Morgunblaðið - 10.10.1978, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1978
31
N(J STENDUR yíir sala happdrættismiða í hausthappdrætti
Krabbameinsfélagsins. en miðar hafa verið sendir öllum skattfram-
teljendum á aldrinum 23—66 ára. Krabbameinsfélag Reykjavíkur sér
um framkvæmd happdrættisins, en ágóðinn rennur að hálfu til
Krabbameinsfélags Islands.
Vinningar eru fjórir, bfll af gerðinni Voivo 264 árgerð 1979 og þrjú
litsjónvarpstæki. en verðmæti vinninga er um 9 milljónir króna.
Dregið verður hinn 24. desember og er verð hvers miða kr. 600.
Alþjóðlegur fundur á
Keldum um mæðiveiki?
Aukið fræðslustarf
á döfinni hjá BSRB
BANDALAG starfsmanna ríkis og bæja hefur ákveðið að auka
fræðslustarf sitt, en með nýjum fundarsal í húsna'ði BSRB á Grettisgötu 89
í Reykjavík verður aðstaða til ýmiss konar fundahalda. Sú tilraun verður
gerð að efna til erindaflutnings um tiltekin atriði, sem síðar yrði gefinn
kostur á að raAa eða gera fyrirspurnir um og sögðu Haraldur Steinþórsson
og Kristín Tryggvadóttir á fundi með fréttamönnum. að síðar kæmi einnig
til greina að efna til kvöldvökustarfsemi með fræðslu- og skemmtiefni.
þá gryfju. Þegar 1. skýrslan
birtist (Dennis L. Meadows o.fl.:
„The Limits to Growth") árið
1972, hófst upp mikið öskur, sem
minnti marga á kveinin í Rama
forðum. Þegar síðan 2. skýrslan
kom fyrir almannasjónir (Mi-
hailo Mesarovic/ Eduard Pestel:
„Mankind at the Turning
Point“) árið 1974, var komið
dálítið annað hljóð í skrokka,
þannig að nú telst annað hvort
þrjózka eða óvizka hin mesta að
bera brigður á meginatriði
þessara tímamótaverka. Nú
orðið láta hagvaxtar- og jöfnun-
armenn sér að mestu nægja að
gagnrýna, hvernig staðið var að
fáeinum tæknilegum vinnu-
brögðum við mötun sjálfvirkra
reiknivéla.
I bók Meadows og félaga er, á
meðal margra annarra skýrslna,
birt tafla, er veitir ákaflega
athyglisverðan fróðleik um lík-
legan endingartíma helztu óend-
urnýjanlegra hráefna; bæði
miðað við þá þekktan forða svo
og forða, sem væri fimm sinnum
meiri.
A meðal þessara óendurnýj-
anlegu hráefna er að sjálfsögðu
tin, sem er til margra hluta
nytsamlegt eins og flestum er
kunnugt. Árið 1972 var heims-
forðinn talinn nema 4.350.000 t,
sem endast myndi í 17 ár að
óbreyttri notkun og framleiðslu-
magni, þar af í Thailandi 33%
og Malaysiu 14%. Helztu fram-
leiðslulönd voru Malaysia 41%,
Bolivia 16% og Thailand 13%,
mestu vinnslulönd Bandaríkin
24% og Japan 14%, og árleg
meðaltalsaukning notkunar
1,1%, sem þýða myndi 15 ára
endingartíma heimsforðans. Ef
forðinn væri hins vegar fimm
sinnum meiri, eða 21.750.000 t,
myndi hann endast í 61 ár miðað
við óbreytta notkunaraukningu,
1,1% á ári.
Síðan ofangreindir fróðleiks-
molar voru fyrst birtir eru nú
liðin 6 ár. Enn ætti því tinforði
jarðar að geta enzt í 9 ár á
gefnum forsendum, sem nýjustu
fréttir benda til að heimsmark-
aðurinn muni beygja sig undir.
Því til sönnunar treysti ég mér
ekki til að leiða traustara vitni
en forystugreinarstúf af efna-
hagsmálasíðum „Frankfurter
Allgemeine Zeitung" frá 14. f.m.,
sem hér fer á eftir orðréttur í
öllu sínu yfirlætisleysi:
„Tin dýrt,
orsök þurrð
Tinverð hefir slegið nýtt met.
I fyrsta skipti eru nú greidd yfir
7000 pund fyrir eitt tonn af tini
á málmverðbréfamarkaðinum í
London. Umreiknað eru það
rneira en 27.000 DM. Þar með
hefir tinverðið enn einu sinni
rofið „sálfræðilega þýðingar-
mikil landamæri". Menn reyna
að skýra þetta verðrof á ýmsan
hátt. Á markaðinum í fjarlæga
austrinu í Penang er tin
skammtað fyrst um sinn. Af-
greiðslufrestir hafa einnig verið
lengdir. Tin, sem hægt er að
komast yfir í snarheitum, er
torfengið. Ekki er þess að
vænta, að á þessu ári standi til
að mýkja og létta markaðs-
þrýstinginn með tinsölum af
hinum hernaðarlegu birgðum
Bandaríkjanna. Kína er auk
þess talið hafa dregið úr út-
flutningi sínum og Sovétríkin
aukið innflutning sinn. En allt
eru þetta skammtíma fyrirbæri,
því að tinverðið hefir um árabil,
hvað eftir annað, rofið hin
„töfrakenndu takmörk"; árið
1974 voru þau sett við 4000
pund. I raunveruleikanum er
hér um langvarandi verðhækk-
anir að ræða. Um árabil hefir
notkunin farið fram úr fram-
leiðslunni. Tin hækkar þess
vegna í verði, sökum, þess að það
verður sífellt torfengnara."
Það er ekki um að villast:
Vinstriandinn er gráðugur.
UNDANFARIN 3 ár hafa staðið
yfir samnorrænar rannsóknir á
mæðiveiki (þurramæði) í sauðfé
með þátttöku vísindamanna í
Danmörku, Finnlandi. Noregi.
Svíþjóð og íslandi. Rannsóknir
þessar fara fram á vegum NKJ
(Nordisk Kontaktorgan for Jord-
brugsforskning). Starfsmenn Til-
raunastöðvarinnar á Keldum
hafa tekið þátt í þessari sam-
vinnu og hafa rannsóknaráð
landhúnaðarins í Noregi og Dan-
mörku véitt Tilraunastöðinni
styrk. sem nemur um það bil 9
milljónum króna á þessu ári.
Dagana 14.—16. september var
haldinn á Keldum alþjóðlegur
fundur vísindamanna, sem vinnur
að rannsóknum á mæði og skyld-
um sjúkdómum. Þátttakendur
voru alls 13 en auk Norðurlanda-
búa komu vísindamenn frá Banda-
ríkjunum, Hollandi og Þýskalandi.
Ýmsar nýjar niðurstöður rann-
sókna voru kynntar á fundinum og
gefa þær góðar vonir um að betri
aðferðir til greiningar sjúkdóms-
ins og baráttu gegn honum séu á
næsta leiti.
Þó að allar líkur séu nú á því að
tekist hafi að útrýma þessum
sjúkdómi úr íslensku sauðfé,
veldur hann tjóni víða um heim
t.d. í Hollandi og Bandaríkjunum
og hefur borist fyrir nokkrum
árum síðan með innfluttu sauðfé
til ýmissa landa þar sem hann var
áðúr óþekktur m.a. til Danmerkur,
Alþjóðaár
barnsins
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ og
framkvæmdanefnd alþjóðaárs
barnsins 1979 hafa boðað til ráð-
stefnu. sem verður haldin að Hótel
Loftleiðum miðvikudaginn 11. októ-
ber næstkomandi. Verður þar rætt
um undirbúning að væntanlcgu
starfi á íslandi í tilefni alþjóðaárs
barnsins 1979. en á ailsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna var samþykkt
21. desember 1978 að helga árið
1979 málefnum barna í tilefni þess
að þá verða liðin tuttugu ár frá því
að S.Þ. staðfestu yfirlýsingu um
réttindi barnsins.
Til ráðstefnunnar hefur verið
boðið fulltrúum frá fjölmörgum
landssamtökum og stofnunum, sem
láta sig málefni barna skipta, og
fulltrúum frá fjölmiðlum.
Ráðstefnan hefst kl. 10 f.h. með
setningarávarpi Ragnars Arnalds,
menntamálaráðherra, en að því
loknu verða haldin eftirtalin erindi:
Réttarstaða barna: Ármann Svæv-
arr, forseti hæstaréttar. Börnin og
umhverfið: Guðný Guðbjörnsdóttir,
sálfræðingur. Barnið og fjölskyldan:
Björn Björnsson, prófessor. Börn og
fjölmiðlar: Gunnvör Braga, dag-
skrárfulltrúi. Undirbúningur al-
þjóðaárs barnsins: Svandís Skúla-
dóttir, formaður framkvæmda-
nefndarinnar.
Að erindum loknum verður unnið í
starfshópum að því að móta áætlun
um hvernig skuli starfað að málefn-
um barna hér á landi á væntanlegu
alþjóðaári barnsins.
(Frá menntamálaráðuneyti)
Noregs og Svíþjóðar. í þessum
löndum er því lagt mikið kapp á að
reyna að stöðva frekari dreifingu
sjúkdómsins og skiptir þá miklu
máli að tiltækar séu öruggar og
handhægar aðferðir til að greina
mæðiveiki á byrjunarstigi að því
er segir í frétt frá Tilraunastöð
Háskólans í meinafræði á Keldum.
Fyrstu tvö erindi hafa verið
ákveðin, hið fyrra miðvikudag 11.
október kl. 20.30 og flytur þá
Sigurveig Sigurðardóttir hjúkrunar-
fræðingur erindi um uppbyggingu og
starf alþjóðavinnumálastofnunar-
innar í Genf, og síðara erindið
verður þriðjudag 17. október, en þá
ræðir Guðrún Halldórsdóttir skóla-
stjóri Námsflokka Reykjavíkur um
Fullorðinsfræðslu.
Þá hefur verið ákveðið að efna til
ráðstefnu um vísitölu dagana 2.-4.
nóvember n.k. og flytja þar erindi
ýmsir sérfræðingar og auk hópvinnu
verður efnt til hringborðsumræðna í
Tok ráðstefnunnar þar sem fulltrúar
úr hinni nýskipuðu vísitölunefnd
munu vera meðal þátttakenda.
Fræðslunefnd BSRB hefur ákveðið
að efla félagsmálafræðslu fyrir
áhugafólk og trúnaðarmenn innan
samtakanna og hyggst hún bjóðast
til að útvega leiðbeinendur er sendir
yrðu til félaga úti um landið til
námskeiðahalds með félagsfólki.
Sögðu þau Kristín og Haraldur að
æskileg stærð hvers hóps væri
15—30 manns og vildu þau hvetja
fólk til að taka sig saman á
vinnustöðum, í stéttarfélaginu eða
byggðarlaginu og væri þá hægt að
efna til 2—4 kvölda námskeiða eða
helgarnámskeiða. Námskeiðaefni
gætu t.d. verið þessi: Félagsmála-
námskeið, námskeið í ræðumennsku
og fundarsköpum eða ýmis önnur
efni, t.d. efnahagsmál, skattamál,
skólamál. lífeyrismál, húsnæðismál,
aðbúnaður á vinnustöðum, bók-
menntir og listir o.fl. Einu félags-
málanámskeiði er nýlega lokið og
var það fyrir Félag opinberra
starfsmanna á Suðurlandi.
BSRB ráðgerði að efna til funda í
haust þar sem félagsmönnum gæfist
kostur á að ræða við forystumenn
félagsins um það sem gerzt hefur í
starfinu í ár, en ekki er enn vitað
hvernig fundarherferð þessari verð-
ur hagað þar sem nú stendur fyrir
dyrum allsherjaratkvæðagreiðsla
um framlengingu kjarasamninganna
til 1. des. ‘79, og verður cfnt til funda
vegna hennar.
Lyftari leysir vandann
Viö eigum nú fyrirliggjandi hina velþekktu BV-handlyftivagna meö
2500 kílóa lyftigetu á mjög hagstæöu veröi.
Einnig útvegum viö með stuttum fyrirvara allar
gerðir lyftara til notkunar innanhúss eöa á sléttum
gólfum fyrir vöruhús, frystihús, sláturhús og alls
konar iönaö.
Hringið eða skrifið og viö munum fúslega veita
allar nánari upplýsingar.
hsfa
ISÍMI 85222 LÁGMÚLA 5
PÓSTHÓLF 887 REYKJAVÍK
HEIMSMEIST ARAMOT
I MASTER MIND
GRÆNT SVART BLÁTT RAUTT 8 8..
BLÁTT SVART HVÍTT GULT H S ..
BLÁTT SVART BLÁTT GRÆNT S...
BLÁTT GULT BLÁTT GULT H H ..
GULT GRÆNT GULT RAUTT S S S .
SSSS
EKKERT ÞATTTÖKUGJALD
Hér aö ofan er sýnishorn af tölvuröðuðu spili, eins og þeim sem keppendur koma til
með að fá. Raöið þessu spili upp á ykkar eigin MASTER MIND og finniö rétta lausn.
Réttar lausnir getiö þið séö í gluggum PENNANS, Hallarmúla og FRÍMERKJAMIÐ-
STÖÐVARINNAR, Skólavörðustíg.
Komið og takið þátt í þessari nýstárlegu keppni um heimsmeistaratitilinn í MASTER
MIND, sem hefst laugardaginn 14. október kl. 10.00 í PENNANUM Hallarmúla og
FRÍMERKJAMIÐSTÖÐINNI Skólavörðustíg.
cnm
HALLARMÚLA 2
Frfmerkjamiöstööin,
db
Skólavöröustíg 21A.
MASTER MIND UMBOÐID Á ÍSLANDl.
David Pitt & Co.
) uliðl .ifiíeinuntmoá §o ifiígilBt
Olfí'JOv)
aolðloti'iiA
.nmiuinótHætct (wo-ei