Morgunblaðið - 18.10.1978, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1978.
5
Bifreiðarnar tvær. sem taldar eru ónýtar eftir hinn harða árekstur á
Flateyri. Ljósm. Jón P. Ásgeirsson.
Flateyri:
Þrír slösuðust í
hörðum árekstri
MJÖG HARÐUR árekstur varð á
Flateyri aðfararnótt sunnudagsins
8. október sl. Mustang-bifrcið var
þá ekið á kyrrstæða og mannlausa
bifreið af gerðinni Mercuri Mon-
arch. Þcyttist síðarnefnda bifreiðin
20—25 metra áður en hún stað-
næmdist á aðalgötunni.
Þrennt var í Mustang-bifreiðinni
og slösuðust allir. Ökumaðurinn var
fluttur á sjúkrahúsið á ísafirði og
sömuleiðis farþegi, sem sat við hlið
ökumanns. Farþeginn var síðan
fluttur með sjúkraflugi til Reykja-
víkur á gjörgæzludeild. Var hann
mikið slasaður, en mun nú vera úr
lífshættu. Þriðji maður slapp lítið
meiddur. Ökumaður er grunaður um
ölvun við akstur, en hann mun hafa
misst vald á bifreiðinni. Bifreiðarnar
eru taldar nær ónýtar.
Lögrelga og læknar frá ísafirði
komu fljótlega á vettvang eftir
áreksturinn og sömuleiðis læknir frá
Þingeyir. Þá má geta þess að
varðskipsmenn af Þór aðstoðuðu við
að flytja hina slösuðu íjúkraskýlið á
Flateyri.
r
Kosið vegna 1. des. í H.I.:
Vaka býður fram efnið „1984”
Hvað verður ekki bannað?
HÁSKÓLASTÚDENTAR ganga til 1. desember kosninga næstkomandi laugardag. í kosningunum verður
tckist á um hverjir sjá um hátíðarhöldin á fullveldisdaginn. 1. desember, í ár en kosið verður að loknum
kosningafundi í Sigtúni á laugardaginn og hefst að loknum framsögura'ðum kl. 14.30 og stendur í þrjá tíma
eða til 17.30. Vaka. félag lýðra’Aissinnaðra stúdenta býður nú fram undir kjörorðunum. „1984". Ilvað verður
ekki bannað? Verðandi. félag róttækra stúdenta býður fram undir kjiirorðinu. „Háskóli í auðvaldsþjóðfélagi."
Vaka segir í fréttatilkynningu að
ástæða þess að félagið bjóði nú
fram undir kjörorðinu „1984“. Hvað
verður ekki bannað? sé sú að
lýðræðissinnum finnist tími til
kominn að jafnt stúdentar sem
annað fólk, íhugi vandlega þá
stefnu, sem íslenzkt ríkisvald virð-
ist hafa tekið á undanförnum árum,
og skipti í því sambandi engu máli,
hvaða flokkar hafi setið við stjórn-
völinn, eins og segir í dreifibréfi frá
Vöku. Att er við hina vaxandi
áráttu stjórnenda að reyna að hafa
vit fyrir fólki og stjórna því með
boðum og bönnum.
Vökumönnum finnst í óefni stefnt
og í dreifibréfinu segir: „Þrátt fyrir
sífellt aukna menntun og alls kyns
fræðslu, sem ætla má að geri okkur
hæfari til að velja og hafna, þá er
farið með okkur eins og börn. Vaka
vill vara við þessari hættulegu
þróun og telur tímabært að staldra
aðeins við á 60 ára afmæli fullveld-
isins og íhuga hvort við séum á leið í
samfélag Stóra bróður.
„1984“ er titillinn á frægri bók
eftir George Orwell. I sögu hans
kemur fram svartsýn spá um
framtíð mannsins. Orwell óttast
það, að drottnunargirni mannsins
nái slíkum heljartökum á ríkiskerf-
um heimsins að hvergi verði frelsi
fyrir frelsisunnendur."
Verðandi félag róttækra stúdenta
í Háskólanum.hefur undanfarin ár
séð um hátíðardagskrána 1. desem-
ber.
Stór ástæða fyrir sigri þeirra
undanfarin ár, segja Vökumenn, að
sé mjög óhagstætt kosningafyrir-
komulag og léleg kjörsókn — eða
innan við 30% af Háskólastúdent-
um. yaka hefur undanfarin ár reynt
að fá kosningafyrirkomulaginu
breytt og nú í ár stendur kosningin í
þrjá tíma í stað tveggja klukku-
stunda eins og var síðastiiðið ár.
Kosið verður á kosningafundi í
Sigtúni á laugardaginn 21. október
og hefjast framsöguræður kl. 13.30,
en kosning kl. 14.30 að framsögu-
ræðum loknum.
Framboðslista Vöku, félags lýð-
ræðissinnaðra stúdenta skipa: Hild-
ur Sverrisdóttir, lagadeild, Gunn-
laugur Sævar Gunnlaugsson laga-
I DAG kl. 15.30 varð harður
árekstur tveggja bfla framan við
útibú Kaupfélags Þingeyinga í
Reykjahlíð. Þar bakkaði Land-
rover þvert í veg fyrir stóran
flutningabfl sem var á Norður-
leið. í jeppanum voru þrír farþeg-
ar auk iikumanns. en við
áreksturinn kastaðist farþegi í
framsæti út úr bflnum. Strax var
beðið um sjúkrabfl og lækni frá
Húsavík.
Ákveðið var eftir að læknir var
kominn að fá flugvél og fl.vtja tvo
þá slösuðu til Reykjavíkur, en einn
á sjúkrahúsið á Húsavík. Land-
rover-jeppinn er mjög illa farinn,
en lítið sér á flutningabílnum. í
honum var aðeins ökumaðurinn.
deild, Kristján Hjaltason, við-
skiptadeild, Inga Arnardóttir
læknadeild, Sigurður Sigurðsson,
lagadeild, Kjartan Gunnar Kjart-
ansson, heimspekideild og Tryggvi
Jónsson, viðskiptadeild.
Framboðslista Verðandi, félags
róttækra stúdenta skipa: Anna Th.
Gunnarsdóttir, lagadeild, Eggert
Eggertsson, lyfjafræði, Einar Páll
Svavarsson, félagsvísindadeild,
Guðmundur Hálfdánarson, heim-
spekideild, Oddríður Þorsteinsdótt-
ir félagsvísindadeild, Sigrún Guð-
mundsdóttir, heimspekideild og ír
Logadóttir, læknisfræðideild.
Þar sem þessi árekstur átti ser
stað er nánast ófært að hafa
bílastæði og eftir því sem bílarnir
eru þar fleiri er hættan meiri.
Sýnist nú vera tímabært að banna
allar bílastöður framan við
verzlunarhúsið, en koma þess í
stað upp bílastæði þar sem hentar
betur.
I dag hefur sjálfvirki síminn hér
verið óvirkur er bilun varð í
sjálfvirku stöðinni í Reykjahlíð i
morgun. Komst síminn ekki í lag
fyrr en kl. 16,30. Varð að fá
viðgerðarmann frá Akureyri. Slík-
ar bilanir koma sér ákaflega illa,
ekki sízt þegar slys ber að höndum
eins og hér varð í dag.
— Kristján.
Slösuðust í hörðum
árekstri við Mývatn
Björk Mývatnssveit 16. okt.
Klæðist eftir vetrartískunni
— fyrsta vetrardag. Æ&
:
Austurstræti ^snni: 27211
Siejtgnei.