Morgunblaðið - 10.10.1978, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1978
41
ekki aö dyrum stjórnarliða áöur en
full reynsla er fengin á sambúð-
inni. Það skal þó viðurkennt að
einum hinna „bláeygu", Gröndal,
heppnaðist að ná utanríkismálun-
um í sinn hlut og verður hann
vafalaust harðari en fyrirrennari
hans var í þeirri stöðu, því
eiginlega var hann í hjarta sínu
alltaf kommamegin í því máli eins
og raunar Framsókn öll hefur
ávallt verið, hvorki hrá né soðin í
varnarmálunum. Væntanlega tek-
ur Gröndal upp miklu ákveðnari
stefnu í varnarmálum en forveri
hans og er það vel.
Nú ekki má gleyma garminum
honum Katli, Alþýðubandalaginu
eða réttara sagt kommunum, sem
með miklum bægslagangi útdeildu
eftir kosningasigur sinn í borgar-
stjórn í vor þrjú hundruð milljón-
um króna til flokksgæðinga sinna,
þó enginn peningur til þeirra hluta
væri tiltækur í kassanum. Bara
taka lán á lán ofan og stefna beint
norður og niður í skuldafenið unz
allt er i bólakafi. Borgarstjórnar-
meirihluti sá er nú ræður Reykja-
víkurborg illu heilli er mikill
meistari í axarskaftasmíð. Enda
er forseti borgarstjórnar smiður
að mennt.
Hannes H. Gissurarson hefur
undanfarið ritað snjallar og vel
rökstuddar greinar í Morgunblaðið
sem vakið hafa verðskuldaða
athygli lesenda víða um land. En
róttæklingar, sem gagnrýni
Hannesar hefur einkum beinzt að,
hafa rekið upp ramakvein sem
kvellisjúkar kerlingar. Má því
segja að sannleikanum verði hver
sárreiðastur, þvi róttæklingar eru
með þeim ósköpum fæddir að þola
aldrei málefnalega umræðu. Níð-
frelsi vilja þeir sjálfir hafa óskert,
en ef einhver dirfist að svara
rógmælgi þeirra þá er allt á ferð
og flugi í herbúðum þeirra, því
sannleikann þola þeir aldrei að
heyra.
Já, „landvar oss gefið, útsær
drauma blár“. En ekki til þess að
varpa því í vargaklær kommúnista
til niðurrifs og eyðileggingar eftir
íslenzka 11 alda búsetu í okkar
nokkuð harðbýla og kæra föður-
landi.
Þorkell Hjaltason.“
i voru sindar í Ntwkirkju samboraur, tmndaríski pn>dikari«va BlUy Graham híidur um
jw ssar mundir í Stokkhólmi. Eru samkomurnar sýndar ó mynd*<‘ffu!bandi o« þýddar jafnharðan. Wxsar
sýningar munu xtanda yfir ó kvöldin fratn til hríójudags. í jwrkvöldi Vt>ru 5—600 mannx i Neskirkju w
hlýddu á handaríska pmlikarann m var þó þt*áaí raynd trkin. — Ljósnt.. Krktján.
Þessir hringdu . . .
• Enn um
Billy Graham
Sigrún Sigurjónsdóttir,
Keflavík:
„Þekkingarskortur með ofur-
kappi verður oft til óþurftar, á
sviði trúarsanninda horfir slíkt til
hins mesta háska. Margt fólk les
ekki Biblíuna sem orð Guös og því
síður kynnir það sér innihald
hennar nema til þess að rífa hana
niður og dæma. Sæmir mönnum
slíkt? Þar á ég við samkomur sem
haldnar voru í Neskirkju, en til er
fólk hér á landi sem hefur rifið
þær niður á allan hugsanlegan
hátt í fleirum en einu dagblað-
anna. Billy Graham er þar kallað-
ur trúður og samkomurnar í
Neskirkju sirkus eða uppákoma.
Billy Graham, sem er einn bezti
vakningatrúboði þessa tíma, hefur
í flestum löndum hins kristna
heims verið talinn fullboðlegur til
þessa og yfirleitt komist vel af án
skrumskælingja íslenzkra heið-
ingja — dagblaðanna. En sem
betur fer eru þeir í miklum
minnihluta, það sýndi bezt aðsókn-
in og andinn í Neskirkju, en það er
annað sem verra er það er hversu
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á skákþingi Ungverjalands í
fyrra kom þessi staða upp í skák
þeirra Schneiders og Sax, sem
hafði svart og átti leik.
22.. .e4!! (Frábær leikur, sem
splundrar hvítu kóngsstöðunni)
23. Bxa5 - Í3+ 24. exf3 - exí3+
25. Khl - Dh3 26. Hgl - RfG!.
Hvítur á nú enga viðunandi vörn
við 27... Rg4. Hann gafst því upp.
Röð efstu manna varð þessi: 1.—2.
Sax og Ribli 12 xk v. 3. F Portisch
10'A v. 4. Lengyel 9'A v. 5.-7.
Adorjan. Barczay og Farago 9 v.
mikið vald skrumskælingjarnir og
guðsafneitararnir í okkar þjóð-
félagi hafa á fjölmiðlunum.
Menntamála- og útvarpsráð þarf
t.d. að athuga hvort þættir Billy
Grahams eru boðlegir íslenzkri
alþýðu, en það vantar nú ekki að
hellt sé yfir mann ósómanum í
mynd ofbeldis, kúgunar og kláms í
sjónvarpi og útvarpi. Hver hefur
beðið um slíkt, eða verið boðið að
segja álit sitt á því? Varla
almenningi, en þegar við biðjum
að þjóðinni sé sýnt kristilegt og
uppbyggilegt efni, þá þarf um-
hugsun og bið. Viljum við ekki ala
börnin okkar lengur upp í kristi-
legum anda og kenna þeim góða og
gegna mannasiði, sem til þessa
hefur talizt samrýmast. Ég geri nú
frekar ráð fyrir því að svo sé hjá
flestum okkar. Við höfum svo
mikið af því slæma í kringum
okkur, því ekki nú að reyna hið
góða eins og Kristur býður okkur,
það ætti varla að saka? Þvi að
kærleikur Krists sigrar hið illa. Ég
skora á fólk um land allt að það
sameinist í baráttunni fyrir að fá
þætti Billi Grahams er voru í
Neskirkju á dögunum, sýnda í
sjónvarpinu. Trúaðir íslendingar,
sameinumst í kröftugri bæn fyrir
því og eins því að okkar þjóð fái
meira af góðu og uppbyggilegu
efni í fjölmiðlum.
Að lokum vil ég þakka Morgun-
blaðinu fyrir allar þær góðu
greinar sem það hefur birt um
kristileg efni, þær hafa mörgum
orðið til góðs og mikillar blessunar
þeim sem þær hafa lesið. Vona ég
að þar verði ekkert lát á í
framtíðinni. Sálrn. 119,92—94: Ef
iögmál þitt hefði eigi verið unun
mín, þá hefði ég farist í eymd
minni. Ég skal eigi gleyma fyrir-
mælum þínum aö eilífu, því að með
þeim hefur þú látið mig lífi halda.
Þinn er ég, hjálpa þú mér, því ég
leita fyrirmæla þinna.“
HÖGNI HREKKVÍSI
« /4 © 1978
McNin|ht Synd., Inc. CO
HVE< 5LTT1 ftíVNA K'NA
I U|Opi?x/OTT/AVÉ.UNA?'“
í byggingariðnaði eru gerðar miklar kröfur, enda eru
byggingaraðilar stöðugt á höttunum eftir betri tækjum, meirl
afköstum og hagkvæmari útkomu.
ENGINN ER FULLKOMINN
Aðeins einn kemst næst því
f hverri grein.
Framleiðendur byggingakrana og steypumóta eiga í harðri
samkeppni um heim allan. Þess vegna verður val
byggingaraðíla undantekningarlaust þau tæki, sem hafa
sannað kosti sína og yfirburði f reynd.
BPR byggingakranarnir, eru stolt franska byggingariðnað-
arins vegna afburða hæfileika, og útbreiðslu þeirra um allan
heim.
HUNNEBECK steypumótin hafa valdið tímamótum, ekki bara
í Þýzkalandi, heldur víðast hvar annarsstaðar.
Betri lausn er varla til!
Aliar frekari upplýsingar fúslega veittar á skrifstofunni.
ARMANNSFELL HF.
Leigu- sölu- og varahlutaþjónusta.
Funahöfða19, Sími 83307.
D3 Hunnebeck
Höfum kaupendur að eftírtöldum verðbréfum:
VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÓÐS
Yfirgengi miðað
Kaupgengi viðinnlausnarverð
pr. kr. 100.- Seölabankans
1967 2. flokkur 3016.52 63.3%
1968 1. flokkur 2626.44 44.4%
1968 2. flokkur 2470.39 43.6%
1969 1. flokkur 1839.16 43.5%
1970 1. flokkur 1688.11 11.8%
1970. 2. flokkur 1227.87 42.9%
1971 1. fokkur 1153.42 11.7%
1972 1. flokkur 1005.67 42.7%
1972 2. flokkur 860.40 11.7%
1973 1. fokkur A 655.29 11.7%
1973 2. flokkur 605.55
1974 1. flokkur 420.58
1975 1. flokkur 343.89
1975 2. flokkur 262.45
1976 1. flokkur 249.00
1976 2. flokkur 202.20
1977 1. flokkur 187.80
1977 2. flokkur 157.29
1978 1. flokkur 128.20
1978 2. flokkur 100.00 + dagvextir
VEÐSKULDABRÉF: x
1 ár Nafnvextir: 26%
2 ár . Nafnvextir: 26%
3 ár Nafnvextir: 26%
x) Miðað er við auðseljanlega fasteign.
Kaupgengi
pr. kr. 100-
77—79
68—70
62—64
Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum:
HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF.
Söiugengi
pr. kr. 100,-
1972 — A
1973 — B
1974 — D
Hlutabréf:
Máning h.f.
666.12 (10% afföll)
571.47 (10% afföll)
432.15 (10% afföll)
Kauptilboð óskast.
MéRPEJTinCARPÍMC jflAADJ HP.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Lækjargötu 12 —- R (Iðnaðarbankahúsinu)
Sími 2 05 80.
Opið frá kl. 13.00 til 16.00 alla virka daga.
EF ÞAÐ ER £RÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU