Morgunblaðið - 23.11.1978, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.11.1978, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1978 Svcrrir Ellcrt P4H Árni Eióur Gunnlauvcur Neðri deild Alþingis í gær: Finnur Torfi Garðar Vilmundur Hver á að ákvarða um launakjör þingmanna? Kjaradómur eða Alþingi? FUNDIR voru í báðum deildum Alþingis í gær. f eíri deild urðu umræður um tvö mál, félagsmálaskóla alþýðu og leiklistarlög, og iauk hvorugri umræðunni. í neðri deild fór allur dagfundurinn í að ræða þingfararkaup alþingismanna, frumvarp Vilmundar Gylfasonar og Eiðs Guðnasonar þess efnis að launakjör þingmanna skuli ákvarðast aí kjaradómi. Þær umræður verða lítillega og í örstuttu máli raktar hcr á eftir. Gamall draugur, sama sœringarþulan Sverrir Hermannsson (S) sagði m.a. — í framhaldsumræðu um þetta mál — að hér væri á ferð gamall draugur og sama særingar- þulan sem fyrr. Hún ætti rætur í fjölmiðlaumræðu, ekki haldgóðri. Laun alþingismanna væru þegar ákveðin af kjaradómi, þar eð þingmenn tækju laun skv. 3ja hæsta launaflokki ríkisins. Þeir hefðu aö vísu áður ákveðið að svo skyldi vera. — Þingfararkaups- nefnd fer aðeins með önnur kjör þingmanna. Gera verður skörp skil hér á milli. Eg er hins vegar alfarið fylgjandi því að Alþingi taki ákvörðun um kaup og kjör þingmanna alfarið í eigin hendur. Hinsvegar tel ég rétt að taka upp framtalsskyldu á öllum greiðslum þingmanna, hvort sem skattskyld- ar eru eða ekki, sagði Sverrir Hermannsson. Höfundarréttur og tilgangur Ellert B. Schram (S) sagði þetta frumvarp áður flutt af sér og Gylfa Þ. Gíslasyni (A) og væri hann höfundur þess. Hann ætti því höfundarrétt að þeim frumvarps- texta, sem núverandi flutnings- menn hefðu tekið traustartaki og gert að sínum. Hins vegar hefði hann hvergi nærri komið núver- andi greinargerð með frumvarp- inu, sem væri fleytifull af stað- leysum. Eins og þegar tæpt væri á getsökum um skattsvik þing- manna. Skoraði hann á Vilmund Gylfason að færa rök fyrir þessum áburði í þessari umræðu, ella yrði að líta orð hans sem markleysu. E. Sch. taldi rétt að kjaradómur, sem þegar kvæði á um kaup og kjör ýmissa ríkisstarfsmanna og væri hlutlaus dómur, ákvarðaði um launakjör þingmanna. Rétt væri að reyna þá meðferð mála. Tvær máltíöir á dag Páll Pétursson (F) sagði m.a. að kjaradómur myndi efalítið líta störf þingmanna stærri augum en gert væri af þingfararkaupsnefnd. Hann myndi t.d. bera kjör þeirra saman við aðra, t.d. blaðamenn, bankamenn eða aðra pótintáta þjóðfélagsins, og bæta þau þar af leiðandi. Þingmenn fengju þá tvær máltíðir á dag, eins og sumir aðrir ríkisstarfsmenn og bifreiðakostn- að í samræmi við þá. Annars sagði Páll vel fara á því að þessi mál yrðu með sama hætti og verið hefði. Hann sæi því ekki ástæðu til að styðja þetta frumvarp. Alþingi ætti að ganga á undan öðrum í þessu þjóðfélagi með góðu for- dæmi, hógværð og lítillæti. Störf og laun Þingmanns Árni Gunnarsson (A) sagði kjarnann í þessa umræðu vanta, þann, að þingmenn gætu lifað af launum sínum; að þingmannsstarf væri ekki aðeins á fææri efna- manna. Léleg þingmannslaun byðu heim ýmsum hættum. Rétt væri að hafa viðmiðun við embættismenn ríkisins, t.d. ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra Alþingis, er nytu hærri launa. Þá vakti ÁG athygli á margþættum kostnaði þingmanna, er byggju í strjálbýli, uffffram Reykjavíkurþingmenn, og tíundaði ferðakostnað sinn um Norður- landeystra fyrir síðustu Alþingis- kosningar því til sönnunar. Viku- ferð hefði kostað sig rúmar 100 þúsund krónur. Þótt vel hafi verið á haldið. Ekki væri nema sann- gjarnt að kostnaður, er til félli vegna þingmannsstarfa, væri endurgreiddur á sannvirði. Gagnrýnin á Þingmannskjör Eiður Guðnason (A) sagði gagn- rýni á kjör eða kjaraákvörðun þingmanna hafa verið tvíþætta. Annars vegar að þingmenn ákvörðuðu um laun sín sjálfir — hins vegar skattahlið málsins. Þingmenn hefðu til skamms tíma tekið laun skv. 3ja hæsta taxta BSRB. Þeir hefðu sjálfir tekið ákvörðun um færa sig yfir í 3ja hæsta taxta BHM, sem hafi verið þeim í vil. Það væri ekkert valdaafsal í því fólgið, sagði EG, þó að hlutlaus dómur, sem ákvarð- aði um laun ýmissa aðila, fjallaði um launakjör þingmanna. Sumir gagnrýndu þá meðferð vegna þess, að þá myndu laun þingmanna hækka. — Ekki hef ég áhyggjur af hugsanlegu örlæti kjaradóms, það er ekki reynsla annarra af störfum hans. Ef örlætið gengur hins vegar úr hófi, á Alþingi alltaf þann kost, að breyta aftur til í gamla horfið, sagði Eiður Guðnason. Efnalegt sjálfstæöi Þingmanna Gunnlaugur Stefánsson (A) sagði að laun þingmanna ættu að vera það há, að efnalegt sjálfstæði þeirra væri tryggt. — Hins vegar eru kjör þingmanna viðuna andi þó þau þoli ekki samanburð við hátekjumenn í þjóðfélaginu. Þetta ætti að vekja áhuga þingmanna á Fram var lagt á Alþingi í gær stjórnarfrumvarp til staðfesting- ar á bráðabirgðalögum um al- mannatryggingar, sem fyrri ríkisstjórn gaf út, 30. júní 1978, að frumkvæði fv. tryggingamála- ráðherra, Matthíasar Bjarnason- ar. Þessi bráðabirgðalög voru gefin út í samræmi við samkomulag, sem gert var samhliða kjarasamn- ingum 22. júní 1977, þann veg að hækkun lífeyrisgreiðslna sem launajöfnuði. Vék GSt þar m.a. að ráðuneytisstjórum, sem hvorki væru í BSRB- né BHM-flokkum, heldur sérstökum „stjörnuflokki". GSt sagði þingið geta breytt til á ný, ef kjaradómur reyndist illa, eða sú málsmeðferð. Hins vegar kynni það að vísu að líta skrítilega út, að Alþingi væri að vísa frá sér ákvörðun um kjör þingmanna, á sama tíma og það lægi í loftinu að það þyrfti að fara „krukka í kjarasamninga" annarra. Þá sagði hann að strjálbýlis- þingmenn ættu að búa að hærri ferða- og bifreiðagreiðslum en þingmenn á höfuðborgarsvæði. Hins vegar væri óeðlilegt að strjálsbýlisþingmaður, sem fengi húsnæðispeninga í Reykjavík, fengi jafnframt sérstaka fæðis- peninga. Afsölun valds og áhrifa Finnur Torfi Stefánsson (A) sagði virðingu og valdi Alþingis hafa hrakað. Alþingi hefur „selt vald sitt til annarra", mikilvægar ákvarðanir eru teknar í skúma- skotum, þ.e. embættismannakerf- inu. Þetta er slæm þróun. Ég er því andvígur þessu frumvarpi af „prinsippástæðum" og það gengur gegn þeim sjónarmiðum að efla virðingu þingsins og halda málum MORGUNBLAÐINU hafa borizt eftirfarandi yfirlýsingar frá stjórn Taflfélags Reykjavíkur og stjórn Taflfélags Kópavogsi „Vegna þeirra umræðna, sem orðið hafa í fjölmiðlum í sambandi við för skákmanna á Ólympíu- skákmótið og FIDE-þingið í Ar- gentínu, óskar stjórn Taflfélags Reykjavíkur að koma eftirfarandi á framfæri: Stjórn Taflfélags Reykjavíkur sér ástæðu til að þakka stjórn Skáksambands íslands gifturík störf að kjöri frambjóðanda sam- bandsins sem forseta FIDE, og leiddi af því samkomulagi, valdi ekki lækkun tekjutryggingar- greiðslna frá almannatryggingum. Efnisatriði bráðabirgðalaganna var það að fjárhæðir annarra árstekna lífeyrisþega en lífeyris almannatrygginga (reiknaðrar leigu ef eigin húsnæði og tekna barna), sem ekki skerðir rétt til uppbótar á lífeyri (tekjutrygging- ar), megi verá kr. 397.000 hjá einstaklingum og 415.800 hjá hjónum. í dagsljósinu. Ég tel mikilvægt að Alþingi haldi þessu valdi. Langar umræöur um lítið mál Garðar Sigurðsson (Abl), form. þingfararkaupsnefndar, taldi of mikið sagt um of lítið mál. Efnisatriðið væri aðeins eitt: að ákveðin stofnun ákvarði laun og kjör þingmanna. En skýrt væri tekið fram í frv. að það verði gert að fengnum tillögum þingfarar- kaupsnefndar. Ég sé því ekki að breytingin verði stór. GS sagðist andvígur frumvarpinu. Meirimáttar og minnimáttar Vilmundur Gylfason (A) sagði suma þingmenn mæla svo sem hinir meiriháttar, fólkið á götunni, hafi ráðist að hinum minnimáttar: 60 þingmönnum. Ennþá vantaði skýringu á fráhvarfi frá BSRB-viðmiðun þingmanna til BMH-viðmiðunar. Hér væri ekki. um valdaafsal að ræða. Og mál þyrftu að vera fyrir opnum tjöld- um þó að kjaradómur fengi umrætt ákvörðunarvald. VG sagði að laun þingmanna þyrftu að vera góð og útlagður kostnaður að vera rétt metinn. Umræðunni lauk ekki og ráð- gerður var kvöldfundur í gær- kveldi. einnig vill stjórn T.R. óska Frið- riki Ólafssyni til hamingju með glæsilegan sigur. Sérstaklega ber að þakka þeim Einari S. Einarssyni, forsefa S.Í., og Högna Torfasyni, varaforseta S.Í., án þess að á nokkurn sé hallað, fyrir mikla og óeigingjarna vinnu í meira en hálft annað ár að umræddu forseta kjöri, sem borið hefur góðan árangur og er í samræmi við önnur störf þeirra fyrir íslenska skákhreyfingu á undanförnum árum. Ber því að harma þau leiðindaatvik og leið- indaskrif, sem orðið hafa um kosningu gjaldkera FIDE. Það er að dómi stjórnar T.R. alvarlegur hlutur, þegar komið er þannig fram við menn, sem starfað hafa í stjórnun áhugamannasamtaka til að láta gott af sér leiða eins og við á um áður nefnda stjórnarmenn Skáksambands íslands." „Taflfélag Kópavogs fagnar hinu ánægjulega kjöri Friðriks Ólafssonar sem forseta FIDE og fylgja honum innilegar hamingju- óskir um farsælt og heillaríkt starf á komandi árum. Jafnframt vill Taflfélag Kópa- vogs þakka Skáksambandi íslands fyrir ötult og fórnfúst starf sl. hálft annað ár, er tvímælalaust hefur átt drýgstan þátt í þessum glæsilega árangri. T.K. vill lýsa eindregnum stuðningi sínum við S.Í., og þakkar stjórn og forseta S.Í., Einari S. Einarssyni, giftu- samleg málalok." Láttu ekki bílinn þinn standa úti í roki og rigningu eöa fenna í kaf — EF ÞÚ ÆTLAR AÐ SELJA HANN Viö höfum nóg pláss fyrir 100 bíla í björtum og hlýjum sal — og viö geymum þá viöskiptavinum okkar aö kostnaöarlausu. Bíllinn þinn selst hjá okkur ef þú kemur meö hann. Opiö 9-7 einnig á laugardögum. /v í Sýningahöllinni v/ Bíldshöföa I Sýningahöllinni v/ Bfldshöföa sími81199 og 814T0. Almannatryggingar: Staðfesting á bráða- birgðalögum frá í júní Stjórnir TR og TK: Fagna kjöri Friðriks og þakka stjórn S.í. störf að framboðinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.