Morgunblaðið - 23.11.1978, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1978
11
WWMMHMi
hpi V- v*
’ ‘•1 ' " • V • ,i ,
Marta Haraldsdóttir, Jón Sveinsdóttir. Aslaug Bergsteinsdóttir og Árni Olafsson í hlutverkum sínum.
Leikfélají Keflavíkurj
Tobacco Road eftir Erskine Cald-
well
Leikstjórii Þórir Steingrímsson
Leikmyndi Steinþór Sigurðsson.
Leikfélag Keflavíkur hefur
starfað nokkuð lengi og hefur sett
upp ýmis góð leikrit eftir innlenda
og erlenda höfunda. Nú hefur það
ráðist í Tobacco Road eftir
Erskine Caldwell. Þar er dregin
upp sterk mynd af lífi hinna
fátækustu og verzt settu í Suður-
ríkjum Bandaríkjanna á kreppu-
árunum.
I þessari sýningu Leikfélags
Keflavíkur fer Áslaug Bergsteins-
dóttir með aðalkvenhlutverkið,
Ödu konu Jeeters, og gerir því
afbragðs góð skil með skilnings-
ríkum og næmum leik. Á móti
henni leikur einn af elstu og
reyndustu leikurum félagsins,
Árni Ólafsson. Túlkun hans er að
mörgu leyti góð, þó finnst manni
að hann mætti á köflum vera enn
letilegri. Yngsta son þeirra hjóna
leikur Gísli Gunnarsson og stend-
ur sig vel að því undanskildu að
honum bregst að nokkru að sýna
karlmennsku í skiptum sínum við
trúboðann. Það hlutverk lék Þór-
dís Þormóðsdóttir mjög létt og
skemmtilega. Tengdason þeirra
hjóna og dóttur léku Jón Sveinsson
og Martha Haraldsdóttir. Má
segja að sumar senur þeirra hafi
verið einna átakamestar og djarf-
astar í leikritinu, sem þau náðu að
túlka líkast því sem höfundurinn
sennilega ætlast til. Góða barnið í
verkinu var Margrét Benedikts-
dóttir í hlutverki Pearl. Hlutverk-
ið er vandmeðfarið en kom furðu
vel fram. Enn á ný breytir
Ingibjörg Hafliðadóttir um gervi.
Að þessu sinni býður hlutverk
hennar upp á látbragðsleik og má
sannarlega segja að þar sé réttur
maður á réttum stað.
Með minni hlutverk fara Jón
Sigurðsson sem. gjaldþrota stór-
bóndi og Steinar Geirdal sem
bankafulltrúi og loks Hilmar
Jónsson sem bóndi og nágranni
Jeeters. Hlutverk þeirra tveggja
fyrst nefndu er hlutverk valdsins
og kemur það vel fram hjá
Steinari og Jóni, nágranninn
kemur aftur á móti ekki mikið við
sögu en innkoma Hilmars er
hressileg og lífgar upp á umhverf-
ið.
Augljóst er að hér hefur verið að
verki góður og glöggskyggn leik-
stjóri, Þórir Steingrímsson, sem
mjög hefur vandað til sýningar-
innar. Leikmynd er gerð af Stein-
þóri Sigurðssyni. Hún er skemmti-
leg og ljósaskiptingar góðar. Allt
þetta gefur sýningunni sterkan og*
dramatískan blæ. Undirritaður
hafði mikla ánægju af sýningunni
og þakkar öllum sem að henni hafa
staðið.
Óskar Jónsson.
979
NORDUIENDE
Mest seldu sjónvorp á Islandi.
Hvers vegna?
nordíTIende
V-Þýzk gæöavara.
Þaö hefur synt sig aö Isiendingar eru vandlátir, vanda valiö og velja NordMende.
Okkur er þaö anægja aö kynna yður argerö 1979. Sjaldan hefur tæknin þjonaö manninum jafn
dyggílega. Ein mesta byltingin á árgerö 1979 er nýr myndlampi PIL (precicion in-line> sjálfvirk
samhæfing á lit, sem gefur miklu skarpari mynd en áöur þekktist, jafnvel þó bjart sé inni.
V^BUOIN
Skípholti 19, sími 29800
Tobacco Road
í Keflavík