Morgunblaðið - 10.10.1978, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1978
43
Betty Williams annar frumkvöðull Friðarhreyfingarinnar
Leggst starf
fridarhreyfing-
arinnar niður?
Br áðabir gðast j ór nin
íRhodesíu boðar af-
nám kynþáttamisréttis
Salishury. 8. oktúhcr. Routor.
BRÁÐABIRGÐASTJÓRN
Ian Smiths mun að öllum
líkindum afnema allt kyn-
þáttamisrétti í Rhódesíu,
að því er Ernst Bulle
fjármálaráðherra skýrði
frá á fundi.
Þessar ráðstafanir bráða-
birgðastjórnarinnar, sem
hefur verið óvægilega gagn-
rýnd fyrir aðgerðaleysi í
kynþáttamálum, hafa það
meðal annars í för með sér
að eftirleiðis hafa negrar
heimild til að búa á þeim
svæðum sem hingað til hafa
verið fyrir hörundsljósa
menn eingöngu, auk þess
sem skólar, sjúkrahús og
aðrar slíkar stofnanir verða
nú jafnt fyrir kynþættina.
I landinu eru um 260
þúsund hörundsljósir menn
og 6.7 milljónir negra. Full-
trúar bráðabirgðastjórnar-
innar í landinu hafa vísað
því á bug að yfirlýsingin um
afnám kynþáttamisréttis
standi í sambandi við ferð
Ian Smiths, Muzorewa
biskups og Sr. Sitholes til
Bandaríkjanna, þar sem
ANWAR Sadat forseti Egypta-
lands gaf í dag út lokadagskipun
til egypsku sendinefndarinnar sem
fer til friðarsamningaviðræðna í
Washington við ísracla. Egyptar
vonast tii að þessir fundir þurfi
ekki að standa yfir lengur en í
þrjár vikur.
Talsmaður Sadats sagði, að Sadat
hefði kallað fulltrúana á fund með
þeir hyggjast afla stuðnings
við stefnu bráðabirgða-
stjórnarinnar, en hún felst í
megindráttum í því að
meirihlutastjórn verði kom-
in á í Rhódesíu fyrir árslok.
sér í dag en fynr henni verður
varnarmálaráðherra landsins,
Kamal Hassan Ali. Sadat neitaði að
svara spurningum fréttamanna að
fundi loknum en kort af Sinaiskaga
sást á borðinu í fundarherberginu
og þykir einsýnt að um þann hlut
hafi sérstaklega verið fjallað.
Viðstaddir þennan fund í dag
voru og allir nánustu ráðherrar
Sadats og helztu sérfræðingar.
Sadat leggur
ændmefnd sinni
lífsreglurnar
Kairú 9. okt. Routor.
Bclfast. 9. okt. Reuter.
Nóbelsverðlaunahafarnir
Betty Williams og Mairead
Corrigan sögðu í dag af sér
forystu í Friðarhreyfingu
Norður-írlands. Konurnar
tvær, sem báðar eru búsett-
ar í Belfast, komu á laggirn-
ar samtökum er áttu að
vinna að því að koma á friði
í N-írlandi fyrir tveimur
árum. Þær fengu síðan
Friðarverðlaun Nóbels fyrir
Veður
víða um heim
Akureyri 7 skýjað
Amsterdam 17 skýjaö
Apena 24 bjart
Berlín 18 bjart
BrUssel 22 bjart
Chicago 14 skýjað
Frankturt 19 sól
Genf 18 skýjað
Helsinki 10 skýjaö
Jerúsalem 30 skýjað
Jóhannesarborg 25 sól
Kaupmannahöfr 116 skýjað
Lissabon 22 skýjað
London 21 skýjað
Los Angeles 28 skýjað
Madrid 24 sól
Miami 28 skýjað
Montreal 10 bjart
Moskva 4 bjart
Nýja Delhi 35 sól
New York 12 bjart
Ósló 13 bjart
París 22 sól
Reykjavík 5 skýjað
Rómaborg 19 bjart
San Francisco 16 skýjað
Stokkhólmur 12 skýjað
Sydney 19 heiöríkt
Terheran 28 sól
Tel Aviv 27 skýjað
Tókío 21 sól
Toronto 12 sól
Vancouver 21 skýjað
Vínarborg 21 bjart
viðleitni hreyfingarinnar og
starf sem í fyrstu vakti
mjög mikla athygli. Þær
sögðust mundu halda áfram
starfi í þágu friðar, hvar
sem þess væri þörf og ekki
hvað sízt í fátækrahverfun-
um í Belfast.
En ritari samtakanna, Peter
McLauchlan, sagði á ráðstefnu
samtakanna sem var í Belfast nú
um helgina, að ástand hreyfingar-
innar væri hið ömurlegasta og
fjárhagurinn í rústum. Þó að
konurnar tvær hefðu á sínum tíma
safnað gríðarlegum fjárupphæð-
um auk verðlaunafjárins væri nú
sáralítið eftir og ekkert hefði
safnast lengi og yfirleitt hefði úr
öllu starfi Friðarhreyfingarinnar
dregið mjög.
Ekki flóafriður fyr-
ir flóm í Bretlandi
London, 9. okt. Reuter.
(JTLIT er fyrir að versti
flóafaraldur í Bretlandi í tutt-
ugu og fimm ár sé nú að skella
á, að því er skýrt var frá í dag.
Talsmaður félagasamtaka
þeirra sem hafa á stefnuskrá
hjúkrun gæludýra, einkum
hunda og katta, sagði að
gífurlegur fjöldi slíkra dýra
hefði fcngið meðhöndlun vegna
flóabits og óteljandi hefði orðið
að farga.
Víða í hverfum í London er
ástandið svo slæmt, að langir
biðlistar hafa hrannast upp þar
sem óskað er eftir hreinsunar-
mönnum í hús vegna þess að þar
er allt fullt af fló og meira að
segja urðu sérfróðir menn að
fara með tól sín og tæki um
þinghúsið að útrýma flóm þar
sem þær höfðu ráðizt á þing-
menn og bitið þá ótæpilega.
Um eitt þúsund verkamenn í
Suður-Wales gerðu verkfall og
kváðust ekki vinna í eina viku
því að á vinnustað væri ekki
flóafriður fyrir flóm.
Þá er talið að ástandið eigi
enn eftir að versna því að flær
verða fljótlega ónæmar fyrir
efnum sem notuð eru gegn þeim
og heimili með miðstöðvarhitun
og þykkum gólfteppum búa flóm
skínandi góð lífsskilyrði og geta
þær þá þrifist vel og lengi hvað
sem öllum atlögum gegn þeim
líður.
Myndin er frá flóðunum í Chaiyathym í Thailandi nú um helgina. í gær flæddi áin Chao Phya, sem rennur í
gegnum Bangkok,;yfir bakka sína. Ekki var vitað um manntjón en í norðurhluta landsins höfðu um 100
manns drukknað. I gær bárust og þær fréttir, að miklir stormar og rigningar hefðu herjað á Víetnam og
Filippseyjar og að æ fleiri væru sagðir látnir vegna flóða í Indlandi. A stórum svæðum í Suður og
Suðaustur-Asíu hafa því milljónir manna orðið að flýja heijmili sín og hrekjast um slyppir og snauðir og
bjargarlausir. Eigna- og uppskcrutjón er mjög mikið á þessum slóðum. Þá hafa allmargir dáið úr kóleru og
öðrum sjúkdómum sem upp hafa komið í kjölfar neyðarinnar sem hefur skapzt vegna flóða og hamfara.
Morðingj-
arnir
voru fjórir
Marsoillos — 9. oktúhor — Routor.
LÖGREGLAN hefur kom-
izt að raun um það að
fjórir vopnaðir menn með
grímur eigi sök á fjölda-
morðunum í krá einni í
úthverfi Marseilles á
þriðjudaginn var.
I fyrstu var talið að
morðingjarnir hefðu aðeins
verið þrír, en níu manns
létu lífið í skotárás þeirra í
kránni.
Þrír gestanna í kránni
lögðu á flótta þegar skot-
hríðin byrjaði, en einn
þeirra særðist svo illa að
ekki hefur verið hægt að
yfirheyra hann.
Síðan atburður þessi, sem
vakið hefur reiði og óhug,
átti sér stað hefur lögreglan
staðið fyrir tveimur áhlaup-
um á næturklúbba í
Marseilles.