangi og þeim
störfum, sem þeir eiga að vinna.
Hugmyndin kemur fram vegna
þess, að þeir hafa ekki staðið sig
og ég álít, að við eigum frekar að
breyta þessu með því að gera
miðstjórnina virkari en hún er í
dag, með því að hafa fundina
tíðari og taka málin miklu fastari
tökum en verið hefur gert. Þá
tengist þetta lið númer 2 eða
þrískiptingarhugmynd _þeirri er
aukaþing Sambands ungra sjálf-
stæðismanna setti fram.
Sú hugmynd er í stuttu máli á
þann veg, að við teljum að það
þurfi að kjósa sérstakan formann
og varaformann miðstjórnar og
sérstakan formann og varafor-
mann þingflokks en þar fyrir ofan
verði formaður og varaformaður
flokksins. Og það er í þessu
sambandi ástæða til að draga
fram, að í þessari þrískiptingar-
hugmynd okkar erum við ekki að
setja þessar sex persónur á sömu
hillu eða sama þrep heldur er
formaður flokksins að sjálfsögðu
efstur og stýrir öllum flokkum. Því
miður hafa margir viljað leggja
annan skilning í tillögur okkar og
talið að með þessu væri verið að
veikja stöðu formanns flokksins.
Ef menn álíta að skipan og
samsetning miðstjórnarinnar nú
valdi því, að hún sé ekki eins virk
og hún eigi að vera, þá tel ég að
það eigi að breyta þeim atriðum en
ekki að breyta um þannig, að bætt
sé við einni nefnd ofan á aðra til
að vinna það sem miðstjórnin á
raunverulega að vinna. Þetta
atriði er að mínum dómi meginatr-
iði þessa máls enda er ekki á neinn
hátt tryggt, að samsetning og
skipan framkvæmdanefndarinnar
verði með öðrum hætti en mið-
stjórnarinnar og þá er ekkert sem
tryggir að framkvæmdastjórnin
verði virkari.
Varðandi hugmyndina um sám-
eiginlegt kjör formapns og vara-
formanns flokksins á landsfundi
vil ég benda á tillögur okkar ungra
sjálfstæðismanna um að breyta
kosningafyrirkomulagi á lands-
fundi, þannig að um framboð verði
að ræða til formanns og varafor-
manns en kjörið verði ekki óhlut-
bundið eins og nú er. Um sameig-
inlegt framboð formanns og vara-
formanns, þ.e.a.s. listakjör, er það
að segja, að mér finnst sú
hugmynd allrar athygli verð, því
þó með þessu sé að vissu marki
verið að binda hendur fólks, þá
ætti þetta að tryggja, að þeir, sem
kjörnir eru til forustu í flokknum,
séu samhentir.
Ólöf Benediktsdóttir:
Aðalatriðið að
þeir sem veljast
til forgstu geti
unnið saman
Ólöf Benediktsdóttir, Reykja-
vík. fyrrverandi formaður Sjálf-
sta'ðiskvennafélagsins Ilvatan
„Ég hef ekkert á móti því að
dreifa valdinu að vissu marki en
þó vil ég taka undir orð, sem ég
heyrði á fundi nýlega, að aldrei
hefur þótt gott að hafa marga
skipstjóra á hverri skútu. Aðalatr-
iðið tel ég það, að þeir, sem veljast
til forystu Sjálfstæðisflokksins,
geti unnið saman með heill flokks-
ins og þjóðarinnar að leiðarljósi."
Matthías Bjarnason:
Fer best á því að
einn skipstjóri sé
á hverju skipi
Matthías Bjarnason. alþingis-
maður:
„Ég er nýbúinn að sjá þessar
hugmyndir og ég tel eðlilegt að
útvíkka nokkuð stjórn flokksins og
ég er sammála því að það verði
stofnað þetta svokallaða ritaraem-
bætti. Hins vegar held ég, að það
verði að fara varlega í að gera
margar stjórnir innan sama flokks
og þær mega ekki vera of óháðar
hver annarri. Ég tel að það þurfi
miklu frekari athugunar við hvort
það eigi að kjósa sérstakan
formann og varaformann á lands-
fundi í einhverja framkvæmda-
stjórn. Ég tel að formaður flokks-
ins eigi að vera formaður mið-
stjórnar því ég held að það fari
best á því að það sé einn skipstjóri
á hverju skipi. Að minnsta kosti
hefur verið litið á það þannig til
sjós og ég held að það fari líka vel í
sambandi við flokksstarf, að þar
ráði fyrst og fremst einn maður,
sem beri ábyrgðina í þeim efnum.
I sambandi við þingflokkinn er
ekki um neina breytingu að ræða.
Það er auðvitað verksvið þing-
flokks að kjósa sér formann og
stjórn. Ég er aftur þeirrar skoðun-
ar að það eigi að hafa sem flesta
talsmenn og útvíkka það, að það
séu ekki einn eða tveir menn, sem
komi alltaf fram fyrir flokksins
hönd. Ég tel t.d. í þinginu að þá
eigi talsmenn að vera í hverjum
málaflokki fyrir sig og þá menn
sem gerst þekkja þá málaflokka og
mark'i þá stefnu innan þingflokks-
ins í þeim efnum og jafnframt er
nauðsynlegt að auka enn verulega
á samstarf á milli þingflokks og
miðstjórnar. Ég tel að formaður
eigi að vera tengiliður milli
þessara aðila, þó ég telji á margan
hátt óeðlilegt að hann sé jafn-
framt formaður þingflokks en hitt
tel ég jafn sjálfsagt að hann sé
bæði formaður flokksins og fram-
kvæmdastjórnar flokksins.
Ég tel ekkert óeðlilegt við það að
sameiginlegt framboð formanns
og varaformanns flokksins komi
fram til þess að tryggja sem besta
samvinnu á milli formanns og
varaformanns. Ég tel alls ekkert
fráleitt, ef menn vilja fallast á
það, meira að segja að breyta
lögum flokksins á þann veg að
formaður útnefrii varaformann, ef
menn vilja það heldur. Mér finnst
þessi hugmynd skynsamleg og hún
er fyrst og fremst komin fram til
þess að tryggja góða samvinnu,
sem nauðsynleg er milli formanns
og varaformanns."
Vigfús B. Jónsson:
Þurfum að gera
forgstuna virkari
Vigfús B. Jónsson á Laxamýri,
á sæti í miðstjórn Sjálfstæðis-
flokksins:
„Mín afstaða er jákvæð gagn-
vart hugmyndum um breytt skipu-
lag þessara mála, þó ég sé ekki
endilega að segja, að þær hug-
myndir, sem nefndar eru í spurn-
ingunni, séu til bóta. Ég tel hins
vegar jákvætt að gera breytingar á
skipulagi flokksins einmitt nú, því
ég held að þeir menn, sem mest
hafa rætt um þessar breytingar,
hafi mikinn áhuga á að vinna
flokkinn upp aftur og ég trúi því
að þeir vilji eitthvað á sig leggja.
Með þetta í huga tel ég sjálfsagt að
gefa fleirum tækifæri.
Ég álít að við verðum að stefna
að því að hafa forystuna virkari og
leið til þess gæti verið að kjósa
sérstakan ritara. Og auðvitað vil
ég láta dreifa valdinu en aðalatrið-
ið er að lýðræðislega sé að því
staðið. Ég geri mér líka grein fyrir
því, að það er meira en að segja
það fyrir menn búsetta úti á
landsbyggðinni eins og mig að
ætla sér að mæta á hvern einasta
miðstjórnarfund hjá flokknum í
Reykjavík. Með sérstakri fram-
kvæmdastjórn, sem væri fámenn-
ari en miðstjórn mætti gera stjórn
flokksins virkari og léttari við
vöfum.
Til þess að formaður og varafor-
maður flokksins séu kjörnir sam-
eiginlega, er ég ekki tilbúinn að
taka afstöðu að svo komnu máli.
En hvað sem líður öllum umræð-
um um skipulagsmál flokksins
hlýtur að vera númer eitt, að menn
takist á við andstæðinga flokksins
og berjist fyrir framgangi stefnu-
mála Sjálfstæðisflokksins. Við
höfum of margir ætlað fáum
einstaklingum of mikið og ég sel
mig ekki undan sök í því efni. Það
þarf að brýna liðið og berjast fyrir
hugsjónum flokksins."
Jóhann Petersen:
Ekki ástœða til
skipulagsbregt-
inga einungis
bregtinganna
vegna
Jóhann Peterscn, Ilaínarlirði,
íyrrverandi íormaður kjördæma-
ráðs Sjálístæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi:
„Ég held, að það skipti Sjálf-
stæðisflokkinn ekki meginmáli
með hvaða hætti flokksforystan er
valin. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
alltaf borið gæfu til þess að velja
sér til forystu mikilhæfa dugnað-
armenn og ég trúi því að fólk á
landsfundi komi með því hugarfari
til næsta landsfundar að velja
flokksforystuna af ábyrgðartil-
finningu án tillits til þess hvaða
aðferð er viðhöfð við kosningu
flokksforystunnar.
Það má vel vera, að það sé
ástæða til þess að velja ritara eða
einhvern slíkan aðila. Ég hef
persónulega haft þá skoðun að
sérstaklega þegar flokkurinn er í
stjórn, sé nauðsynlegt að flokkur-
inn hafi talsmann utan ríkis-
stjórnar, sem boði stefnu flokksins
án tillits til þess hvernig flokkur-
inn verður að taka afstöðu með
öðrum flokkum í ríkisstjórn.
Ég tel ekki ástæðu til þess að
gera skipulagsbreytingar einungis
breytinga vegna. Heldur verða að
vera veigamiklar .ástæður fyrir því
að skipulagsbreytingar séu gerð-
ar.“
ííj fi^t.nvtnn
&}£WJU Otí UiOVÍÍ'ÍOiJfi
,'UiO fi»*4ió iíj iiiuii iiomUí/jiiu ■
nogebííjndÓuO nöl, yo
fdzo'tíoZ ö ■ i'nrJwlíjivh
- ’ * t ^ *-* * ííiliU Jfífáfi?! ?yí/l fiVGÞl
.yleed tnyý mnióö!,*! «n«1h ngiririntj nibir/jti,wi1
wmm r m,m» m
nuiíi éftiftjljioái
6fi tíftifl flííIlJíiH tííliiíí